Morgunblaðið - 29.11.1962, Side 3
Fimmtudagur 29. nóv. 1962
MORGVTSBLAÐIÐ
í FYRRAKVÖLD hélt Félag
íslenzkra leikdómenda hóf í
Þjóðleikhúskjallaranum í til-
efni af afhendingu Silfurlamp-
ans, sem félagið veitir árlega
einum íslenzkum leikara í við-
urbenni ngarsky ni.
Að þessu sinni voru verð-
launin veitt Steindóri Hjör-
leifssyni fyrir leik hans í hlut-
verki Jonna Pope í Kviksandi.
Steindór er áttundi leikarinn,
sem hlýtur Silfurlampann.
Áður hafa fengið hann:
Brynjólfur Jóhannesson, Guð-
björg Þorbjarnardóttir, Har-
aldur Björnsson, Róbert Arn-
finnsson, Valur Gíslason (tvisv
Sigurður A. Magnússon ávarpar Steindór og óskar honum til hamingju.
Steinddr Hjörleifsson
hlaut Silfurlampann
fyrir leik sinn í Kviksandi
ar sinnum) og Þorsteinn ö.
Stephensen.
Atkvæði eru greidd um,
hver hljóta skuli lampann
hverju sinni og var nú tekin
upp sú nýlunda, að opna um-
slögin með atkvæðaseðlunum
og telja í hófinu sjálfu. At-
kvæðisbærir eru allir þeir,
sem að staðaldri skrifa um
leiklist í blöð og tímarit.
Stig eru veitt fyrir atkvæðin
þannig, að sá sem fyrst er tal-
inn á seðlinum, fær 100 stig,
annar 75 og þriðji 50. Úrslitin
urðu á þann veg, að Steindór
hlaut 550 stig, Valur Gísla-
son 525 fyrir hlutverk Davis
í Húsverðinum og Gísli Hall-
dórsson 250 stig fyrir hlutverk
Polo í Kviksandi.
Rúmlega 40 manns sóttu hóf
ið. Ómar Ragnarsson skemmti
á meðatn á borðhaldi stóð, en
í lok þess voru atkvæði talin.
Sigurður Grímsson, formað
ur Félags íslenzkra leikdóm-
enda, afhenti Steindóri Hjör-
leifssyni Silfurlampann. Sig-
urður A. Magnússon, varafor-
maður félagsins ávarpaði
Steindór, óskaði honum til
hamingju og rakti leikferil
hans. Steindór þakkaði þann
heiður, sem honum hefði ver-
ið sýndur. Þá tók Oddur
Björnsson til máls og ávarpaði
Val Gíslason og Valur þakk-
aði. Ólafur Gunnarsson rifjaði
upp leik Gísla Halldórssonar
í Kviksandi og lauk lofsorði á
leikstjórn Helga Skúlasonar í
sama leikriti. Einnig tóku til
máls Haraldur Björnsson og
Brynjólfur Jóhannesson og
síðan Bjöm Bjömsson, sýslu-
maður, og Ólafur Jensson,
verkfræðingur. — ö. .
☆
Kona Steindórs, Margrét ólafsdóttir, með manni sínum,
er hann hefur veitt Silfurlampanum viðtöku.
Agnar Bogason og Njörður P. Njarðvík skrifa niður töl-
urnar, sem Sigurður Grímsson ies upp.
11«
SIAKSTEINAR
— Hát'iðarhöld
Framhald af bls. 24.
kl. 14. Þá mun formaður Stú-
dentaráðs, Jón E. Ragnarsson
flytja þar ræðu um stöðu stú-
dentsins í þjóðfélaginu. Steinar
Berg Björnsson setur samkom-
una. Gísli Magnússon leikur ein-
léik á píanó og Kristinn Hallsson
■yngur.
Ræðumaður veizlunnar um
kvöldið verður dr. Björn Sigfús-
eon, háskólabókavörður. Á hóf-
inu, sem hefst kl. 19 að Hótel
Borg, verða mörg vönduð
ekemmtiatriði. Formaður stú-
dentaráðs setur hófið. Guðmund-
ur Guðjónsson og Sigurveig
Hjaltested munu syngja, þá syng
ur tvöfaldur kvartett háskóla-
stúdenta, auk almenns söngs, sem
alltaf hefur sett svip sinn á há-
tíðirnar. Þá verður endurvakinn
sá þjóðlegi siður að flutt verða
minni kvenna, karla, háskólans,
þj óðhöfðingj ans og fósturjarðar-
innar. Gísli Sigurkarlsson, stud.
jur. mun flytja gamanþátt og að
lokum verður stiginn dans til kl.
3. Veizlustjóri verður Jakob Þ.
Möller stud. jur.
Um morguninn kl. 10,30 verð-
ur messa í Kapellu Háskólans.
Björn Björnsson, stud. theol.
prédikar, séra Hjalti Guðmunds-
son þjónar fyrir altari. Organleik
ari er Páll Kr. Pálsson. Það er
gömul venja að sá guðfræðistú-
dent, sem næst er kominn prófi,
prédiki 1. des.
Athöfnin við styttu Jóns Sig-
urðssonar hefst kl. 13,30. Þar mun
formaður stúdentaráðs, Jón E.
Ragnarsson, flytja ávarp og 2
stúdínur leggja blómsveig að fót-
stalli styttunnar. Á blómsveign-
um er borði með áletruninni: Frá
íslenzkum stúdentum með virð-
ingu og þakklæti.
