Morgunblaðið - 03.07.1963, Blaðsíða 6
6
MORGUNBL4Ð1Ð
Miðvikudagur 3. júlí 1963
Ríkisútgjöld Danmerkur í Græn-
landi nema 200 þús. kr. á íbúa
Danskur ritstjóri er kominn til Is-
lands til að ræða norræna „þróunar-
áætlun fyrir Norður-Atlantshafs-
svæðið"
CHR. BÖNDING frá Nordisk um krónum á íbúa í Grænlandi,
Pressebureau í Kaupmannahöfn,
hefur talað í félaginu „Danne-
brog“ um „efnahagslega mögu-
leika á Norður-Atlantshafssvæð-
inu“. Chr. Bönding hefur heim-
sótt ísland reglulega tvisvar á
ári síðan hann kom fyrst til
. landsins 1960, þegar hann var
fregnritari Norðurlandablaðanna
á fundi Norðurlandaráðs í Reykja
vík.
í samtali við Morgunblaðið
segir hinn danski ritstjóri að
hann sé önum kafinn í þessari
heimsókn til íslands við að safna
efni í norrænan greinaflokk um
efnahagslega möguleika á N-
Atlantshafssvæðinu, auk erindis
þess sem hann flutti fyrir Dani
á Islandi.
Mynd norrænna blaðamanna
af íslandi
— Eins og kunnugt er hefur
hópur norrænna blaðamanna ný-
lega komið til íslands í fyrsta
sinn á námskeið, sem norrænu
félögin stofnuðu til, segir Chr.
Bönding. Arangurinn af þessari
heimsókn hefur þegar komið í
Ijós í fjölda greina í norskum,
finnskum og sænskum blöðum.
Enda þótt mikið hafi verið skrif-
að um ísland í norrænum blöð-
um á síðustu árum, hef ég orðið
var við að þekking á íslandi og
íslenzkum aðstæðum er afar lítil.
Með hjálp íslandsferða minna,
sem samanlagðar eru orðnar
meira en hálft ár, hef ég tekið
eftir mörgum röngum upplýs-
ingum um ísland, sem hafa staðið
undir slagorðum eins og „Sögu-
eyjan á atómöld". Ég hef fengið
tækifæri til að leggja fram
möppu með um það bil eitt þús-
und röngum upplýsingum fyrir
þá aðila, sem þær ættu að hafa
'komið frá. Og nú hef ég fengið
„leiðréttingar", sem á næstunni
munu verða sendar blöðum, sem
til samans koma út i milli 1—2
miljónum eintaka gegnum Nord-
isk Pressebureau. Af þessum á-
stæðum tel ég heimsóknir nor-
rænna blaðamanna til ís-
lands sérlega gagnlegar.
Mikil fjárfesting Dana
á Grænlandi
Getur þú í stuttu máli sagt frá
aðalatriðunum í greinarflokki
þínum um Grænland?
— Ég legg til grundvallar þá
gagnrýni, sem ýmsir aðilar í
Danmörku hafa beint gegn hin-
um miklu útgjöldum danska rík-
isins í Grænlandi. Það hefur ver-
ið lögð áherzla í ríkisþinginu og
blöðunum, á að þessi útgjöld
nemi hér um bil 200 þús. íslenzk-
og eru þá reiknaðir með allir frá
nýfæddum börnum til elztu öld-
unga. Og svo spyrja menn: Get-
ur Grænland nokkru sinni orðið
land, sem skilar þó ekki væri
nema broti af þessum peningum
aftur til danska riitissjóðsins?
Væri ekki betra að við gerðum
alla Grænlendinga að embættis-
mönum ríkisirfs, sem hefðu það
starf að veita þeim ferðamönn-
um þjónustu, sem munu heim-
sækja Grænland?
Tilgangurinn-með grein minni
er raunverulega sá að gera hin-
um norrænu lesendum mínum
ljósa möguleikana í Grænlandi
og í þessu sambandi legg ég á-
herzlu á að ísland sé hinn eðli-
legi miðdepill í efnahagslífi
Norður-Atlantshafsins. Ágætt
dæmi um þetta er íslenzka Græn.
landsflugið, sem er rekið í sam-
bandi við Grænlandsráðuneytið
og hið fyrirhugaða áætlunarflug
tii Færeyja, þar sem íslendingar
hafa einnig átt frumkvæðið að.
