Morgunblaðið - 20.04.1963, Side 22
22
MORCVlSTilAÐIB
Laugavðagur 20. apríl 1963. 1
i í GÆR voru 84 Finnar á leið
, um Reykjavík með flugvél
Loftleiða frá Bandaríkjunum,
þar sem þeir höfðu dvalizt í
viku. Þetta eru 20 blaðamenn,
sölumenn fyrir Chrysler bif-
reiðir, eigendur leigubíl-
stöðva og iðnrekendur. Höfðu
þeir hér lengri dvöl en venja
er, því þeir höfðu beðið um
að fá að skoða sig um í Reykja
vík. —
Var Finnunum sýndur bær
inn. Síðan vildu þeir baða sig
í hveravatni, og var farið með
þá í Sundlaug Vesturbæjar,
þar sem er sauna-baðstofa.
Þar tók ljósmyndari blaðsins,
ÓI. K. M., þessa mynd.
Þá var Finnunum sýnd isl.
kvikmynd í salarkynnum
Loftleiða í Tjamarkaffi. Og
um kvöldmatarleytið héldu
þeir áfram ferðinni.
Aðoliundur iulltrúurúðs Sjúli-
slæðisfélugunnu í Árnessýslu
AÐALFUNDUR fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í Árnes-
sýslu var haldinn að Selfossi
hinn 29. marz sl. Formaður full-
trúaráðsins, Helgi Jónsson banka
fulltrúi setti fundinn og flutti
skýrslu stjórnarinnar um starf-
semina sl. starfsár. Hafði full-
trúaráðið aðallega unnið að
undirbúningi kosninga þeirra er
fram fóru á árinu, en það voru
Sveitastjórnarkosningar Og kosn
ingar til búnaðarþings. Haldið
var mjög fjölmennt héraðsmót
að Flúðum í ágústmánuði og í
október var haldið kýnningar-
mót á Selfossi þar sem boðnir
voru um 20 félagar úr Sjálf-
stæðisfélagi Vestmannaeyja, svo
Ný ævisaga Lenins
Moskvu, 19. apríl (NTB)
í DAG kom út í Sovétríkjunum
ný útgáfa af hinni opinberu ævi-
Þing Pakistan ræðir
nafis kattar sendi-
herra USA
, Dacea, 19. apríl (NTB).
í DAG var rætt á þingi Pakist
an nafn kattar Gaiíbraiths,
sendi herra Bandaríkjanna í
Indlandi. Kötturinn kom til
umræðu vegna þess, að spurzt
I hafði, að hann hefði verið
skírður Ahmed, sem er sama l
naf n og Muhammed, nafn í
spán-.annsins. Pakistanbúar /
telja það helgispjöll að kalla
kött nafni spámannsins og
varaforseti þingsins sagði, að
væri það rétt að kötturinn
væri kallaður Ahmed, væri
það mál þúsund sinnum alvar-
legra en vopnasendingar Vest
urveldanna til Indlands.
Eftir umræðumar í þing-J
inu lofaði talsmaður ríkis-
stjórnar Pakistan, þingmönn-
um, að stjómin myndi rann-
saka málið .
Galbraith sendiherra skýrði
frá því í Nýju Dheli í dag, að
kötturinn bæri ekki nafn spá-
mannsins. Hann hefði verið
skírður Ahmedabad eftir borg
inn þar sem böm sendiherr-
ans fengru hann að gjöf. Til
iiryggis sagðist Galbraith hafa
Iátið bömin skíra köttinn upp
og héti hann nú Gujerat eftir
héraðinu þar sem Ahmedabad
er höfuðborg.
sögu Lenins. Pravda, málgagn
kommúnistaflokks Sovétríkj-
anna, birtir grein í sambandi við
útkomu bókarinnar og segir þar
m.a., að í henni sé vísað á bug
fullyrðingum lýðskmmara, fals-
spámanna og hræsnara, um að
Lenin hafi ekki viljað friðsam.
Iega sambúð við ríki, sem ekki
hefðu srama þjóðfélagsskipulag
og Sovétríkin.
Blaðið segir, að áðurnefndir
bópar manna hafi notað full-
yrðingar sínar til þess að gagn-
rýna stefnu Krúsjeffs forsætis-
ráðherra. Hefðu þeir borið bon-
um á brýn, að hann fylgdi ekki
stefnu Lenins.
í hinni nýju opinberu ævisögu
Lenins segir, að kommúnista-
flokkurinn og Sovétstjórnin fylgi
kenningunni um friðsamlega sam
búð við ríki, sem hafi annað
þjóðfélagsskipulag. Lenin hafi
lagt grund'VÖLlinn að friðsamlegri
sarnbúð og utanríkisstefna Sovét
ríkjanna sé í samræmi við það.
Blaðið segir, að falsspámenn
þeir og lýðskrumarar, sem láti í
veðri vaka, að Lenin hafi ekki
verið hlynntur friðsamlegri sam
úð, rangtúlkun orða hans og
reyni að slá ryki í augu fjöld-
ans. Lenin hafi hvað eftir ann-
að lagt áherzu á mikilvægi frið-
samlegrar sambúðar og efnahags-
lega samkeppni kapítalista og
sósíalista. Lenin sagði, að kapítal
istar og kommúnistar myndu lifa
hlið við hlið um langan aldur
og kommúnistaflokkurinn bygg-
ir stefnu sína á kenningum hans.
