Morgunblaðið - 07.02.1963, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 07.02.1963, Qupperneq 22
22 ‘Fimmtudagur 7. febrúar 1963 M OR GV N BL AÐ1Ð ridge ÚRSLIT f 7. umferð i sveita- keppni Bridgefélagi Reykjavík- ur urðu þessi: Sveit Einars vann sveit st. Eg.grúnar................ 6-0 — Halls vann sveit Elínar 6-0 — Renedikts vann sv. Ólafs 6-0 — Þóris vann sv. Hjálmars 6-0 — Úlfs vann sveit Jóns 6-0 Staðan er þá þessi: 1. Sveit Einars Þorfinnss. 34 st. 2. — Þóris Sigurðssonar 33 — 3. — Halls Símpnars. 3il — 4. — Ólafs Þorsteinss. 2'6 — 5. — Benedikts Jóhannss. 26 — 6. — Úlfs Ámasonar 16 — 7. —Eggrúnar Árnad. 16 — 8. — Elínar Jónsdóttur 12 — 9. — Jóns Hjaltasonar 11 — 10. — Hjálmars Hjálmarss. 3 — 8. umferð verður spiluð í kvöld. Bikarkeppni Bridge-samibands íslands hefst eftir nokkrar vik- ur og skulu þátttökutilkynningar hafa borizt fyrir 1S. febrúar n.k. 18. febrúar n.k. hefst hjá Bridgefélagi Reykjaví'kur para- keppni og í lok febrúar hefst flökkakeppni Reykjaviíkurmóts- ins og verða leiknar 7 umferðir. Þátttökutilkynningar skulu ber- ast til Brands Brynjólfssonar, sími 17324 eða til Stefáns Guð- jóhnsen, sími 10811. Norskur námsstyrkur NORSK stjórnarvöld hafa ákveð ið að veita íslenzkum stúdent styrk til háskólanáms í Noregi næsta háskólaár, þ.e. tímabilið 1. september 1963 — 1. júní 1964. Styrkurinn nemur 700 norskum krónum á mánuði, og er ætlazt til, að sú fjárhæð nægi fyrir fæði og húsnæði, en auk þess greiðast 400 norskar krónur vegna bókakaupa o.fl. Umsækjendur skulu hafa stundað nám a.m.k. tvö ár við Háskóla íslands eða annan há- skóla utan Noregs. Þá ganga þeir fyrir um styrkveitingu, sem ætla að leggja stund á námsgreinar, er einkum varða Noreg, svo sem norska tungu, bókmenntir, rétt- arfar, sögu Noregs, norska þjóð- menningar- og þjóðminjafræði, dýra-, grasa- og jarðfræði Nor- egs, kynna sér norskt atvinnu- líf o.s.frv. Þeir, sem kynnu að hafa hug á að hljóta styrk þennan, sendi menntamálaráðuneytinu um- sókn fyrir 20. marz n.k., ásamt afritum prófskírteina og með- mælum. Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu og hjá sendiráðum íslands erlendis. (Frá Menntamálaráðuneytinu) Sundmót KR. verður haldið í Sundhöll Reykja víkur, miðvikudaginn 27. febrú- ar n.k. kl. 8,30. Keppt verður i þessum grein- um. 100 m bringusund karla. Sindra- bikar. 200 m skriðsundi karla. 50 m baksundi karla. 50 m flugsundi karla. 100 m skriðstund kvenna. Flug- freyjubikar. 100 m bringusundi kvenna. 50 m bringus-undi telpna. 50 m bringusund drengja. 50 m bringusund sveina. 3x50 m þrísund karla. Þátttaka skal tilkynnt Jóni Otta Jónssyni, Vesturgötu 36A, simi 14061 í síðasta lagi 20. febr. n.k. lillWS rgar nýjungar á Islandsmoti í köríuknattleik Hefst á laugardag ÍSLANDSMÓT í körfuknattleik hefst næstkomandi laugardag, 9. febrúar, að Hálogalandi. Að þessu sinni taka þátt 30 lið í 7 flokk- um frá 8 félögum. Má gera ráð fyrir að þátttakendur verði á fjórða hundrað. Leiknar verða tvær umferðir í meistaraflokki en mótið stendur til 9. apríL Að þessu sinni verður tekinn upp sami háttur og tíðkast í hand knattleik að hafa ekki sama leik kvöld leiki yngri og eldri flokka. Er þetta gert til að reyna að skapa meiri áhuga áhorfenda. Ennfremur verður tekin upp tvö- föld umferð í meistaraflokki karla, og er það von mótsstjóm- ar að keppnin verði þannig enn meira spennandi en ella, en þess má geta að meistaraflokkur ÍR tapaði í vetur fyrsta leik sínum um árabil. Tvö félög, sem ekki hafa áður tekið þátt í íslandsmóti, keppa nú í fyrsta flokki karla, en það era ungmennafélagið Skalla- grímur í Borgarnesi og Héraðs- sambandið Skarphéðinn í Ölfusi. Skallagrímur sendir ennfremur lið í meistaraflokk kvenna. Þess má geta að um nokkurra ára skeið hefur verið háð árleg bikarkeppni í körfuknattleik milli Borgarness og Stykkis- hólms. Hins vegar hættir nú eitt félag þátttöku í mótinu, en það eru fyrstu íslandsmeistararnir, íþróttafélag Keflavíkurflugvall- ar. Leikmenn þess félags eru nú svo ungir að það á ekki löglégt lið í meistaraflokki. förnum áram orðið vör við, að áhorfendur kvörtuðu undan, að reglur körfuknattleiksins væru odE flóknar, og þeir gætu ekki fylgzt með leiknum. Svíar hafa orðið varir við þennan sama vanda og brugðu þannig við, að þeir gáfu út mjög stytta útgáfu á leikreglunum í sambandi við Polar Cup