Morgunblaðið - 21.06.1963, Blaðsíða 22
22
MORGVNBLATilÐ
Fostudagur 21. júní 1963
Sala SÍS
Framh. af bls. 3
framleiðsluvörum hefði vaxið
jafnt og þétt á undanförnum ár-
um, og sýndi það vaxandi þátt
Sambandsins og kaupfélaganna í
þjóðarbúskapnum.
Sala sjávarafurða hjá sölufé-
lagi Sambandsins í Bandaríkjun-
um hefur vaxið mjög mikið und-
anfarin ár. Árið 1959 seldi félagið
7.2 millj. lbs., en 21 millj. ibs.
árið 1962. Salan hefur þannig
næstum þrefaldast á sl. 4 árum.
Umsetning helztu deilda Sam-
bandsins varð sem hér segir: Bú-
vörudeild 417 millj. kr., hafði
aukizt um 109,5 millj. frá árinu
áður. Sjávarafurðadeild 421,9
milij. kr., aukning 69,7 millj. Inn
flutningsdeild 322,8 millj kr.,
aukning 87,2 millj. Véladeild
kr.162,7 millj. kr., aukning 63,9
millj. Skipadeild 77,6 millj. kr.,
aukning 8,3 millj. Iðnaðardeild
171,5 millj. kr., aukning 29,7
millj. Þegar tekin er til greina
umsetning ýmissa smærri starfs-
areina, varð heildarumsetning
Sambandsins á árinu 1962 kr.
1.648,4 milljónir, og hafði aukizt
um 372,1 millj., eða 29,2% að
krónutölu. Tekjuafgangur á
rekstrarreikningi 1962 varð kr.
7,768 millj. Afskriftir 14.197
mUljónir, eða samtals kr. 23.912
millj. á móti 21.592 millj. næsta
ár á undan.
Tala fastráðinna starfsmanna
Sambandsins var um sl. áramót
1339 og námu heildarlaunagreiðsl
ur Sambandsins árið 1962, 95
millj. og hafði hækkað um 12,8
rnillj. frá árinu áður. Vaxtakostn-
aður hækkaði um 6.8 milljónir.
Þá varð allmikil hækkun á öðrum
reksturskostnaði á árinu.
Helztu framkvæmdxr á vegum
Sambandsins voru þær, að lokið
var byggingu verksmiðjuhúss
Fataverksmiðjunnar Heklu á Ak-
ureyri, og flutti verksmiðjan inn
í hið nýja húsnæði sl. haust. Hald
ið var áfram byggingu Véla-
deildar við Ármúla í Reykjavík
og er nú nokkur hluti af starf-
semi deildarinnar fluttur þang-
að. Lokið var við byggingu til-
raunaverksmiðjuhúss Sjávaraf-
urðadeildar í Hafnarfirði og haf-
Hvsrjir eignast þessa bíla
í kvöld?
f KVÖLD verður dregið í
happdrætti Sjálfstæðisflokks-
ins um bílana fimm: Tvo
Volkswagen, tvo Taunus Card
inal, og einn Austin Gipsy.
Bílarnir hafa staðið í Austur-
stræti undanfarnar vikur og
vakið óskipta athygli, enda er
nú dregið um fleiri bíla en
áður hefur verið gert.
Miðar hafa verið seldir í
Reykjavík og úti um allt
land — og hefir salan gengið stræti í dag og í skrifstofu fyrir hádegi.
mjög vel. Nokkrir miðar eru Sjálfstæðisflokksins. Þeir fáu, Þetta er endaspretturinn.
samt enn eftir og verða þeir sem enn hafa ekki gert skil, Takmarkið er, að allir miðar
seldir í bílunum í Austur- eru beðnir að gera það strax seljist.
Drætti ekki frestað
in viðbótarbygging við vöru-
geymslu Sambandsins við Reykja
víkurhöfn. Áttunda Sambands-
skipið, Stapafell, kom til lands-
ins í nóvember sl., og samið var
um smíði nýs vöruflutningaskips
í Noregi. Verður það 2750 lestir
að stærð og afhendist á næsta
ári.