„Svæðisþróunaráætlun" með
möguleikum
Mér finnst að þarna komi í
ljós að gera megi áætlanir um
þróun svæðisins með ýmsum
möguleikum. í Grænlandsgrein-
um mínum nefni ég þær svæðis-
þróunaráætlanir í Danmörku,
sem við höfum verið að velta
fyrir okkur hin síðustu ár. Og
um þær er _að vaxa upp heill
lagabálkur. Ég álít að slíkar á-
ætlanir í landi eins og Danmörku
með litlar fjarlægðir og full-
komið vegakerfi, hjóti að mestu
leyti að verða samkeppni milli
landshlutanna. V-Jótland vill
ekki standa að baki A-Jótlandi
og Kaupmannahöfn, Vendsyssel
vill ekki standa skör neðar en
Lolland-Falster o.s.frv. o.s>.frv.
Það getur ekki venð hlutverk
ríkisins að grípa inn ! slíkan ná-
grannakrit. Svæðisþróunaráætl-
un fyrir Norður-Atlantshafið,
sem ég ræði nánar í greinar-
flokki mínum, en af honum hef-
ur ein grein þegar birzt í Morg-
unblaðinu, yrði miklu nytsam-
legri.
Myndaþjónusta og fréttir
frá íslandi
Hvað ætlar þú að vera lengi á
Chr. Bönding
íslandi í þetta sinn?
— Eftir að hafa tekið þátt í
síðasta kafla blaðamannanám-
1 skeiðs norrænu félaganna, býst
ég við að verða hér í tvær vikur
eða svo, en það er aðeins til að
gera áætlun um lengri dvöl, en
ég býst við að verða hér a.m.k.
þrjá mánuði 1964. Síðan Nordisk
Pressebureau hóf fréttaþjónustu
sína frá íslandi, hefur verið afar
mikið frá henni í öllum norrænu
blöðunum og margar greinar og
fréttir frá íslandi hafa einnig
komizt út í heimsblöðin. f næstu
heimsókn minni til íslands ætla
ég meðal annars að vinna að
skipulagningu um norræna
fréttamyndaþjónustu, sem dreifi
myndum af öllum greinum ís-
lenzks menningar- og atvinnu-
lífs til umheimsins. Ýmsa erfið-
leika þarf að yfirstíga, en með
tilliti til þess markaðar fyrir
fréttir frá íslandi, sem þegar er
fyrir hendi, er mér óhætt að slá
föstu, að skipulögð mynda og
fréttaþjónusta til og frá íslandi
verður orðin að raunveruleika
eftir árið 1964, segir Christian
Bönding að lokum.
Námskeið fyrir kirkjuorgan-
leikara og söngstjóra í Skálholti
Tónlistin við kirkjuvígsluna
NAMSKEIÐ verður haldið í
Skálholti 29. ágúst til 5. septem-
ber fyrir starfandi og verðandi
kirkjuorganleikara og kirkju-
söngstjóra. Söngmálastjóri þjóð-
kirkjunnar, dr. Róbert A. Ottós-
son, veitir námskeiðinu forstöðu.
Dr. Róbert kennir á námskeið-
inu heyrnarfræði, tónfræði og
tónstjórn, en Guðmundur Gils-
son, organisti á Selfossi, og for-
maður Kirkjukórasambands Ár-
nessprófastsdæmis, kennir orgel-
fræði og orgelleik. Einnig verður
kennd raddþjálfun. Auk söngæf-
inga verða flutt erindi á nám-
skeiðinu, umræður fara fram og
helgiathafnir.
Þátttakendur munu búa í bisk-
upshúsinu, en þar komast tæp-
lega fleiri fyrir en 12—15 manns.
Eru væntanlegir nemendur því
beðnir að gefa sig fram hið fyrsta
við sóknarprestinn í Skálholts-
prestakalli, séra Guðmund Óla
Ólafsson á Torfastöðum, eða söng
málastjóra þjóðkirkjunnar, dr.
Róbert A. Ottósson, í Reykjavík.
Náms- og dvalarkostnaður er
kr. 450.
• í viðtali við blaðamenn taldi
dr. Róbert nauðsyn á, að íslenzk-
um organistaefnum yrði gefinn
kostur á víðtækari menntun en
hingað til í því er lýtur að
lítúrgískum fræðum, lítúrgísk-
um söng, sálmalagsfræði og kór-
stjórn — auk sjálfs organleiks-
ins.
Kæmi til greina að stofna
kirkjumúsíkdeild við Tónskóla
þjóðkirkjunnar í sambandi við
Tónlistarskólann, þar sem fram-
haldsnemendur gætu verið við
nám í tvo eða þrjá vetur og tekið
þá sérstakt „kantorapróf “ að nám
inu loknu.
Skálholtskirkja verður vígð
21. júlí, eins og kunnugt er, og
þar eð dr. Róbert sér um tónlist-
arflutninginn, notuðu fréttamenn
tækifærið, til þess að spyrja um
fyrirkomulag hans.