keppnina núna í haust. KKf hefur nú látið þýða þennan útdrátt úr leikreglunum og mun hann fylgja leikskránni að mót- inu. Dómaravandamálið leyst? Um tvær síðustu helgar hefur staðið yfir dómaranámskeið, og hefur Guðjón Magnússon úr Ár- manni haft með höndum kennsl- una. 10 piltar og ein stúlka hafa Valbjörn setur Islandsmet Á INNANFÉLAGSMÓTI KR í gærkveldi setti Val- björn Þorláksson nýtt ts- landsmet í stangarstökki innanhúss. Stökk hann 4,33 m., en fyrra metið, sem hann átti sjálfur, var 4,30 m. íslandsmet Valbjarnar utanhúss er 4,50 m. nú þegar lokið prófi en 5 munu reyna nú einhvern næstu daga. Síðan er ætlunin að gangast fyrir stofnun dómarafélags með þennan hóp sem uppistöðu. Er þá gert ráð fyrir að dómarafélagið sjái um útvegun dómara að hverj um einstökum leik, en oft hefur það viljað ganga næsta brösugt á undanförnum árum. Nú þegar samstarf KKÍ við út- lönd er að aukast, kemur í ljós hver þörf sambandinu er á að hafa á að skipa dómara með al- þjóðaréttindi. Má geta þess að í utanför landsliðsins í haust var ætlazt til þess að íslendingar legðu til einn dómara í Polar Cup keppnina og auk þess varð að kosta annan dómarann í lands leiknum við Skota frá London. Keppnisskírteini og aðrar nýjungar FIBA, alþjóðakörfuknattleiks- sambandið gefur út keppnisskír- teini, sem heimilar þátttöku í milliríkjakeppnum, og hafa körfuknattleikssambönd víða um land tekið upp þennan sama sið. Við þetta vinnst aðallega þrennt: 1. greitt er ákveðið gjald fyrir skírteinið, og auðveldar það fjár- öflun sambandanna, 2. Mun auð- veldara verður að fylgjast með hversu margir virkir þátttakend- ur stunda íþróttina og 3. ísland hefur hér enn meira not af þessu, þar eð ríkjandi er lagaákvæði innan ÍSÍ, sem skyldar keppend'- ur til læknisskoðunar, en lítið hefur verið framfylgt. KKÍ hefur nú tekið upp þetta skírteini og verður engum veitt leyfi til keppni nema hann sé handhafi skírteinis með undir- ritun íþróttalæknis. Breyting hefur verið á aldurs- takmarki milli 1. og 2. flokks og verður það framvegis miðað við Fer unglinga- landsliðið til Frakk- lands ? Á BLAÐAMANNAFUNDI vegna íslandsmótsins í körfu- knattleik í gær, skýrði Bogi Þorsteinsson frá því, er gerzt hefur í sambandi við þátttöku íslendinga í Evrópukeppni unglinga. Ekkert landanna sem áætluð voru í riðli með fslendingum treysti sér til að sjá um framkvæmd keppninn ar, en hins vegar hafa bæði Frakkland og Spánn boðizt til að halda hana. Ekki kom til mála að senda lið til Spánar, en Bogi hafði samband við forseta FIBA og tjáði honum, að íslenzka liðið skyldi koma 4 til Parísar, ef Frakkar vildu sjá um ferðir þeirra þaðan á mótsstað og aftur til París- ar. Bogi fékk loforð um að ef framkvæmdastjórn Évrópu- keppninnar, sem átti að koma saman um mánaðamótin fe- brúar — marz, gæfi neikvætt svar yrði honum samstundis sent símskeyti um svarið. Skeytið hefur ekki komið, en hinsvegar ekkert bréf til staðfestingar heldur, og því væru nú milflir möguleikar á að unglingalandsliðið færi til keppninnar í Frakklandi. Sá galli er þá reyndar á gjöf Njarðar, að liðið lendir í erfið- ari riðli, en upphaflega var ráð fyrir gert. átján ára aldur í stað nítján áður. Ennfremur verður tilfærsla milli flokka miðuð við 1. september í stað áramóta, en það hefur þótt bagalegt að leikmenn gengu milli flokka á miðju leikári. Mun í ráði hjá handknattleiksmönn- um að taka upp sama hátt. KR—ÍS — KFR—-ÁRMANN Fyrstu leikir íslandsmótsinS verða á laugardagskvöld að Há- logalandi og leikur þá KR gegn ÍS og KFR gegn Ármanni. Dóm- arar í fyrri leiknum verða Guð- jón Magnússon og Björn Arnórs- son, en í seinni leiknum Jón Otti Ólafsson og Hólmsteinn Sigurðsson. Til hjálpar áhugadóihurum á áhorfendapöllunum Mótsstjórnin hefur á undan- tslenzka landsliðið í hand- knattleik, sem nú er á förum utan til keppni við Spánverja og Frakka. Fremri röð, talið frá vinstri: Örn Hallsteinsson, FH, Hjalti Einarsson, FH, Karl Benediktsson, Fram, fyrirliði, Birgir Björnsson, FH, fyrirliði, Karl M. Jóns- son, Haukum og Karl Jó- hannsson, KR. — Aftari röð: Ragnar Jónsson, FH, Kristján Stefánsson, FH, Einar Sigurðs son, FH, Ingólfur Óskarsson, Fram, Pétur Antonsson, FH, Gunnlaugur Hjálmarsson, ÍR, Rósmundur Jónsson, Víking og Matthías Ásgeirsson, ÍR. — (Ljósm. Mbl.: Sv. Þorm.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.