Morgunblaðið - 23.11.1962, Blaðsíða 16
16
MORCVNBLAÐ1Ð
Föstudagur 23. nóv. 1962
*
*
-K—X
x
X
og olíulindir. Er því eðlilegt að
þungaiðnaður auikist á þessu
svæði.
• Flóttamenn.
Flóttamenn frá Pakistan og
aðrir veglausir menn flykkjast
til Kalkútta í þúsundatali.
Sumir afla sér lífsviðurværis
með því að draga tvíhjóla far-
þegavagna, en 90 þús. slíkir vagn
ar eru í borginni, aðrir draga
vöruvagna eða eru svo lánsamir
að fá fasta vinnu, þeir sem enga
vinnu fá láta annaðhvort þar við
sitja eða betla. Margir sofa í
vögnum sínum, kofum, sem þeir
— >f — >f — >f>f — >f —
INDVERJAR eiga n;ú við mikla
örðugleika að etja vegna innrás
ar Kínverja inn í landið. Áður
en til innrásarinnar kom steðj-
uðu mörg vandamál að Indverj
um. heima fyrir og verður lítið
hægt að bæta úr þeim meðan
þjóðin þarf að leggja sig allan
fram til að verjast sókn Kín-
verja og eyða miklu fé í herkostn
að.
Fréttaritari bandaríska viku-
blaðsins „U. S. News & World
Report* Sol W. Sanders, sem
staddur var I Kalkútta, stærstu
borg Indlands í haust — áður en
bardagar Kínverja og Indverja
hófust — skrifaði grein í blað
sitt um borgina. Segir hann, að
nægilegt sé að virða hana fyrir
sér til að fá nokkra hugmynd um
þau vandamál, er steðja að Ind-
verjum heima fyrir. Við birtum
hér grein hans í lauslegri þýð-
ingu.
•
Kalkútta, stærsta bong Ind-
lands, hefur verið í stöðugxi aft-
urför undanfarin ár. Borgin er
hrjáð af sjúkdómum, óhreinind-
um, lögleysu og efnahagslegri
spillingu. Hefur mörgum þótt
borgin táknræn fyrir það verk
efni, sem bíður alls Indlands í
'baráttunni fyrir því að verða
þróað land á nútíma mæli-
kvarða.
Þessi fjölmennasta borg lands
ins er mikilvæg iðnaðarborg. Þar
búa um 6 milljónir manna, meiri
íhlutinn í þröngum og ófullnægj
andi húsakynnum. Til þessa hef
ur öll aðstoð, sem aðrar þjóðir
A aðalgötu Kalkútta, Chowringhee, snýr borgin sinni beztu hlið að vegfarendum.
stærsta borg Indlands
MARTRÖÐ
Trúaðir baða sig í Hoogly-ánni,
en í hana rennur vatn úr Ganges
sem er heiiagt fljót.
(hafa veitt Indverjum, og tilraun
ir ríkisstjórnarinnar til umbóta
ekki megnað að stöðva afturför
ina í borginni.
Ef þú býrð í Kalkútta verður
Iþú að venjast óhreinindum og
mátt ekki láta þér bregða, þó
að í brýnu slái á götunum" sagði
(bandarískur verzlunarmaður, er
Iþúsettur er í borginni. Orðum
Sínum til sönnunar skýrði hann
frá því, að fyrir nokkrum dögum
Ihefði komið til uppþots í einu
af mestu umferðahverfum borg
arinnair. Stóð uppþotið í átta
klukkusundir. Áttatíu menn, þar
é meðat 60 lögregluþjónar, særð
ust, rúmlega 200 menn voru hand
teknir, strætisvagnar, lögreglu-
(bifreiðir, og önnur ökutæki voru
eyðilögð og margar fjölskyldur
urðu að flýja heimili sín, vegna
þess að kveikt hafði verið í hrör
legum húsunum.
Hvers vegna varð uppþotið
Það komst upp, að námsmaður
hafði tekið sér far með strætis-
vagni án þess að borga.
• Fátækrahverfi.
í Kalikútta er mikill fjöldi fá-
tækrahverfa. Ef gengið er um
eitt þessara hverfa tekur ekki
langan tíma að skilja, hvers
vegna Nehru forsætisráðherra
Indlands segir, að borgin sé mar
tröð líkust.
Ég gekk um fátækrahverfi, er
kallast Garður Litohi í fylgd með
embættismanni verkalýðsfélags.
Leið okkar lá um þröngar dimm
ar götur, svo þröngar, að við gát
um varla gengið hlið við hlið.
Undir fótum okkar var mold
rusl, kúamykja og annar óþverri
Við lituðumst um í húsagaroi um
girtum litlum gluggalausum hús
um með moldargólfum. Fólkið,
sem þarna býr fær drykkjar-
vatn úr óhreymum brunnum og
fylgdarmaður minn sagði mér,
að þrátt fyrir ítrekuð tilmæli
væru aðeins örfáir, sem fengjust
til að sjóða vatnið.
Ekki eykur það á heilnæmi
vatnsins, að nálægt hverjum
brunni er sorpgryfja. Er það
hlutverk lægstu stéttar Indlands
að hreinsa þær, en sumar gryfj
ur eru látnar afskiptalausar vik
um og jafnvel mánuðum saman.
Nokkrir unglingar koma út úr
kofum, sem umgirtu húsagarð-
inn þar sem við vorum staddir.
Þeir horfðu forvitnislega á út-
lendinginn og hrópuðu: „Lengi
lifi rauði fáninn“ og „Kommún-
istaflokkurinn sigri“.
