Morgunblaðið - 02.02.1963, Side 11

Morgunblaðið - 02.02.1963, Side 11
Laugardagur 2. febrúar 1963 MORCVNBLAÐIÐ 11 Áfengisvariíarnefnd kvenna fagnar w Spröngupeyarnir þrír Guðjón, Ásbjörn og Birgir. dansarar eða loftfimlei'ka- menn. — Kemur ekíki fyrir að menn meiði sig á þessu? — Jú, stöku sinnum. Þeir sem kunna ekki n£gu vel. Það Ihefir komið fyrir að strák- ar hafa__handleggsbrotið sig og fótbrotið. Þá er þetta tek- ið niður af „löggunni". En (það er alltaf sett upp aftur. — Spranga stelpur líka? — Jú, jú,. En það eru samt miklu meira strákar. ' — Hafið þið ekki reynt að setja káðilinn hærra en_ hann er héma? — Jú, en þá tekur „löggan“ hann niður strax. Það þýðir ekkert. — Hver gefur ykkur svo band í þetta og setur það upp fyrir ykkur? — Við verðum alltaf að stela bandi. Víð setjum það svo upp sjálfir. — Lítur enginn eftir þvi hvort bandið er farið að siitna? — Jú, jú. Við gerum það alltaf annað slagið. — Ég hef farið niður á því, alveg ofan af brún, segir Guð- jón. — Það voru einhverjir Bretar að renna sér niður á því á stígvélum og við fór- um á eftir. — Spranga margir strákar í Eyjum? — Já, margir. — Hvað eruð þið flestir í einu? — Svona um 20 mest. — Og ykkur finnst þetta skemmtilegt? — Já, það er ofsa fjör að spranga, maður, segja strák- hjallarnir geta verið óörugg- ir, holt undir brúnir og lausir steinar. Það hafa hlotist af því slys. Eiginlega þyrfti að segja strákunum til við þetta Þingvöllum 1930. Jónas lenti einnig í því, er hann var kaf- ari við Vestmannaeyjahöfn að sækja gamVn sigfélaga sinn, sem hrapað hafði úr Heimakletti. Guðjón sprangar á annari hendi. arnir er við kveðjum þá. Þeir hafa sjálfsagt eins og við kom ið hund’blautir heim úr þees- ari skemmtiför. Sigmenn byrja á að spranga. Undir kvöldið skrepp ég ®ð heimsækja Jónas Sigurðs- son, sem nú er maður kom- inn á efri ár og tekinn við húsvörzlu í Gagnfræðaskól- anum. Hann er eins og fyrr eegir einn kunnasti sigmaður í Eyjum, þótt nú sé hann hættur þvL — Já, það byrja allir sig- menn hér í Eyjum á því að spranga sem strákar. Svo fara þeir að stelast í egg, ná sér í fýlsegg. Það versta er að þeir fara sjaldnast í bandi til þess, klifra í bergið. Það getur verið hœttulegi. Þeir þekkja ekki bergið. Gras- og kenna þeim, sem áhuga háfa, nokkur undirstöðuat- riði í sigi og að ganga með byrðar í bratta. Maður á ' alltaf að hafa lausa þá hönd- ina, sem að brekkunni veit til þess að geta gripið sér í ef eitthvað kemur fyrir. Jónas segir okkur síðan ýmsar gamlar sigsögur, sem of langt er hér að telja, enda þörfnuðust þær skýringa á staðháttum sem ekki er hægt að gefa nema í talsvert löngu máli. Jónas horfði eitt sinn á eftár einum sínum bezta vini hverfa fyrir fram af bjarg brúninni. Þar lét einn fær- asti sigmaður Vestmannaeyja lif sitt, fyrir lítilfjörlega slysni. Sá hinn sami kleif bergið með jakkann sinn á handleggnum, vaðlaus á sama stað og verið var að sýna á — Ég náði honum í fyrstu tilraun, er ég kafaði. Höfuð- ið var klofið. Þetta 'var ekki alltaf eintóm skemmtun, enda var þá sigið sér til lífsbjargar. Fuglatekja og eggja var stór liðux í lífsbjörg Eyjaskeggja í þá daga. Egg og dúnn voru seld og fugl látinn í vöru- skiptujn upp á land. — Og ferðu enn til fugla- tekju? — Ég fer í lunda á hverju sumri. Mér finnst eiginlega að ekkert sumar hafi komið nema ég komist í lundann, segir þessi