Morgunblaðið - 02.02.1963, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 02.02.1963, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 2. febrúar 1963 H |I!|ol nfm íHOT rnnTi fjlllU 1 ÍÍUÍHI úí&íllí Skólarnir eiga skíði handa börnunum en nota þau ekki Tekin upp skibakennsía i Skiða- skálanum fyrír alla er vilja Á VEGUM skíðaskálans í Hvera- dölum hefur nú sem undanfarin ár verið hafin skíðakennsla fyrir byrjendur og lengra komna. Gild ir hún jafnt fyrir konur sem karia, unga sem gamla. Á s.l. ári stóð kennsla í 10 vikur og kenndi hinn vel þekkti skíða- kappi Steinþór Jakobsson sem nú er skíðakennari við skíða- skóla Olympíukappans Stein Eriksen í Bandaríkjunum. Nú er kennari Ámi Sigurðsson frá ísa- firði, einn af beztu svigmönnum landsins, sem fengið hefur reynslu bæði innanlands og af langdvölum erlendis. Frá þessu Þorri og skíði iora saman Á MIÐVIKUD AGKV ÖLDIÐ 3.1. var hópur manna ,við Þorrablót í skíðaskálanum. Einnig sáust nokkrir' úti við brekkur til að kanna aðstæð- ur til Skíðaiðkana. — Þorri og skíði fara sam- an. Ef skíðafæri kemur á annað borð, þá hefst það fyriri alvöru með Þorra, sagði Óli Ólason gestgjafi í skíðaskál- anum, og hann bætti við: „Það fer sífellt í vöxt að starfshópar eða aðrir komi hingað til Þorrablóts og það er einnig ánægjulegt að hve- nær sem færi gefur þá koma hingað hópar fólks til að iðka skíðaíþróttir. Við höfum að- eins eina brekku upplýsta. Hún er öf snjólítil þessa dag- ana til skíðaiðkana, en hér er nóg af brekkum í kring sem nota má við dagsljós. Það geta því allir fundið eitt- hvað við sitt hæfi, skíðaiðk- un eða Þorrablót, dvalargest- ir geta fundið frið og fengið gufubað og við reynum að hugsa vel um gesti okkar á „Óskabörn Hafn- arf jarðar* halda hlutaveltu FIMLEIKAFÉLAG Hafnarfjarð- ar sem m. a. telur alla hina góð- kunnu handknattleiksmenn sem á undanförnum árum hafa gert Hafnarfjörð frægan — og reynd- ar landið í heild, efna til hluta- veltu á morgun, sunnudag kl. 2,30 síðdegis í Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði. Til þessarar hlutaveltu efnir félagið aðallega til að afla fjár í sambandá við keppnisför hinna fræknu handknattleiks- manna til Esslingen í Þýzka- landi síðast í þessum mánuði. -Hefur félagið fengið fjölda góðra muna til hlutaveltunnar. Ekki er að efa að Hafnfirð- ingar — og kannski fleiri vilja létta undir með þessum óska- börnum Hafnfirðinga sem hand- knattleiksmennirnir hafa verið með því að heimsækja hluta- veltuna, draga og e. t v. hagn- ast veL skýrði Oli Olason gestgjafi í í Skíðaskálanum er blaðamenn hittu hann að máli í fyrrakvöld. — Það er alltaf erfitt að fá fólk hingað upp í Skíðaskála ó skíði, þegar ekki er snjóföl í bæn- um, sagði Óli. Þá er eins og fólk haldi að hvergi sé snjór. Yfirleitt er þetta misskilningur og allt má finna brekkur sem eru við allra hæfi. Við höfum í vetur staðið fyrir þremur námskeiðum, Fyrst milli jóla og nýárs, síðan stökknám- skeiði sem einkum var ætlað þeim yngri og nú í 2 vikur hefur Árni Sigurðsson kennt hér og hann verður öllum til tilsagnar og leiðbeiningar sem hingað sækja svo lengi sem snjór verð- ur. Kennsla er frí fyrir dvalar- gesti í skálanum en af hinum er tekið mjög vségt gjald. Það er sama hvenær menn koma og hve lengi þeir eru, allir geta fengið rétta tilsögn. Verði fyrir dvalar- gesti skálans er mjög stillt í hóf og er samsvarandi við saman- lagt verð einstakra máltíða. Dvöl í tveggja manna herbergi með fullkomnu fæði kostar t. d. 160 kr. og vikudvöl 875 krónur. Þetta gildir til 1. maí að undanskildu páskaviku. Ég vil leggja sérstaka áherzlu á það, sagði Óli gestgjafii, að starfshópar ættu að'nota sér vet- urinn til skíðaferða, útivistar, fara á sleða eða eitthvað úti við til fjalla, ekki síður en menn fara til berja eða í skemmtiferðir á sumri. Slíkt er ekki síður nauð- synlegt að vetri til. Við skíðaskálann er starfrækt dráttarbraut, sú elzta hér á landi, koma þó flestir unglingar. Hér taka flestir fyrstu skíðaspor sín hér sunnan lands en hverfa síðan til félaganna. En það eru einnig allt of margir sem alveg hætta. Skólaunglingum er gefið kannski 1 tækifæri á vetri til að kynnast skíðaíþrótt en