Morgunblaðið - 17.04.1963, Síða 6
6
MORCZJNfíL 4 Ð I Ð
Miðvikudagur 17. apríl 1963
Ummæli dönsku blaðanna
um unnu Borg
OIX DAGBLOÐIN í Kaup-
ir.annahöfn hafa birt langar og
lofsamlegar minningargreinar um
Önnu Borg Ieikkonu. Rekja blöð-
in hinn glæsi'ega leikferil henn-
ar frá upphafi og eru samdóma
um, að hún hafi ætíð sýnt fá-
dæma viljastyrk — ekki aðeins |
í fyrstu, er hún kornung vann
sér sess í dönsku leiklistarlífi,
heldur einnig eftir fjögurra ára
erfið veikindi, er hún hóf að
leika að nýju og haslaði sér völl
í nýjum dramatískum hlutverk-
um, ólíkum þeim, er hún fyrr
hafði hlotið viðurkenningu fyrir.
__ Anna Borg kom fvrst fram á
sviði Konunglega leikhússins í
Kaupmannahöfn 22. marz 1929
í leikritinu „Gálgamaðurinn"
eftir Runar Schild og lék þá
jafnfrair.t í fyrsta sinn á móti
Poul Reumert. í október-
mánuði árið 1932 giftist hún
Reumert og eignuðustNþau hjón
tvo syni, Stefán og Thorsten.
Meðal kunnustu hlutverka Önnu
Borg á liðnum árum eru hlut-
verk Maríu í „Galgamaðurinn",
Margarethu í „Faust“, Elisabetar
drottningar í „Maria Stuart“,
Önnu Boleyn í „Cant“ og hlut-
verk móðurinnar í „Blóðbrúð-
kaup“ eftir Garcia Lorca .
Fyrsta leikritið sem Anna Borg
stjórnaði hjá Konglega leikhús-
inu var „Magtens Bröd“ eftir
Leck Fischer, en þar lék Poul
Reumert aðalhlutverkið. „Grímu
dansleikurinn“, eftir Verdi, var
fyrsta óperan, sem hún setti þar
á svið.
★
Jens Thidstrup segir meðal
annars í minningargrein í Berl-
ingske Tidende: „Hin hörmuiega
fregn um lát Önnu Borg í flug-
slysinu skamrnt frá Osló vekur
sorg og samúð um öll Norður-
lönd. Menn hugsa með samúð til
eiginmanns hennar Poul Reuim-
erts, sem hafði haft hana sér við
!hlið í hamingjusömu hjónabandi
í meira en 30 ár, og samhryggj-
ast dönsku leifchúslífi vegna
þess áfalls, sem fráfall Önnu-Borg
blýtur að vera því. Leikferill
Önnu Borg var sigursæll og
glæsilegur. En hún þurfti oft að
heyja harða baráttu til þess að
ná settu marki og henni var ekki
hlíft við vonbrigðum og sorg.
Anna Borg bjó yfir óvenjulegum
viljastyrk — staðföstum vilja til
þess að sigrast á öllum erfið-
leikum og mótlæti. Þegar í upp-
hafi var það hreint afrek, að
hinni kornungu íslenzku leik-
konu skyldi takast að ná fót-
festu á dönsku leiksviði, þrátt
fyrir þá miklu erfiðleika, sem
málið olli henni. Hinn sami vilja-
styrkur kom í ljós, er hún síðar
eftir langvarandi veikindi, sneri
tii leifchússins aftur og haslaði
sér nýjan völl með nýjum hlut-
verkum, frábrugðnum hinum
fyrri svo og kennslu sinni og
leikstjórn. Þar stóðst hún raun,
sem margan leikarann hefur
fellt....“
Harald Engberg skrifar í Poli-
tifcen, að hjartahlýja Önnu Borg
og ást hennar á viðfangisefnum
leiklistarinnar hafi ekki sízt kom-
ið fram í starfi hennar sem leik-
stjóri og kennari við óperuskól-
ann. Þar hafi hún verið nem-
endum sínum ómetanleg hvatn-
ing til átaka og sem leikstjóri
hafi hún verið mikils virt og dáð
af öllum, sem með henni unnu.
Engberg minnist fyrstu ára
Önnu Borg hjá Konunglega leik-
húsinu í Kaupmannahöfn, síðan
starfsins við Dagmarúeikhúsið og
leikferða þeirra hjóna um Norð-
urlönd, þar á meðal til íslands.
Hann minnist þess er þau hjón
hófu störf að nýju við Konung-
lega leifchúsið og sigurs Önnu
Borg í hlutverki Elisabetar drottn
ingar í „Maria Stuart“ eftir
fjögurra ára fjarvist frá leik-
húsinu og baráttu við hinn erfiða
sj'úkdóm, sem hún þjáðist af
eftir dvöl hennar á íslandi 1951.
Að lokum segir Engberg, að
Anna Borg hafi verið örlögum
sínum vaxin, bæði sem eigin-
kona hins mikla leikara Poul
Reumerts og sjálfstæð listakona.
