Morgunblaðið - 03.07.1963, Page 12
TUORGVNBL1Ð1Ð
12
Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Að^lstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 4.00 eintakió.
VESTUR-ÍSLEND-
INGARNIR
Miðvikúdágur 3. júlí 1963
Kennedy var ákaft fagnað í írlandi.
Atburður, sem hefur meira gildi, en orb fá lýst
Heimsókn Kennedys til írlands
fj'ins og greint var frá hér í
^ blaðinu í gær í viðtölum
við Vestur-íslendingana, sem
nú starfa í Vestmannaeyjum,
hafa þeir flestir gert ráð fyrir
að njóta hér betri kjara og að-
búnaðar en raun hefur á
orðið.
Þegar fregnir bárust af því,
að hópur Vestur-íslendinga
hyggðist koma hingað til að
vinna um skeið og sumir
mundu jafnvel hugsa sér að
setjast hér að, glöddust menn
almennt, ekki sízt hinir eldri,
sem ýmist höfðu sjálfir séð á
bak skyldmennum og vinum
til Ameríku eða heyrt for-
eldra sína ræða um slíkt brott
hvarf. . -
Svo lítilmótleg varð þó
stjómarandstaðan, að blöð
hennar gátu ekki glaðst yfir
þessum fregnum, en þau voru
fljót að gera málið pólitískt,
þegar í ljós kom, að flestir
Vestur-íslendinganna höfðu
orðið fyrir vonbrigðum. Of
snemmt er þó að dæma um
það, hvernig þessum góðu
gestum muni líka vistin hér,
þegar þeir kynnast betur öll-
um aðstæðum. Auðvitað er
fólk ekki ánægt með að búa
í verbúðum, en þetta fólk
mun brátt kynnast nánar
þeirri íslenzku alþýðu, sem á
skömmum tíma hefur treyst
fjárhag sinn, ekki sízt í Vest-
mannaeyjum. Það mun sjá,
að með atorku um nokkurt
skeið, er unnt að eignast eig-
in íbúð. Hér geta allir notið
menntunar og margháttaðrar
fyrirgreiðslu o.s.frv.
Hitt vita allir, að árangur-
inn af viðreisnarráðstöfunun-
um er enn takmarkaður.
Fyrst þurfti að rétta við fjár-
hag landsins -út á við og búa
þannig í haginn, að stórvirki
væri hægt að vinna. Nú hef-
ur þessu markmiði verið náð,
og hægt að einbeita kröftun-
um að stórfelldum viðfangs-
efnum, sem munu gjörbreyta
hag landsmanna til hins
betra.
Vonandi verða þeir Vestur-
íslendingar, sem hingað hafa
komið, þátttakendur í þeirri
umbyltingu, allir eða sumir,
og nýir bætast í hópinn, og
það er spá Morgunblaðsins,
að þeir, sem þá ákvörðun
taka, muni ekki iðrast hennar
eftir nokkur ár.
ORLOFSHEIMIU
VERKALÝÐS-
SAMTAKANNA
T vor hafa staðið yfir fram-
kvæmdir undir Reykja-
fjalli í Ölfusi, þar sem undir-
búningur er hafinn að bygg-
ingu orlofs- og hvíldarheim-
ilis verkalýðssamtakanna. —
Þar er hugmyndin að reisa
35—40 hús, sem meðlimir
verkalýðsfélaganna fá til af-
nota í sumarleýfum.
Gert er ráð fyrir, að í þessu
orlofsheimilishverfi muni 200
—250 manns geta notið hvíld-
ar samtímis. Ríkissjóður hef-
ur á fjárlögum veitt 4—5
millj. kr. til þessa orlofsheim-
ilis, en síðan leggja verkalýðs
félögin sjálf fram fé.
Hér er um mjög merka
framkvæmd að ræða, sem
fagna ber. Þeir, sem í borg
búa, þurfa að hafa aðstöðu til
að breyta um umhverfi og
njóta verðskuldaðrar hvíldar
eftir mikla vinnu.
