Morgunblaðið - 01.02.1963, Side 23
Föstudagur 1. febrúar 1963
M ORGV TS BL AÐIÐ
23
Erlendar
fréttir
í stuttu máli
• GAITSKEL.I1S MINNZT
London,, 31. janúar.
(NTB-AP)
í dag var haldin minn-
ingarguðsþjónústa um hinn
látna leiðtoga brezka Verka-
mannaflokksins, Hugh Gait-
skell. Var guðsþjónustan hald
in í Westminster Abbey, að
viðstöddum rúmlega 2 þús-
und mönnum. Meðal þeirra
voru Macmillan, forsætisráð-
herra Breta, Willy Brandt,
borgarstjóri V-Berlínar, Jens
Otto Krag, forsætisráðherra
Dana, og Per Hækkerup, ut-
anríkisráðherra Dana. — Gait-
skell var jarðsettur 23. jan.
sl. —
• BLAÐAVERKFALL
RÆTT
New York, 31. janúar.
(NTB-AP)
Fulltrúar blaðaútgefenda
og prentara í New York komu
í gær saman til fundar til þess
að reyna að leysa blaðaverk-
fallið, sem staðið hefur 57
daga. Borgarstjóri New York-
borgar, Robert Wagner, sat
fundinn, en honum var ekki
lokið fyrr en um hádegi í
dag. Borgarstjórinn sagði að
fundinum loknum, að lausn
verkfallsins væri enn langt
undan.
• VERKFÖLL Á ÍTALÍU
Róm, 31. jan. (NTB)
í dag hófu 70 þús. ítalsk-
ir byggingaverkamenn verk-
fall og námuverkamenn og
háskólakennarar hafa boðað
verkföll í næstu viku. Þrjú
stærstu verkalýðsfélög Ítalíu
hafa gefið félagsmönnum sín-
um fyrirskipanir um að
leggja niður vinnu nokkrar
klukkustundir 8. febr, nk. til
þess að leggja áherzlu á kröf-
ur sínar um hærri laun og
betri starfsskilyrði.
• ÆVISAGA
CHURCHILLS
London, 31. jan. (AP)
Blaðamaðurinn Randolph
Churchill, sonur Sir Winstons
Churchills, skýrði frá því í
dag, að honum hefði verið
falið að rita ævisögu föður
síns. Sagðist hann telja, að
hún yrði i fimm bindum, en
útgáfa hennar yrði ekki hafin
fyrr en að Sir Winston látn-
um.
• FÓTSTÓR — GÁFAÐUR
Tókíó, 31. jan. (AP)
Eðlisfræðikennari einn í
Tókíó heldur því fram, að fót-
stórt fólk, sé betri gáfum
gætt, en hið fótsmáa. Hann
byggir þetta á athugun, sem
hann gerði á nemendum sín-
um fyrir skömmu. Af 41 nem-
anda, höfðu 19, sem höfðu fót-
lengd 25,6 cm eða meira,
hærri greindarvísitölu en hin-
ir 22, sem höfðu styttri fót en
23,5 cm.
Washington, 31. janúar.
(NTB)
Utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, Dean Rusk, sagði í
dag, að nauðsynlegt væri að
semja um alþjóðlegt bann við
því, að gereyðingarvopn væru
send með gervihnöttum á
braut umhverfis jörðina. —
Rusk lagði áherzlu á þetta í
ræðu, sem hann hélt í tilefni
af því að fimm ár eru liðii\
frá því að fyrsta gervihnetti
Bandaríkjamanna, „Explorer
1“ var skotið á loft.
Lítiö gætir jbó eitt-
hvað af silungi
iarist í Höfðavatni
BÆ, HÖFÐASTRÖND, 30. jan.:
í dag er ég fór út á Höfðavatn
til að huga að silunginum, sem
frosinn er í ísinn var kominn
snjór á ísinn á vatninu og sunn-
an stormur, svo lítið var hægt að
gera. Eg hjó þó upp um 10 sil-
unga og virtust það allt vera
sjávarsilungar en ekki leginn
vatnasilungur. Getum við ekki
gert Okkur ljóst af hverju þetta
stafar að silungur hefur frosið
svona fastur í ísinn, nema ef sjáv
Vantraust á brezku
stjórnina fellt
London 31. jan. (NTB).
Neðri deild brezlaa þingsins
hefur að undanförnu rætt varnar
mál, fyrst og fremst Nassau-
samning Macmillans forsætisráð-
herra Breta og Kennedys Banda-
ríkjaforseta.
í kvöld lýst Neðri deildin
fylgi sínu við samninginn og
stefnu stjórnarinnar varðandi
kjarnorkumál, með 94 atkv. mun.