Helztu breytingar í trúnaðar-
störfum hjá Sambandinu á árinu
voru þær, að Harry Frederiksen
tók við stjórn Hamborgarskrif-
stofunnar í ársbyrjun og Agnar
Tryggvason, sem um mörg ár
hefur gegnt trúnaðarstörfum á
skrifstofum Sambandsins erlend
is, kom heim og tók við fram-
kvæmdastjórastörfum hjá Bú-
vörudeild, en Helgi Pétursson
lét þar af störfum fyrir aldurs-
sakir. Helgi hefur verið starfs-
maður Sambandsins í 34 ár.
Flutti forstjóri honum þakkir
fyrir langa þjónustu, sem hann
sagði að einkennzt hefði af fram
úrskarandi samvizkusemi og
réttsýni. Hinn 20. febrúar 1962
opnaði Sambandið skrifstofu í
London, en þangað var flutt
skrifstofa sú, er verið hafði í
Leith. Sigurður Markússon veitir
hinni nýju skrifstofu forstöðu.
í skýrslu sinni ræddi forstjóri
ýtarlega fjármál Sambandsins og
kaupfélaganna. Hann benti á
hina miklu uppbyggingu hjá ein-
stökum félagsmönnum kaupfé-
laganna, hjá kaupfélögúnum
sjálfum og Sambandinu, sem gert
hefði mögulega hina miklu fram
leiðslu og söluaukningu á ís-
lenzkum framleiðsluvörum á ár-
inu 1962, er kæmi þjóðarbúinu í
heild til góða. Þessi uppbygging
hefur kostað mikið fjármagn og
IÞRQTTAFRfTTIR HGU1L«S
Handknattleikslið Víkings legg ur af stað í Keppnisferð sína til T ékkóslóvakíu og Þýzkalands.
— Ljósm. Mbl. Sv. Þ.
SiR vanii[_ancJs|eilcur við Japan
. A MTY^iM/yTTn i Ifnattsnvrnn
ÍSLANDSMÓTIÐ í knattspyrnu
hélt áfram í gærkvöldi með leik
milli KR og Fram. KR sigraði
með 2.0 og hlaut nú fyrstu stig
sín í mótinu. Þetta er aftur á
móti fyrsta tap Fram.
Bæði mörkin voru skoruð í
seinni hálfleik. Jón Sigurðsson
skoraði með skalla í bláhornið
snemma í hálfleiknum, en síðan
bætti Gunnar Felixson öðru
marki við með fallegu langskoti.
ÁKVEÐINN hefur verið landsleikur milli íslands og
Japans hinn 27. ágúst n.k. í Reykjavík. Japönsku knatt-
spyrnumennirnir munu leika aukaleik, einnig í Reykjavík
hinn 29. ágúst.
Japanska landsliðið verður á keppnisferðalagi í Evrópu
í ágústmánuði og er það einn liður í undirbúningi að Ol-
ympíuleikunum, sem fram fara í Japan árið 1964.
(Frá KSÍ)
kallar eftir síauknu rekstursfé.
Sérstaklega hefur það valdið erf-
iðleikum hjá Sambandinu og
kaupfélögunum, að lán út á land-
búnaðarafurðir hafa staðið í stað
að krónutölu sl. 4 ár, á sama tíma
og framleiðsla landbúnaðarvara
hefur stóraukizt, og þá um leið
þörfin fyrir rekstrarvörur til
landbúnaðarins.
Að lokinni skýrslu forstjórans
fluttu framkvæmdastjórar deilda
skýrslur sínar, fyrst Helgi Þor-
steinson skýrslu Innflutnings-
deildar; þá Agnar Tryggvason
skýrslu Búvörudeildar; Valgarð
J. Ólafsson skýrslu Sjávarafurða
deildar; Hjalti Pálsson skýrslu
Véladeildar; Hjörtur Hjartar
skýrsiu Skipadeildar, og Helgi
Bergs skýrslu Iðnaðardeildar.
Fundurinn heldur áfram í dag,
og verða þá ýmsar ályktanir
gerðar og í fundarlok fara fram
kosningar, þar á meðal í stjórn
Sambandsins.
