Morgunblaðið - 19.03.1963, Side 1

Morgunblaðið - 19.03.1963, Side 1
24 síður VALTÝR STEFÁNSSON, ritstjóri Morgunblaðsins, lézt sl. laugar- dagskvöld í Borgarsjúkrahúsinu hér í Reykjavík, rúmlega sjötug- ur að aldri. Við fráfall hans er horfinn af sjónarsviðinu merkasti og fjölhæfasti blaðamaður landsins. Hann var ritstjóri Morgun- blaðsins í tæp 40 ár og hafði ekki aðeins forystu um eflingu og uppbyggingu síns eigin blaðs, heldur og víðtæk áhrif á þróun is- lenzkrar blaðamennsku. Við andlát Valtýs Stefánssonar kveður Morgunblaðið því ekki aðeins mikilhæfan ritstjóra, heldur á íslenzk blaðamannastétt á bak að sjá afreksmanni og merkum íslendingi, sem skráð hefur nafn sitt skýrum stöfum á síður íslandssögunnar. ★ Valtýr Stefánsson fæddist að Möðruvöllum í Hörgárdal 26. janúar árið 1893. Foreldrar hans voru hinn merki skólamaður Stefán Stefánsson, skólameistari, og kona hans, Steinunn Frímannsdóttir frá Helgavatni í Húnavatnssýslu. Hann stundaði nám í gagnfræða- skólanum á Akureyri, en lauk síðan stúdentsprófi við menntaskól- ann í Reykjavík árið 1911. Síðan stundaði hann búnaðarnám í Hólaskóla árin 1911—1912 til þess að búa sig undir framhalds- nám í búnaðarfræðum. Hóf hann síðan nám við Landbúnaðar- háskólann í Kaupmannahöfn og lauk heimspekiprófi í Kaupmanna- höfn árið 1913 en kandidatsprófi í búnaðarfræðum árið 1914. Síðan stundaði hann framhaldsnám við Landbúnaðarháskólann árin 1915—1917 og vann þá jafnframt við jarðarbótadeild danska Heiða- félagsins drá árslokum 1917 til ársloka 1918. ★ Þegar Valtýr Stefánsson kom að loknu háskólanámi hingað heim hóf hann störf í þágu islenzks landbúnaðar. Hann var um skeið sýslubúfræðingur í Skagafjacðarsýslu, en árin 1920—23 var hann ráðunautur Búnaðarfélags Islands. Ferðaðist Kann þá um meginhluta landsins og aflað* sér víðtækrar þekkingar á öllum landsháttum. Hann var ritstjóri og meðútgefandi landbúnaðar- blaðsins „Freys“ árin 1923—1925. Höfuðþátturinn í lífsstarfi hans hófst 1. apríl 1924, þegar hann gerðist ritstjóri Morgunblaðsins, ásamt Jóni Kjartanssyni. Var hann óslitið ritstjóri blaðsins til æviloka og um áratuga skeið jafnframt ritstjóri „ísafoldar“, eftir að hún varð vikuútgáfa af Morgunblaðinu. Ritstjóri Lesbókar Mbl. var hann einnig í áratugL Valtýr Stefánsson gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum í þágu lands og þjóðar. Hann var um skeið bæjarfulltrúi í Reykjavík, formaður Skógræktarfélags íslands árin 1940—1961. Voru skóg- ræktarmálin honum jafnan hjartfólgið áhugamál. Hann átti sæti l útvarpsráði árin 1935—1943, formaður menntamálaráðs var hann árin 1943—1956. Hann átti og um skeiö sæti í stjórn Búnaðar- félags. íslands.' Valtýr Stefánsson kvæntist árið 1917 Kristínu Jónsdóttur, list- málara frá Arnarnesi við Eyjafjörð, gáfaðri og mikilhæfri lista- konu. Áttu þau tvær dætur. Frú Kristín lézt árið 1959. í förystugrein Morgunblaðsins í dag er Valtýs Stcfánssonar minnst. Það síðasta sem heyrðíst til vélariiinar var að: Hún væri að nauðlenda á sjó Tveggja íslenzkra flug- manna saknað með Piper-Apache flugvél 1 GÆR var saknað nýrrar fjög- urra farþega flugvélar af gerð- inni Piper Apache. Vél þessi hafði flugfélagið Flugsýn keypt í Bandaríkjunum fyrir skemmstu og flugu henni tveir islenzkir flugmenn, þeir Stefán Magnús- son flugstjóri og Þórður IJlfars- son flugmaður. Það síðasta, sem heyrðist til vélarinnar, var að hún væri að missa vélarafl (loos ing power) og nauðlenda á sjó. Til vélarinnar heyrðist frá stöð sem er alllangt inni á Labrador- skaga, Lake Eon. Heyrði stöðin í vélinni á neyðarbylgju 500 kílóriðum. Þetta skeði kl. 7.35 í gærmorgun eftir íslenzkum tíma og gaf vélin þá upp að hún væri stödd á 55,55° Nbr. og 51,10® V.l. Flugvélin hafði fariö frá Gander-flugvelli á Nýfundna landi kl. 02:30 eftir isl. tíma og áætlaði að lenda í Narsarssuak á Grænlandi kl. 10:11 í gær- morgun, ísl. tími. Þegar er fregnir bárust um skeyti vélarinnar lýsti Gander yfir neyðarástandi og bað skip og flugvélar á þessari flugleið að svipast um eftir vélinni. Veð- urathugunarskipið Bravo var statt um 35 mílur norðan við stað þann er flugvélin gaf upp og hélt þegar áleiðis þangað og var komið á þær slóðir um þrem ur klukkustundum síðar. Flug- vélar hófu leit frá flotabæki- stöðinni Argentia á Nýfundna- landi og fóru tvær þaðan kl. 9:52 ísl. tími. Síðar fór ein vél frá Goose-flugvelli kl. 10:46 og kL 15:03 fór Loftleiðaflugvélin Snorri Þorfinnsson héðan frá Reykjavík til leitar. Flugfélögin hér, landhelgisgæzlan og varnar liðið á Keflavikurvelli buðu þegar aðstoð sína en leitarstjórn in í Torbay á Nýfundnalandi taldi ekki ástæðu til að flugvél- ar kæmu héðan. Komi til þess eru þessir aðilar allir reiðubúnir að senda vélar sínar. Síðast er fréttist í gærkvöldi hafði leitin ekki enn borið árangur, en þá leituðu flugvélar og skip hinnar týndu vélar. Nánar er sagt frá máli þessu á 2. síðu blaðsins. Bagdad, 18. marz — (NTB) _______ SAMKVÆMT nýjum lögum, sem eru í undirbúningi í írak, verða kommúnistar útilokaðir frá allri stjórnmálastarfsemi í landinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.