Morgunblaðið - 02.02.1963, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.02.1963, Blaðsíða 8
8 MORCUNBLAÐ1Ð taugardagur 2. febrúar 1909 L.T au'ta* Áfanginn, sem nú er verið að ljúka við. í framtíðinni er gert ráð fyrir viðbyggingum, m. a. bremur viðbótarhæðum ofan á Laugavegsálmuna. Reitirnir milli akreina og umhverfis bílastæði, sem öll eru úr járnbentri steinsteypu, eru gróðurreitir. (Teikn. Halldór Pétursson). Bylting á sviöi bílaviðgerða Hekla hf. flytur ■ ný husákynni H E K L A h.f. tekur í dag í notkun nýbyggingu sína við Lauga- veg 170—172, og opnar þar glæsilegasta bílaverkstæði, sem þekkzt hefur hér á landi. Er verkstæði þetta á allan hátt útbúið eins og bezt gerist erlendis, með mælitæki og rannsóknartæki, sem kanna ástand bifreiðar og hreyfils áður en viðgerð hefst og eftir að henni er lokið. Þarna er þvottastöð með úðunarækjum til að þvo bifreið- ir, stöð til að kvoða undirvagn til varnar ryði og sérstök verkstæði iyrir mælingar, skyndiviðgerðir, aðalviðgerðir, vélaviðgerðir og réttingar. Þá er í nýbyggingunni stærðar verzlun fyrir varahluti í Volkswagen og Land Rover bifreiðir auk varahluta í Caterpillar iæki. Sú hlið verzlunarinnar ,sem snýr að Laugaveginum, er 27 metra löng og samfellt gler í stálrömmum. Alls er þetta nýja hús- næði um 4.200 fermetrar eða um 18.400 rúmmetrar. Fara hér. 6 eftir nobkrar upp- lýsingar um húsnæðið frá >ór Sandiholt arkitekt, en hann hefur haft yfirumsjón með teikning- um að húsinu, gerð þess og inn- réttingu. Húsið er byggt fyrir Heild- verzluninan Heklu h.f. og önnur þau fyrir tæki, er Sigfús Bjarna- son forstjóri veitir forstöðu. Sjálf ur hefur hann, ásamt bróður sínum Svaivari, haft yfirumsjón með framlkvæandum allt frá því að bygging þess í núverandi mynd hófst 1959. Áður hafði ver ið byggð um 830 fermetra verk- stæðisbygging eftir teikningum Sigmundar Halldórssonar arki- tekts. Það, sem byggt hefur verið, er ekki nema hluti þess, sem vonir standa til að síðar verði, því ætl- unin er að byggja þrjár hæðir ofan á álmuna, er liggur við Laugaveg, nýja álrnu austast á lóðinni og hækka elztu bygging una. Nú er gólfflötur alls um 4.200 fermetrar í um 18.400 rúmmetra byggingum. En með þeim viðbót um, sem að ofan greinir, bættust Framhald á bls. 17. Breytingar á starfs- tilhögun í sambandi við flutninga Heklu h.f., ræddi Sigfús Bjarnason for- stjóri við, fréttamenn blaða og útvarps s.l. fimmtudag, og gaf þeim kost á að skoða hin glæsi- legu húsakynni við Laugaveginn. Tilgangurinn með þessu stór- hýsi er að koma upp höfuðstöðv- um allra fyrirtækja, sem Sigtfús Bjarnason stjórnar. Gerir húsið það kleitft að breyta algjörlega allri starfstilhögun. Þótt húsið við Hverfisgötu 103 hatfi verið atfar rúmgott fyrir tíu árum, hef- ur starfsemin aukizt svo gífur- lega, að undanfarin tvö til þrjú Hver bílvirki fær sína verkfærakistu, sem er á hjólum til að auðvelda flutning. Kisturnar eru með læstu loki, sem er jafn- framt sæti fyrir viðgerðarmanninn, og með skúffu fyrir bolta og rær. Verkfærakisturnar eru smíðaðar hjá einu af dóttur- fyrirtækjum Heklu. Myndirnar hér á síðunni tók Kristján Magnússon. ár hefur hver starfsmaður orðið að skila tvöföldu dagsverki við hin erfiðustu skilyrði. Óskar Sig- fús sérstaklega að láta