Morgunblaðið - 02.02.1963, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 2. febrúar 1963
H |I!|ol nfm íHOT rnnTi fjlllU 1
ÍÍUÍHI úí&íllí
Skólarnir eiga skíði handa
börnunum en nota þau ekki
Tekin upp skibakennsía i Skiða-
skálanum fyrír alla er vilja
Á VEGUM skíðaskálans í Hvera-
dölum hefur nú sem undanfarin
ár verið hafin skíðakennsla fyrir
byrjendur og lengra komna. Gild
ir hún jafnt fyrir konur sem
karia, unga sem gamla. Á s.l.
ári stóð kennsla í 10 vikur og
kenndi hinn vel þekkti skíða-
kappi Steinþór Jakobsson sem
nú er skíðakennari við skíða-
skóla Olympíukappans Stein
Eriksen í Bandaríkjunum. Nú er
kennari Ámi Sigurðsson frá ísa-
firði, einn af beztu svigmönnum
landsins, sem fengið hefur
reynslu bæði innanlands og af
langdvölum erlendis. Frá þessu
Þorri og skíði
iora saman
Á MIÐVIKUD AGKV ÖLDIÐ
3.1. var hópur manna ,við
Þorrablót í skíðaskálanum.
Einnig sáust nokkrir' úti við
brekkur til að kanna aðstæð-
ur til Skíðaiðkana.
— Þorri og skíði fara sam-
an. Ef skíðafæri kemur á
annað borð, þá hefst það fyriri
alvöru með Þorra, sagði Óli
Ólason gestgjafi í skíðaskál-
anum, og hann bætti við:
„Það fer sífellt í vöxt að
starfshópar eða aðrir komi
hingað til Þorrablóts og það
er einnig ánægjulegt að hve-
nær sem færi gefur þá koma
hingað hópar fólks til að iðka
skíðaíþróttir. Við höfum að-
eins eina brekku upplýsta.
Hún er öf snjólítil þessa dag-
ana til skíðaiðkana, en hér
er nóg af brekkum í kring
sem nota má við dagsljós.
Það geta því allir fundið eitt-
hvað við sitt hæfi, skíðaiðk-
un eða Þorrablót, dvalargest-
ir geta fundið frið og fengið
gufubað og við reynum að
hugsa vel um gesti okkar á
„Óskabörn Hafn-
arf jarðar* halda
hlutaveltu
FIMLEIKAFÉLAG Hafnarfjarð-
ar sem m. a. telur alla hina góð-
kunnu handknattleiksmenn sem
á undanförnum árum hafa gert
Hafnarfjörð frægan — og reynd-
ar landið í heild, efna til hluta-
veltu á morgun, sunnudag kl.
2,30 síðdegis í Sjálfstæðishúsinu
í Hafnarfirði.
Til þessarar hlutaveltu efnir
félagið aðallega til að afla fjár
í sambandá við keppnisför
hinna fræknu handknattleiks-
manna til Esslingen í Þýzka-
landi síðast í þessum mánuði.
-Hefur félagið fengið fjölda
góðra muna til hlutaveltunnar.
Ekki er að efa að Hafnfirð-
ingar — og kannski fleiri vilja
létta undir með þessum óska-
börnum Hafnfirðinga sem hand-
knattleiksmennirnir hafa verið
með því að heimsækja hluta-
veltuna, draga og e. t v. hagn-
ast veL
skýrði Oli Olason gestgjafi í
í Skíðaskálanum er blaðamenn
hittu hann að máli í fyrrakvöld.
— Það er alltaf erfitt að fá
fólk hingað upp í Skíðaskála ó
skíði, þegar ekki er snjóföl í bæn-
um, sagði Óli. Þá er eins og fólk
haldi að hvergi sé snjór. Yfirleitt
er þetta misskilningur og allt má
finna brekkur sem eru við allra
hæfi.
Við höfum í vetur staðið fyrir
þremur námskeiðum, Fyrst milli
jóla og nýárs, síðan stökknám-
skeiði sem einkum var ætlað
þeim yngri og nú í 2 vikur hefur
Árni Sigurðsson kennt hér og
hann verður öllum til tilsagnar
og leiðbeiningar sem hingað
sækja svo lengi sem snjór verð-
ur.
Kennsla er frí fyrir dvalar-
gesti í skálanum en af hinum er
tekið mjög vségt gjald. Það er
sama hvenær menn koma og hve
lengi þeir eru, allir geta fengið
rétta tilsögn. Verði fyrir dvalar-
gesti skálans er mjög stillt í hóf
og er samsvarandi við saman-
lagt verð einstakra máltíða. Dvöl
í tveggja manna herbergi með
fullkomnu fæði kostar t. d. 160
kr. og vikudvöl 875 krónur. Þetta
gildir til 1. maí að undanskildu
páskaviku.
Ég vil leggja sérstaka áherzlu
á það, sagði Óli gestgjafii, að
starfshópar ættu að'nota sér vet-
urinn til skíðaferða, útivistar,
fara á sleða eða eitthvað úti við
til fjalla, ekki síður en menn fara
til berja eða í skemmtiferðir á
sumri. Slíkt er ekki síður nauð-
synlegt að vetri til.
Við skíðaskálann er starfrækt
dráttarbraut, sú elzta hér á landi,
koma þó flestir unglingar. Hér
taka flestir fyrstu skíðaspor
sín hér sunnan lands en hverfa
síðan til félaganna.
En það eru einnig allt of
margir sem alveg hætta.
Skólaunglingum er gefið
kannski 1 tækifæri á vetri til
að kynnast skíðaíþrótt en slíkt
er til næsta lítils utan útiveru.
