Morgunblaðið - 29.11.1962, Síða 8
8
MORCVNfíLAÐÍÐ
Fimmíudagur 29. nóv. 1962
Verkamenn fái hlut-
deild í stjórn fyrirtækja
Frá umræðum á Alþíngi:
Vegagerð á Vestfjörðum, forn-
leifarannsóknir í Reykholti o. fl.
Á FUNDI sameinaðs þings í gær
voru ræddar þingsályktunartil-
lögur um vegagerð á Vestfjörð-
um, um fiskiðnskóla, um geð-
veikralög, um launabætur af
ágóða atvinnufyrirtækja, um
vinnslu grasmjöls á Skagaströnd
Og heyverkuniarmál.
Vegagerð á
\ estf jörðum.
Gísli Jónsson (S) gerði grein
fyrir tillögu til þingsályktunar
um vegagerð á Vestfjörðum,
sem hann ásamt Sigurði Bjarna
Syni, Birgi Finnssyni og Kjart-
ani J. Jóhannssyni er fflutnings-
maður að. Tillagan er á þá leið,
að Alþingi álykti að skora á
ríkisstjórnina að fela vegamála-
stjóra að láta gera áætlun um
vegagerð á
Vestfjörðum, er
stefni að því
takmarki, að lok
ið verði á sem
stytztum tima
öllum aðalveg-
um um þennan
landsihluta og
tryggt öruggt
akvegasamband
milli byggðarlaga hans megin-
hluta árs hvers.
Sagði hann að á Vestfjörðum
hefði á mjög skömmum tíma
fækkað um 2500 manns, eða
20%, og væru meginorsakirnar
lélegt akvegasamband, stopular
strandferðir og, nú síðast, niður-
felling flugsamgangna.
Á hinn bóginn framleiddu Vest
firðingar 2.5 sinnum meira til
útflutnings á hvern íbúa en
gert er á öllu landinu. Ekiki væri
á nokkurn hátt forsvaran'legt að
miða að því að leggja þetta
byggðarlag í eyði.
Fornleifarannsóknir í
Reykholti.
Benedikt Gröndal (A) mælti
fyrir tillögu sinni um að skora
á ríkisstjórnina að hraða undir-
búningi næstu byggingarfram-
kvæmda við Reykholtsskóla og
staðsetja þær þannig, að sem
fyrst verði auðið að ljúka forn-
leifarannsóknum á staðnum, en
þessi verkefni kvað hann blasa
við á þessum einum hinum mesta
sögustað þjóðarinnar, Reykholti
í Borgarfirði.
Þessi verkefni
kynnu að virð-
ast óskyld, en
við nánari athug
un kemur í ljós,
að órjúfandi
samhengi er
þeirra á milli.
Reykholtsskódi
hefur íþrótta-
hús, er reist var
sem algjör bráðabirgðabygging
fyrir röskum þrem áratugum.
Er skólanum því brýn þörf á
nýju íþróttahúsi, en jafnframt
vanhagar hann um rúmbetri
heimavist, smíðahús o. fl.
Hið gamla íþróttahús stendur
einmitt þar, sem göng Snorra
lágu frá bæ hans til laugarinn-
ar. Þess vegna hefur ekki verið
unnt að ljúka uppgreftri á þess
um merkilegu göngum, en fræði
mönnum og leikmönnum er
mikil forvitni að vita, hvað í
Ijós kemur, þegar unnt verður
að ljúka þeim greftri og komið
verður að sjálfum bæjarrústun-
um. En til að unnt verði að hefj-
ast handa, verður að byrja á að
fjarlægja hið gamla íþróttaihús.
Nauðsynlegt er því að vinna
bráðan bug að því að reisa nýtt
íþróttahús.
Fiskiðniskóli.
Jón Skaftason (F) gerði grein
fyrir þingsályktunartillögu um,
að ríkisstjórnin beiti sér hið
fyrsta fyrir setningu löggjafar
um fiskiðnskóla, er ætlað sé það
hlutrverk að búa menn undir fisk
matsstörf, verkstjórn, kennslu og
leiðbeiningarstarf í fiskiðnaði.
En þó haldin hafi verið náms-
skeið um fiskmat, ná þau of
skammt, þótt þau hafi örðið til
mikils gagns. Fiskiðnaðurinn
og fiskmatið þarfnast sérstaks
skóla, og sýnist ekki óeðlilegt,
að starfræksla hans sé að mestu
eða öllu leyti á vegum ríkisins.
Geðveikralög.
Alfreð Gíslason (K) gerði
grein fyrir tillögu sinni um að
skora á ríkisstjórnina að skipa
nefnd ti/1 að undirbúa frumvarp
til geðveikralaga og láta leggja
slíkt frumvarp fyrir næsta þing.
Tillaga efnislega samhljóða þess-
ari hafi verið flutt í fyrra, en
þá ekki unnizt tími til að af-
greiða hana, þar sem svo skammt
var til þingloka. Kvað hann geð-
veikralög misjafnlega víðtæk í
hinum ýmsu löndum, en sameig-
inlegt þeim öllum ákvæði varð-
andi sjúklinga, sem geðveikir
eru í þröngri merkingu þess orðs,
en slík ákvæði vantaði tilfinn-
anlega hér, og hefði sá skortur
einatt valdið sjúklingum tjóni
og venzlafólki þeirra og læknum
ýmiss konar vandræðum.
