Morgunblaðið - 07.02.1963, Side 23

Morgunblaðið - 07.02.1963, Side 23
Fimmtudagur 7. febrúar 1963 MORGUNBLAÐIÐ 23 Skin og skúrir JOHN Diefenbaker forsætis- ráðherra Kanada gekk í gær á fund Georges Vaniers ríkis- stjóra og fékk heimild hans til að þing yrði rofið og að þingkosningax færu fram i landinu hinn 8. apríl n.k. Er þetta í heinu framhaldi af því að andstöðuflokkarnir samþykktu á þingfundi á þriðjudagskvöld vantraust á stjómina með 132 atkvæðum gegn 111. Ástæðan fyrir vantraustinu var aðallega deilur um vam- armálastefnu Diefenbakers, ágreiningur hans um þau mál við Bandaríkjastjóm og við Douglas Harkness varnamála- ráðherra, sem sagði af sér s.l. mánudag. Fyrir nolckru hélt Diefen- baker því fram í þingræðu að Kanada stæði að öllu leyti við skuldbindingar sínar í varnarmálum gagnvart At- lantshafsbandalaginu og varð andi sameiginlegar varnir Norður Ameríku. Varð þessi yfirlýsing hans til þess að Bandaríkjastjórn sendi Kanadastjórn mótanæli um miðja síðustu viku, og lét birta mótmælin bálftíma eftir að þau höfðu borizt stjórninni í Ottawa. í mótmælaorðsendingunni segir Bandaríkj astj órn að með an Kanada samþykki ekki að búa orustuþotur sínar eld- flaugum og kj arnorkuvopnum séu þessi varnartæki svo til gagnslaus. Ræðir Bandaríkja- stjórn ummæli Diefenbakers lið fyrir lið, og segir að hann rangtúlki málið. Er skorað á Kanadastjórn að standa við skuldbindingar sínar varðandi sameiginlegar varnir. ALDREl EEPPRÍKI Bandaríska orðsendingin vakti strax miklar deilur í Kanada. Diefenbaker sagði á þingfundi á fimmtudag að hún fæli í sér óverðskulduð afskipti af innanríkismálum Kanada. „Við erum ákveðnir í að halda áfram að vera dygg John George Diefenbaker HARKNESS SEGIR AF SÉR Á mánudag lýsti Douglas Harkness, varnarmálaráðherra í stjórn Diefenbakers, því yfir, að hann hefði hvað eftir annað hvatt til þess að kjarn- orkuvopn yrðu fengin fyrir varnir Kanada. Sagði hann að sér hafi skilizt að það stæði ti'l „í framtíðinni", en Diefen- baker hafi aldrei getað gefið ákveðin svör. Nú væri bersýni legt að skoðanir hans og for- sætisráðherrans væru ósam- ■ rýmanlegar, og því ekki ann- að að gera en segja af sér. Eftir afsögn Harkness lagði Lester Pearson, leiðtogi Frjáls lynda flokksins, fyrir þingið tillögu um vantraust á stjórn- ina. Aðra vantrauststillögu flutti Robert Thompson, leið- togi Sósíal-kredit flokksins, og var hún í /auninni breytingar- tillaga við þá fyrri, en orðuð með það fyrir augum að allir þrír stjórnarandstöguflokkarn ir gætu sameinazt um hana. Við atkvæðagreiðslu á þriðju Frjálslyndir Nýi demókr.fl. Sósíal-kredit Aðrir ......... 104 — (168) 25 — (22) 19 — (16) 6 — (10) Alls 264 (265) Eitt þingsæti var óskipað. Eins og sést af kosningaúr- slitunum, hafði enginn flokk- ur meirihluta á þingi. Diefen- baker var, sem formanni stærsta þingflokksins, falið að mynda stjórn, ög tók hann það að sér. Ekki tókust samningar milli hans og fulltrúa annarra flokka um myndun samsteypu stjórnar, svo að mynduð var minnihlutastj óm íhaldsflokks ins. Átti Diefenbaker í mikl- um erfiðleikum með að koma málefnum sínum á framfæri, og tilkynnti hann landstjór- anum í febrúar næsta ár, að í stjórnartíð Diefenbakers ur bandamaður — en við verð um