Morgunblaðið - 22.05.1963, Side 16
rogmttMðfrifr
114. tbl. — Miðvikudagur 22. maí 1963
Taugaveikibróðir
á bæ í Kjós
Afurðasala stöðvuð
MORGUNBLiAÐIÐ frétti í gær, sala var þegar í stað stöðvuð frá
að fyrir skömmu hefði komið
upp taugaveikibróðir á bænum
Miðdal í Kjós. Rannsókn fer nú
fram á því, hvaðan veikin hefur
borizt, en niðurstöður liggja ekki
fyrir ennþá. Tveir sjúklingar
hafa verið lagðir í Heiisuvernd-
arstöðina í Reykjavík, en ekki
var blaðinu kunnugt um það í
gærkvöldi, hve margir hefðu alls
sýkzt af veikinni. Þó mun hún
ekki hafa borizt á aðra bæi.
Þess má loks geta, að afurða-
Leitin enn
árangurslaus
HALDIÐ var áfram leit í gær að
þeim Jóni Björnssyni og Birni
Braga Magnússyni, sem óttast er
að hafi farið út á trillu aðfara-
nótt miðvikudagsins 15. maí sl.
Leitað var úr flugvél með fjör-
um í Borgarfirði og á Mýrum og
ennfremur var flogið yfir þeim
svæðum í nágrenni Reykjavíkur,
sem áður hafði verið leitað á.
Leitin í gær varð árangurslaus
og varð ekki vart við neitt brak
úr bátnum.
bænum, þegar ljóst var, að tauga
veikibróðir hefði komið þar upp.
<*> Flugvélin, Melavegurinn og flugbrautin. Fólksbíllinn stóð eins og bílarnir á myndinni.
Lét flugvélina hoppa yfir veginn til að
forða árekstri við fólksbíl
IViik.il mildi að ekki skyldi hljótast
stórslys af vélarbilun kennsluflugvélar
í GÆRKVÖLDI skall hurð nærri
hælum við vesturenda flug-
brautarinnar, sem liggur með-
fram Skerjafirði, þegar Piper
Cup kennsluflugvél frá Þyt varð
að nauðlenda utan brautarenda
eftir vélarbilun yfir flugvellin-
um í 150 feta hæð. Tveir menn
voru með vélinni, kennari með
Fundir frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi
verða a eftirtöldum stöðum:
GRINDAVÍK — SANDGERÐI — HÖFNUM — GERÐA-
HREPPI — VOGUM — GARÐAHREPPI _ SELTJARNAR-
NESl — KJÓS — KÓPAVOGI — KEFLAVÍK — OG
H AFN ARFIRÐI
Á fundum þessum flytja ræður og ávörp frambjóðendur
Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu.
Fundir verða nánar tilkynntir jafnóðum og að fundar-
dögum kemur.
•
Furdirnir í GRINDAVlK og SANDGERÐI verða n.k.
föstudagskvöid, 24. maí.
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins
í Reykjaneskjördæmi.
nemanda sínum, og sluppu þeir
án meiðsla.
Mennimir, sem flugu vélinni,
eru Gunnar Guðjónsson, flug-
kennari, 21 árs gamall, sem hef-
ur atvinnuprófsréttindi og hefur
flogið 600 tíma, og Bragi Ingólfs-
son, 23 ára gamall flugvirkja-
nemi, sem var í fjórða flugtíma
sínum, til þess að „kynnast öllum
hliðum starfsins“,
Þeir fóru á loft á Piper Cup
kennsluvélinni kl. 17.48 í þeim
tilgangi að æfa lendingar og flug
tök. Kl. 18.12, er þeir voru komn-
ir í 150 feta hæð úr flugtakinu,
á móts við afgreiðslu Flugfélags
íslands, drapst snögglega á
hreyfli vélarinnar. Bragi hafði þá
á hendi stjórn hennar, en Guð-
mundur tók þegar í stað við og
bjó vélina til nauðlendingar, rauf
rafstrauminn og lokaði fyrir
benzínrennslið, svo síður kvikn-
aði í.
Ætlaði Guðmundur að reyna að
lenda á brautinni, ef kostur væri,
en á Melaveginum, beint fyrir
brautarendanum, stóð hvítur
fólksbíll." Fólkið í þeim bíl var
að horfa á flugvélarnar, en sú
forvitni hefði nærri getað kostað
það og flugmennina lífið. Bíllinn
ók þegar í stað í burtu.
„Ég gat ekki náð að lenda á
brautinni, og til þess að reyna
að hætta ekki nema okkar lífum
var ekki um annað að ræða en
þvinga vélina niður fremst á
brautarendann og reyna að
láta hana hoppa yfir veginn.
Ég veit ekki sjálfur hvers
vegna ég gerði þetta, maður tek-
ur ósjálfrátt eitthvað til bragðs
undir svona kringumstæðum.
Það tókst að láta vélina „bomsa**
yfir veginn og hinum megin lent-
um við með hjólgrindina á gadda
vírsgirðingu, sem til allrar ham-
ingju var svo ónýt, að hún lét
undan.
Forlögin stóðu víst á allan hátt
með okkur, því þetta tók smám
saman af okkur aila ferð, og loks
Flugkennarinn, Gunnar Guðjónsson, nær, og Bragi Ingólfs-
son horfa á flugvélina eftir hina velheppnudu nauðlendingu.
runnum við nokkra metra eftir
túni áður en við fórum ofan i
skurðinn".
— Þið hafið sloppið alveg
ómeiddir?
—„Já, en við gáfum okkur góS
an tíma til að fara út úr vélinnL
— Og ert þú nokkuð að hugsa
um að hætta þínu ílugnámi,
Bragi? spurðum við nemand-
ann.
„Ég fann allan tímann, að GuS
mundur hafði stjórn á vélinni, og
varð þess vegna ekki smeykur,
og ef þeir vilja taka mig áfram,
er ég ákveðinn að hætta ekki“.
Aðalfundur S.H.
verður 13. júní
AÐALFUNDUR Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna hefst í Reykja
vík 13. júní næstkomandi.
Þetta mun verða 21. aðalfund-
ur samtakanna og stendur vænt-
anlega í 2—3 daga. Fundarstaður
verður í Slysavarnafélagshús-
inu.