Morgunblaðið - 21.06.1963, Blaðsíða 12
12
MORCUNBLAÐIÐ
Föstudagur 21. júní 1963
Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Að^lstræti 6.
Augiýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 4.00 eintakió.
UMBÆTUR
A ÞINGVÖLLUM
ll/íorgunblaðið hefur oft vak-
ið athygli á því undan-
farin ár að Þingvellir væru
vanræktir. Þessum fornhelg-
asta sögustað íslendinga væri
ekki sá sómi sýndur, sem hon
um bæri. Jafnframt hefur
blaðið bent á ýmsar umbæt-
ur og framkvæmdir, sem
nauðsynlegar væru á staðn-
um.
Lítil hreyfing hefur ennþá
komizt á þessi mál. Þó er
ástæða til þess að geta þess
og fagna því að nokkrar um-
bætur er nú verið að gera á
gistihúsinu Valhöll, sem und-
anfarið hefur verið í vægast
sagt dapurlegu ástandi. Nýir
eigendur gistihússins hafa
gert miklar umbætur á veit-
ingasölum þess og myndar-
leg og smekkleg viðbygging
hefur verið reist við það.
Verður þar móttaka gesta,
hreinlætisherbergi og minja-
gripasala. Er að þessum breyt
ingum stórmikil bót. Hefur
ríkisstjórnin og Þingvalla-
nefnd stutt þær myndarlega.
Þá hefur nú verið ákveðið
að Þingvellir fái á þessu ári
rafmagn frá Sogsvirkjunun-
um. Mun einnig verða að því
mikið hagræði. Ennfremur
mun á þessu sumri verða lok-
ið hinum nýja vegi, sem ligg-
ur fyrir ofan Almannagjá inn
á vellina. Er nú verið að hef ja
smíði nýrrar brúar á Öxará
og mun því verki lokið innan
skamms. Hinn nýi vegur
verður mun snjóléttari og
greiðari umferðar en gamli
vegurinn um Almannagjá. Sú
leið er að vísu stórfengleg og
fögur en engan veginn hættu-
1p”s.
★
En fjölmargar fleiri um-
bætur þarf að vinna á hin-
um forna og fagra þingstað.
Þar þarf að rísa ný kirkja af
hóflegri stærð, þar sem efna
mætti til guðsþjónustu á sögu
legum hátíðisstundum í lífi
þjóðarinnar. Jafnframt þyrfti
að byggja þar prestsbústað,
sem skapaði presti staðarins
skaplega aðstöðu.
Á Þingvöllum verður einn-
ig að rísa nýtt og aðlaðandi
gistihús, sem getur tekið á
móti innlendum og erlendum
gestum allan ársins hring.
Hefur Alþingi samþykkt
þingsályktunartillögu fyrir
nokkrum árum, þar sem á-
kveðið var að hafinn skyldi
undirbúningur að þeirri
framkvæmd.
Þá þarf að bæta alla að-
stöðu til löggæzlu í Þjóðgarð-
inum að miklum mun,
tryggja varðveizlu sögulegra
minja og sýna staðnum yfir-
leitt þann sóma, sem helgasta
sögustað þjóðarinnar sæmir.
Þingvellir eru hjartastaður
íslands að fornu og nýju.
Þangað liggja ekki aðeins
leiðir íslendinga á minninga-
dögum heldur og mikils
fjölda erlendra gesta. Þar
tengist stórbrotin saga hrika-
legri og sérstæðri fegurð.
Þess vegna munu Þingvellir
skipa öndvegissess í hugum ís
lenzkra manna á öllum öld-
um.
ORLOG
MACMILLANS
¥jað var stormurinn um Sú-
ez, sem feykti Anthony
Eden úr forsætisráðherra-
sessi í Bretlandi á sínum tíma.
Maðurinn sem tók við af hon-
um á mikilli hættustundu var
Harold Macmillan. Honum
tókst að treysta svo raðir í-
haldsflokksins eftir hið mikla
áfall í sambandi við Súez-
málið að hann vann glæsileg-
an sigur í næstu þingkosning-
um. Má segja, að það hafi
verið mikið afrek.
