Morgunblaðið - 29.11.1962, Qupperneq 1
24 síður
listmálara, var gerð frá
Dómkirkjunni í Reykjavík
í gær að viðstöddu fjöl-
menni. Séra Bjarni Jónsson,
athöfnin öll hin virðuleg-
asta. Myndin sýnir lista-
menn bera kistu Jóns Stef-
ánssonar úr kirkju.
„Babí Jar“ síöusíu kveöju-
orðin til Josefs Stalíns
Ljóö Evtúsénkós var birt i Pravda
skv. fyrirskipun Krúséffs sjálfs
Moskvu, 28. nóv. — (NTB)
FRÁ því var skýrt í Moskvu
í dag, að er fundi miðstjórn-
ar sovézka kommúnistaflokks
ins lauk, sl. föstudag, hafi
Krúséff, forsætisráðherra,
haldið tveggja tíma ræðu.
Réðst hann þar enn á Stalín,
og sagði hann þau orð, sem
hann þá hafði um hann, mega
líta sem kveðjuorð til þess
manns, sem áður hefði ver-
ið talinn öllum fremri.
Krúséff sagði, að sovézkir
borgarar hefðu rétt til að
vita sannleikann um Stalín,
en fyrstu uppljóstranir um
blóðferil hans komu, sem
kunnugt er 1956, er 20. flokks
þing kommúnistaflokksins
var haldið.
I>ótt ræða Krúséffs haf) ekki
enn verið birt, þá er þó þetta
kunnugt um efni hennar, segir
í Moskvu:
• Krúséff sagði, að hann heffB
gefið ritstjóra „Pravda"
gkipun um að birta ljóð Évtúsérek
ós um Stalin 21. okt. sl., en þar
segir, að auka verði vörðinn um
gröf hans, þannig að hann —
Framh. á bls. 2
Frjálsir demokratar
vilja nýjar kosningar
Telja afstöðu Kristilegra demokrata
vafasama
ítalska heilbrigúisrádu
neytiö bannar 13 lyf
■ sölubannið er jbd tímabundið, og
mun heilbrigðismálastjórn taka frekari
ákvarðanir eftir nánari rannsókn
F R Á þvi er skýrt í banda-
ríska blaðinu „New York
Herald Tribune" sl. mánu-
dag, að daginn áður hefði
verið stöðvuð á Ítalíu sala 13
lyfjategunda. Kemur ákvörð-
unin í kjölfar rannsóknar,
sem fram hefur farið á veg-
um ítölsku stjórnarinnar,
vegna grims um, að lyfin
geti valdið fósturskaða.
Á föstudag í sl. viku stöðvaði
heilbrigðismálaráðuneytið ítalska
sölu allra lyfja, sem inni-
halda phenil-methyl-tetra-'hydro-
ossazine. I því sambandi var sér-
staklega minnzt á eitt lyf, prelu-
din.
Hittast
i Nassau
London, 28. nóvember
_ AP.
TIL.KYKNT var í London í
dag, að Macmillan, forsætis-
ráðherra, hefði beðið John
Diefenbaker, forsætisiráð-
herra Kanada, að koma til
fundar við sig í Nassau á
Bahamaeyjum 21. desember.
Þá verður lokið fundi
þeirra Macmillans og Kenne
dys, Bandairíkjaforseta, en
hann mun standa dagana 20.
og 21. desember.
Á sunnudag tilkynnti ráðuneyt
ið einnig sölubann á 13 öðrum
lyfjum: svegan, magriz, vissar
tegimdir af alipid, alipos, afagil,
lipomin, minazin, yandy, sinelip,
kilios, promagren, yucatan og
makethin.
Þetta eru nöfn þau, sem lyfin
eru seld undir, og framleidd eru
bæði á ftalíu og í öðrum lönd-
um. Öll eiga það sammerkt, að
vera gefin fólki, sérstaklega
þvmguðum konum, til að forða
offitu.
Heilbrigðismálaráðuneytið til-
kynnti, að sölubannið væri tíma-
bundið. Myndi heilbrigðismála-
stjórnin hafa síðasta orðið í þess-
um málum eftir að frekari rann-
sókn á lyfjunum hefði farið
fram.