Þegar rætt er um viðreisn
er ekki einungis átt við það,
að fjárhagur landsins sé
treystur og atvinnutæki
keypt og reist. Hitt er ekki
síður mikilvægt að aðbúnað-
ur fólksins sé bættur og því
sköpuð skilyrði til betra og
ánægjulegra lífs. í heilbrigð-
um lýðræðisþjóðfélögum
keppa allir að því markmiði.
Barátta verkalýðsfélaga er
eðlilega með öðrum hætti nú
en t. d. fyrir hálfri öld. Þá
þurftu launþegafélög að berj-
ast harðri baráttu fyrir laun-
um, sem nægðu til lífsfram-
færis. Nú er jöfnuður orðinn
meiri og menn finna að hag-
ur allra stétta er samofnari.
Þess vegna beinist barátta
verkalýðsfélaga hvarvetna að
svipuðum verkefnum og
þeim, sem nú er unnið að í
Hveragerði.
Morgunblaðið óskar verka-
lýðsfélögunum til hamingju
með þann áfanga, sem nú er
unnið að.
NORRÆNT HÚS
í REYKJAVÍK
F'undur menntamálaráð-
herranna hér í Reykja-
vík er merkisatburður á
margan hátt. Er óhætt að full
yrða, að íslendingar fagna
allir sem einn maður svo góð-
um gestum frá frændþjóðun-
um á Norðurlöndum og er
ekki að efa að samtöl ráðherr
anna eigi eftir að hafa í för
með sér aukin menningar-
samskipti þjóðanna. Eitt er
þó það mál, sem nú verður
tekið til umræðu, sem mesta
athygli vekur hér á landi:
Það 'er bygging norræna húss-
ins hér í Reykjavík. Eins og
skýrt er frá annars staðar hér
ÞEGAR Kenneðy Bandaríkja-
forseti hafði séð Berlínarmúrinn
með eigin augum og verið ákaft
hylltur af íbúum Vestur-Berlín-
ar, steig hann upp í flugvél sína
og flaug til írlands, landsins, sem
langafi hans, Patrick Kennedy,
yfirgaf fyrir 110 árum.
Eftir komuna til Irlands hélt
Bandaríkjaforseti beint til þorps-
ins Dunganstown, en þar bjó
langafi hans. Þar var forsetanum
ákaft fagnað og þar hitti hann
m.a. nánasta ættingja sinn í ír-
í blaðinu, hefur húsinu nú
verið ákveðinn staður, fjár-
veitingar ákveðnar fyrir
þetta ár, og næsta sporið virð-
ist því vera að hefjast handa.
Er enginn vafi á því, að þessi
norræna menningarmiðstöð í
Reykjavík á eftir að styrkja
drjúgum tengslin milli ís-
lands og annarra Norður-
landaþjóða. Er það vel. Þessi
tengsl geta aldrei orðið of
sterk, því engar þjóðir standa
okkur nær og má segja, að
menningargreinar þjóðanna
séu allar af einum stofni. .
íslendingar hafa ekki sízt
lagt sig fram um að varðveita
þennan merka arf og ætti
norræna húsið í Reykjavík að
vera nokkur vísbending um
það, hverjum augum frænd-
þjóðir okkar líta á þann þátt
okkar í lífi og störfum fyrri
tíma. Er vonandi, að norræna
húsið í Reykjavík auki ís-
lendingum sjálfum skilning á
hlutverki þeirra í þessum efn
um og örvi þá til þess að
halda ávallt vökulan vörð um
menningu sína fyrr og nú.
Þegar handritin verða komin
heim til íslands og norræna
húsið risið á háskólalóðinni,
verður reisn íslands enn
meiri en áður hefur verið.