í húsagarðinum höfðu margir
fullorðnir lagt sig undir berum
himni. Nokkrir þeirra vöknuðu
við hróp unglinganna og ég tók
þá tali. Sumir sögðust vinna í
spunaverksmiðju og fá sem svaT
aði 10 dollurum — 140 ísl. kr. —•
í kaup á mánuði. Þeir sögðu mér
frá kólerufaraldrinum sem kom
ið hafði upp í KaKkútta í sum-
ar og fannst mikið mildi að að-
eins 500 menn hefðu látið lífið í
honum.
• Mikilvæg borg.
Örlög Kalkútta eru talin
mikilvæg framtíð Indlands. Borg
in er helzta iðnaðar- og verzlun
armiðstöð landsins og um helm-
ingur allra útflutnings- og inn-
flutningsvara fer um höfn henn
ar. Um 20 prósent af öllum fram
leiðslu'vörum Indlands koma frá
Kalkútta og flest viðskiptafyrir-
tæki þjóðarinnar hafa þar höf-
uðstöðvar.
Öll hin þrjú nýju stáliðjuver
stjórnarinnar, eru í nágrenni borg
arinnar og auk þess kolanámur
hrófla sér upp, eða á gangstétt-
um, þar sem 30 þús, heilagar kýr
ganga sjálfala .
Þessar kýr, sem ráfa um göt-
urnar eru mikið vandamál í Kal
kútta. Þær eru heilög dýr. Ekki
má stugga við þeim t.d. þegar
þær leggjast fyrir á umferðar-
götum, og alls ekki drepa þær
þó að þær séu alveg gagnslausar
Kýrnar láta fyrir berast á stræt
unum og fólkið, sem varla hefur
til hnífs og skeiðar, gefur þeim
að éta.
Kýrnar skapa oft öngþveiti í
umferðinni, bera sjúkdóma og
komið hefur fyrir að mannýg
naut verði friðsömum vegfarend
um að bana.
Það eru ekki aðeins flóttamenn
og hinir fátækustu íbúar Kal-
bútta, sem eigi við þröngan kost
að búa í einu herbergi.
• Úr ölluin áttum.
Ef staðið er á horni umferð
argötu í Kalkútta má sjá Ind-
verja af öllum stéttum og frá
öllum landshlutiun ganga fram-
hjá. Skáeygða menn frá Bengal
með lendarklæði, konur með
blæjur fyrir andlitinu, Sikhs-
búa með vefjarhetti og alskegg,
indverska konu O'g brezikan eigin
mann hennar, sem láta regnhlíf
skýla sér fyrir sólinni. Leiguhif
reiðastjórar aka eftir götunum
með ofsahraða og milljónamær-
ingar í gljáandi bifreiðum af nýj
ustu gerð aka til musteranna, þar
sem hinum heilögu kúm er gefið
f hinum glæsilegri næturklúbb
um Kalkútta má sjá brezka em
bættismenn, frá bví að Indland
var nýlenda Breta. Og sé gengið
að morgni dags niður að Hoogly
ánni, sem fær vatn úr Ganges,
hinu ‘heilaga fljóti, sjást þar safn
ast saman ríkir ng fátækir, heil-
agir menn og syndaselir sem
baða sig allir í hinni kolmó-
rauðu á.
• Strið og hungur.
Kalkútta var stofnuð árið
1690 sem brezk verzlunarmið-
stöð. Borgin á sér langa sögu,
óeirða, drepsótta, góðæra og
hallæra. Vinnan, sem þar var
hæigt að fá, varð til þess að fól'k
streymdi þangað frá fátækum
héruðum. Þessi mikli fólksstraum
ur olli því að lífskjörin versnuðu.
í síðari heimsstyrjöldinni var
mikil hungursneyð í barginni og
lézt að minnsta kosti ein og hálf
milljón manna úr hungri.
1'947—48 geisuðu blóðugir bar-
'dagar Bramatrúarmanna og Mú-
hameðstrúarmanna, og fólk
var höggvið til bana á götum
Kalkútta. Stríðinu lauk með þvi
að Bengal var skipt milli Ind-
lands og Pakistan. Við það sköp
uðust ný vandamál. Til Kalkútta
flúði ein og hálf milljón manna
og margir þeirra voru blásnauðir.
Hin nýju landamæri ollu' því
ennfremur, áð 45 milljónir A,-
Bengal'búa hættu að verzla í
Kalkútta.
Eitt þeirra vandamála, sem nú
steðja að Kalkútta er, að höfnin
lífæð borgarinnar, er að fyllast
af leð-ju og leir. Skipin þurfa
því að sigla hálftóm upp ána.
Þetta varð m.a. til þess að bainda
rískt olíufélag byggði hreinsun-
arstöð annars staðar.
Fáir munu neita því, að höfn
in í Kalkútta er langt á eftir
tímanum. Sum tæki, sem notuð
eru við hana eru um 100 ára
gömul. Auk þess gerir rígur
milli verkalýðsfélaga, sem sum-
um er stjórnað af kommúnistum,
starfið við höfnina erfiðara.
„Jafnvel indverzt skip forðast
höfnina í Kalkútta“, sagði inn-
flytjandi einn.
Hin versnandi aðstaða við höfn
ina í Kalkútta veldur því, að.Ind
verjar hafa misst hluta hins
mikilvæga teútflutnings í hend-
ur Ceylon. — Jútaframleiðslan í
Kalkútta á harðan keppinaut,
Pakistanbúa, sem eiga fullkomn
ari vefstóla.
Þxátt fyrir þessi mörgu vanda
Framh. á bls. 15.
1 Kalkútta ægir öllu saman, gömlu og nýju. Þessi mynd sýnir götu í gamla hlutanum í Kalkútta,
A henni má sjá tvíhjóla farþegavagna, nýjar bif reiðir og heilagar kýr.