Bonn, 28. nðv. — (NTB) —
ÞINGFLOKKUR Frjálsra
demókrata kom til fundar í
Bonn í dag. Var því síðar lýst
yfir af talsmanni þingflokks-
ins, Fritz Erler, að flokkurinn
vildi ekki ræða stjórnar-
myndun við Kristilega demó-
krata, fyrr en þeir hættu að
nota Sósíaldemókrata sem
grýlu í sambandi við vænt-
anlega stjóm. Teldu Frjálsir
demókratar, að nýjar kosning
ar væru bezta lausn stjórnar-
kreppunnar.
Helztu ráðamenn þing-
flokks Kristilega demókrata
flokksins komu einnig sam-
an til fundar í dag, til að ræða
væntanlega stjórnarmyndim.
Þá átti Adenauer, kanzlari,
fund með ráðherrum fráfar-
andi stjómar.
Fram kom í dag, að bæðiPaul
Lúbke, byggingarmálaráðherra,
og Heinrich von Brentano, for-
maður þingflokks Kristilegra
demókrata, hafa ekki í hyggju
að taka við nýjum embættum,
er ný stjórn verður mynduð.
Kom fram af ummælum
Lúbke, að hann vill ekki taka
við embætti landvarnaráðherra,
en talið hefur verið, að Adenau-
er óski þess, að hann taki við
embætti landvarnaráðherra í
nýrri stjórn, í stað Franz-Josef
Strauss.
Þá lýsti Heinrich von Brent-
ano, fyrrverandi utanríkisráð-
herra, því yfir, að hann hefði
enga löngun eða vilja til að taka
Framh. á bls. 23.
Upplausn ríkjandi
í Kommúnistaflokknum
Tillaga kom fram um að leggja flokkinn
niður — SIA-menn ryðjast til valda
FLOKKSÞINGI kommún-
ista lauk í gærmorgun í
algjörri upplausn og sundr
ung. Er það gleggst merki
um það vonleysi og þá upp
gjöf sem nú ríkir í her-
búðum kommúnista, að
einn af alþingismönnum
þeirra, Karl Guðjónsson,
lagði á öðrum degi þings-
ins fram tillögu um að
Sameiningarflokkur al-
þýðu - Sósíalistaflokkurinn
yrði lagður niður. Kom
þessi tillaga eins og algjört
reiðarslag yfir þingfull-
trúa.
Þann tíma sem þingið
stóð linnti ekki hatrömm-
um deilum milli forystu-
manna flokksins, sem háru
hvern annan hinum þyng-
stu sökum.
Sýnir það bezt hvflíkt
vonleysi ríkir nú í röðum
kommúnista, þegar einn
af helztu forystumönnum
flokksins telur nú ekki
annað ráð vænna en að
leggja flokkinn niður og
nótast eingöngu við Al-
þýðubandalagið svonefnda.
Á þinginu urðu geysiihörð
fetök milli SÍA-manna sem
stefndu að þvi leynt og Ijóst
að ryðjast til valda í flokkn-
um og stuðningsmanna Brynj-
ólfs Bjarnasonar. Á lokafundi
þingsins sem stóð til kl. 8
á þriðjudagsmorgun var
milkið sk.ammast og einikum
vegið hart að Brynjólfi og
hans mönnum. Kölluðu SÍA-
menn þá m.a. kommúnískar
„grátker]ingar“. Þótti Brynj-
ólfi Bjarnasyni hart að geng-
ið og missti algjörlega stjórn
á skapi sínu, og lét svívirðing-
arnar dynja á SÍA-mönnum
og öðrum þeim, sem að hon-
um réðust.
í kosningum til miðstjórnar
flokksins fóru leikar svo að
SÍA-menn sem voru í banda-
lagi við Lúðvilk Jósefsson,
gengu með algjöran sigur af
hóhni. Féllu m.a. Brynjólfur
Bjarnason, Eggert Þorbjarnar-
son og fleiri af stuðnings-
mönnum þeirra, en í stað
þeirra voru kjörnir í miðstjóm
nokkrir af aðal forkólfum
SÍA, þeir Hjalti Kristgeirsson,
Finnur Torfi Hjörleifsson,
Guðmundur Magnússon o.fl.
Lúðvík Jósefsson lét ekki
mikið á sér bera í þessum
átökum, en kynnti undir.
Hann var kjörinn formaður
miðstjómar, en það emibætti
hafði Brynjólfur áður, með-
an hann var og hét og réði
mestu í flokknum. Síðan var
embættið lagt niður, en var
nú endurreist.
Einar Olgeirsson var kjör-
inn formaður flokksins, en
mar.gir andstæðingar hans
hafa nú náð áhrifamikl.um
stöðum í flokknum, svo að
hann á nú undir högg að
sækja.