Alþýðublaðið - 22.12.1929, Síða 2
2
» líÞÝÐUliiABIB
Strand TarOskipsins „I>órs“.
Monnnnaiii b|argað.
FB., 22. dez. kl. 5 e. m.
Frá Blönduósi er símað: Á
meöal báta, sem komnir eru á
strandstaðinn, eru tveir bátar af
Skagaströnd, vel mannaðir. Sex
menn af „Þór“ komust í björg-
‘unarbátnum yfir að öðrum bátn-
um, sem flutti j)á til Skaga-
strandar. Mennirnir voru 2. stýri-
maður, 1. vélstjóri, kyndari, loft-
skeytamaður og tveir hásetar.
Þeir höfðu allir sætt vosbúð mik-
illi og höfðu því fataskifti og
fengu hressingu, en ætluðu aftur
á bátnum á strandstaðinn. Komu
íþeir til þess að sækja kaðla og
fleira til björgunarinnar. Þeir
höfðu góða von um að takast
myndi að bjarga öllum. Mikill
sjór er kominn í sldpið, og ljós
auðvitað engin síðan sjór kom í
vélarrýmið. Þeir, sem á skipinu
eru, hafast nú við í klefa aftur
á. Skipstjórinn kom bréfi á land
i flotholti 'þess efnis, að öllum
liði vel. — Enskur botnvörpung-
ur var á Húnaflóa og skaut
„Þór“ tveimur neyðarskotum, en
sennilega hafa Englendingar ekki
heyrt skotin, því að þeir hafa
ekki hreyft sig til bjargar
„Þórs“-mönnum. — „Ægir“ og
„Hannes Táðherra" eru á leiðinni
á strandstaðinn, „Ægir“ að sunn-
an, en „Hannes" frá önundar-
firði. „Hannes“ ætti að geta kom-
ið á miðnætti.
Blönduósi, kl. 7 e. m.
Þeir á Skagaströnd, sem ætla
aftur á strandstoðinn, eru um
það bil ferðbúnir. Af „Þórs“-
, mönnum fara ’þrír og svo Skag-
strendingamir. Ef veðrið ekki
versnar og kvikan minkar, og
hana mun heldur að ltegja, ætti
öllu að vera óhætt. Skagastrand-
arbátarnir bíða komu „Hannesar
ráðherra“, verða á verði þangað
til og aðstoða við björgunina og
ef hægt er gera þeir tilraun til
bjorgunar, þegar báturinn, sem
flutti „Þórs“-menn á Skaga-
strönd, er aftur kominn á vett-
vang. — Bifreið á Blönduósi bíð-
ur í fjörunni til taks, ef sæítja
þarf. lækni hingað.
KI. IO1/2 e. m.
Frá Blönduósi er símað: Horf-
urnar fyrir björgun mannanna
eru betri, þar eð veður er mikið
að lægja og brim að minka.
Báturinn frá Skagaströnd fór
aftur á strandstaðinn fyrir tveim-
ur stundum. Gera menn ráð fyr-
ir, að sá bátur muni geta bjargað
mönnunum á fjörunni, ef til vill
öllum 'þeirrá. Úr því kl. er 3
ætti að fregnast, hvernig sú til-
raun gengur. Það er eKki búist
við „Hannesi ráðherra" fyrr en
kL. 4—5 og „ Ægi“ kl. 7-8 i
fyrra málið og verður því lögð
áherzla á að gera tilraunina nú
um fjöruna, eftir miðnætti. —
Sjór hefir gengið mikið niður og
gengur ekki yfir skipið. Vona
menn, að líðan þeirra, sem á
„Þór“ eru, sé þolanleg.
FB., 23. dez. kl. 4 að morgni.
Frá Skagaströnd er símað: Eft-
ir kl. 1 í nótt var gerð tilraun
til þess að bjarga mönnunum,
sem eftir eru í „Þór“. Var not-
aður „Þórs“-báturinn, sem menn-
irnir 6 björguðust á. Þrír þeirra
tóku þátt í tilrauninni og voru
þeir einir í „Þórs“-bátnum, fyrsti
vélstjóri, annar stýrimaður og
loftskeytamaðurinn. Höfðu þeir
kaðal á milli báts síns og
„trillu“-bátsins frá Skagaströnd.
Tilraunin misheppnaðist vegna
myrkursins. Gátu þeir ekki varað
sig á ólögunum og hvolfdi bátn-
um tvisvar, en einhvern veginn
gátu þeir rétt hann við og bjarg-
ast upp í hann. „Þórs“-mennirnir
þrir vildu ekki, að aðrir færi í
bátinn, enda allir vanir björgun
og syndir, en eigi að siður þykir
það bera dugnaði þeirra, þreki
og félagsþeli fagran vott, hve
þeir lögðu sig fram. Þrátt fyrir
vosbúðina líður þeim vel. Var
farið með þá til Skagastrandar
og þeir háttaðir niður í rúm.