Bjarni Benediktsson (S), ráð-
herra, kvaddi sér næstur máls
og sagðist hafa falið landlækni
árið 1960 að safna gögnum um
þetta mál með slíka reglugerð í
huga, Og síðan hefði verið unnið
að málinu. Hins vegar hefðu
enn ekki verið mótaðar fastar
tillögur, vegna þess að afgreiðsla
lyfsölulöggjafar og frumvarps
um áfengissjúklinga, sem bæði
væru ekki síður nauðsynleg en
þetta, hefðu verið látin ganga
fyrir.
Hey verk unarmál.
Ágúst Þorvaldsson (F) mælti
fyrir tillögu um að skipuð yrði
6 manna nefnd til þess að gera
tillögur um ráðstafanir til þess
að heyverkun bænda yrði sem
tryggust og ódýrust. Frumvarp
þetta var einnig flutt á síðasta
þingi og var þá vísað til fjár-
veitinganefndar, sem sendi það
Búnaðarfélagi íslands til um-
sagnar.
Telja flutningsmenn að hægt
sé að tryggja heyöflun bænda
með því að súgþurrkun og vot-
heysgeymslur komi á hvern bæ.
Til þess hafa bændur ekki nóig
fjármagn, en það mun kosta um
70.000 kr. Miðar ti/llagan að því
að skipuð sé 6 manna nefnd sem
geri tillögur með sérstöku tilliti
til þess að hækka ríkisframlag
til lánveitinga og styrkja til
bænda, sem eru að koma sér upp
súgþurrkunarkerfi.
Ingólfur Jónsson (S), ráðherra,
sagði, að ástæðan fyrir því, að
súgþurrkun sé þó ekki algengari,
sé að nokkru leyti fjármagns-
skortur. Hins vegar kvaðst han^
efast um að nokkur bót væri að
skipa nefnd í þessu máli, því
engin ástæða væri til að ætla
að hún yrði til frekari hvatn-
ingar í þessu máli en Stéttar-
samband bænda og Búnaðarfélag
íslands.
Nú stendur yfir endurskoðun
á jarðræktarlög
unum, og er þá
ekki úr vegi að
þau verði ein-
mitt endurskoð-
uð með tilliti til
þessa. Málið
væri reyndar
komið á nokk-
urn rekspöl, þó
ekki væri það
nóg, m.a væri farið að veita lán
og styrki út á súgþurrkunartæki,
þótt hundraðstalan miðað við
kostnað sé enn lá, og e..nfrem-
ur er í athugun lækkun á raf-
magni til súgþurrkunar.
Það er því þrennt, sem sjálf-
sagt er að gera í þessu rnáli: að
veita háa styrki ti/1 kaupa á
súgþurrkunartækjum, að veita
'hagkvæm lán til þeirra og í
'þriðja lagi að lækka rafmagn,
sem notað væri til súgþurrkun-
ar.
Ágúst Þorvaldsson (F) tók
síðan aftur til máls, og sagðist
ekki sjá að það sakaði neitt að
skipa nefnd til stuðnings málinu.
Launabætur
af ágóða
atvinnufyrirtækja.
Jón Þorsteinsson (A) gerði
grein fyrir þingsályktunartillögu
sinni um að skora á ríkisstjórn-
ina að láta athuga, hvort fært
sé að setja löggjöf, er geri at-
vinnufyrirtækjum, sem rekin
eru með hagnaði, skylt að verja
hluta af ágóða sínum til launa-
uppbóta handa verkamönnum,
öðru starfsfólki,
sem vinnur í
þjónustu þeirra.
En hlutdeild
starfsfólksins í
rekstrarhagnaði
atvinnufyrir-
tækjanna væri
spor í þá átt að
finna rétblátan
launagrundvöll
án vinnudeilna
og verkfalla og þeirra fórna,
sem af þeim leiðir. Slíku fyrir-
komulagi mundi fylgja nánara
samstarf vinnuveitenda og verka
fóllks. Starfsfólk atvinnufyrir-
tækjanna mundi með þessa hagn
aðarvon fyrir augum leggja sig
fram um að bæta úr ágöllum í
rekstrinum og benda á leiðir til
að koma fyrirtækjunum á sem
hagkvæmastan rekstrargrund-
völl. Af þessu leiddi væntanlega,
að verkafólk fengi íhlutunarrétt
um stjórn og rekstur þess fyrir-
tækis, sem það starfaði hjá, en
það ætti að geta orðið öllum
aðilum til góðs.
Vinnsla grasmjöls á
Skagaströnd.
Þá gerði Jón Þorsteinsson og
grein fyrir tillögu sinni um, að
athugað yrði, hvort hagkvæmt sé
að vinna grasmjöl í síldarverk-
smiðju rikisins á Skagaströnd.