Fyrir þann skilning, sem
ætíð hefur ríkt á sérstöðu ís-
lands meðal stjórna annarra
Norðurlanda er íslenzka þjóð-
in þakklát. Norrænt hús á há-
skólalóðinni og handritin til
Reykjavíkur er áþreifanlegt
merki um þá vináttu og þann
bróðurhug, sem ríkir milli
Norðurlandanna; norræn sam
vinna í verki.
landi, frú Mary Ryan. Hún og
forsetinn eru fjórmenningar.
Hér á eftir fer kafli úr grein,
sem Patrick O’Donovan ritaði
fyrir Observer í tilefni heimsókn-
ar Kennedy’s Bandaríkjaforseta
til írlands:
í sögu þjóða verða öðru hverju
atburðir, sem hafa meira gildi,
en orð fá lýst. Heimsókn Kenn-
edy’s Bandaríkjaforseta til ír-
lands er slíkur atburður.
Það írland, sem Kennedy heim
sótti, hefur ekki breytzt mikið
síðastliðin ár. Miðað við önnur
lönd Evrópu, er afkoma fra í
meðallagi. Þeir eru rólegir, dá-
lítið daufgerðir, gagnrýnir á
sjálfa sig og þroskaðir.
Það er staðreynd, að England
er írum miklu mikilvægara en
Bandaríkin. Umsókn íra um að-
ild að Efnahagsbandalagi Evrópu
féll um sjálfa sig, er Bretum var
neitað um aðild, því að mikill
meirihluti útflutningsafurða íra
er seldur til Bretlands. Um 21
þús. írar fluttust til Bretlands
sl. ár, og þegar góðæri er í Bret-
landi ’ ækkar tala innflytjenda
frá írlandi. frska genginu er
haldið í sama gildi og enska
pundinu og í írlandi er hægt að
nota ensk pund eins og írska
peninga.
Sagan um meðferð Bretea á
írum er Ijót, en það var ekki
grimmd sýnd af ásettu ráði, sem
réði. Mennirnir, sem egrðu sig
seka um illa meðferð á írum,
vorum flestir heiðarlegir og guð-
hræddir, en þeir skildu ekki trú-
arbrögð íra, óbilgirni þeirra og
hve ólíkir þeir voru Bretum. En
gagnkværta hatur íra og Breta
er úr sögunni. írar hafa verið
sjálfstæðir í 40 ár og hin djúpu
sár fortíðarinnar virðast gróin.
Ekkert skyggir á fullveldi
írska lýðveldisins og undarlegt
má virðast hve óháð það er
bandalögum. írar og Bretar
skiptast á sendiherrum og írar
eru ekki aðilar að brezka sam-
evldinu. Þó fjallar skrifstofa sú,
sem fer með málefni samveldis-
landanna um málefni íra í Lond-
on. írum finnst það ekkert verra,
þeir þekkja fólkið, sem þeir
skipta við og geðjast vel að þvL
Það var á árum síðari heims-
styrjaldarinnar, sem írska þjóð-
in náði hvað mestum þroska.
Hún ákvað að vera hlutlaus, ea
var vinveitt Bretum. Njósnarar
voru flæmdir yfir landamærin ,í
norðri í hendur Bretum og íbú-
um írlands var frjálst að ganga
í brezka herinn og þeir gerðu
það þúsundum saman. Hlutleysi
írlands kostaði Bandamenn líf
margra sjómanna og mörg skip.
En með hlutleysi sýndu írar full-
veldi sitt og í írlandi var litið
á ákvörðunina sem nauðsyn. Eft-
ir styrjöldina var írska lýðveld-
ið fullþroskað.
Heimsókn Bandaríkjaforseta
til írlands nú, var ekki nauðsyn-
leg. írar þurftu ekki á henni að
halda, virðingar sinnar vegna.
Kostnaðurinn við undirbúning
undir komu forsetans nam 20
þús. punaum og það er smáræði
miðað við þann kostnað, sem
Framhald á bls. 15.
Frænka Kennedy’s, frú Mary Ryan, heilsar houuin.