aldrei leppríki“, sagði ráð- herrann. Dean Rusk, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna svaraði Diefenbaker, og baðst afsökunar á því ef orðalag mótmælanna hafi verið móðgandi. Gaf hann í skyn að orðsendingin hafi verið send án vitundar Kennedys forseta. En þrátt fyrir afsökunartóninn í svari Rusks, ítrekaði hann áskorun sína á Kanadastjórn um að endurskoða fyrri ákvarðanir og taka upp að nýju viðræð- ur við Bandaríkjastjórn um kjarnorkuvopn fyrir varnir Kanada. Harðar deilur urðu í Kanada þingi um þessi mál. Yfirleitt voru fulltrúar stjórnarand- stöðunnar sammála um að Bandaríkin hefðu sýnt frek- leg afskipti af innanríkismál- um Kanada. Hinsvegar var andstaðan saanmála um að Diefenbaker hefði gefið högg- stað á sér með festu- og stefnu leysi í varnarmálum. dagskvöld var svo vantraust- ið samþykkt með 132 af 148 atkvæðum stjórnarandstöð- unnar, en 111 af 115 þingmönn um stjórnarinnar greiddu at- kvæði á móti. Þótt vantraust- ið hafi verið samþykkt, fer stjórn Diefenbakers áfram með völd fram yfir kosning- arnar í apríl. KOSNINGARNAR 1957 John Diefenbaker hefur verið forsætisráðherra Kanada frá 21. júní 1057, en íhalds- flokkur hans vann stórsigur í kosningum 11 dögum áður. Tók hann við forsætisráð- herraembætti af Louis St. Laurent, sem var leiðtogi Frjálslynda flökksins, þar til Lester Pearson tók við 1958, en sá flokkur hafði farið með stjórn í Kanada í 22 ár sam- fleytt. Við kosningarnar 1957 skipt ust þingsæti þannig (tölurnar x svigum tákna sætaskipting- una fyrir kosningar): íhaldsflokkur 110 sæti (50) Lester B. Pearson við þetta yrði ekki unað lengur. Þing var þá rofið og efnt til nýrra kosninga, sem fóru fram 31. marz 1958. í þessum kosningum vann flokkur Diefenbakers mesta stjórnmálasigur i sögu Kanada, og hlaut 209 þing- menn kjörna. Frjálslyndir hlutu 48 þingmenn. Nýi demó krataflokkurinn 8, en Sósíal- kredit flokkurinn engan mann kjörinn. Hér að ofan hefur til hægð- arauka verið raett um Nýja demókrataflokkinn. í raun- inni nefnist þessi flokkur Co- operative Commonwealth Fed eration (CCF) þar til í ágúst 1961, að flokkurinn skipti um nafn og var hann jafnframt endurskipulagður með hlið- sjón af brezka Verkamanna- flokknum. AFIIROB Smávegis breytingar urðu á skiptingu þingsæta í auka- kosningum næstu fjögur árin fram að þingkosningum, sem fram fóru 18. júní 1962. Fyrir þær kosningar hafði íhalds- flokkurinn 203 þingmenn, Frjálslyndi flokkurinn 51 og Nýi demókrataflokkurinn 8. í þessum kosningum beið Diefenbaker mikið afhroð, og missti flokkur hans 92 þing- sæti, hlaut aðeins 116 þing- menn kjörna. Frjálslyndir fengu 100 þingsæti, Sósíal- kredit flokkurinn, sem engan fulltrúa átti á síðasta þingi, fékk 30 menn kjörna, og Nýi demókrataflokkurinn bætti við sig 11 þingsætum og fékk alls 19. Strax að loknum þessum kosningum var ljóst að íhalds flofckurinn hafði um tvennt að velja. Mynda samsteypu- stjórn með einhverjum hinna flokkanna, eða mynda minni- hlutastjórn. Var síðari kost- ‘ urinn valinn, en þó lýsti Sósíal-kredit flokkurinn yfir takmörkuðum stuðningi við stjórnina. ★ Ýmsir stjórnmálamenn í Kanada sögðu eftir kosning- arnar að ljóst væri að nýjar kosningar yrðu að fara fram í landinu innan eins árs. Þeir