Hún hafi jafnan verið sjálfri
sér trú — í lífi og starfi verið
Anna Borg.
★
f blaðinu Aktuelt fer Sven
Eric Smith fögrum orðum um
fyrsta sigur Önnu Borg á leik-
sviði__Konunglega leifchússins.
Það var árið 1929 í hlutverki
Maríu, ráðskonunnar, í leikrit-
inu „Gálgamaðurinn“ eftir Runar
Sdhild, en þar lék hún eins og
fyrr segir í fyrsta sinn á móti
Poul Reumert. Anna Borg var
þá 25 ára og segir greinarhöfund-
ur, að hlutvérkið haifi gefið
henni færi á að sýna beztu eigin-
leika sína, hreina, stillilega feg-
urð og ríka hlýju undir rólegu
íslenzku yfirborði.
★
f Kristeligt Daghlad skrifar
Bent A- Koch, uridir fyrirsögn-
inni „Hinn svarti skuggi pásk-
anna“, að fregnih af flugslysinu
við Fornebu hafi komið eins og
reiðarslag yfir friðsamlega páska
hátíð. *
„Hinn mikli danski leikari
Poul Reumert hefur ætíð reynt
að verja einkalíf sitt forvitnum
augum.“ segir Beht A. Kooh, „en
við vitum, að hann hefur lifað
hamingjusömu fjölskyldulifi í
meira en 30 ár .Hann og Anna
Borg byggðu sameiginlega upp
heimili, sem hefur verið vinsam-
legum tengslum Danmerkur og
íslands afar mifcilvægt. Að sjálf-
sögðu líta ísléndingar á Önnu
Borg, sem eina af sinum mestu
d-ætrum og enginn mun mæla í
mót, er við segjum við fráfall
hennar, að hún hafi verið mest
þeirra, sem fluttust í okkar tíð
frá sögueyjunni til Danmerkur.
Svo sem ísland aldrei gleymir
Önnu Borg, gleymdi hún ekki
ættjörð sinni. Sína mestu list
sýndi hún á lerksviðinu, — þar
næst sem tengiliður íslendinga
og Dana. Þar átti hún óbrigðulan
stuðning manns síns sem svo oft
kallaði sig. „tengdason íslands".
Carl Stuhr, sfcrifar einnig í
Kristeligt Dagblad, að með
Önnu Borg hafi danska leikhús-
ið misst eina þeirra fáu lista-
kvenna, sem á yfirstandandi tím
um tækniistjórnar og eyðilegging-
armátts hljóðnemans, hafi hald-
ið óskertri hinni fullkomnu,
hljómmifclu framsögn. í fram-
sögn hennar hafi hinn sígildi
harmleikur notið sín til fulls;
hið safaríka mál sígildra rithöf-
unda, hvert eitt orð, verið gætt
því faljómgildi sem til var ætlazt.
Anna Borg og Poul Reumert nýgift 1932.
Henning Bröndsted, leikhús-
istjóri Konuglega leifchússins seg-
ir í minningarorðum í dönsku
síðdegisblöðunum, BT og Ekstra-
bladet, að réttri viku fyrir slysið
hafi hann rætt við Önnu Borg
um, að hún tæki að sér hlut-
verk Móður Karenar í „Elv-
erhöj". „Ég var efcki í vafa um,“
segir Bröndsted, „að Anna Borg,
sem sprottin var úr íslenzkum
jarðvegi, fslenzkri menningu,
gæti skapað hina réttu, dulúðugu
Móður Karen“. Og Bröndsted
segir einnig: „Fregnin um hið
hörmulega fráfall Önnu Borg er
slíkt reiðarslag, að óg megna
ekki, að svo komnu máli, að
lýsa með orðum því tjóni sem
Konunglega leitóhúsið hefur beð
ið við Jáit hennar“.
Norski leikstjórinn Gerda Ring,
sem setti á svið „Pétur Gaut“
í Þjóðleitóhúsinu í vetur var ná
kunnug Önnu Borg. Hún segir
í viðtali við Ekstrabladet, er
færði henni fregnina af slysinu:
„Það er skelfilegt að eiga að
segja eitthvað um svo óskiljaní
legan atburð, — atburð, sem hef!
ur gerzt svo skyndilega og
nærri, án þess að maður vissi.
Um Önnu Borg segi ég þó gjarna,
að hún var óvenjulega heiðarí
leg og sönn í list sinni. Hún
slakaði aldrei á listrænum kröf
um. Hvað hún gat komið mér
á óvart. Þessa litlu fíngerðu
manneskju sá ég skyndilega
stækka og aukast með ótrúlegu
afli í Öehlenschlagersýningu á
Konunglega leikhúsinu, — það
hlýtur að hafa verið afl íslend
ingsins óg meira þó — hið innra
hefur hún verið sterk sem stáL.