Pétur Berndsen
Endurskoðunarskrifstofa,
endurskoðandi
Flókagötu 57.
Simi 24358 og 14406.
og nokkrir félagar úr Rangár
valla- og V-Skaftafellssýslu.'
Var mjög vel til þessa móts
vandað og fór það í alla staði
svo fram að til sóma var þeim
er það höfðu undirbúið. Félag-
arnir úr Vestniannaeyjum höfðu
dvalið í boði Fulltrúaráðsins, hér
í sýslu í tvo daga og ferðast um
héraðið og skoðað merkustu staði
þess og atvinnufyrirtæki ýmis.
Slík kynningarmót og heim
sóknir hafa Sjálfstæðismenn í
Suðurlandskjördæmi haft árlega
frá því er kjördæmunum var
breytt og voru Vestmannaeying
ar upphafsmenn að þeim. Hefur
þetta fyrirkomulag leitt til auk
inna kynna milli flokkssystkina
í kjördæminu, þótti vel gefast og
áhugi fyrir því að efla þennan
þátt félagsstarfsins í framtíðinni.
Að skýrslu formanns lokinni
var kjörið í stjórn fulltrúaráðs-
ins og hlutu þessir kosningu af
hálfu fundarins: Helgi Jónsson
fulltrúi, form. Einar Eiríksson,
bóndi, ritari. Einar Sigurjóns-
son verkstjóri, féhirðir. Steinþór
Gestsson bóndi. Formenn flokks
félaganna í sýslunni eru og sjálf
kjörnir í stjórnina en þeir eru:
Þorsteinn Sigurðson verkstjóri,
Selfossfo Sigmundur Sigurðsson
bóndi S-Langholti. Óskar Magn-
ússon kennari, Eyrarb. Bragi
Einarsson Hveragerði. Pétur
Aðalsteinsson stöðvarstjóri, Ljósa
fossi. Bjarnþór Bjarnason bóndi
Hoftúni og Óli Þ. Guðbjartsson
kennari, Selfossi.
í kjördæmiSráði voru kjörnir:
Helgi Jónsson, Gunnar 'Sigurðs-
son, Sigurbjörn Einarsson, Róbert
Róbertsson, og Jón Pálsson. Full
trúar á landsfund Sjálfstæðis-
flokksins er hefst í Reykjavík
hinn 25. apríl nk. voru kjörnir
af hálfu fulltrúaráðsins: Einar
Pálsson, Gunnar Sigurðsson, Jón
Sigurðsson, Ásgeir Eiríkisson,
Oddgeir Ottesen, Jón Helgi
Hálfdánarson, Pétur Aðalsteins-
son, Benedikt Bogason, Sigurður
Sigurðsson, Jóhann Jóhannsson.
Að loknum aðalfundarstörfum
voru rædd ýmiss flokksmál Og
viðhorfin til væntanlegra þing-
kosninga.
Fundarstj. var Gunnar Sig.
Fundarr. Einar Eiríksson.
Eskifjarðarbátur
fékk síld
ESKIFIRÐI, 19. apríl7— Til'lS.
þessa mánaðar var afli Eski-
fjarðarbáta sem hér segir: Seley
534 lestir, Vattarnes 490 lestir,
Hólmanes 486, Guðrún Þorkels-
dóttir 361 lest. Síðan hefur
Vattarnesið landað 55 lestum.
Sjómaður hér út með firðin-
um var úti með rauðmaganet
fyrir nokkrum dögum og fékk
í þau síld. — G.S.
BK og Akranes keppa
á sunnudaginn
Lib IBK talib styrkara en áður
KLUKKAN 4 á sunnudaginn
hefst knattspyrnutímabilið hjá
Keflvíkingum. Þá keppa ÍBK og
Akumesingar á vellinum í Kefla
vík. Er þessi leikur liður í hinni
svokölluðu litlu bæjakeppni,
sem árlega fer fram milli Kefla
víkur, Akraness og Hafnarfjarð-
ar.
í fyrra voru öll liðin þrjú jöfn
að stigum eftir tvöfalda umferð.
En Keflvíkingar höfðu hagstæð-
asta markatölu og tóldust því
sigurvegarar.
Lið Keflvíkinga leiknr nú aftur
í 1. deild í sumar. Liðið hefur æft
vel að undanförnu undir hand-
leiðslu Guðbjörns Jónssonar
knattspyrnukappa í KR.
Liðinu hefur einnig ba tzt nýr
markvörður en það er Gottskáik
Ólafsson, sem undanfarið hefur
leikið í liði Sandgerðinga cn er
nú fluttur til Keflavikur og leik-
ur með ÍBK.