Á FUNDI Sameimaðs þings í gær
gerði Magnús Jónsson grein fyrir
þingsályktunartillögu um hlut-
deildar- og arðskiptifyrirkomu-
lag, en flutningsmenn tillögunm-
ar eru auk Magnúsar, Sigurður
Bjarnason og Matthías Á.
Mathiesent.
Verkamenn
fái hluta
af arðin/um.
Magnús Jónsson (S) geiði
grein fyrir þingsályktunartillögu
þriggja þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins, á þá leið, að Alþingi
feli ríkisstjórninni að láta rann-
saka og gera tillögur um hvar
og hverniig megi bezt koma á
hlutdeildar- og arðskiptifyrir-
komulagi í atvinnurekstri ís-
lendinga og á hvern hátt þing og
stjórn geti stuðlað að eflingu
slíks fyrirkomulags.
Tillaga þessa efnis hefur áður
komið fram á þingi, var fyrst
flutt efnislega 1937, og þá kosin
milliþinganefnd, sem ekki starf-
aði. Síðan hef-
ur hún verið
flutt nikkrum
sinnum, en ekki
hlotið lokaaf-
greiðslu.
Tillaga þessi
miðar að því að
sætta vinnuafl
og fjármagn og
köma á friði
milli þeirra er stjórna atvinnu-
tækjunum og hinna er vinna við
þau.
„Grundvallarsetningar þessa
fyrirkomulags eru á þessa leið:
1. að verkamennirnir fái auk
hinna föstu launa einhvern hluta
í arðinum,
2. að þeim gefist kostur á
að safna arðhluta sínum, eða
einhverjum bluta hans, til þess
með honum að eignast hluta í
atvinnufyrirtækjunum,
3. að þeir fái hlutdeild í
stjórn fyrirtækjanna, annað
hvort með því að eignast hluta-
En frá því sú verksmiðja var
stofnsett, hefur hún aðeins brætt
síld fáeina daga á ári hverju.
Kunnugir menn telja mjög
athugandi að láta vinna gras-
mjöl í verksmiðjunni, enda muni
það vera hægt án nokkurra telj
andi breytinga á verksmiðjunni
og án þess, að slík vinnsla þyrfti
að trufla síldarbræðsluna.
fé og verða á þann hátt að-
njótandi réttinda venjulegra hlut
hafa, eða með því að nefnd
verkamanna hvers fyrirtækis
hafi íhlutun um rekstur þess.“
\
Alfreð Gíslasor (K) tók næst-
ur til máls og kvaðst ekki mundu
andmæla frumvarpinu, og að
hann mundi styðja það, en innti
framsögumann eftir því, hvern-
ig þetta hefði gefizt úti.
Magnús Jónsson (S) svaraði
Alfreð og kvað sér þykja það
ósköp eðlilegt, að innt væri eftir
hvernig þetta hefði reynzt er-
lendis. Hann hafði hins vegar
ekki við hendina skýrslu, sem
til er um þetta mál, og þar sem
skýrt er frá þeirri reynslu, sem
af þessu hefur fengizt í hinum
ýmsu löndum.
Hann kivaðst ekki hafa neina
tröllatrú á nokkurri allsherjar-
lausn í þessu máli, heldur væri
hér um að ræða tilraun, sem
sjálfsagt væri að athuga hvort
ekki hentaði hér. Hér væri um
að ræða leið, sem ásamt öðrum
leiðum kynni að vera leið að því
marki að uppræta þá alvarlegu
tortryggni, sem vissulega er til
staðar milli viðkomandi aðilau
Hver ók á
telpu á
Cnoðarvogi?
SÍÐDEGIS í fyrradag var dökk-
grænum Skoda stationbíl, árgerð
1957, ekið á telpu móts við hliðið
á bílastæði við Gnoðarvog 16.
Felldi bíllinn barnið í götuna, en
var síðan ekið á brott. Telpan
vair borin inn til sín í næsta hús,
og síðan leitað læknis. Var hún
með kúlu á höfði og skrámuð.
Síðar um kvöldið brá svo við
að telpan missti meðvitund. Var
hún þá flutt á Landakotsspítala,
þar sem hún liggur nú, og er
komin aftur til meðvitundar.
Telpan heitir Helroa Jóhannes-
dóttur, Gnoðarvogi 16, sex ára að
aldri.
Það eru vinsamleg tilmæli um-
ferðardeildiar rannsóknarlögregl-
unnar að ökumaður Skodabílsins
gefi sig fram svo og önnur vitni,
sem kunna að hafa verið að slys-
inu.
Nýkomið úrval af áhöldum úr ryðfríu stáli.
PLÖTURNAR heimsþekktu í mörgum Iitum og
mynstrum.
Starfsstóllinn stillanlegur fyrir hvers manns kropp.
Easylux-skápar í eldhúsin, af ýmsum stærðum.
Þvegillinn með öruggum svömpum.
Rullett
. • ■ \«v með teak bökkum.
heimiusboroio
ALLT NYTSAMAR JÓLAGJAFIR
Rúmgóð bílastæði við dyrnar.
SIVIIÐJIJBIJÐIIM
við Háteigsveg — Sími 10033.
i
1
verkakönum óg