í gær bar George Brown, sem
nú gegnir embætti formanns
Verkamannaflokksins, fram van-
trauststillögu á brezku stjórnina
vegna stefnu hennar í varnarmál
um. Kvað Brown stefnu stjómar-
innar á sviði landvarna vera í
molum. í kvöld var vantrausts-
tillagan felld með 337 atkvæðum
gegn 234.
Strákar brjót-
ast inn
Á ÞRIÐJUD AGSKV ÖLD tóku
þrír strákar á aldrinum 12—13
ára leigubíl, en þar sem bílstjór-
anum þótti grunsamlegt að svo
ungir piltar fengju sér leigubíl,
ákvað hann að fara með þá á
lögreglustöðina. Hlupu þá strák-
arnir út, en bílstjórinn greindi
lögreglunni frá þessu og lýsti
drengjunum.
í fyrradag komu strákar inn
á lögreglustöð til þess að skila
véski, en þá þekkti lögregluþjónn
nokkur einn drengjanna af lýs-
ingu bílstjórans. Kom á daginn
að þeir höfðu tvo daga í röð nú
í vikunni brotizt inn í geymsiu
í kjallara Nýja bíós, þar sem
geymdir eru óskilmunir, og stolið
einhverju lítilræði.
• OPINBER HEIMSÓKN
London, 31. jan. (AP)
Elísabet Englandsdrottn
ing og maður hennar Filippus
hertogi héldu í dag í opinbera
heimsókn til Fiji-eyja, Ástral
íu og Nýja-Sjálands.
arsilungurinn hefur verið þetta
ofarlega í vatninu og frosið í
vökum.
Aftur á móti er nógur silungur
í vatninu. Fyrir tveimur dögum
var lagt net í smáhluta vatns-
ins, en ekki er almennilega hægt
að komast að þessu vegna íss-
ins. Og komu 11 silungar strax
í netið á þessu litla svæði. En
silungurinn er svo mikill í Höfða
vatni að eklci gætir þó eitthvað
fari. — Björn.
í GÆR voru fréttamenn Morg
unblaðsins viðstaddir atburð,
sem ekki mun hafa gerzt áður
hér á landi og að líkum hvergi
í heiminum að þ.ví er okkur
er tjáð. Skipt var um vél
Ford leigubíl og tóku skiptin
aðeins 45 mínútur.
Eigandi leigubílsins, Reim-
ar Stefánsson, afhenti verk-
stæðismönnunum bíl sinn j
Fimmtán þúsund krónur, takk! Hér er lokið við að skipta um
vél í bílnum og Reimar Stefánsson gerir upp við í»órð Jóns-
son, eftir að vélaskiptin hafa tekið aðeins 45 mínútur.
Skipt um vél á 45 mínútum
gærdag, einn þeirra sótti hann
heim til hans. Síðan var vélin
í bílnum gufuþvegin og kl.
rúmlega 4 síðdegis var hon-
um ekið mn á verkstæðið. —
Eftir nákvæmlega 45 mínútur
var búið að setja í bílinn nýja
vél, sem var tilbúin að öllu
leyti í gálga til niðursetning-
ar um leið og hin var tekin úr
bílnúm. Á meðan gengið var
frá nýju vélinni í bílnum var
sú gamla tekin í sundur og
metið hvort hún væri hæf til
að taka hana upp í hina nýju
og reyndist svo vera. Bílstjór
inn greiddi því mismuninn,
kr. 15 þúsund, ók síðan á brott
og fyrsta ökuför hans með
hinni nýju vél var að flytja
fréttameninna frá Vélaverk-
stæði Þ. Jónssonar & Co í
Brautarholti 6 og niður að
Morgunblaðshúsi.
Við spurðum Þóri Jónsson
um gang þessa máls. Hann
sagði að raunar væri hér ekki
um nýja vél að ræða heldur
nýupptekna. Hún ætti þó að
hafa 80—90% notagildi miðað
við nýja vél. Hins vegar þyrfti
eigandinn ekki að greiða nema
13—15 þús. fyrir hana, þegar
gamla vélin væri látin ganga
upp í eins og hér væri gert.
Að hægt væri að skipta um
vél á svo skömmum tíma
byggðist á því að búið væri að
„prufukeýra“ vélina á verk-
stæðinu áður en hún er látin
í bílinn og þarf þvl ekkert að
eyða tíma í að stilla hana.
Það hefir allt verið gert áður.
Það mun vera til hjá Volks-
wagenumboðunum að skipt er
um vélar með sama sniði og
hér um ræðir t. d. í Svíþjóð.
Hitt er nýtt að það sér gert
í stærri bílum.
Fjórir menn unnu að vélar-
skiptunum og eru þeir mjög
vanir og færir í sínu starfi og
hraðinn ekki hvað sízt því að
þakka.
