Morgunblaðið - 25.10.1962, Blaðsíða 1
24 slður
Sá sem ætiar ti! Kúbu sé viöbúinn að
berjast
segir
Castró
Hvar eru rúss-
nesku skipin?
I>að var klukkan tvö í dag, (að
íslenzkum tíma) sem til fram-
kvæmda kom bann Bandaríkja-
s.jórnar á alla vopnaflutningra
til Kúbu. Voru tugir skipa til
reiðu að mæta skipum er þang-
að kæmu en ekki hefur dregið til
tiðinda. Bendir ýmislegt til þess,
að nokkur hinna 25 rússnesku
skipa, er voru á leið til Kúbu
— hafi tekið aðra stefnu. Er ekki
talið ólíklegt, að Rússar vilji
fresta því að þröngva þeim gegn-
um hindranir Bandaríkjamanna
og vinna tíma til frekari um-
hugsunar um næsta leik
Kennedy, forseti gaf í dag út
saipun til sjóhersins um að beitt
skyldi minnsta mögulega valdi
Enn rót-
tækari
aðgerðir?
TALSMAÐUR yfirstjórn-
ar Bandaríkjahers í Pent-
agon upplýsti í gærkveldi,
að Bandaríkjastjórn kynni
e.t.v. að neyðast til að grípa
til enn róttækari aðgerða
til þess að fjarlægja eld-
flaugastöðvarnar á Kúbu.
í fréttaskeyti frá AP í gær
kveldi var fjallað um þann
möguleika að Bandaríkja-
stjórn kunni að gera beina
árás á eldflaugastöðvarn-
ar á Kúbu til að eyða þeim.
Spurningum þar að lút-
| andi, svaraði talsmaður
| Pentagon þannig, að því er
| segir í frétt AP: — „Við
munum beita hverjum
þeim ráðum, sem nauðsyn
leg reynast, til þess að fjar
lægja þessar stöðvar.“
■ og því aðeins, að skip neit-
uðu að leyfa skoðun farms síns
— en þó skyldu gerðar allar þær
ráðstafanir, er nauðsynlegar
reyndust, til þess að framfylgja
ákvörðun stjórnarinnar.
9 Ráðstefna 19 ríkja Suður-
og Mið-Ameríku samþykkti ein-
róma i gær, að styðja fyrirætlun
Bandaríkjastjómar. Hefur hvert
ríkið á fætur öðru boðið fram
hernaðaraðstoð.
Bandaríska utanríkisráðu-
neytið vísaði eindregið á bug
þeirri hugmynd í dag, að Banda-
ríkin legðu niður nokkrar af
herstöðvum sínum gegn því, að
Rússar færu frá Kúbu.
• í dag ræddi Harold Macmill-
an forsætisráðh. Breta við David
Bruce, sendiherra USA i London
Herma óstaðfeltar fregnir, að
MacmiIIan .nuni e.t.v. fljúga til
Washington innan skanuns en
stjórnarandstaðan brezka mun
hafa lágt að honum að gera svo.
Segja sömu -fregnir, að Bretar
muni hvetja til beinna samninga
viðræðna Rússa og Bandaríkja-
manna hið allra fyrsta. Þá ber-
ast þær fregnir frá Holy Loch,
að kafbátar er þar höfðu bæki-
stöð hafi lagt frá landi í dag og
óupplýst hvert ferð þeirra var
heitið..
Fjallað er um Kúbunválið í
ritstjómargrein Moskvublaðsins
Isvestija í dag og segja stjórn-
nvUafréttaritarar þar, að orða-
lag greinarinnar sé með þeim
hætti að teljast megi vísbending
um að Krúsjeff vilji forða þvi
að ástandið við Kúbu versni
meira en orðið er.
Bækistöðvar Rússa á Kúbu
Morgunblaðið birtir í dag tvær af 14 myndum, sem Bandaríkjastjórn
hefur látið birta frá Kúbu, og vaki5 hafa heimsathygli. — Myndirnar
eru teknar úr lofti yfir Kúbu, og sýna herstöðvar Rússa þar. Mbl. fékk
myndirnar símsendar frá London í gærkvöld (sjá fleiri myndir á blað-
síðu 23).
Textinn, sem fylgir myndinni
er á þessa leið: „AP, 23. okt.