í ljósi inni lega þakkarskuld sína við starfs fólkið allt fyrir ósérhlífni þess/ Nú fást starfsskilyrði, sem sam bærileg eru því bezta erlendis. Samt er Ijóst að innan s'kamms verður verkstæðisrými ekki leng ur fullnægjandi, og hatfa verið gerðar ráðstafanir til þess að tryggja fyrirtækinu lóð undir frekari verkstæðisbyggingar. Fyrirtækjum Sigfúsar Bjarna- sonar verður nú skipt niður í deildir. Er þar fyrst að nefna bitfreiðadeild Vol'kswagen og Land-Rover. Framkvæmdastjóri þessarar deildar verður Árni Bjarnason, sem um tuttugu ára skeið hefur starfað hjá Heklu h.f. Hjá honum munu starfa Finn bogi Eyjóltfsson verzlunarstjóri, Jón Ármann Jónsson, fram- kvæmdastjóri verkstæðisins, Óli M. ísaksson sölustjóri Land-Rov er, örn Egilsson sölustjóri Volks wagen, og Gunnar Pedersen sölu maður á Keflavíkurflugvelli. Finnbogi hefur séð um verzlun og varahluti bifreiðadeildarinn- ar, og starfað hjá fyrirtækjuim Sigfúsar í um 20 ár. Einnig hef- ur hann verið yfirmaður verk- stæðisins. Þessi störf hafa aukizt svo mjög að Finnbogi hefur neyðzt til að leggja nótt við dag, og var þess vegna nauðsynlegt að skipta starfinu. Jón Ármann Jónsson var áður kennari við Vélskólann. Hann fór á síðasta ári i kynningardvöl til Skandinavisk Motor A/S í Kaupmannaihöfn og víðar í Dan- mörku, en fyrirtæki þetta hefur umiboð fyrir Volkswagen og Land-Rover í Danmörku. Kynnti Jón sér sérstaklega tilihögun og fyrirkomulag ákvæðisvinnu, sem tíðkast um allan heim hjá Volks- wagen. Er það tilgangur Sigfús- ar að bjóða bílvirkjum ákvæðis- vinnu í nýja verkstæðinu, en að sjálfsögðu tekur það nokkurn trma að koma á slíkri vinnutil- högun. Óli M. fsaksson hefur starfað hjá fyrirtækjum Sigfúsar síðan 1945, og er auk þess elzti starfs- rnaður bílaiðnaðarins hér á landi. Hann er formaður Samibands bifreiðaverkstæða á íslandi. Caterpillerumboðið verður sér stök deild í nýju húsakynnunum, og Verður Sverrir Sigfússon fram kvæmdastjóri hennar. Sölustjór- ar verða Kjartan Kjartansson fyrir bátavélar og Davíð Erlends son fyrir landvélar. Verzlunar- stjóri varahlutadeildarinnar verð ur Karl Karlsson. Framkvæmdastjóri Rafmagns- deildar Heklu er Árni Ragnars- son, og framkvæmdastjóri Raf- tækjavinnustofu Heklu Svavar Bjarnason, bróðir Sigfúsar. Á Svavari hefur hvílt meginþungi við framkvæmidir nýbygginganna við Laugaveg 170—172. Enn eru ekki talin öll umboð Heklu, en ætlunin er að sameina, öll önnur umboð í eina deild. Af öðrum umboðum má t.d. nefna Goodyear, stærsta gúmmí- fyrirtæki heims, Solex, sem smíðar blöndunga í flestar bitf- reiðir Evrópu og The Benedix Corporation, sem smíðar bifreiða hluti fyrir margar bílasmiðjur bæði í Evrópu og Ameríku. Þá er ótalin fjárhags- og bók- haldsdeild, sem Sigfús mun sjálf ur veita forstöðu, auk þess sem hann hefur að sjálfsögðu ytfir- umsjón með öðrum deildum og er tengiliður milli þeirra. Þar verður Lýður Björnsson skritf- stotfustjóri, en hann hefur startf- að hjá Heklu í rúm 20 ár, og gjaldkeri verður Jóhanna Tryggvadóttir, sem sinnt hefur því starfi í um tíu ár. Á fyrstu hæð álmunnar við Laugaveg verður afmarkað svæði fyrir sýningarbíla, en aust asta hlut álmunnar hefur Siig- fús leigt út. Leigutakar eru Ge- org Ámundason & Co., Verzlun- arbankinn og rakarastotfa