Knud Schön/berg segir í Ekstra
bladet, frá uppvexti Önnu Borg
á heimili foreldra hennar. Stef-
aníu Guðmundisdóttur leikkonu
og Borglþórs Jósefssonar gjald-
kera, þar sem leiklistin var i
svo miklum hávegum höfð. Hann
segir frá kynnum þeirra Önnu
Borg og Poul Reumert og sam-
skiptum sem nemenda og kenn
ara. Um leik Önnu Borg segir
Schönberg meðal annars: „Með
Framh. á bls. 17.
• Góð vetrarveðrátta
í vetur hafa víst flestir látið.
í Ijós undrun sína yfir góðviðr-
inu síðan um jól. Telja flestir
eða allir sig ekki minnast
annars eins veðurfars. Eftir
blaða og útvarpsfréttum að
dæma, hafa aldraðir menn ekki
talið sig muna svo góðviðrasam-
an vetur sem í ár.
Ég hefi oft verið spurður um
þetta sama og hefi ég svarað því
til, að ég muni 3 vetúr, sem
ekki voru síðri, eftir að kom
fram á seinni hluta Þorra.
Veturinn 1923 var ég í Reykja
vík. Ekki man ég greinilega,
hvernig veðrið var fram í fe-
brúar. Öskudagurinn var þann
10. febrúar og var þá blæjalogn,
sólskin og milt veður. Mátti
segja, að þá hafi öskudagurinn
ekki einasta átt 18 bræður, held
ur fleiri. í Dymbilvikunni var
svo komið, að risburnar voru al-
laufgaðir og má því marka veð-
urblíðuna. Páskadagur var þá
1/4. Þetta veðurfar hélzt þar til
á laugardag fyrstan í sumri. Á
sumardaginn fyrsta, þann 19/4,
var veður svo blítt sem um mið-
sumar væri. Föstudagurinn var
einmg .góður, þó kaldari væri,
en dagurinn á undan. Á laug-
ardaginn var logn, en sólarlaust.
Þoka yfir Faxaflóa, eða mjög
lágskýjað, og frekar svalt veður.
Aðfaranótt sunnudags skall á
norðan eða norðaustan hörku
stormur með dálítilli snjókomu.
Minnir mig, að þessi kuldi hafi
ekki varað lengi. Frost var tals-
vert, en gróður sakaði hvergi,
þar sem jörð var þíð fyrir.
1929 var ég á Staðarfelli á
Fellsströnd. Man ég fátt af veð-
urfarinu fyrr en í lok Þorra, sem
mun þó hafa verið fremur
stormasamur, en í Þorralok
skipti um véðurfar. Var óslitið
góðviðri upp úr því til sumar-
mála, en þá skall á norðaustan
stormur með frosti og nokkurri
snjókomu til fjalla. Þetta mun
hafa varað í eina viku eða
meira. Tún voru sumsstaðar
búin að fá grænan lit seint á
góu. Vorið minnir mig að væri
gott
• Góð beit
í dymbilviku
1932 dvaldi ég á Reykjum í
ölfusi. Ekki man ég greinilega,
hvernig veðurfar var veturinn
1931 — 1932, fyrr en kemur
fram í byrjun febrúar. Þá gerði
þíðviðri og hlýindi. Var sá hluti
túnsins, sem sáð hafði verið í
grasfræi 1930 orðinn algrænn
snemma í góu, en þá kólnaði um
tíma svo gróðurinn visnaði ofan
til, þó alltaf sæist grænt niður
við rót. Brátt hlýnaði þó aftur
og tók að gróa á ný. í dymbil-
vikunni var svo vel gróið sáð-
landið í túninu, að beit mátti
kallast góð. Rabarbari var svo
vel gróinn, að leggir og blöð
munu hafa verið orðin um 20 —
30 cm. há, en um skírdagshelg-
ina snerist til norðanáttar með
skörpu frosti, 8 til 10 stig, og
drapst þá rabarbaragróðurinn
og var hann seinn að koma upp
aftur. Skírdagur hefur þá verið
þann 24. marz, því páskadagur-
inn var þann 27, en ekki man
ég, hve lengi þetta kuldakast
stóð.
1927 var ég á Staðarfelli á
Fellsströnd. í nóvember voru
nokkrar hvítkálsplöntur skildar
eftir í garði, þar-sem blöð þeirra
höfðu ekkert vafizt saman, en
í janúarmánuði næsta ár höfðu
plöntur þessar vafizt það sam-
an, að nothæfar þóttu til matar.
Bendir þetta til mildrar veðr-
áttu.
Þessir vetrarkaflaí' eru mér
minnisstæðastir fyrir góðviðrið
og ég hefi vakið athygli á þess-
um vetrarhlýindum sökum þess,
að fólk virðist nú ekki muna
hliðstæðu til líðandi vetrar. Það
gleymist fljótt hið góða vetrar-
veðrið.
Magnús Kristjánsson.
BOSCH
Allt
*
i
rafkerfið
BRÆÐURNIR ORMSSON hf
Vesturgötu 3.
BOSCH
t