Bandaríska sendiráðið í Lond
on birti í kvöld þessa mynd,
með eftirfarandi texta: „Flug
völlur á Kúbu. Myndin sýnir
IL-28 sprengjuþotur, sem flog
ið geta til og frá skotmarki í
allt að 2000 mílna (rúml. 3200
km) fjarlægð. 21 flugvél sést
á myndinni, 17 í kössum““. —
Litla myndin, neðst til vinstri
sýnir greinilega 17 flugvéla-
kassa, 3 skrokka og eina or-
ustuþotu. — „SAM Site“: —
Skotstaður varnarflauga
(gegn flugvélum) af SA-gerð.
„Munum ekki rasa um ráð fram“
— segir Krúsjeff, forsætisráðherra Sovétríkjanna
London, 24. okt. —
AP —- NTB — Reuter
• Nikita Krúséff, forsætis-
ráðherra Sovétríkjanna, hef-
ur lýst því yfir, að hann telji
að gagnlegt geti verið að efna
til fundar æðstu manna stór-
veldanna um deiluna um
Kúbu. Kveðst hann fús að
taka þátt í slíkum fundi.
• Krúséff segir, að hann og
stjórn hans muni ekki að
neinu leyti rasa um ráð fram
í gagnráðstöfunum vegnft
hins „ólöglega hafnbanns
Bandaríkjastjórnar,“ heldur
muni hann gera allt sem í
hans valdi standi til þess að
hindra að til styrjaldar komi.
• Segir hann ennfremur að
Bandaríkjastjórn væri réttast
að lægja öldurnar og hætta
við þá ákvörðun sína að
stunda sjórán, því það geti
haft hinar hættulegustu af-
leiðingar.
Yfirlýsing sovézka forsætisráð-
herrans, sem birt var af Tass-
fréttastofunni og lesin í Moskvu-
útvarpið, er sögð svar við sím-
skeyti, er brezki lávarðurinn og
heimspekingurinn, Bertrand Russ
el sendi Krúsjeff vegna deilunn-
ar.um Kúbu. Krúsjeff segir þar
ennfremur, að haldi Bandaríkja-
stjórn fast við fyrirhugaðar áætl-
anir um „sjórán“ á alþjóðlegum
siglingaleiðum, verði Sovétstjórn
in að gera einhverjar ráðstafan-
ir til varnar. Bætir Krúsjeff því
við, að svo fremi sem ekki verði
gripið til kjarnorkuvopna, verði
hægt að forðast styrjöld.
Krúsjeff segir enn, að haldi
Bandaríkjastjórn áfram að brjóta
alþjóðleg lög og reglur sé hætta
á því, að deiluaðilar missi stjóm-
ina á þessu hættulega ástandi og
það leiði áður en vari til styrj-
aldar með þeim ægilegu afleið-
ingum sem hún myndi hafa fyrir
aliar þjóðir heims. Heimurinn
krefjist þess af stórveldunum, að
þau geri þær ráðstafanir, er komi
í veg fyrir eyðingu mannkynsins.
Að lokum segir Krúsjeff: „Enn
er mögulegt að koma á fundi
æðstu manna, en hefji Banda-
xíkjamenn árás áður, verður óger
legt og gagnslaust að halda slik-
an-fund“.
24. október. — AP — NTB — Reuter
• í sjónvarpræðu, sem Fidel Castro, forsætisráðherra Kúbu,
fiutti seint í gærkvöldi, fordæmdi hann ákvörðun Bandaríkja-
stjórnar um að setja algert bann á vopnaflutninga til landsins.
Kallaði hann Kennedy, forseta, sjóræningja og sagði stjórn Kúbu
hafa gert nauðsynlegar ráðstafanir til þess að mæta aðgerðum
hans. — „Við Vitum, hvernig' við eigum að verja okkur“, sagði
Castro, „og höfum gert ráðstafanir til þess að mæta og brjóta á
bak aftur allar árásaraðgerðir af hálfu Bandaríkjanna“. Castro
vísaði með öllu á bug þeirri hugmynd, að nefnd hlutlausra ríkja
fari til Kúbu og Stynni sér hvernig málum sé þar háttað. Kvaðst
hann ekki mundu hleypa einni né neinni nefnd inn í land sitt og
sagði: „Hver sem ætlar sér að koma til Kúbu ætti að vera við því
buinn að berjast“.