ÍBK átti í nokkrum erfiðleik
um sl. sumar vegna þess hve
margir af efnilegustu mönnum
þeirra voru í 2. aldursflokki, en
nú hafa þeir flesitir gengið upp
svo að í sumar ættu Keflvíking-
ar ekki að vera í vaindræðum að
skipa löglegt lið þótt einhver
hinna eldri heltist úr lestinni. *
Keppni B-liðs
í hnndknattleik
Handknattleiksráðið gengst
fyrir keppni B-liða í yngri aid-
ursflokkum og er reyndar lokið
1. umferð. önnur umferð verður
í dag að Hálogalandi. Keppa þá 1
2. flokki kvenna Fram gegn Vík-
ing og Þróttur gegn Val. í 3. fl,
karla keppa Þróttur gegn KR og
ÍR gegn Víking og Valux gegn
Fram.
Á sunnudaginn verða úrslitin.
Liðin sem hafa tvo tapleiki falla
úr keppninni en hin keppa um
efstu sætin.
Handtökur í Argentínu
Buenos Aires, 18. apríl —
(NTB-AP): ~ —
Síðustu daga hafa farið fram víð
tækar handtökur í Argentínu. Á
þriðjudag og míðvikudag voru
tólf kunnir kaupsýslumenn og
sérfræðingar um efnahagsmál
teknir höndum, og í dag, mið-
vikudag, kom röðin að rithöfund
um, blaðamönnutn, og stjórnmála
mönnum.
Ástæðan til þessara aðgerða er
sú, að sögn innanríkisráðuneyt-
isins, að menn þessir hafa starf
að fyrir marxist-lenínísku bylt-
ingarhreyfinguna í Argentínu.
Meðal hinna handtsknu er
Marcos Voroshnik, stjórnarfor-
maður dagblaðsins „E1 Mundo“
og fyrirrennari hans í þeirri
stöðu, Simon Sivak. Leitað er
tveggja bræðra Voroshniks. Einn
ig er þar rithöfundurinn Emesto
Sabato og Dr. Jacobo Bringhaus,
læknir Arturo Frondizts, fyrrv.
forseta.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum, að aðeins einn hinna
handteknu hafi verið félagsbund
inn kommúnisti — Rodolfo Pui-
ggros, sem var fulltrúi í argen-
tíska sendiráðinu í Mexico meðan
Frondizi var við völd.
Talsmaður innanríkisráðuneýt-
isins segir, að menn þessir eigi
það allir sameiginlegt, að hafa
verið ákafir fylgismenn Rogelo
Frigerio, sem var mikilsvirtur
efnahagssérfræðingur og póli-
tískur ráðgjafi Frondizis. Hafi
menn þessir unnið að því með
öllum hugsanlegum leiðum að
skapa ringulreið og óeiningu
meðal þjóðarinnar til þess að
geta síðan notfært sár það ástand
til myndunar stjórnar á marx-
lenínískum grundve’li. Jafn-
framt tilkynnir ráðuneytið að af-
brot manna þessara fai'i undir
ákvæði um „ógnun við öryggi
ríkisins".
Guðrún Erlendsdóttl-
örn Clausen
héraðsdómslögmenn
Málflutningsskrifstofa
Bankastrætj 12. Simj 18499.
IVierkjasölu-
dagur Ljós-
mæðrafél.
LJÓSMÆÐRAFÉLAG Reykja-
víkur hefur hinn árlega merkja-
söludag á sunnudag, til ágóða
fyrir Hvíldarheimilið í Hvera-
gerði og einnig verður vaxið þvl
sem hægt er til að varðveita
hús Þorbjargar Sveinsdóttur,
sem stendur við Skólavörðustíg.
Þorbjörg Sveinsdóttir var
mjög merkileg kona á sinni tíð,
ekki aðeins sem miikil og góð
Ijósmóðir heldur einnig sem
framsækin kvenréttindakona.
Hús Þorbjargar er lágreist á
meðal stórhýsa en þar laufgað-
ist sú björk, sem teygði lim sitt
langt út fyrir íslands strendur.
Ólaflía Jóhannsdóttir var alin
upp hjá Þorbjörgu ljósmóður og
má segja að mannúð hennar og
kærleikur umvefði þá smæstu
og hjálparlausustu götuböm
Oslóborgar. Engin var svo djúpt
fallinn að hann hefði ekki skjól
hjá henni, enda reistu Norðmenn
foenni veglegan minniavarða 1
Osló.
Nú hefur forstjóri Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis gefið
Ljósmæðrafélagi Reykjavikur
hús Þorbjargar, sem við erum
mjög þakklétar fyrir, en mark-
ið er að flytja það stein fyrir
stein og folaða það upp eins og
það var.
Vonandi á eftir að vaxa bjark-
arlim í kringum það á ný, sem
nær til alls þess sem lifir og
veitir skjól og kærleika hverj-
um sem þarfnast.
Góðir Reyfcvíkingar kaupið
merki félagsins og styðjið gotit
málefni. Merkin eru affoent f
barnaskódum og hjá Guðrúnu
Halldórs á Rauðarárstíg 40 frá
kl. 10 fyrir hádegi.
F.fo. Ljósmæðrafélags Reykja-
víkur
Helga M. Níelsdóttir,
ljósmóðir.