reyndust sannspáir. Nýr yfirmaöur varnarliðsins Paul D. Buie tekur við störfum d Keflavíkur- flugvelli í marz nk., Moore fer til starfa d Kyrrahafi ASSOCIATED PRESS frétta- stofan skýrði frá því í gær, að Paul D. Buie, flotaforingi, muni á næstunni taka við yfirstjóm bandaríska varnar liðsins á íslandi af Robert Moore, flotaforingja. Paul D. Buie hefur að undan- förnu verið yfirmaður flotadeild arinnar „BRÁVO“, sem hingað fcom í heimsókn í júní sl. Hafði flotinn þá verið að æfingum á Atlantshafi, en hann er fyrst og fremst ætlaður til hernaðar gegn fcafbátum á stríðstímum, og bú- inn öllum fullfcomnustu tækjum í því skyni. Flaggskip flotafbr- ingjans var flugvélaskipið USS WASP, sem er 40 þúsund lestir að stærð með 2400 manna álhöfn. Við þessu starfi Buie's tók Rob- ert E. Riera flotaforingi í gær, við hátíðlega athöfn um borð í USS WASP, sem þá var á sxgl- ingu einhvers staðar undan aust- urströnd Bandaríkjanna. Paul D. Buie er 53 ára að aldri, fæddur í Georgia-fylki í Bandaríkjunum. Að loknu námi í sfcóla bandax'iska sjóhersins, fór hann á herskipið Colorado. Á árunum 1939—41 voru stöðvar hans á Pearl Harbour, en því næst tók hann við emibætti í flota málaráðuneytinu í Washington. í október 1942 var hann sendur í bandaríska flotadeild á Kyrra- hafi og er þess getið í fréttatil- kynningu, sepa Morgunblaðinu barst í gærkveldi, að deild sú, er hann stjórnaði hafi grandað alls 135 japönskum flugvélum, Robert B. Moore, flotaforingi. Paul D. Buie, aðmírálL en sjálfur hafi hann skotið niður níu japanskar flugvélar. Fyrir hetjulega baráttu í styrjöldinni var hann sæmdur mörgum heið- ursmerkjum. í júní 1944 tók Buie flotafor- ingi við starfi hjá flugdeild banda ríska sjóhersins í Jacksonville í Florida. Síðan hefur hann gegnt ýmsum störfum innan sjóhers- ins meðal annars í sjötta banda- ríska flotanum á Miðjarðarhafi. Þess má loks geta, að Buie flotaforingi, er kvæntur og á þrjú börn. Morgunblaðið átti í gærkveldi stutt samtal við Moore, flotafor- ingja. Hann sagðist hafa bomið hingað í júni 1961, en gert væri ráð fyrir því, að hann færi héð- an í marzmánuði næstkomandi. — Og við hvaða störfum takið þér þá? spurði fréttamaður Morgunblaðsins. — Bg tek við störfum hjá bandaríska flotanum á vestan- verðu Kyrrahafi, svaraði Moore, en ég hef ekki enn fengið að vita hvaða skipi ég tek við, né heldur nöfnin á þeim skipum öðrum, sem eru í flotadeildinni. — Hvernig hefur yður líkað dvölin á íslandi? — Stórvel, mér líkar mjög illa að fara frá íslandi og ég hugga mig aðeins við eitt: að ég skuli fara á sjóinn aftur. Þó hefði ég heldur viljað vera hér áfram, ég hef kynnzt landinu vel og á hér marga góða vini. Ég hef engan hitt, sem finnst fallegt í Keflavík eða nágrenni, en strax og maður kemur til Reykjavík- ur blasa við töfrar landsins, ís- land er mjög fallegt land. Ég hef veitt lax í Blöndu og Laxá í Þingeyjarsýslu, þar hefur mér þótt skemmtilegt að vera, — við Laxá er miikil náttúrufegurð. Laugarásvepr — Þingholtin Duglega krakka eða unglinga vantar nú þegar til að bera Morgunblaðið til kaup- enda við þessar götur. Gjörið svo vel að tala við skrifstofuna eða afgreiðsluna. flfoqpinMafrifr sími 22-4-80.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.