Morgunblaðið - 24.04.1963, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.04.1963, Blaðsíða 1
24 síður Landsfundur Sjálf- stæöisflokksins ÍLANDSFUNDARFULLTBÚAR eru vinsamlega beðn- ir að afhcnda kjörbréf og vitja fulltrúaskírteina sinna í skrifstofu flokksins í Sjálfstæðishúsinu í dag kl. 9—12 fyrir hádegi og kl. 1—7 eftir hádegi. Sex mílna fiskveiði- takmörk við Bretland? B R E Z K A blaðið „Fishing News“ skýrði frá því fyrir nokkrum dögum, að innan fárra vikna mætti vænta yf- irlýsingar brezku stjórnar- innar um, að komið verði á sex mílna fiskveiðitakmörk- um við Bretland. Segir blað- ið, að samningaviðræðurnar um fiskveiðitakmörkin við Færeyjar, hafi tafið fyrir birtingu opinberrar yfirlýs- ingar þessa efnis. í viðtali við blaðið, þriðjudaginn 16. apríl, hafði talsmaður brezka sjávarútvegsmálaráðuneytis- ins hvorki getað staðfest né hafnað þessari fregn. Blaðið hefur eftir áreiðanleg- Um heimildum, að brezki ráð- herrann Christopher Soames vinni nú að opinberri áætlun um fiskveiðitakmörkin við Bretland, og eigi að birta hana í síðasta lagi 1. júní. Á þessi ásetlun að fela í sér útfærslu fiskveiðitak- markanna í tólf mílur á næsta áratug. — ★ — Fishing News segir, að út- færslu fiskveiðitakmarkanna við Bretland verði mjög fagnað af brezkum fiskimönnum, sem hafi að undanförnu gert harða hríð að stjórnarvöldunum vegna auk- innar ásælni erlendra togara á fiskimið við Bretlandsstrendur. Sem fyrr segir er talið, að út- færslan verði fyrst um sinn í sex mílur — þótt það sé enn óstaðfest. Er þar með aðeins gengið til hálfs að kröfum fiski- manna, sem telja tólf mílur nauð synlegar þegar í stað. Þótt brezka stjórnin tilkynni útfærslu fiskveiðilögsögunnar nú, getur hún ekki komið til fram- kvæmda fyrr en að ári. Bretar eru bundnir tveim samningum, sem gerðir voru við önnur ríki á nítjándu öld. Annar er við Frakkland, frá 1S39. Segir blaðið, Framh. á bls. 23. Erlendur Einarsson Steingrímur Hermannsson (Jtförin í dag ÞESSI íslenzka sálmabók úr Hrímfaxa fannst á staðnum þar sem flugvél- in fórst við Ósló. í dag kl. 1,30 verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík útför áhafnar flugvélarinnar og Mar- grétar Bárðardóttur. Séra Jón Auðuns jarðsyngur. Athöfninni verður útvarp- að. — Minningargreinar um hina látnu birtast hér í blaðinu í dag. Þess má geta, að útför Helgu Henckell, annarrar flugfreyjunnar, var gerð i fyrradag og útför Þor- björns Áskelssonar, út- gerðarmanns, sem var far- þegi með vélinni, verður gerð frá Grenivíkurkirkju á laugardag kl. 2. Erhard eftirmaður Adenauers Hlaut yfirgnæfandi meirihlutc atkvæða Bonn, 23. apríl — NTB-AP — Á FUNDI þingflokks kristi- legra demókrata í V-Þýzka- landi í dag, var ákveðið að tilnefna Ludvig Erhard eftir- mann Adenauers í embætti kanzlara. Var hann kosinn til þess með yfirgnæfandi meiri- hluta, hlaut 159 atkvæði af 225 hugsanlegum, — 47 þing- menn greiddu atkvæði gegn honum, en 19 sátu hjá. Adenauer, kanzlari, sem hafði mælt gegn því að Erhard tæki við af sér, lýsti því yfir í ræðu, er úrslit atkvæðagreiðslunnar voru kunn, að þau væru bindandi fyrir allan ílokkinn og öllum bæri að styðja Erhard í starfi. Kanzlarinn bætti við og sneri máli sínu til Erhards: „Ég mun styðja yður, herra Erhard, eft- ir bezta megni og beita til þess öllum mínum áhrifum, með það í huga hvað sé þýzku þjóðinni fyrir beztu.