Morgunblaðið - 03.07.1963, Síða 15
MiSvikudagur 3. júlí 1963
M O R C V 1S B l 4 Ð I Ð
15
Sumarbústaður
Tilboð óskast í sumarbústað við Þingvallavatn í Mið-
fellslandi. Veiðiréttur fyrir tvær stangir. Girt lóð.
Tilboð er greini nafn, heimilisfang og símanúmer
leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir mánudags-
kvöld 8. þ. m. merkt: „Sumarbústaður — 5538“.
Útboð
Tilboð óskast í smíði glugga og hurða í 15 húsein-
ingar í raðhúsahverfi í Ytri-Njarðvík. Tilboðsgagna
skal vitjast á teiknistofu minni Hjarðarhaga 26
Reykjavík. Skilafrestur er til föstudagsins 12. júlí
kl. 13.
Skúli H. Norðdahl, Ark. F.A.I.
Heildverzlun
í fullum gangi með mjög góð viðskiptasambönd vill
gera samning við fjársterkan aðila um hlutdeild í
fyrirtækinu gegn verulegu fjármagni. Tilboð sendist
afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 7. júlí merkt:
„Umboðs- og heildverzlun — 5536“.
Herb. óskast
H.f. Ofnasmiðjan óskar eftir herbergi handa ungum
starfsmanni, helzt í Norðurmýri eða Hlíðunum.
Upplýsingar gefnar á skrifstofunni sími 12287.
H,F. OFNASMIÐJAN.
ÁKVEÐIÐ HEFUR VERIÐ
að leigja
samkomu- og veitingasali Sjálfstæðishússins með
öllu þeim tilheyrandi. — Nánari uppl. veitir Lúðvík
Hjálmtýsson í skrifstofu Sjálfstæðishússins daglega
kl. 2—3 e.h. Tilboðum sé skilað í skrifstofu Sjálf-
stæðishússins fyrir 10, júlí n.k.
SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ í REYKJAVÍK.
Stúlka
Ábyggileg stúlka óskast til afgreiðslustarfa í sér-
verzlun, í miðbænum ekkí yngri en 20 ára. — Um-
sóknir sendist í pósti merktar: Pósthólf 502, Reykja
vík.
Stúlka óskast
nú þegar til afgreiðslustarfa í húsgagnaverzlun.
Trésmiðjan VÍOIR H.F.
- Laugavegi 166.
Kdpavogsbúar — Kdpavogsbúar
Hef opnað aftur Rakarastofuna Neðstuströð 8.
TORFI GUÐBJÖRNSSON, rakari. '
Vita- og hafnarmálaskrifstofao
óskar eftir að ráða karl eða konu til bókhalds-
starfa á meðan sumarleyfi standa yfir — Þeir einir
koma til greina, sem hafa æfingu í slíkum störfum.
Um framtíðarstarf gæti verið að ræða.
Upplýsingar næstu daga frá klukkan 9 — 12.
VITA- OG HAFNARMÁLASKRIFSTOFAN.
— Ræða Gylfa
Framhald af bls. 8.
gleymast, að valdið er ekki mæli-
kvarði á gildið. Þegar öllu er á
botninn hvolft, er það einstakl-
ingurinn, sem skiptir máli. Það
er satt, sem Halldór Laxness hef-
ur sagt, að sannleikurinn er ekki
í bókum, og ekki einu sinni í
góðum bókum, heldur í mönnum,
sem hafa gott hjartalag.
Nú fer það vonandi að verða
ljósara, hvað ég er að fara. Við
íslendingar byggjum eitt yngsta
ríki í Evrópu, eitt smæsta ríki
veraldar. Við höfum komið því á
fót á öld raunhyggju og tækni,
tímum stórvelda og þjóðabanda-
laga. Hernaðartækni nútímans
hefur gert það nauðsynlegt, að
við gerðumst aðilar að hernaðar-
samtökum við stórveldi. Þróunin
í viðskiptamálum mun eflaust
einnig gera það nauðsynlegt, að
við gerum einhverja samninga
við þær stóru viðskiptaheildir,
sem virðast tímans tákn. Rás
tímans hefur leitt okkur, hina
smæstu af öllum smáum, til ná-
inna tengsla við ýmsa þá, sem
eru okkur margfalt stærri og
voldugri. Það hvarflar ekki að
mér að segja, að við höfum eitt-
hvað að óttast af hendi þeirra. Ég
held mér sé líka óhætt að segja,
að við séum búnir að vinna bug
á þeirri minnimáttarkennd, sem
ekki var óeðlilegt, að ásækti okk-
ur. En mér finnst við íslending-
ar ekki mega loka augunum fyrir
því, áð okkur er vandi á höndum
í þeirri veröld, sem er og verður
á morgun. En sá vandi er ekki
vandi okkar einna. Hann er vandi
allra smáþjóða. Ef til vill finnum
við sárast til hans, af því að við
erum smæstir allra. En von okk-
— Utan úr heimi
Frh. af bls. 12-
mörg Afríkuríki hafa lagt í
vegna heimsókna brezku kon-
ungsfjölskyldunnar. En ákvörð-
un fra um að fara hægt í sak-
irnar, var skynsamleg, því að
skreytingarnar^ sem komið hafði
verið fyrir á götum úti, sáust
ekki. Hinn gífurlegi mannfjöldi,
sem fagnaði Bandaríkjaforseta,
ar er hin sama og von^annarra
smáþjóða. Og hvað er þá eðli-
legra en að okkur séu þau tengsl
kærust, sem binda okkur þeim
þjóðum, sem eru okkur skyld-
astar, virða sömu verðmæti mann
lífsins og við, trúa á sömu hug-
sjónir og við?
