Morgunblaðið - 21.06.1963, Qupperneq 6
6
MORCVNBLAfílÐ
Föstudagur 21. júní 1963
Agæt síldveiði við
Vestmannaeyjar
Héðinsfjörður er í eyði. Þar búa engir utan nokkrir refir, sem
þó lifa þar ekki í friði. Fyrir nokkrum dögum fóru Stefán Frið-
riksson, lögregluþjónn, á Siglufirði, Einar Þórarinsson og Hjalti
Einarsson á Reyðará þan.gað og komu aftur með þennan feng.
— Ljósm. SH.
Vestmannaeyjum, 19. júní.
UNDANFARNA daga má
segja að ágæt síldveíði hafi verið
hér við Eyjarnar. Síldin er
skammt undan, eða sunnan við
Bjarnarey og heim ai Stakkabót.
Má í þessu sambandi geta þess,
að mb. Reynir er búinn að fá
rúmar 4000 tunnur á 4 dögum,
eða liðlega 1000 tunnur á dag. Þá
hefur einnig mb. Meta og Kári
fengið góða veiði, og hún sé bezt
hjá Reyni.
Fimm bátar stunda þessar
veiðar héðan, þ.e. Reynir, Meta,
Leó, Kári og Ágústa. Þessir bátar,
að einum undanteknum, ætluðu
allir norður en vegna óvissu um
hvort af verkföllum yrði nyrðra,
fóru þeir að leita að síld hér.
Nær allt af síldinni hefur farið
í bræðslu, en þó hefur lítils hátt-
Sæmdir Fálka-
orðunni
FORSETI íslands hefir í dag
sæmt eftirgreinda menn riddara-
krossi hinnar íslenzku fálkaorðu:
1. Björn P. Blöndal, fyrrv. póst-
afgreiðslumann, Hvamms-
tanga, fyrir embættis- og
félagsmálastörf.
2. Björn Finnbogason, oddvita,
Gerðum í Garði, fyrir störf að
sveitarstjórnarmálum.
3. Séra Gunnar Árnason, sókn-
arprest, Kópavogi, fyrir em-
bættisstörf.
4. Jón Eiríksson, fyrrv bónda og
hreppstjóra, Höfn, Hornafirði,
fyrir búnaðarstörf.
5. Jón Rögnvaldsson, garðyrkju-
bónda, Akureyri, fyrir störf
að garðrækt og skógrækt.
6. Sigmund Halldórsson, arki-
tekt, Reykjavík, fyrir störf
sem byggingafulltrúi Reykja-
víkurborgar.
Ennfremur hefir forseti íslands
í dag sæmt Valdimar J. Líndal,
fyrrv. dómara Winnipeg stórridd
arakrossi fálkaorðunnar.
...með kvöldkaffinu
ÞEGAR ÞÉR gistið i Kaup-
mannahöfn, getið þér lesið
Morgunblaðið samdægurs, —
með kvöidkaffinu í stórborg-
inni.
FAXAR Flugfélags íslands
flytja blaðið daglega cg það
er komið.samdægurs i blaða-
söluturninn í aðaljámbrautar-
stöðinni við Ráöhústorgið —
Hovedbanegardens Aviskiosk.
FÁTT er ánægjule^ra en að
lesa nýtt Morgunblað, þegar
verið er á ferðalagi vtra eða
dvalizf þar.
ar verið fryst og mun sjálfsagt
gert í vaxandi mæli, þar sem
síldin er mjög stór og góð til
frystingar. Annar eigandi Reynis
Júlíus Ingibergsson, sagði í við-
tali við fréttaritarann, að sér
virtist þessi síld stór og þykk
eins og Norðurlandssíld, og gat
þess, að báturinn hefði orðið að
liggja með fullfermi yfir þjóð-
hátíðardaginn og þá hefði komið
í Ijós, að lýsi úr síidinni hefði
runnið í gegn um þilið, sem skil-
ur milli lestar og vélarrúms.
Mætti af því marka, að veru-
leg fita væri í síldinni.
Gert er ráð fyrir því, að bát-
arnir fari ekki norður á meðan
svona vel gengur við Eyjar.
— Bj. Guðm.
Briissel 19. jún (NTB).
VARAFORSETI stjórnarnefndar
Efnahagsbandalags Evrópu, Sicco
Mansholt, sem fjallar um land-
búnað og fiskveiðar innan banda
lagsins, sagði í dag, að banda-
lagslöndin ættu ekki að stefna
að því að verða sjálfum sér nóg
á sviði fiskveiða og fiskfram-
leiðslu.
Hann sagði, að bandalagsríkin
ættu að flytja inn fisk frá öðrum
löndum.
Mansholt ræddi ofangreint
atriði á fundi í Ostende. Þar
ræddi hann einnig uppsögn
Breta á Norðursjávar samningn-
• 40 kr. fyrir ekkert
Nýlega var farið að skatt-
leggja gesti á veitingahúsum,
þannig að þeir greiða 15 kr.
fyrir að koma þar inn á kvöld-
in og að auki 10 kr. fyrir
að fá kápu sína geymda. Þetta
kemur misjafnlega illa niður
á fólki. Þeir sem fara í veit-
ingahús og kaupa þar mat og
drykk og sitja allt kvöldið
láta sér fátt um finnast, En
þetta er óneitanlega talsverð-
ur skattur, sem um munar,
ef t.d. við blaðamenirnir, sem
vinnum á kvöldin, viljum
skreppa og fá okkur kaffibolla
á veitingahúsi.
Matvælum stolið
úr slysavarna-
skýli
ísafirði, 19. júní.