broshýri, hvíthærði maður, sem enn er kvikur í hreyfingum og léttur á sér. vig. Hundurinn á Hringver eltir strákana. cfengislausum shemmtunum og tomstundustufii æshufóihs AÐALFUNDUR áfengisvarna- nefndar kvenna 1 Reykjavík og Hafnarfirði var haldinn 24. jan- úar 1963. Nefndin hefur eins og undan- farin ár, leitazt við að hjálpa drykkjusjúku fólki og aðstand- endum þess, eftir því sem unnt er. Auk þess sem nefndin lætur ýmis mannúðar- og menningar- mál til sín taka. Eftirfarandi tillögur voru sam- þykktar á fundinum: 1. Aðálfundur áfengisvarna- nefndar kvenna í Reykjavík og Hafnarfirði haldinn 2l4/l 1963 lýsir ánægju sinni yfir danssam- komum unglinga, sem haldnar eru í „Lídó“ þar sem áfengis- veitingar eru ekki leyfðar. Vitað er að danssamkomur þessar fara vel fram og unglingunum, sem sækja þær til ánægju, enda eru foreldrar og aðstandendur fólks á aldrinum 16—2il árs þakklátt fyrir þessa starfsemi. Fundurinn beinir því til réttra aðila, að leggja þessari starfsemi það lið, að „Lídó“ geti haldið áfram á sömu braut, t. d. með því að fella niður skémmtanaskatt. 2. Aðalfundurinn fagnar öllu því mikla starfi sem unnið er til menningar æskufólki víðs vegar um landið, með því að kenna því að verja vel tóm- stundum sínum, ekki sízt hér í Reykjavík. Um leið og nefndin' þakkar öll þessi störf beinir hún því til allra ménningarfélaga og einstaklinga, að leggja hér góðu máli sem bezt lið. Meðal annars með því að skapa sterkt almenn- ingsálit gegn lélegu skemmtana- haldi, skaðlegum kvikmyndum og áfengisnautn, og öllu öðru sem skaðað getur dýrmætustu eign þjóðarinnar, æskufólkið. Stjórnin var öll endurkosin, en hana skipa: Guðlaug Narfa- dóttir, formaður; Fríður Guð- mundsdóttir, varafomaður; Krist ín Sigurðardóttir, ritari; Sesselja Konráðsdóttir, gjaldkeri; Aðal- björg Sigurðardóttir, meðstjórn- andi; Jakobína Mathiesen; Þór- anna Símonardóttir. — Sildveiðarnar Framh. af bls. 6. landssíldinni. Það, sem fyrst og fremst hefur orðið til þess, að svo vel hefur tekizt, eru ýms brautryðjendastörf, sem unnin hafa verið á undanförnum Qrum og áratugum í sambandi við markaðsöflun fyrir þessa síld, saltaða, frysta og ísvarða, en þá hafði oft veiðzt vel af henm í reknet. Sérstaklega er ánægjulegt, hversu vel hefur tekizt um sölu á frystri síld. Á haust- og vetrar- vertíð 1961—1962 var fryst og selt til útflutnings 20.000 tonn, og á þessari vertíð, sem nú stend ur yfir, er búið að frysta 28.000 tonn, og er það svo til allt selt Og mikið útflutt. Þó hefur enn ekkert verið selt til Sovétríkj- anna, en í nýgerðum milliríkja- samningi er gert -ráð fyrir allt að 12.000 tonnum- af frystri síld þangað á þessu ári. Einnig er eftir að frysta nokkurt magn af smásíld og síldarflökum upp í þegar gerða samninga við V- Þýzkaland. Það er því enn hægt að frysta verulegt magn af síld á þessum vetri og vori vegna markaðsaðstæðna. Undanfarin ár hefur nokkuð verið flakað af Suðvesturlandssíldinni og hafa flökin verið söltuð og súrsuð í tunnur til útflutnings. Markaðs- möguleikar eru nokkuð góðir fyrir síldina þannig verkaða og verið gerðir verulegir sölusamn- ingar um þannig verkaða síld. En á þessari verkunaraðferð eru þeir vankantar, að framleiðslu- kostnaður verður nokkuð hár og því ekki hægt að greiða viðun- andi verð fyrir fersksíldina. Einnig þarf flökunarvélar, sem eru mjög dýrar í stofnkostnaði. Af