Tvær messur verða fluttar
þennan dag í kirkjunni. Hin fyrri
um morguninn, og er hún vígslu-
messa með klassísku sniði, en hin
síðari er almenn messa með nú-
gildandi lítúrgíu. Milli klukkna-
hringinga um morguninn, áður
en vígsluathöfnin hefst, mun
Hornakór Selfosskirkju leika í
kirkjuturninum. Tveir lúðurþeyt
arar, Jón Stefánsson og. Stefán
Stephensen, leika í kirkjunni.
Við fyrri messuna leikur dr. Páll
ísólfsson á orgelið, en við þá síð-
ari Guðmundur Gilsson. Orgelið
hefur verið sett upp í kirkjunnL
Það er lítið en gott og vandað
ellefu radda danskt orgel af
Frobenius-gerð.
Stofnaður hefur verið kirkju-
kór fyrir austan, sem æfir reglu-
lega af miklu kappi. Við vígsl-
una bætast nokkrir stúdentar úr
guðfræðideild háskólans við kór-
inn. Séra Hjalti Guðmundsson er
forsöngvari.
Fyrsta lagið, sem sungið verð-
ur í kirkjunni, er Davíðssálmur
úr Þorlákstíðum, og verðúr hann
sunginn í íslenzkri þýðingu. —
Einnig verður sunginn sálmur i
fornri, íslenzkri tvísöngsgerð,
sem séra Bjarni Þorsteinsson í
Siglufirði skrásetti.
• Taðan af Víkurlandi
Maður nokkur átti tal við
Velvakanda fyrir nokkru. Sagð
ist honum blöskra, hve miklu
magni af úrvals töðu væri
fleygt á hverju sumri í Reykja-
vík. í görðum borgarbúa eru
víða ágætis túnblettir í góðri
rækt. Gildi þeirra er fyrst og
fremst fegurðarauki og leik-
vangur barna. Heyinu, sem af
blettunum fæst, er mjög oft
fleygt í öskutunnur. Stakk mað
urinn upp á því, að hestamanna
félagið Fákur fengi heyið og
hefði samvinnu við borgaryfir-
völdin um hirðingu þess. Mætti
t. d. hugsa sér, að vinnuflokk-
ar unglinga sæu um að bjarga
þessum verðmætum frá því að
fara í súginn; heybíll æki um
hverfin á ákveðnum tíma, t. d.
einu sinni í viku, og síðan sæu
unglingarnir um að þurrka
heyið. — Velvakandi kemur
þessari hugmynd hér með á
framfæri.
• Biðstöðvarskilti SVR
Árum saman var það eins
konar kækur þeirra, sem sendu
Velvakanda bréf, að skamma
strætisvagnana, svona líkt og út
varpið. Var jafnvel algengt, að
menn enduðu bréf sín til hans
á hnjóði til SVR, þótt þau fjöll-
uðu annars um hin fjarskyld-
ustu efni. Mátti með nokkrum
sanni jafna því við hina sígildu
setningu, sem Marcus Porcius
Cato (Cato hinn eldri) endaði
ræður sínar jafnan á í róm-
verska öldungaráðinu á annarri
öld fyrir Krists burð: Præterea
censeo Carthaginem esse delen-
dam, þ. e.: auk þess álít ég, að
Karþagóborg beri að jafna við
jörðu.
Nú hefur þetta breytzt til
muna, sennilega vegna bættrar
þjónustu SVR. Þó brá svo við
um daginn, að ung stúlka kvart
aði undan því við Velvakanda,
að ekki væri getið um það á
biðstöðvarskiltum, hvenær á
klukkutímanum menn mættu
eiga von á vagni. Hafði hún
beðið óratíma inni á Suður-
landsbraut. Gerði hún það að
tillögu sinni, að fyrir aftan
hvert leiðarnúmer á skiltunum
kæmi innan sviga eða með
breyttu letri tölur, sem sýndu,
hvenær vagn á hverri leið væri
væntanlegur að viðkomandi
biðstöð. Stæði t. d. 0, 20, 30, vissi
maður, að vagninn ætti undir
eðlilegum kringumstæðum að
vera á staðnum á heila slaginu,
2p mínútur yfir og 40 mínútur
yfir. — Velvakanda lízt vel á
hugmyndina og kemur henni
hér með áleiðis.
A E G Heimiíistæki
Ctsöiustaðír í Reykjavík:
HÚSPRÝDl
Laugavegi 176. — Sími 20440.
JÚLlUS BJÖRNSSON
Austurstræti 12. Sími 22475.
BRÆÐURNIR ORMSSON
Vesturgötu 3. — Sími 11467.