(Frá SÍS).
Bridge
Vestur Norður Austur Suður
BANDARÍSKA sveitin á heims- pass pass pass 1 tigull
meistarakeppninni, sem fram fer pass 1 grand pass 2 spaöar
þessa dagana á ítaliu, hefur náð pass 3 tíglar pass 4 tiglar
góðu forskoti í öllum leikjunum. pass 5 lauf pass 5 tiglar
Hafa bandarísku spilararnir spil- pass pass pass
að mjög vel og vakið mikla at-
hygli hjá hinum fjölmörgu áhorf-
endum. í sveitinni eru: H.
Schenken, P. Leventritt, R.
Jordan, A. Robinson, J. Jacoby
og R. Nail.
Að 48 spilum loknum, þ. e.
% hluta keppninnar er lokið, er
staðan þessi:
Bandaríkin — Frakkland 132—76
Bandaríkin — Ítalía 118—81
Bandaríkin—Argentína 151—119
Ítalía — Frakkland 127—34
Ítalía — Argentína 121—46
Frakkland — Argentína 140—114
Keppnisstjórnin hefur vítt þá
Jordan og Robinson frá Banda-
ríkjunum og Ghestem frá Frakk-
landi fyrir seinagang. Kom það
fyrir, að það tók 35 mínútur að
spila eitt spil og tvisvar hefur
komið fyrir, að tekið hefur 12
mínútur að gefa í eitt spil. Hef-
ur þetta að sjálfsögðu haft í för
með sér, að leikirnar hafa dreg-
izt fram eftir nóttu og valdið
miklum óþægindum.
Síðustu fréttir:
Bandaríkin—Argentína 249—165
ftalía — Frakkland 224—145
SPlLIÐ, sem hér fer á eftir er
frá leiknum milli Ítalíu og Banda
ríkjanna í heimsmeistarakeppn-
inni, sem nú stendur yfir. Á
öðru borðinu sátu Bandaríkja-
mennirnir A.—V., en Suður var
sagnhafi í 5 tíglum. Vestur lét
út hjarta, þar eð austur hafði
sagt litinn, og A.—V. fengu tvo
slagi á hjarta og Vestur tromp-
aði það þriðja. Spilið tapaðist
því og fengu Bandaríkjamenn-
irnir 100 fyrir.
Á hinu borðinu sátu Banda-
ríkjamennirnir Jordan og Robin-
son N.—S., en ítölsku spilararn-
ir Ticci og Alelio A.—V. Þar
gengu sagnir þannig:
4k D 9
V 7 4 2
♦ K 9 5
* Á 9 8 7 5
A G 7 5 3
¥ 6
♦ D 7 2
4KG10
4 2
A 842
¥ Á K 10 9
8 2
♦ 3
D 6 3
AÁK106
¥ D G 5
♦ ÁG 10 8 6 4
•fr —
Vestur lét út laufa 10, sem gef-
in var i borði og sagnhafi (Jord-
an) trompaði heima. Áhorfendur
sáu nú að hægt var að vinna
spilið með því að svína tigli, en
væri það ekki gert virtist spilið
tapað. Jordan var á annari skoð-
un. Hann tók tígulásinn og lét
þvínæst út tígul og drap í borði
með kóngi og þar sem drottning-
in féll ekki i þá, varð hann að
grípa til annarra ráða. Hann lét
því lágt lauf úr borði og tromp-
aði heima, lét þá út spaða og
drap í borði með drottningunni.
Nú var laufaás tekinn og hjarta
kastað heima og enn var lauf
látið úr borði og trompað heima.
Nú tók hann ás og kóng í spaða
og trompaði spaða í borði og því
næst trompaði hann síðasta lauf-
ið úr borði heima og fékk þann-
ig ellefta slag. Vannst spilið því
á mjög óvenjulegan hátt, því
þrír öruggir slagir A.—V. hverfa
og verða aðeins að tveimur.
Bandaríkjamennirnir fengu
samtals 1.0 stig fyrir þetta spil.