Morgunblaðið - 01.02.1963, Blaðsíða 1
24 siður
Utauríkisráðherra Hollands telur
einingu V-Evrópu
nauðsynlegri nú
en nokkru sinni
Haag, 31. jan. — NTB-AP
1 DAG voru atburðir síðustu
daga í Briissel ræddir í hol-
lenzka þinginu. Meðal þeirra,
scm tóku til máls, var Josep
Luns, utanríkisráðherra Hol-
lands. Lýsti hann vonbrigð-
um sínum yfir málalokunum
í Briissel og andstöðu hol-
lenzku stjórnarinnar við að-
gerðir Frakka í Briissel.
De Gaulle móðgaði Breta
Vonderling prófessor, formað-
ur verkamannaflokks Hollands,
sem er í stjórnarandstöðu, tók
einnig til máls. Sagði hann de
Gaulle hafa móðgað bæði Breta
og bandamenn sína innan EBE.
Sagði hann, að Erakklandsfor-
seti hefði komið fram eins og
einræðisherra. Vonderling gagn-
rýndi einnig fransk-þýzka sátt-
málann, sem undirritaður var í
París.
Skoðun de Gaulle hættuleg
hinurn frjálsa heimi
í þingræðu sinni sagði Josep
Luns, að eining innan Evrópu
væri nú nauðsynlegri en nokkru
sinni fyrr og skýrði frá því, að
Efnahagsbandalagslöndin fimm, '
sem hlynnt eru aðild Breta, |
ræddu nú um það hvernig mætti *
styrkja sambandið við Breta.
Hann sagðist vera þess full-
viss að viðræðurnar um aðild
Breta að EBE yrðu hafnar á ný,
en sá frestur, sem yrði á þeim
nú gæti orðið hættulegur eining-
unni innan bandalagsins og
einnig samvinnu Atlantshafs-
bandalagsríkjanna. Hann lýsti
andstöðu hollenzku stjórnarinn-
ar við afstöðu Frakka og sagði,
að sjónarmið de Gaulles forseta
myndi leiða til stjórnmálalegrar
og efnahagslegrar sundrungar í
V-Evrópu. Sú skoðun Frakk-
landsforseta, að Evrópa eigi að
mynda þriðju valdaheildina í
heiminum, óháða Bandaríkjun-
um, sé mjög hættuleg hinum
frjálsa heimi.
Luns sakaði utanríkisráðherra
Frakka, Couve de Murville, um
að hafa notað tilhæfulausar full-
yrðingar í Brússel. Benti hann
á það, að Murville hefði haldið
því fram, að ekkert hefði verið
aðhafzt frá því í október sl. til
þess að reyna að leiða viðræð-
urnar til lykta og Bretar vildu
ekki samrýma stefnu sína í land-
búnaðarmálum stefnu banda-
lagsríkjanna. Sagði Luns að
þetta væri ekki rétt, frá því í
október hefði orðið mikið á
gengt í viðræðunum við Breta. j
„Viðræður um aðild Breta að
EBE verða hafnar að nýju“
Segir Walter Hallstein íormaður stjóm-
arnefndar bandalagsins
Brown, WSIson
og Callaghan
formannsefni
Verkamanna-
flokksins
London, 31. jan. (NTB)
Tilkynnt var opinberlega í
London í dag, að Harold Wil-
son, George Brown og James
í Callaghan, verði í framboði
‘ við formannskosningar brezka
Verkamannaflokksins. Kosn-
ingarnar fara fram í næstu
viku og verða úrslit þeirra
kunngjörð 7. februar n. k., ef l
einn frambjóðenda fær meira /
en helmingi fleiri atkvæði, *
en hinir háðir samtals. Það
eru 248 þingmenn Verka-
mannaflokksins, sem kjósa for
manninn.
George Brown er varafor-
maður Verkamannaflokksins,
Harold Wilson er sérfræðing-
ur flokksins í utanríkismálum
og James Callagtian er sérfræð
ingur hans í f jármálum.
Brússél, Moskvu, París, 31. jan.
— NTB-AP —
í D A G voru endalok við-
ræðna Breta við Efnahags-
bandalag Evrópu um aðild
að bandalaginu enn til um-
ræðu víða í Evrópu (Annars
staðar á síðunni birtast um-
mæli utanríkisráðherra Hol-
lands).
• Walter Hallstein, formaður
Krúsjeff kallar
Berlínarmúrinn
líkþorn
Berlín 31. jan. (NTB-AP).
MÁLGAGN kommúnistaflokks
A-Þýzkalands í A-Berlín „Die
Warheit“ (Sannleikurinn) segir
í dag, að Krúsjeff forsætisráð-
herra Sovétríkjanna hafi rætt
við formann evangelísku aka-
demiunnar í V-Berlín og fleiri
V-Berlínarbúa á meðan að hann
dvaldist í A-Berlín í sambandi
við flokksþingið, sem þar var
haldið.
Segir blaðið að Krúsjeff hafi
sagt V-Berlínarbúunum, að hann
væri ekki hlynntur því að alls-
herjaratkvæðagreiðsla yrði látin
fara fram í Þýzkalandi um fram-
tíð landsins. \
Krúsjeff ræddi Berlínarmúr-
inn og kalíaði hann líkþorn á
fæti Þýzkalands, líkþorn, sem
ekki væri hægt að losna við.
