Morgunblaðið - 29.11.1962, Side 12
12
MORCVTSBLÁÐlb
Fimmtudagur 29. nóv. 1962
JMttgpnstMfofrifr
Ctgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavlk.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ötbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 4.00 eintakdð.
TVEIR ÞJÓÐAR-
LEIÐTOGAR
¥Tm þessar mundir beinist*
^ athyglin í heimsstjórn-
máluntim einna mest að
tveimur þjóðarleiðtogum,
þeim de Gaulle, Frakklands-
forseta, og Adenauer kanzl-
ara Þýzkalands. De Gaulle
hefur unnið einhvern mesta
stjómmálasigur, sem um get-
ur í Frakklandi, og er ekki
ofsögum sagt, að líklegt sé,
að sá sigur muni boða þátta-
skil í sögu landsins.
Adenauer kanzlari hefur
aftur á móti átt í vök að verj-
ast að undanfömu út af
Spiegel-málinu svonefnda,
sem upphaflega virtist ekk-
ert sérstakt stórmál, en olli
þó stjórnarkreppu í Þýzka-
landi. Þegar flokkur Adenau-
ers, Kristilegir demókratar,
mynduðu stjórn með Frjáls-
um demókrötum, lýsti Aden-
auer því yfir, að hann mundi
draga sig í hlé fyrir 1965, þeg-
ar næst eiga að vera almenn-
ar kosningar í Þýzkalandi.
Fregnir hafa nú borizt af
því að flokksmenn hans telji
nauðsynlegt, að hann hætti
forystu ekki síðar en næsta
sumar.
Þannig virðist sem valda-
ferill Konrads Adenauers sé
senn á enda, enda er hann
orðinn aldurhniginn, þótt
þrek hans sé einstakt. Aftur
á móti em áhrif de Gaulle og
völd nú meiri en nokkm sinni
fyrr, eftir hinn glæsilega sig-
ur, sem hann vann.
Þessir tveir þjóðarleiðtog-
ar hafa átt meginþátt í því að
sætta Frakka og Þjóðverja
og setja niður aldagamlan
ríg og hatur. Þeir hafa báðir
gert sér ljóst, að skefjalaus
þjóðernisstefna getur leitt til
mikillar ógæfu. Meðal ann-
ars þess vegna hafa þeir tal-
ið aukna samvinnu Evrópu-
þjóða óhjákvæmilega.
Ef Adenauer hættir fljót-
lega afskiptum af stjómmál-
imi, getur hann sannarlega
litið ánægður yfir feril sinn.
Hann hefur verið í forystu
við hröðustu uppbyggíngu,
sem um getur, og honum hef-
ur tekizt að leiða þjóð sína
af braut haturs til samvinnu
við fyrri óvini.
ÞJÖÐNÝTT
KVIKMYNDAHÚS
ITannibal Valdimarsson,
fyrrverandi forseti Al-
þýðusambands íslands, hefur
á Alþingi flutt frumvarp um
það að þjóðnýta kvikmynda-
hús landsins. Vill hann koma
á „kvikmyndastofnun ríkis-
ins“ og „kvikmyndaráði“ til
þess „að gera kvikmyndir að
sem almennustu og þjóðleg-
ustu menningartæki“ o.s.frv.
Nú vill svo til, að menn
em ekki alveg ókunnugir op-
inberum rekstri kvikmynda-
húsa. Þannig hefur Hafnar-
fjarðarbær t. d. rekið Bæjar-
bíó, og er fróðlegt að kynn-
ast því, hver árangurinn hef-
ur orðið. Svavar Pálsson rit-
aði grein um þetta efni hér
í blaðið í maímánuði sl. Sam-
kvæmt nákvæmum útreikn-
ingum hans kom í ljós, að
Bæjarbíó hefur tapað alls
1.176 þúsundum króna á
rekstrinum árin 1945 til 1960,
miðað við að það hefði greitt
öll gjöld til bæjarsjóðs, sem
öðrum er gert að greiða. Það
er eitthvað 1 þessa átt, sem
Hannibal Valdimarsson vill
að kvikmyndahús landsins
séu rekin — og þó sjálfsagt
ver en Bæjarbíó, því að „silki
húfurnar“ eiga að vera fleiri
samkvæmt kenningum Hanni
bals.