slíkt er til næsta lítils utan útiveru. Skólamir eiga tugi eða hundr- uð skíða en þau eru ákaflega sjaldan notuð. Áhugi fyrir skíðaferðum er næsta lítiil hjá skólastjómm og kennurum. Þeir hafa oftast þann skiln- ing á skíðaferðum að þær sé ekki hægt að fara nema helzt sé allt ófært innanbæjar í Reykjavík. Slíkt er reginfirra. Það em brekkur hér sem em himneskar þó snjólaust sé í Reykjavík. Skíðaskálinn er til fjalla. Við höfum kennara, við getum veitt alla þjónustu og við viljum gjama greiða fyrir aukinni skíðaíþrótt, sagði Óli og kona hans að lokum. Gunnlaugur Hjálmarsson, sem skoraði 18 mörk fyrir ÍR, sést hér að verki. Tvöföld umferð meistara- fiokks # körfuknaftleik Aldursflokkaskiptingu breytt UM næstu helgi hefst Körfuknatt leiksmót íslands 1963. Verður þá upptekin sú nýbreytni sem aldrei hefur gilt fyrr að tvöföld um- ferð verður í meistaraflokki karla. Jafnframt gengur í gildi samþykkt frá> síffiasta ársþingi KKÍ um að aldurskipting milli flokka skuli méða við árstíma- bil er hefst 1. sept, en lýkur 31. Hún er dýr í rekstri en er höfð ’ ágúst í stað almanaksárs áður, í gangi ef 5 eru í bekkunni og því í ljós hefur komið að skipt- nota hana í senn. ! ing milli flokka á miðju keppnis — Skíðaferðir unglinga eru _ tímabili veldur miklu og slæmu allt of fáar, sagði Óli. Hingað, raski. Körfúknattleiksmenn hafa einnig tekið upp þá nýung að krefjast keppnisskírteinis af kepp endum og er ætlunin aS fylgja fast eftiir að þau séu sýnd. Keppn isskírteini miða að því m.a. að keppandinn hafi fyrirfram feng- ið öll leyfi sem krafizt eir til keppninnar m.a. læknisskoðun. Einnig er hægt að fylgjast með því hve margiir eru starfandl körfuknattleiksmenn auk margs annars. Ársþing körfulknattlei’ksisam- bandsins var haldið síðast í nóv. Stjórn vaæ kosin Ðogi Þorsteins son (einróma endurkjörinn) og með honum í stjóm Ásgeir Guð- mundsson, Einar Ólafsson, Magn ús Björnsson, Gunnar Petersen, Halldór Sigurðsson form. úit breiðslunefndar og Einar Bolla- son form. Laganefndar. Líf færist í íþrótt- irnar í Háskólanum Hjalti Einarsson markvörður FH var bezti maður liðs síns og varði oft snilldarlega. Hér sést hann að markvörzlu — og ver eftir að Kristján Stefánsson hefur misst sóknarleikmanu fram hjá sér. — Myndir Sveinn Þormóðsson. Á ÁRUNUM, þegar íþróttaskyld- an var enn við líði í Háskólan- um, var þar mikið lif og deildirn ar börðust harðlega um meist- aratitil skólans í hinum ýmsu greinum, körfuknattleik, hand- knattleik, knattspyrnu, frjálsum íþróttum og jafnvel leikfimi. Síð- an 1954 um vorið, er hætt var að framfylgja skyldunni, eftir að hún var orðin mikið hita- og deilumál innan skólans, hafa þessar deildarkeppnir lagzt nið- ur og sannast sagna verið dauft yfir íþróttakeppnum, nema hvað nokkrir stúdentar hafa haldið við líði körfuboltaliði. Að sjálf- sögðu hafa þá ýmsir stúdentar notað aðstöðuna í íþróttahúsi Háskólans á þessum árum. Á síðustu árum hafa heyrzt raddir að þessar képpnir verði vaktar til lífsins aftur og síðast- liðið mið vikud agskvöld hófst deildakeppni í körfuknattleik með þátttöku fimm deilda skól- ns. Talsvert hefur verið rætt um sigurmöiguleika liðanna og hin- um ýmsu deildum spáð öruggum sigri, en báðir leikirnir þetta fyrsta leikkvöld fóru á annan veg en flestir höfðu búizt við. Heimspekideild vann Viðskipta deild með 10 stiga mun, 37:27, en þess ber að geta, að viðskipta fræðingar lékú aðeins með fjór- um leikmönnum. Lagadeild vann síðan læknadeild með eins stigs mun, 22:21, eftir hnífjafnan leik, þar sem liðin skiptust á um forystu. Að vonum hafa ekki allir kepp endur lagt stund á körfuknatt- leik, en meðal keppenda þetta fyrsta kvöld má nefna íþrótta- manninn Bjqrgvin Hólm, knatt- spyrnumanninn Ellert Schram og handknattleiksmennina Þórð Ás- geirsson og Pál Eiríksson. Stiga- talan er lág, enda ekki fullur leiktími, né heldur að baki leikmannanna langur æfingar- tími í körfuskotum, en hins veg- ar ærinn vilji til að hleypa and- stæðinguiium ekki of nálægt körfunni. Eftir helgina hefst deilda- keppni í handknattleik og í vor keppni í frjálsum íþróttum :>g jafnvel knattspyrnu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.