NOKKRIR menn á vegum
karladeildar Slysavarnafélags-
ins á ísafirði fóru s.l. föstudags-
kvöld að Höfn í Hornavík til að
vinna að endurbótum á skýli
Slysavarnafélagsins þar.
Ætlunin var að koma við í
fleiri skýlum á bakaleið, en reynd
ist það ókleift vegna veðurs.
Umgengni um skýlið í Höfn
hefur verið góð, en hins vegar
var búið að stela meginhluta af
matarbirgðum þeim, sem áttu að
vera í skýlinu, og skemma það
sem eftir var. —
Oft áður hefur Slysavarnafé-
lagið orðið fyrir slíku hér um
slóðir og verður það sennilega
til þess, að allar matarbirgðir
verða fjarlægðar úr skýlunum
snemma á vorin og hafa þau
birgðalaus fram á haust.
— Garðar
um frá 1882 og sagði, að uppsögn
samningsins gæti haft tvenns
konar afleiðingar. í fyrsta lagi
gæti hún veikt áhrif hans á eftir-
lit með fiskveiðum í Norðursjó
og í öðru lagi gæti brezka stjórn-
in fengið tækifæri til þess að
stækka þar veiðisvæði, sem Bret
ar einir hefðu aðgang að.
Mansholt kvaðst telja, að fisk-
veiðiráðstefnan, sem Bretar hafa
boðað til í haust, rouni verða
mjög mikilvæg. Eins og kunnugt
er sitja fulltrúar íslands og ír-
lands ráðstefnuna ásamt fulltrú-
um landa Efnahagsbandalagsins
og Fríverzlunarsvæðisins.
• Stuðningur við
menninguna
Ýmsir fleiri hafa rekið sig
illilega á þessar skrýtnu regl-
ur sem hér hafa verið upp-
teknar. T.d. ákvað erlendur
gestur hér fyrir nokkrum dög-
um að fá sér eitt glas af ein-
hverju áður en hann færi heim
að sofa. Hann fór ásamt konu
sinni í næsta veitingahús. Frú
in var í kápu, og við inn-
ganginn voru þau krafin um
40 krónur. Hann spurði hvaða
gjald þetta væri og fékk að
vita að honum bæri að styðja
meningarmál á íslandi, fyrst
hann þyrfti að borða og drekka
á kvöldin.
Þetta létu þau hjón sér vel
Yfirnefnd
verð á síld
Á FUNDUM Verðlagsráðs sjáv-
arútvegsins, síldardeild Norðan-
og Austanlands, fyrir skömmu, er
fjallað var um verð á síld í
bræðslu, náðist ekki samkomu-
lag.
Samkvæmt ákvæðum laga um
Verðlagsráð sjávarútvegsins var
verðákvörðuninni því vísað til
yfirnefndar.
Yfirnefndina skipa þessir
menn:
Már Elísson, hagfræðingur,
sem skipaður var af hæstarétti
líka, hefur sjálfsagt ekki þurft
af veita. En þegar þau komu
inn í veitingasalinn sat einn
maður þar inni og einn stóð
og beið gesta, þeini hjónum
þótti þetta heldur ömurlegt, en
settust og báðu um wiskysjúss.
— Því miður, ég má ekki af-
greiða drykki, því það er mið-
vikudagur, svaraði þjónninil.
Þetta þótti þeim hjónum enn
kynlegra. Þau sem héldu að
þau væru að stuðla að menn-
ingu á íslandi með því að fara
út og fá sér glas áður en þau
færu að sofa.
Jæja, ef maður er á íslandi,
verður maður sjálfsagt að fara
að dæmi Islendinga, hugsuðu
þau með sér. — Þá skulum
við bara fá brauðsneið með
ákveður
í bræðslu
sem oddamaður nefndarinnar, og
eftirtaldir menn tilnefndir af
Verðlagsráðinu:
Sigurður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri, Siglufirði, Sigurð-
ur Pétursson, útgerðarmaður,
Reykjavík, Tryggvi Helgason,
sjómaður, Akureyri og Vésteinn
Guðmundsson, frkvstj., Hjalt-
eyri.
Yfirnefndin er á fundum þessa
dagana og má því vænta verðs-
ins innan skamms.
rækjum og hvítvínsglasi, stakk
maðurinn upp á.
— Hvítvín, svaraði þjónninn.
Hvítvín mega Islendingar bara
drekka til kl. 9 á miðviku-
dögum og nú er kl. að verða
hálf tíu.
Þau hjónin gáfust nú upp á
að styðja menninguna á ís-
landi og héldu heim á hótel
sitt, þar sem ekki er veitinga-
salur. Þau ætluðu auðvitað áð
taka aftur fé sitt til stuðnings
menningunni í landinu, þar eð
þeim var ekki gert fært að
fá neitt sem þau kærðu sig um
í veitingahúsinu, en það var
ekki hægt af því búið var að
stimpla þau inn. Og nú gekk
alveg fram af þeim. Þau eru
sannfærð um að þetta sé ein-
hver gildra sem verið sé að
leggja fyrir túrista, ný aðferð
sem íslendingar hafi fundið
upp til að hafa af þeim fé.
Hvergi hafa þau á öllum sínum
ferðalögum rekizt á land, þar
sem eins flókið er að fá sér
drykk á veitingahúsi. Og þessa
sögu munu þau segja sem dæmi
um höft og reglur á voru landi.
EBE haldi áfram inn-
flutningi fiskafurða
— segir Sicco l\lansholt
(Frá Verðlagsráð'
s j ávarútvegsins).