— Viðræður
Tramhald af bls. 1.
hann teldi, að samni-ngurinn, sem
Macmillan forsætisráðherra
Breta og Kennedy Bandaxíkja-
forseti gerðu á Baihaniaeyjum
væri ef til vill ein meiginástæð-
an til framkomu Frakka í Brúss-
el.
Spaak sagði, að takmarkið, sem
bæri að keppa að væri Evrópa,
sem stæði jafnfætis Bandaníkjun
um. Sagði hann að Evrópa gæti
'þó ekki verið án stuðnings og
vináttu Bandaríkjanna.
Á móti aðild frá upphafi
Montgomery marskálkur, kom
í dag til Höfðaborgar í S-Afríku.
Við komu sína þangað, sagði
hann að hann hefði- alltaf verið
því mótfallinn, að Bretar gerðu
ust aðilar að Efnahagsfoandalagi
Evrópu. Sagðist hann því vera
Leikfélag Hafnarfjarðar hefur að undanförnu sýnt leikritið
Belinda, við góðar undirtektir og aðsókn. Næsta sýning er í
kvöld ki. 8.30. Myndin er af Bjarna Steingrímssyni og Svan-
dísi Jónsdóttur í hlutvcrkum sinnm.
mjög ánægður með málalokin í
Brússel. Montgomery sagði enn
fremur, að de Gaulle Frakklands
forseti stefndi að því að reyna
að auka ágreininginn milli Rússa
og Kínverja og sagði, að tækist
honum að valda vinaslitum þess
ara ríkja, hefði hann unnið mik-
ið afrek.
U.S.A. kallar sendiherra
til viðræðna.
Þær fregnir bárust frá Bonn
í dag, að Bandaríkjastjórn hefði
kallað Walter Dowling, sendi-
herra sinn í V-Þýzkalandi heim
til viðræðna. Dowling átti við-
ræður við ýmsa ráðherra stjóm
arinnar í Bonn skömmu áður en
viðræður Breta við EBE fóru út
um þújBur.
Kvatt til mótmæla
Talsmaður háskólans í V-Berl
ín skýrði frá þvi í dag, að annað
kvöld myndu 20 þús. stúdentar,
sem stunda nám við háskólann
Aalda fund til þess að mótmæla
málalokunum í Brússel.
Heimild til að selja
Utanverðunes
GUNNAR Gislason hefur lagt
fram á Alþingi frumvarp þess
efnis, að stjórn Utanverðunessleg
ats heimilist að selja ábúanda
hálfa jörðina Utanverðunes í
Rípurhreppi. Enn fremur heimil
ast stjórn legatsins að selja hinn
helming jarðarinnar, ef áfoúð á
þeim hluta jarðarinnar er tryggð
eða önnur sú starf^-emi, er jafn-
gildir ábúð. .
— Alþingi
Framh. af bls. 6.
úr vinstri stjórninni án þess a
tala við samstarfsflokkana, þ
einnig 1 því skyni að lækk
kaupgjaldið. „Mér þykir voða
lega leiðinlegt að segja það‘
sagði Einar, „ég vildi óska, a
Framsóknarmenn stæðu einni
við kauphækkunarkröfur sínar
ríkisstjórn“.
Þá veik Einar nokkuð að árás
um Framsóknarflokksins á Sjáli
stæðisflokkinn fyrir að Eina
skyldi eiga sæti í Norðurlanda
ráði og í stjórn Sogsvirkjunar
innar. Benti hann á, að me
stofnun Norðurlandaráðs hefí
beinlínis verið gert ráð fyrir þv
að sem flest sjónarmið kæm
fram. Sú ráðstöfun, að kosnin
fimm manna nefndar skui
kjörin af sameinuðu þingi, e
því hvort tveggja í senn í and
Norðurlandaráðs og í anda lýð
ræðisins og ættu Framsóknar
menn sízt að ráðast á þá ráð
stöfun, þótt Alþýðubandalagi
fái með því mó.ti einn fulltrúa
Norðurlandaráð, þar sem þei
buðust til þess á tímum vinstr
stjórnarinnar að eftirláta A1
þýðubandalaginu sinn fulltrú
úr neðri deild.
Varðandi Sogsstjórnina bent
Einar á, að Framsóknarmenj
ættu þar sinn fulltrúa. Ekk
hefði hann verið kjörinn af borg
arstjórn Reykjavíkur, því að ti
þess hefðu Framsóknarmenn eki
ert bolmagn. Heldur hefði ríkis
stjórnin skipað hann í stjórnina
þar sem hún hefði talið eðlilegt
að stjórnmálaflokkarnir ætti
þar sinn fulltrúann hver Of
væri ekki nema gott um það a£
segja.