Stúdentablaðið
Stúdentablaðið kemur út á
morgun. Það var gefið út í fyrsta
sinn 1. des. 1924. Aðalgreinamar
tvær eru helgaðar efninu: Sjálf-
stæði íslands og menntun ein-
staklingsins. Þær rita Þórarinn
Björnsson skólameistari og Ólaf-
ur Haukur Árnason, skólastjóri
á Akranesi.
Af öðru efni má geta viðtals
við Benedikt Jakobsson í tilefni
af 30 ára afmæli íþróttakennslu
við Háskólann. 2 greinar eru um
landflótta háskólamenntaðra
manna, eftir Helga Valdemars-
son, stud. med. og Pálma R.
Pálmason, stud. polyt. Nauðsyn
náttúrufræðideildar við H. í.
grein eftir Arnór Garðarsson,
dýrafræðing.
Þau nýmæli eru í blaðinu að
í það rita 9 nýstúdentar, í því
eru greinar eftir 4 stúdínur og
ljóð eftir 4 háskólastúdenta, en
kveðskapur virtist á síðustu ár-
um fara dvínandi innan skólans.
Stúdentablaðið er 48 síður í fólíó
broti, prentað í Prentsmiðju Jóns
Helgasonar. Ritstjóri blaðsins er
Björn Guðmundsson, stud. jur.
Aðrir í ritnefnd eru: Þór Haga-
lín, stud. jur., Þorvarður Brynj-
ólfsson, stud. med., Þorfinnur
Karlsson, stud. oecon. og Þor-
steinn Geirsson, stud. jur.
Léleg blaðamennska
Blaðamenn — og raunar sjálf-
sagt flestir aðrir — skemmtu sér
mikið, þegar Tíminn kom út í
fyrradag með rosafyrirsögn á
forsíðu, eins og heimsendir væri -
í nánd, og tilefnið var umræður
um tíu daga gamalt viðtal, sem
birzt hafði í Morgunblaðinu.
Ekki var þessi fregn þó talin
nægileg, því að í gær byrjar Tím-
inn ritstjómargrein sína þannig:
„Um langt skeið hefur annað mál
ekki vakið meiri athygli en sú
uppljóstrun Áka Jakobssonar í
viðtali við MorgunbIaðið“ o.s.frv.
Má með sanni segja það sé
fréttamennska í lagi að lúra i
tíu daga á slíkri ,rstórfrétt“. En
þótt Morgunblaðinu sé það meina
laust, að Timinn upplýsi, hve
lélegt fréttablað hann sé, þá verð
ur þó að segja þann sannleika,
að þama var ekki um stóraf-
glöp fréttamannanna að ræða,
heldur datt Timaritstjórunum
það í hug um síðir, að nota þetta
viðtal í hinni aumlegu varnar-
baráttu, sem þeir verða nú a$
heyja vegna lögbrotanna og flá-
ræðisins, sem þeir frömdu á Al-
þýðusambandsþingL
Erfiðleikar Framsóknar
Erfiðleikar Timans um þessar
mundir spretta af því, að engar
varnir eru til vegna lögbrotanna
á Alþýðusambandsþingi, sem
sönnuðu því miður, að Fram-
sóknarmenn eru fúsir til að
fylgja kommúnistum í einu og
öllu. Þeir hafa að vísu reynt að
réttlæta gerðir sínar, en þá liefur
ekki betra tekið við, því að eitt
hefur stangazt á annars hom í
,j:öksemdum“ þeirra. Stundum
segja þeir, að ekki hafi verið
timi til að afgreiða kjörbréfin.
Næsta dag segja þeir, að af-
greiðsla þessa máls hafi verið
réttlætanleg, því að annars hefði
Alþýðusambandið klofnað. Þar
næst tala þeir um, að mcinbugir
hafi verið á bréfum LÍV, þá a$
gögn hafi ekki verið fullnægj-
andi, og loks komast þeir a$
þeirri niðurstöðu, að það sé al-
gengt að kjörbréfum sé bara
stutt og laggott vísað frá. Mál-
flutningur Framsóknarmanna er
þannig orðinn hrein hringavit-
leysa, þar sem ekki stendur steinn
yfir steini. Sá er líka ef til viU
tUgangurinn, að reyna að rugla
dómgreind manna svo, að enginn
botni upp né niður í máUnu, sem
þó er mjög einfalt, þ. e. a. s. að
löglegir fulltrúar á hvaða þingi
sem er eiga að fá endanlega af-
greiðslu kjörbréfa á þinginu
sjálfu. AUt annað er hrein lög-
leysa.
Leynifélag eins og SÍA
Eins og frá er skýrt á öðrum
stað í blaðinu ríkir hrein upp-
lausn í kommúnistaflokknum, og
hefur hatrið og sundrungin
aldrei verið eins mikil og nú.
Broslegt er það, að enginn þorir
einu sinni að segja, hverjir kjörn-
ir hafa verið í flokksstjómina.
Er engu Ukara, en „hin sam-
virka forysta“! hugsi sér að gera
kommúnistaflokkinn að leyni-
flokki, líkt og SÍA-mennimir,
sem nú eru að brjótast til valda,
höguðu því með leynifélag sitt.
En þrátt fyrir þögntna hefur
Morgunblaðið getað aflað sér
upplýsinga um þingið. Einar OI-
geirsson var endurkjörinn form.
flokksins, þótt hann hafi að öðru
leyti verið einangraður. Morgun-
blaðið óskar þeim báðum, Ein-
ari og „Flokknum“, tU hamingju
með kjörið og finnst það jafa
gott á báða.