Þetta er skýringin á því, að í
augum mínum er aðild íslands að
norrænni samvinnu ekki aðeins
kurteisleg samskipti við frænd-
þjóðir. Hún er meira en stefna í
utanríkismálum. Hún er meira
en tilraun til eflingar sameigin-
legra hagsmuna og menningar.
Að baki henni liggur ósk um sam
stöðu um það mál, sem er eilífð-
armál íslenzkrar þjóðar, við-
leitni hennar til þess að halda
vakandi skilningi á því, að hið
minnsta smáblóm megi ekki
gleymast í þeim stóra garði nytja
jurta, sem nú er lögð áherzla á
að skipuleggja með aðstoð nýj-
ustu tækni.
Það er af því, að mér finnst
þeir, sem fjalla um menntun og
menningu á Norðurlöndum, vera
öllum öðrum líklegri til þess að
skilja okkur íslendinga. vanda
okkar og vonir, drauma okkar og
hagsmuni, að þessi annar fundur
norrænna menntamálaráðherra
er velkominn til íslands. Ég vona
að þessi orð mín séu nægileg
skýring á því, sem ég sagði í
upphafi, að þegar ég býð ykkur
öll hjartanlega velkomin, þá er
ég ekki aðeins að gegna ljúfri
kurteisisskyldu, heldur einnig að
fiytja ykkur kveðju íslenzkrar
þjóðar, — í einlægri von um góða
samvinnu og vináttu, nú og um
alla daga.
Höfum til sölu
4ra herbergja íbúðir tilbúnar undir tréverk og máln-
ingu. Lögn fyrir sér hitaveitu. Leitið nánari upp-
lýsinga hjá undirrituðum.
VETTVANGUR
Bergstaðastræti 14
Fasteignasala — Skipasala
Sími 23962.
Eyðijörðin Höfn í Hornavík
er til sölu
en þar eru sjóbirtingsveiðiárnar: Víðirsá, Torfadalsá,
Selá, Gljúfurá og Kýrá auk Hafnaróss, sem er sam-
eiginlegt afrennsli ánna. Trjáreki mikill. Landflæmi
mikið, grösugt og sléttlent láglendi og grasigrónar
fjallahlíðar. Verðtilboð óskast.
Nánari upplýsingar gefur:
VETTVANGUR
Bergstaðastræti 14
Fasteignasala — Skipasala
Sími 23962.
Skrifstofustart
skyggði á þær. Þessi smáþjóð,
sem á sér sorglega sögu að baki,
fagnaði afkomanda manns, sem
flýði sult og seyru. Afkomandi
útflytjandans er nú leiðtogi stór-
þjóðar, en hann játár trú feðra
sinna og gaf sér tíma til þess að
heimsækja ættjörð þeirra á mik-
ilvægri ferð, sem farin var af
stjórnmálalegum ástæðum.
Fyrir íra er þetta mikill við-
burður og fyllir þá sams konar
ánægju og kemur miðaldra
manni, sem gengur um regnvot
stræti, til þess að brosa í kamp-
inn, ýta hattinum aftur á hnakka
og greikka sporið.
Óskum að ráða stúlku til afgreiðslu og vélritunar
í bifreiðadeild vora.
Trygging hf.
Laugavegi 178.
Ibúð
Ný glæsileg 4 herb. íbúð til sölu við Bólstaðahlíð.
Sér hitaveita. — Tvöfalt gler. — Bílskúrsréttur.
Upplýsingar gefur
JÓHANN RAGNARSSON, hdl.
Vonarstræti 4 — Sími 19085.
NÝKOMNIR
Karlmanna-
sandalar
Karlmannaskór
með gúmmísóla og götum.
Keflavík — Suðurnes
SNYRTISKÓLINN heldur námskeið í andlits- og
handsnyrtingu í Sjálfstæðishúsinu Keflavík dagana
8. — 11. júlí. — Uppl. og innritanir í snyrtivöru-
verzluninni Eddu Keflavík sími 1830.
SNYRTISKÓLINN
Hverfisgötu 39 — Sími 13475.
H afnarfjörður
Gæzlukonu eða gæzlumann vantar að verkamanna-
skýlinu í Hafnarfirði. — Ennfremur vantar vanan
skrifstofumann og skrifstofustúlku til að leysa af
í sumarfríum. — Allar nánari uppl. um störf þessi
verða gefnar á Bæjarskrifstofunni.
Bæjarstjórinn Hafnarfirði.