önnur tilraun verður ekki gerð
fyrr en birtir. Vafasamt er, hvort
reynt verður fyrr en „Ægir“
kemur. Veður er gott, norðaustan
hægja, en brim enn mikið. Mönn-
unum á „Þór“ líður betur en í
gærmorgun, voru þá gegnvotir
eftir nóttina, nú farnir að þoma,
þótt köld sé vistin og ömurleg
biðin. Hér telja menn mjög mikl-
ar líkur — jafnvel fulla vissu —
fyrjr björgun, er birtir.
Kl. 10 og 40 mín. árdegis.
Frá Blönduósi . er símað:
„Hannes ráðherra" er nýkominn
á strandstaðinn. Eimskip er á
leiðinni inn flóann. Telja menn
vist, að það sé „Ægir“.
Bátarnir af Skagaströnd eru
komnir aftur á strandstaðinn.
Veður er ágætt og minna brim
en áðuT.
Björgunarhorfur góðar.
„Hsnnes ráðherra" bjargar
mönnunum.
Kl. 11 og 15 mín. í morgun
kom loftskeyti frá „Hannesi ráð-
herra“ um, að allir mennirnir af
„Þór“ væru komnir í báta heilu
og höldnu á leið yfir í „Hannes
ráðherra" og veðrið orðið gott.
Björgun því örugg.
Nokkru síðar kom hingað sím-
fregn þess efnis, að mennirnir
væru allir komnir um borð í
„Hannes ráðherra" og að meðan
á björguninni stóð hefði varð-
skipið „Ægir“ komið á strand-
staðinn.
Jólaskór.
Borgarinnar fallegasta og fjölbreytt-
asta úrval. — Feikna úrval af inni-
skóm tekið upp á morgun. —
Siii Reykjavfkir,
Aðalstræti 8.
Kjörin á linuveiðurunnm.
Samkomulag hefir ekkl náðst.
Stjóm Sjómannafélags Reykja-
víkur og fulltrúi frá Sjómanna-
félagi Hafnarfjarðar komu enn í
fyrra kvöld á fund með stjórn
Félags íslenzkra línuveiðaraeig-
enda til þess að semja um kjör
háseta á línuveiðurum, en sam-
komulag náðist ekki, og mun
málið nú afhent sáttasemjara til
meðferðar. ' (FB.)
Stórflóð og skemdir
á Siglufirði.
FB., 22. dez.
Frá Siglufirði er símað: Ofsa-
rok á nor<in með stórhríð og
foráttubrimi skall á aðfaranótt
laugardags og hélst laugardaginn
til kvölds með stórflæði og sjáv-
arólgu, sem gekk yfir mestalla
eyrina og suður af henni ofan
við kvikmyndahúsið og Goos-
tverksmiðju. Fólk neyddist til
þess að flýja úr mörgum húsum
og skepnum varð nauðulega
bjargað, enda ófært ’mönnum yfir
flóðtímann um norðureyrina, sök-
um vatnsdýptarinnar, og á bátum
var einnig ófært fyrir veðurofs-
anum. Á Aðalgötu var flóðið
hnédjúpt og í sumum húsum
með fram Lækjargötu álíka. Hús
og munir er stórskemt af vatn-
inu, timbur og annað lauslegt
flaut í hrönnum á götunum. Fé-
lagsbakaríið og margar sölubúðir
urðu að hætta afgreiðslu. Vörur
stórskemdust, þar á meðal mikið
af mjölvöru í Hertervigs-bakara-
búð. Brimið braut allar bryggjur
ríkisbræðslunnar, síldarbryggjur,
eign bæjarins, bryggjur dr. Pauls,
söltunarstöð Halldórs Guðmunds-
sonar, Ásgeirs-bryggjur, Baldurs-
bryggju og laskaði Henriksens-
og Thorarensens-bryggjur. Mest
er tjón ríkisverksmiðjunnar og
Halldórs Guðmundssonar. ^Einnig
tók sjór timbur frá ríkisverk-
smiðjunni og tunnur og salt á
Jólatré
með gjafverðly hentngar
stærðlr.
Gnðmnndnr
Hafliðason,
TestgrgD’u 39. Simi 427.
Vegna
áskorana
böldum við áfram
að seljameðlækk-
uðu verði
borð- 09
ferða-fðna
Nú 56,00 áðnr 65,00
- 67,00 — 75,00
- 72,00 —. 85,00
- 87,00 92,00
-108,00 — 118,00
Komið í dag held-
I
ur en á morgun,
ef þér viljið kaupa
þessu verði.
Hljöðfærahúsið.
söltunarstöð Halldórs frá Einka-
sölunni. Brakið úr nyrstu bryggj-
unurn rak á þær innri og braut
þær. Tjónið mun sennilega nema’
yfir 100 000 krónum. — Tvo vél-
báta rak á land í Dalvík. Annar
brotnaði og braut bryggju. Póst-
báturinn lagði af stað héðan á.
föstudagskvöld, slapp í byrju*