Sannleikurinn er sá, að í
kvikmyndahúsarekstri, ekki
síður en annars staðar, hefur
einkaframtakið sannað yfir-
burði sína. í höfuðborginni
hagar t. d. þannig til, að ýmis
kvikmyndahús eru rekin af
stofnimum, sem kostað hafa
byggingu þeirra. Þau selja
aðgöngumiða á sama verði og
einkafyrirtækin, en sleppa
hins vegar við margvísleg
gjöld.
Þrátt fyrir þetta hefur yf-
irleitt ekki verið mikill hagn-
aður af þessum kvikmynda-
húsarekstri, og má raunar
segja að um fullkomið rang-
læti sé að ræða, þegar einka-
fyrirtækjum er ætlað að
Og hvort sem valdaferill de
Gaulle verður lengri eða
skemmri, hlýtur hans líka að
verða minnzt sem þess
manns, sem bjargaði þjóð
sinni á einhverri mestu hættu
stund.
keppa við slík kvikmynda-
hús, sem milljónatugi fá —
í raun réttri af almannafé.
Þessi frumvarpsflutningur
hæfir hins vegar ágætlega
Hannibal Valdimarssyni, svo-
kölluðum forseta ASI.
Mynd þessi var tekin föstudaginn 23. nóv. sl. í Nýju Delhi, er sentfinefnd Bandaríkjastjornar
kom þangað, til þess að kynna sér ástand málanna og hernaðarþörf Indverja. — A myndinni
eru, frá vinstri: Averill Harrimann, sérstakur sendimaður Kennedys forseta, Paul Nitze, að-
stoðarlandvarnaráðherra Bandaríkjanna, John Galbraith, sendiherra Bandaríkjanna í Ind-
landi og Nehru, forsætisráðherra Indlands.
UTAN UR HEIMI
Efnahagur V-Evrópu
stendur nú með blóma
Fundur OECD lýslr áhyggjum vegna
hægfara framleiðsluaukningar i USA
og Kanada
París, 27. nóvewiber — (AP)
Á RÁÐHERRAFUNDI Efna-
hags- og framfarastofnunar-
innar, sem nú stendur í París,
var því haldið fram í dag, að
efnahagur flestra landa í V,-
Evrópu færi batnandi. Hins
vegar létu fundarmenn í ljós
nokkrar áhyggjur vegna þess,
að hægar miðaði í þessum
málum í Bandaríkjunum og
Kanada.
Eitt aðalumræðuefni fund-
arins er framleiðslutakmark
það, sem meðlimaþjóðimar
hafa sett sér, en hún miðar að
50% framleiðsluaukningu fyr
ir árið 1970.
Tíu ráðherrar tóku til máls
ÍSLAND OG
KAFBÁTALEIÐ-
IRNAR
ér í blaðinu var í gær skýrt
frá því, að talið væri,
að Rússar ættu nú tólf kjam-
orkuknúna kafbáta og auk
þess 465 kafbáta, sem knúð-
ir eru venjulegu vélarafli.
Talið er að 30 kafbátanna
séu útbúnir þannig að skjóta
megi frá þeim eldflaugum,
sem dragi 350 mílur.
í sambandi við þessar upp-
lýsingar er rétt að minna á,
að Rússar hafa nýlega lýst
því yfir, að þeir teldu ísland
í dag. Talsmaður fundarins
skýrði frá því, að það hefði ekki
komið fram í skýrslum fulltrúa
neins Vestur-Evrópuríkis, að yf-
irvofandi væri samdráttur í fram
leiðslui Hins vegar væri sú hætta
ætíð fyrir hendi. Færi svo, yrði
þegar í stað að gera samræmd-
ar aðgerðir.