Skúla Nielsen. Georg Ámundason ann- ast m.a. sölu og viðgerðir útvarps tækja í bifreiðir, og getur verið þægiiegt fyrir eigendiur Volks- wagen og Land-Rover bifreiða að eiga þar innangengt. Einnig getur 'verið þægilegt fyrir við- skiptamenn að geta brugðið sér á rakarastofu meðan beðið er eftir smá viðgerðum. Sigfús Bjarnason vill vara við skiptavini gegn því að búast við of skjótum breyiingum til batn- aðar á afköstum á nýja verkstæð inu. Það tekur einn til þrjá mán- uði fyrir bílvirkjana að aðlag- ast hinum nýjú starfsháttum og kynnast meðferð og hagnýtingu hinna nýju tækja. — ___ | * Varðandi sölu bifreiða reiknar Sigfús með, að hún verði í líku formi og undanfarið, þ.e. að mið að verði við staðgreiðslu, þar sem bankarnir eru ófúsir að lána út á bíla. Hins vegar geta orðið frávik frá þessu í þeim tilfell- um, þegar innflytjendur eiga ó- Framhald á bls. 17. Sigfús Bjarnason forstjóri. Þetta kom allt af sjálfu sér segir Sigfús Bjarnason AÐSPURÐUR um sjálfan sig svarar Sigfús Bjarnason: — Ég er bóndasonur úr Vestur-Húnavatnssýslu, og fluttist til Reykjavíkur haust- ið 1932, þá 19 ára að aldri. Áður hafði ég hlotið alla þá skólamenntun, sem mér tókst að afla mér, en það voru 12 vikur í farskóla og háltfur ann- ar vetur í Reýkjavík. Annað sem ég hef lært, hefur starfið kennt mér. Þegar til Reykja- víkur koim vann ég fyrst í nokkra mánuði sem mjólkur- póstur hjá Mjólkurfélagi Reykjavíkur og seinna við fiskverkun hjá Kveldúlfi. Fljótlega eftir það réðist ég til Vátryggingarskrifstofu Sig fúsar Sighvatssonar. — Heklu stofnaði ég 20. desember 1933 ásamt fleirum, en þegar félagið var gert að hlutafélagi 1940, varð það jatfnframt einkaeign fjöl- skylóu minnar. — Fljótlega eftir komuna til Reykjavíkur kynntist ég hinum kunna æskulýðsleið- toga Kristjáni L. Gestssyni framkvæmdastjóra, og rná segja að verzlunarroenntun mín sé fengin gegnum sarotöl við hann. Studdi hann mig atf ráðum og dáð þegar ég stotfn- aði fyrirtækið og alltaf síðan. — Framgang fyrirtækisins vii ég helzt þakka góðu startfs fóllki, sem lagt hefur mikið að sér og ég er mjög þakk- látur, ekki sízt þeim, sem mest hefur á reynt, en þeir eru Árni Bjarnason, Lýður Björns son, Óli H. ísaksson og Finn- bogi Eyjólfsson. Einnig tel ég það mikils virði að ég hef á- sett mér að lofa aldrei meiru í peningamálum en ég get ör- uigglega staðið við. — Ég hef verið svo hepp- inn að ná í umboð fyrir fjölda heimsþekktra fyrirtækja. Þetta kom alit af sjálfu sér. Ég bef ekki tékið umboð af neinum manni, heldur verið boðin þau öll, nema Land-Rov er. Ég var einn margra uro- sækjanda um það uroboð og varð hlutskarpastur. — Það er rétt að í þessum önn-um hefur efcki verið miki'1-1 tími fyrir fjölskyl-duna. En áilt hefur þetta blessazt. Ég var svo lánsamur að kvænast góðri konu, Rannveigu Ingi- mundardóttur, sem ég kynnt- ist í Reykjaskóla. Hún hefur að mestu annast Uppeldi barn anna, en þau eru: Ingimund- ur, lögfræðinemi, sem vinnur a-llar frístundir hjá fyrirtæk- inu, Sverrir, sem hefur starf- að hjá fyrirtækinu í þrjú ár, og tekur við Caterpillar deild- inni, Sigfús, nú við verzlun- arnám í Sviss og Margrét, sem er aðeins 15 ára og nem- andi í Verzlunarskólanum bér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.