íhaldsflokkurinn hefur nú
farið með völd í Bretlandi
samfleytt í 12 ár. Verulegan
hluta þessa tímabils hefur
ríkt mikið góðæri í landinu.
En nú er tekið að halla
undan fæti fyrir stjórninni.
Mikið atvinnuleysi hefur ríkt
í landinu undanfarið og óá-
nægja vaxandi með Macmill-
an og stjórn hans. Loks kem-
ur svo Profumo-málið fræga,
sem virðist ætla að ráða ör-
lögum forsætisráðherrans.
Brezka þjóðin gerir harðar
kröfur til stjórnmálamanna
sinna. Profumo hermálaráð-
herra sagði Neðri málstof-
unni ósatt um samband sitt
við unga sýningarstúlku. For-
sætisráðherranum er gefið að
sök að hafa ekki í tæka tíð
tekið í taumana, eftir að hann
hafði fengið vitneskju um æv
intýri hermálaráðherra síns.
Og nú riðar Macmillan til
falls. Þannig ráðast örlög
stjórnmálamanna í þessu rót-
gróna þingræðislandi.
Verkamannaflokkurinn er
í sókn í Bretlandi um þessar
mundir. Profumomálið er
hvalreki á fjörur hans. En
kosningar fara sennilega
ekki fram í landinu fyrr en
á næsta ári. Margt getur
gerzt þangáð til, og þótt svo
kunni að fara að Macmillan
neyðist til þess að segja aJE
Blökkumenn í borginni Cambridge í Maryland í Bandaríkjunum, kasta mæðinni fyrir utau
fangelsi í borginni, eftir að hafa farið þangað mótmælagöngu. Blökkumennirnir fóru gönguna
vegna þess að 12. júní s.l. voru nokkrir félagar þeirra handteknir á fjöldafundi, sem þeir
efndu til í borginni.
Harold Wilson, formaður brezka verkamannaflokksins, var meðal þeirra fyrstu, sem fengu fregn
ir af geimför sovézka geimfarans Bykovsky. Það var Krúsjeff forsætisráðherra Sovétríkjanna,
sem skýrði Wilson frá geimferðinni og hér sést Wilson óska honum til hamingju.
sér, á íhaldsflokkurinn ýmsa
dugandi menn til að taka við
forystunni. Margt bendir þó
til að brezka þjóðin telji tíma
kominn til þess að skipta um
forystu, eftir að stjórn sama
flokks.hefur farið samfleytt
með völd í þrettán ár.
DRAUMALANDIÐ
Tsland er mitt draumaland,“
sagði Valdimar J. Líndal,
dómari frá Winnipeg, er hann
flutti kveðjur frá Vestur-ís-
lendingum á Arnarhóli að
kvöldi þjóðhátíðardagsins
hins 17. júlí sl. Þessi hlýja og
innilega kveðja frá Vestur-ís-
lendingum yljaði mörgum
hér heima um hjartaræturn-
ar. Tryggð Vestur-íslendinga
og hlýhugur í garð heima-
landsins er öllum íslending-
um mikið fagnaðarefni. Hinn
stóri hópur Vestur-íslend-
inga, sem verið hefur í heim-
sókn á íslandi undanfarna
daga, hefur áreiðanlega fund-
ið það greinilega, hversu vel-
komnir þeir eru hingað heim.
Sovézki geimfarinn Valentina Xereshkova sést hér við þjálf-
un á æfingastöð geimfara í Sov étríkjunum. Sem kunnugt er,
er Valentina Tereshkova fyrsta konan, sem fer í geimferð.
Heimaþjóðin vill sem traust-
ust og nánust tengsl við ís-
lendinga í Vesturheimi. Þeir
hafa reynzt landi sínu dug-
miklir og glæsilegir fulltrúar.
íslenzka þjóðin sendir Vest-
ur-íslendingum hugheilar árn
aðaróskir, um leið og hún
þakkar þeim komuna, sem
hér hafa dvalizt síðustu daga.