Hins vegar mun það vera ein-
róma skoðun þingfulltrúanna, að
eitthvað þurfi að gera til að
auka framleiðslu í Bandaríkjun-
um. Þó þær ráðstafanir, sem nú
eru fyrirhugaðar, séu mikilsverð
ar, þá þurfi meira að koma til
af opinberra aðila hálfu.
Talsmaðurinn vék nokkuð nán
ar að þessu og sagði, að fram-
leiðsla Bandaríkjanna næmi
60% af heildarframleiðslu með-
limaríkjanna, og því myndi
aukning framleiðslu vestan hafs
geysi þýðingarmikið hemað-
arlega vegna kafbátaleið-
anna um Norður-Atlantshaf.
Ef Atlantshafsbandalagið hef
ur varnarstöðvar á íslandi,
verður miklu erfiðara fyrir
Rússa að koma kafbátum sín-
um suður í höf. Þess vegna
berjast liðsmenn þeirra hér á
landi svo ákaft fyrir því, að
ísland verði vamarlaust og
umlukið rússneskum kafbáta
flota.
Tíminn birti fregn þessa
líka, og vonandi er, að Fram-
sóknarmenn dragi af henni
réttar ályktanir og sýni meiri
ábyrgðartilfinningu í utan-
ríkis- og varnarmálum.
hafa góð áhrif á efnahag hinna
ríkjanna.
Bandaríkin, ítalía, Vestur-
Þýzkaland, Bretland og Frakk-
land framleiða um 80% þess,
sem framleitt er í öllum með-
limaríkjunum, 20 talsins. Benti
talsmaðurinn á þessa staðreynd,
og sagði, að hún væri megin-
ástæðan fyrir því, að menn
beindu einkum athygli sinni að
þessum stórþjóðum.
Fram kom einnig á fundinum,
að launa- og verðhækkanir hjá
ýmsum Evrópuþjóðum hefðu
gert Bandaríkjunum auðveldara
um sölu meðal þessara þjóða.
Hins vegar yrði að gæta þess vel,
að hækkanir í Evrópu yrðu ekki
of miklar, þá mætti búast við
gagnkvæmum áhrifum.
Varafjármálaráðherra Banda-
ríkjanna ræddi fyrirhugaðar að-
gerðir Bandaríkjastjórnar í efna
hagsmálum. Kom m. a. fram af
ummælum hans, að vestra hafa
ráðamenn í hyggju að beita sér
fyrir skattalækkunum á næsta
ári.
Tímaritið
GOÐASTEINN
IJT er komið 1. hefti tímaritsins
„Goðasteinn". Af efni heftisins
má nefna: Nýtt kvæði eftír séra
Sigurð Einarsson í Holti, sem
nefnist Páll biskup Jónsson. Ég
man þá nótt, æskuminning frá
Hjörleifshöfða eftir Kjartan Leif
Markússon, Minning um Einar
Bergsteinsson klæðskera eftir
Þórð Tómasson, Parísarför 1962
eftir Jón R. Hjálmarsson, Úr safni
Sighvats í Eyvindarholti (gömul
þjóðtrú, lausavísur og endurminn
ingar), Eitt sinn átti að gefa
Rússum ísland, grein eftir Jón
R. Hjálmarsson, Sagnaþættir eftir
Þórð Tómasson, grein um skipið
Pétursey í Byggðasafninu í Skóg-
um, og skemmtisögur skráðar af
Önnu Vigfúsdóttur frú Brúnum.
Útgefendur og ritstjórar Goða-
steins eru Jón R. Hjálmarsson og
Þórður Tómasson í Skógum undir
Eyjafjöllum. Segjast þeir m. a.
í formálsorðum leggja á það meg
ináherzlu að bjarga alls kyns þjóð
legum og menningarsögulegum
fróðleik. — Kápumynd tímarits-
ins teiknaði Jón Kristinsson á
Lambey.