Morgunblaðið - 29.11.1962, Qupperneq 11
Fimmtudagur 29. nóv. 1962
MORGVNBLÁÐIÐ
U
Fyrsta hús Bókaverzlunar Sigfúsar Eymundssonar
Lækjartorg. Þetta hús var lengi
kennt við Eymundsson og stend-
ur enn. HúsiS er meira en 100
ára, byggt 1852 af dönskum kaup
manni, C. P. Knudtzon. Síðar
bjó þar Ólafur Pálsson, dóm-
kirkjuprestur, en þarna kom
Sigfús fyrir ljósmyndastofu og
bókaverzlun, stækkaði hósið,
hækkaði og lengdi.
Bókaútgáfu hóf hann árið
1886 og lagði áherzlu á útgáfu
vandaðra bóka, sem höfðu ótví-
rætt menningargildi. Einnig gaf
hann út ýmsar fræðibækur, sem
fluttu almenningi nytsaman fróð
leik. Einnig lagði hann mikla á-
herzlu á að greiða fyrir sölu er-
lendra bóka og tímarita og loks
rak hann prentsmiðju um skeið.
Naut bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar fljótlega mikils
Elzta bókaverzlun landgins, en jafnframt
ein hin nýtízkulegasta
ELZTA bókaverzlun landsins og
jafnframt eitt elzta fyrirtæki
höfuðborgarinnar er 90 ára í
dag. Þetta er bókaverzlun Sig-
fúsar Eymundssonar. Verzlunin
hefur frá öndverðu verið til
húsa í hjarta höfuðstaðarins,
gegnt mikilvægu hlutverki í ís-
lenzku menningar- og mennta-
lífi — og sjálfsagt eru þeir Reyk-
víkingar fáir, sem ekki hafa átt
meiri eða minni viðskipti við
þetta rótgróna og virta fyrir-
tæki.
Stofnandi verzlunarinnar var
Sigfús Eymundsson, fjölhæfur og
hugkvæmur framkvæmdamað-
ur, sem lagði gjörva hönd á
margt. Hann fæddist árið 1837,
sigldi tvítugur tdl Hafnar og lauk
þar bókbandsnámi tveimur árum
síðar. Starfaði hann þar í iðn
sinni næstu tvö árin, en lærði
jafnframt ljósmyndun — og
stundaði hvort tveggja fyrst í
stað, eftir að hann kom heim ár-
ið 1866.
Síðar sneri hann sér að verzl-
un og rak víðtæk viðskipti, var
m. a. verzlunarstjóri fyrir norsk-
íslenzku verzluninni, sem m. a.
kom á föstum gufuskipaferðum
milli íslands og Noregs á sínum
tíma. Hann gerðist og umboðs-
maður skipafélaganna, sem
fiuttu Vesturheimsfarana héð-
an. Þessir mannflutningar voru
síður en svo vinsælir með þjóð-
inni, en til marks um það hve
mikillar virðingar og trausts
Sigfús Eymundsson naut má
geta þess, að ekki hlaut hann
óvinsældir fyrir. Það var fá-
tæktin, sem rak íslendingana
vestur um haf, þeir voru hjálp-
ar þurfi. Og þá var betra, að
jafngrandvar maður og Sigfús
tæki að sér að veita fyrirgreiðsl-
una en að hún lenti í höndum
einhverra annarra.
Sigfús lét af störfum hjá
norsk-ísleiizka félaginu árið 1871
og stofnaði bókaverzlunina ári
síðar, fyrst í stað í smáum stíl
svo sem eðlilegt er. En fyrir-
tækinu óx jafnt og þétt fiskur
um hrygg, þegar fram liðu
stundir.
Fyrsta blaðaauglýsingin frá
Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar birtist þann 3. janúar
1873. Samkvæmt henni hafði
hann þá á boðstólum m. a. ljóð-
mæli Kristjáns Jónssonar, fyrir
1 ríkisdal og 72 skildinga, en í
gyltu bandi kostaði bókin 2 rík-
isdali. Ennfremur hina vinsælu
sögu Kristófers Hanssonar, „Pét-
ur og Bergljót", sem Jón Ólafs-
son þýddi. Sú kostaði 2 skild-
inga, og „Þúsund og ein nótt“ í
þýðingu Steingríms Thorsteins-
sonar var þar auglýst, ennfrem-
ur nokkrar bækur, sem Páll
Sveinsson hafði gefið út, en
hann gaf út talsvert af íslenzk-
um bókum í Kaupmannahöfn á
þessum árum.
Nokkru eftir að Sigfús Ey-
mundsson settist að í Reykjavík
keypti hann húsið nyrzt við
Lækjargötu, á horninu við
trausts og virðingar í bænum.
Undir lok fyrsta tugs þessarar
aldar skipti verzlunin og forlagið
um eigendur. Pétur heitinn Hall-
dórsson ákvað að hverfa heim
frá lögfræðinámi í Kaupmanna-
höfn og kaupa fyrirtæki — og
tók hann við því 1. jan. árið
1909. Fétur rak verzlunina og
ekki síður útgáfuna af miklum
myndarskap. Hann horfði ekki í
kostnað, þegar um var að ræða
að koma út bókum, sem hann
taldi þarfar þjóðmenningimni í
landinu. Hann gaf t. d. út hin
stórmerku vísindarit Bjarna
Sæmundssonar, þýzk-íslenzku
orðabók Jóns ófeigssonar og hið
vinsæla lesarkasafn. Og kennslu-
bækur, allt frá stafrófskverum
til efnismikilla rita fyrir há-
skólastúdenta.
Er Pétur tók við borgarstjóra-
störfum árið 1935 tók Björn son-
ur hans við fyrirtækinu og rak
það um árabil. Erfingjar Péturs
breyttu fyrirtækinu í hlutafé-
lag árið 1951, en um áramótin
1958—59 keypti Almenna bóka-
félagið þetta rótgróna fyrirtæki
og hefur rekið síðan.
Það var ekki fyrr en 1920 að
verzlunin flutti úr hornhúsinu
við Lækjartorg. Þá keypti Pétur
Halldórsson gamalt steinhús að
Austurstræti 18, er Sverrir Run-
ólfsson, steinsmiður, hafði byggt.
Pétur breytti húsinu og gerði þar
nýtízkulega bókabúð á þeirra
tíma mælikvarða.
Þegar Almenna bókafélagið
keypti fyrirtækið festu Stuðlar
h.f., styrktarfélag Almenna bóka-
félagsins, kaup á hluta lóðarinn-
Framh. á bls. 23.
Nuverandi húsakynni bókaverzlunarinnar
JK-HÚSGÖGN
Heildsölubir gðir:
ÁSBJÖRN ÓLAFSSON
Grettisgötu 2. — Sími 24440.
ITÆKKANLEG BORÐ
eldhús og borðkróka.
MYNZTRUÐ
EINLIT
BORÐ
J K eru alltaf fyrstir með nýjungar
4 tegundir
stóla
einnig
stólkollar
allir stól-
og borðfætur
með liðamóta-
hosum
★—
Framleiðandi: Járnsmiðja Kópavogis.
Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar 90 ára í dag