þessum ástæðum hefur ekki verið framleitt flægilegt upp í þessa samninga. Þessari fram- leiðslu fylgja einnig þau vand- kvæði, að hún hefur mjög tak- markað geymsluþol, og verður því að afhenda vöruha svo til eftir hendinni, eftir því sem neyzluþörfin er hverju sinni. Á síðastliðnu hausti tókst að selja nokkurt magn af frystum síldar- flökum. En vegna þess að fram- leiðslukostnaður er einnig nokk- uð hár á þeirri verkun, varð ekki mögulegt að greiða viðun- andi verð fyrir fersksíldina til þessarar verkunar heldur. Þótt enn hafi ekki tekizt að selja fryst síldarflök á því verði, að jafngildi markaðsverði á heil- frystri síld, tel ég mjög líklegt, að þessi verkunaraðferð eigi mikla framtíð fyrir sér. Þegar síld eða síldarflök hafa verið fryst með þeirri tækni, sem við ráðum nú yfir, er hægt að geyma hana óskemmda í 2 ár eða meira. MatvælL sem hafa svo mikið geymsluþol, eru auðveld til flutnings og dreifingar svo til hvert sem er í heiminum. Með því að flaka síldina, verður hún fyrirferðarminni, en ef hún er heilfryst, og því minni kostnað- ur vegna flutnings og umbúða. Þá er það mikill kostur, að hægt er að nota til flökunar gæða- minni síld en til annarrar verk- unar til manneldisneyzlu. Síldin, sem veiðist síðari hluta vetrar Og á vorin er mögur Og því ekki hæf til söltunar og jafnvel ekki til heilfrystingar, en hún er ágæt til flökunar. Það er því mjög þýðingarmikið, að fram- leiðendur eigi kost á hagkvæm- um stofnlánum til kaupa á flök- unarvélum, sem eru mjög dýrar og því flestum framleiðendum ofvaxið, nema fjárfestingarlán fáist til þess. Ég held, að það verði nú varla um það deilt lengur, að sjávar- útvegurinn er og verður um langa framtíð afkastamesti verð- mætisöflunarmöguleikinn, sem þjóðin hefur völ á. Vil ég þó á engan hátt gera lítið úr ýmsum öðrum möguleikum, svo sem land'búnaði, neyzluvöruiðnaði, ferðamannaþjónustu, flugi og siglingum, og jafnvel stóriðju. Möguleikar þjóðarinnar eru mikl ir, en sjávaraflinn er og verður afkastamestur og hagstæðastur. Sérstaklega eru það síldveiði- möguleikarnir, sem gefa mikla möguleika. Og vitanlega ber a@ keppa að því að nýta þá sem bezt, og er þá aðalatriðið í því sambandi að framleiða sem mest af síldinni til manneldis. Til þess eru vissulega mjög miklir mögu leikar, þar sem verulegur hluti mannkynsins býr við matvæla- skort. En síldin hefur mikið nær- ingargildi, sem kunnugt er, svo sem eggjahvítuefni, fitu og vítamín, einnig flest steinefni, sem lífið þarfnast. Það ætti að vera hægt að auka mjög síldar- neyzlu í heiminum, en til þess þarf mikið átak, mikla vinnu, tækni og fjármagn. Það er mik- ið talað um samstarf þjóða nú. Hér er verkefni fyrir þær þjóð- ir, sem mesta hagsmuni hafa af sildveiðum. Til dæmis væri ekki óeðlilegt, að samstarf tækist með Islendingum, Færeyingum, Norðmönnum, Svium og ÍDönum um stórt átak til markaðsöflunar á síld til manneldis. Væri ekki rétt, að ráðherrar okkar kæmu þessu stóra máli á dagskrá á ein- hverjum þeim mörgu fundum Norðurlandaráðs eða ráðherra- fundum Norðurlandanna. Ef hægt væri að tvöfalda eða marg- falda tölu þeirra manna, sem nota sild til. neyzlú í svipuðum mæli og ýmsar þær þjóðir, sem mest nota nú, svo sem Svíar, Þjóðverjar, Tékkar og Pólverjar, yrði mikil eftirspurn eftir ýms- um tegundum síldarafurða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.