Skólamir eiga tugi eða hundr-
uð skíða en þau eru ákaflega
sjaldan notuð. Áhugi fyrir
skíðaferðum er næsta lítiil hjá
skólastjómm og kennurum.
Þeir hafa oftast þann skiln-
ing á skíðaferðum að þær sé
ekki hægt að fara nema helzt
sé allt ófært innanbæjar í
Reykjavík. Slíkt er reginfirra.
Það em brekkur hér sem em
himneskar þó snjólaust sé í
Reykjavík. Skíðaskálinn er til
fjalla. Við höfum kennara, við
getum veitt alla þjónustu og
við viljum gjama greiða fyrir
aukinni skíðaíþrótt, sagði Óli
og kona hans að lokum.
Gunnlaugur Hjálmarsson, sem skoraði 18 mörk fyrir ÍR, sést
hér að verki.
Tvöföld umferð meistara-
fiokks # körfuknaftleik
Aldursflokkaskiptingu breytt
UM næstu helgi hefst Körfuknatt
leiksmót íslands 1963. Verður þá
upptekin sú nýbreytni sem aldrei
hefur gilt fyrr að tvöföld um-
ferð verður í meistaraflokki
karla. Jafnframt gengur í gildi
samþykkt frá> síffiasta ársþingi
KKÍ um að aldurskipting milli
flokka skuli méða við árstíma-
bil er hefst 1. sept, en lýkur 31.
Hún er dýr í rekstri en er höfð ’ ágúst í stað almanaksárs áður,
í gangi ef 5 eru í bekkunni og því í ljós hefur komið að skipt-
nota hana í senn. ! ing milli flokka á miðju keppnis
— Skíðaferðir unglinga eru _ tímabili veldur miklu og slæmu
allt of fáar, sagði Óli. Hingað, raski.
Körfúknattleiksmenn hafa
einnig tekið upp þá nýung að
krefjast keppnisskírteinis af kepp
endum og er ætlunin aS fylgja
fast eftiir að þau séu sýnd. Keppn
isskírteini miða að því m.a. að
keppandinn hafi fyrirfram feng-
ið öll leyfi sem krafizt eir til
keppninnar m.a. læknisskoðun.
Einnig er hægt að fylgjast með
því hve margiir eru starfandl
körfuknattleiksmenn auk margs
annars.
Ársþing körfulknattlei’ksisam-
bandsins var haldið síðast í nóv.
Stjórn vaæ kosin Ðogi Þorsteins
son (einróma endurkjörinn) og
með honum í stjóm Ásgeir Guð-
mundsson, Einar Ólafsson, Magn
ús Björnsson, Gunnar Petersen,
Halldór Sigurðsson form. úit
breiðslunefndar og Einar Bolla-
son form. Laganefndar.
Líf færist í íþrótt-
irnar í Háskólanum
Hjalti Einarsson markvörður FH var bezti maður liðs síns og
varði oft snilldarlega. Hér sést hann að markvörzlu — og ver
eftir að Kristján Stefánsson hefur misst sóknarleikmanu fram
hjá sér. — Myndir Sveinn Þormóðsson.
Á ÁRUNUM, þegar íþróttaskyld-
an var enn við líði í Háskólan-
um, var þar mikið lif og deildirn
ar börðust harðlega um meist-
aratitil skólans í hinum ýmsu
greinum, körfuknattleik, hand-
knattleik, knattspyrnu, frjálsum
íþróttum og jafnvel leikfimi. Síð-
an 1954 um vorið, er hætt var
að framfylgja skyldunni, eftir
að hún var orðin mikið hita-
og deilumál innan skólans, hafa
þessar deildarkeppnir lagzt nið-
ur og sannast sagna verið dauft
yfir íþróttakeppnum, nema hvað
nokkrir stúdentar hafa haldið við
líði körfuboltaliði. Að sjálf-
sögðu hafa þá ýmsir stúdentar
notað aðstöðuna í íþróttahúsi
Háskólans á þessum árum.
Á síðustu árum hafa heyrzt
raddir að þessar képpnir verði
vaktar til lífsins aftur og síðast-
liðið mið vikud agskvöld hófst
deildakeppni í körfuknattleik
með þátttöku fimm deilda skól-
ns.
Talsvert hefur verið rætt um
sigurmöiguleika liðanna og hin-
um ýmsu deildum spáð öruggum
sigri, en báðir leikirnir þetta
fyrsta leikkvöld fóru á annan
veg en flestir höfðu búizt við.
Heimspekideild vann Viðskipta
deild með 10 stiga mun, 37:27,
en þess ber að geta, að viðskipta
fræðingar lékú aðeins með fjór-
um leikmönnum. Lagadeild vann
síðan læknadeild með eins stigs
mun, 22:21, eftir hnífjafnan
leik, þar sem liðin skiptust á
um forystu.
Að vonum hafa ekki allir kepp
endur lagt stund á körfuknatt-
leik, en meðal keppenda þetta
fyrsta kvöld má nefna íþrótta-
manninn Bjqrgvin Hólm, knatt-
spyrnumanninn Ellert Schram og
handknattleiksmennina Þórð Ás-
geirsson og Pál Eiríksson. Stiga-
talan er lág, enda ekki fullur
leiktími, né heldur að baki
leikmannanna langur æfingar-
tími í körfuskotum, en hins veg-
ar ærinn vilji til að hleypa and-
stæðinguiium ekki of nálægt
körfunni.
Eftir helgina hefst deilda-
keppni í handknattleik og í vor
keppni í frjálsum íþróttum :>g
jafnvel knattspyrnu.