“ Þingmenn kristilegra höfðu setið á rökstólum í meira en tvær klukkustundir áður en Eysteinn óttast óeininguna í Framsókn Ræust þó sjálfur að sjónar» miðum einstakra flokksmamia í SETNINGARRÆÐU Ey- steins Jónssonar á flokks- þingi Framsóknarflokksins kemur glöggt í ljós, að hann óttast mjög sundrungina, sem er í flokknum. Hvetur hann flokksmenn ákaft til að láta ekki ágréiningsmál „þótt þýðingarmikil séu“ ráða gerð um sínum, láta „ekki ágrein- ing um einstök mál eða um aðferð sundra þýðingarmikl- um samtökum, svo ekki ræðst við neitt, og glundroði verður höfuðeinkenni á- standsins“. Ástæðuna til þessa ótta Eysteins Jónssonar er fyrst og fremst að rekja til þess, að fjöldi flokksmanna vítir harðlega það framferði flokks klíkunnar að nota viðkvæm milliríkjamál til innanlands- deilna, og er þar einkum um þrjú mál að ræða. í fyrsta lagi samninginn við Breta í landhelgismálinu, sem flokksforystan hefur lýst yfir að sé markleysa og muni þar af leiðandi felldur úr gildi, ef Fram sóknarn. nn ná meirihluta með kommúnistum. 1 öðru lagi er um að ræða af- stöðuna til Efnahagsoandalags- ins, en sú klika, sem Framsókn- arilokknum ræóur, hefur þar rekið algera tækifærisstefnu, eins og margsinnis hefur verið rakið hér í blaðinu og mun ef tii vUl gert oftar. í þriðja lagi er svo um að ræða hagnýtingu erlends fjár- magns hér á landi, en Framsókn- arflokkurinn var á sínum tíma sá flokkur, sem fyrst tók þetta atriði í stefnuskrá sína, en nú er sýknt og heilagt klifað á því, að þeir, sem vilja hafa eðlilegt samstarf við útlendinga í þessu efni, séu nokkurs konar lands- sölumenn. Þótt Eysteinn Jónsson biðji sér og flokiki sínum vægðar í ræðu sinni getur hann ekki stillt sig um að halda áfram dylgjunum um það, að þeir, sem vilja láta skynsemina ráða í Efnahagsbanda lagsmálinu og varðandi erlent Framh. á bls. 23. hægt var að ganga til kosninga. Þá var ákveðið að kjósa urh Er- hard einan, en áður höfðu kom ið fram tillögur um að kjósa á milli hans, Gerhards Schröders, utanríkisráðherra, Heinrick Krone, ríkisstjóra og Heinrich von Brentano, formanns flokka kristilegra. Allir neituðu þeir að gefa kost á sér til starfsins og urðu úrslit atkvæðagreiðslunnar, sem fyrr sagði. Þegar Adenauer hafði flutt ræðu sína tók Erhard til máls og var hrærður mjög. Lýsti hann því yfir, að hann myndi reyna að ávaxta þann arf er Adenau- er skildi eftir sig, með hans og Guðs hjálp. Við Adenauer sjálfan sagði Er- hard: „Hver svb sem misklíðar- efni okkar kunna áður að hafa verið, þá gleymum því liðna og byrjum að nýju. Ég vona og óska að ég eigi eftir að njóta stuðn- íngs yðar og góðra ráða, herra forsætisráðherra. Að gleyma og fyrirgefa er skylda hins kristna manns. Ég mun gera allt sem í minu valdi stendur til þess að bera þá þungu byrði, sem á herð ar miínar eru la.gðar". Sem kunnugt er lætur Aden- aueir af emioæui í haust og tekur Erhard þá við, að undangenginni atkyæðagreiðslu á þmgi. Kristi- legi demokrataflokkurinn hefur þar að vísu ekki meiri hluta, en Ludvig Erhard á vísan stuðn- ing Frjálsra demokrata í em- bætti kanzlara.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.