Ennfremur sagði forsætisráð-
herrann, að hann hefði fyrir
tveimur eða þremur árum heim-
sótt V-Berlín á laun og ekið um
borgina í herbifreið Enginn
hefði þekkt hann.
stjórnarnefndar EBE, hélt fund
með fréttamönnum og sagði: að
mörg vandamál myndu bíða ráð-
herranefndar EBE, vandamál,
sem væru afleiðing viðræðuslit-
anna í Brussel. Það er auðvelt
að gera sér grein fyrir því hvað
verður t.d. í sambandi við stefn
una í landbúnaðarmálum. Hall-
stein varaði við því að líta of
alvarlegum augum á viðræðu-
slitin. Sagði hann, að það væri
nú hlutverk stjórnarnefndar
EBE að koma í veg fyrir að starf
semi bandalagsins lamaðist.
Hann sagði, að ekkert gæti kom
ið í stað sameinaðrar V-Evrópu
og kvaðst vera þess fullviss, að
það takmark myndi nást. Ákvörð
unin, að hætta viðræðum við
Breta, væri ekki endanleg. Að
ild Breta að EBE væri enn á dag
skrá og viðræður vun aðild
þeirra yrðu hafnar að nýju, þó
að ekki væri hægt að segja hrve
nær það yrði. Hallstein sagðj, að
það hefði valdið sér miklum von
brigðum hvernig fór í Brússel
og benti á, að það, sem þar hefði
gierzt hefði einnig áhrif utan
Efnahagsbandalagsins.
Hallstein var spurður hvað
hann teldi, að önnur lönd, sem
sótt hefðu um aðild að bandalag
inu gerðu nú. Hann sagðist vera
þess fullviss, að fjöldi stjómar-
erindreka írÉ þessum löndum
myndu koma til Brusel á næst-
Á laugardaginn var þjóðhá- <
tíðardagur Indverja og var J
mikið um dýrðir í landinu í
því tilefni. í Nýju Dehli var
mikil skrúðganga og fór
stjórn landsins í broddi fylk-
ingar. I fremstu röð eru frá
vinstri: Ráðherranr., sem fer
með málefni þin^sins, Sinha
(ber fána), varnarmálaráð-
herrann Chavan, Singh tals-
maður þingsins, Nehru for-
sætisráðherra, Desai fjár-
málaráðherra og Ram sam-
göngumálaráðherra.
unni til þess að ræða ástandið
við stjórnarnefndina.
Ekki hægt að vera án
stuðnings U.S.A.
í dag birtist viðtal við Poul
Henri Spaak, utanríkisráðberra
Belgíu í blaði í Frakklandi. í
viðtalinu sagði Spaak m.a. að
Framh. á bls. 23
Ágreiningur USA og
Kanada um varnarmál
Ottawa, 31. jan. (NTB-AP). John
Diefenbaker, forsætisráðherra
Kanada, sakaði í dag Banda-
ríkin um að hlutast til um mál-
efni Kanada að heimildarlausu.
Forsætisráðherrann hélt ræðu í
Neðri deild kanadiska þingsins
og ræddi um yfirlýsingu, sem
Bandaríkjastjórn hefur sent frá
sér um varnir Kanada. í yfirlýs-
Mindszenty kardínáii
úr sendiráði USA
Mtlanó, 31. jan. — NTB-AP
BLAÐIÐ „II Giorno“ í Míl-
anó sagði í dag, að þær
fregnir hefðu borizt frá Ung-
verjalandi til Vínar, að Jozef
Mindszenty, kardínái, myndi
innan skamms geta yfirgefið
bandaríska sendiráðið í Búda-
pest, en þar hefur hann dval-
izt frá því að uppreisnin var
gerð í Ungverjalandi 1956.
Blaðið sagði, að innan skamms
yrði undirritaður samningur
milli Páfastóls og stjórnar Ung-
verjalands um, að Mindszenty
væri frjálst. að yfirgefa sendi-
ráðið og fara annað hvort til
Rómar eða ganga í klaustur í
Ungverjalandi. En þau skilyrði
voru sett, að kardínálinn hætti
að starfa sem yfirmaður róm-
verks-kaþólsku kirkjunnar í
Ungverjalandi og hefði engin af-
skipti af stjórnmálum í framtíð-
inni.
ingunni segir, að Kanadamenn
verði að búa eldflaugar sínar
kjarnorkusprengjum, því annað
samrýmist ekki áætlun Banda-
ríkjanna um varnir N-Ameríku.
Ef þetta verði ekki gert komi
þau vopn, sem Bandaríkin hafi
látið Kanadamönnum í té ekki
að fullum notum.
Diefenbaker sagðist hafa skýrt
Bandaríkjastjórn frá því, að hann
teldi ekki ástæðu til þess, að eld-
flaugar Kanada yrðu búnar
kjarnorkusprengjum að svo
stöddu, en þrátt fyrir það birti
Bandaríkjastjórn áðurnefnda yf-
irlýsingu.
Sagði hann, að yfirlýsingin.
bæri því ljóslega vitni, að Banda-
rí'kin vildu hlutast til um málefni
Kanada.
Diefenbaker skýrði þingmönn-
um frá því, að hann hefði kallað
sendiherra Kanada í washington
heim til viðræðna um ástandið.
Fréttamaður brezka útvarpsins
í Ottawa segir, að ágreiningur sá,
sem nú hefi risið með stjórnum
Kanada og Bandaríkjanna sé sá
alvarlegast í 20 ár.
Tilkynnt var í Washington í
kvöld, að Bandaríkjastjóm
myndi ekki gefa út neina yfirlýs
ingu vegna þessa máls.