Morgunblaðið - 03.07.1963, Side 23
Miðvikudagur 3. júlí 1963
MORGVNBLAÐtÐ
23
I
„Mannlegt;
að skjátl-
ast“
MISTÖKIN sem urðu við
talningu hringja í 10 km hlaup
inu í gær eru ekki einsdæmi
í landskeppni eða á stórmót-
um. Mji. hefur þetta skeð í
landskeppni íslendinga fyrr.
Það var á Bisiet 1951 að mis-
talið var og hlaupararnir
hlupu 24 hringi eða 9600 m.
Orsök mistakanna nú var
sú að aðalfararstjóri Dana
Emanuel Rose, sem situr
yfirdómnefnd, kom hlaupandi
niður úr heiðursstúku til
hringteljara og fullyrti að
hann hefði gert rangt í taln-
ingu sinni. Breytti hringavörð
ur í samræmi við það. En á
daginn kom að hringavörður
inn hafði haft rétt fyrir sér
— en yfirdómnefndarmaður-
inn rangt. En gamalt máltæki
segir „Það er mannlegt að
skjátlast". i
Landskeppnin
Framhald af bls. 22.
af Thögersen og Andersen. Thög-
ersen var að keppa við klukkuna
því hann á möguleika á að verða
valinn í sameinað Norðurlanda-
lið gegn Balkanlöndum. Tíminn
varð og mjög góður, eða 35 sek.
undir danska metinu. Það þótti
ótrúlegt og á daginn kom að
hringarnir sem hlaupnir voru
höfðu verið ranglega taldir. Þeir
hlupu ekki nema 9600 metra —
nema e. t. v. Jón Guðlaugsson,
sem var 5 hringjum á eftir Dön-
unum.
Boðhlaupið var Dananna frá
byrjun. Þar var ekki um keppni
að ræða, slíka yfirburði höfðu
Danir.
í heild var keppnin slök af
okkar hálfu. Hvergi — nema í
grindahlaupinu — unnum við
óvænt stig, og það meir fyrir
slysni en getu. Sumir íslenzku
keppendanna komu þó á óvart
með góð afrek — miklu betra
en þeir höfðu áður unnið.
En það vantar mikið á að
við séum aftur færir um að
sigra Dani. En haldi hinir
ungu piltar áfram á framfara-
braut sinni þá kemur sá timi
að svo verði. En þessi lands-
keppni hefur sýnt okkur að
okkur skortir bæði fleiri af-
reksmenn og framar öllu
meiri breidd. — A. St.
Ú RSLIT SÍÐARI DAGS:
200 m hlaup:
Egon Meyer 23.0
Bent Jensen 23.2
Skafti Þorgrímsson 23.6
Ólafur Guðmundsson 24jO
Hástökk:
Jón Þ. Ólafsson 2.02
Sven Breum 2.00
Ole Papsöe 1.90
Sig. Ingólfsson 1.80
Spjótkast:
Claus Gad 65.56
Sören Jochumsen 64.23
Kjartan Guðjónsson 57.46
Kristján Stefánsson 58 33
800 m hlaup:
Jörgen Dam 1.55.2
Knud E Nnielsen 1.55.5
Kristján Mikaelsson 1.58.9
Valur Guðmundsson 2.04.1
Þrístökk:
Hans Bödtger 14.60
Jens Petersen 13.93
Ingvar Þorvaldsson 13.70
Bjarni Einarsson 13.57
3000 m hindrunarhlanp:
Kristleifur Guðbjörnsson 9.08JB
Finn Toftegaard 9.12.8
Bjarne Petersen 9.19.9
Agnar Levy 9.40.6
Sleggjukast:
Orla Bang 56.06
Poul Toft 52.81
Þórður B. Sigurðsson 50.87
Birgir Guðjónsson 44 62
400 m grindahlaup:
Preben Kristensen 55.0
Helgi Hólm 57.9
Hans H. Sand 58.5
Sig Lárusson 60.6
9600 m hlaup:
Thyge Thögersen 29.10.4
Charles Andersen 29.14.8
Halldór Jóhannesson 31.47.6
Jón Guðlaugsson 36.04.0
4x400 m boðhlaup:
Panmörk 3.20.6
leland 3.32.»
- Þórunn og ....
Framhald af bls. 24.
svaraði Þórunn, og bætti við
— og ég vil sem minnst segja
í dag. Maðurinn minn er bú-
inn að segja einu sinni, að við
verðum þar áfram og við vilj-
um ekki segja neitt annað
núna, en látum vita, þegar
allt er ákveðið.
— Hvað hefur maðurinn
þinn langt dvalarleyfi í Bret-
landi núna?
— Eiginlega má segja að
það sé „permanent", eða eins
og hann óskar sjálfur. Form-
lega gildir það aðeins í eitt
ár, en það er formsatriði. Þeir
byrja venjulega með því að
gefa leyfi í eitt ár og fram-
lengja það síðan.
— Ætlar Azkenasy að halda
hljómleika í Englandi?
— Ekki núna. Það var verið
að biðja hann að spila á morg
un, en hann neitaði. Hann get-
ur það ekki, því að hann
verður að fá einhverja hvíld
áður en við komum til Is-
lands.
— Hvenær komið þið hing-
að?
— Ég geri ráð fyrir að það
verði 4. júlí — á fimmtudag-
inn. Pétur Pétursson hringir
til okkar í kvöld eða í fyrra-
málið og þá ákveðum við það
endanlega.
Aðspurð um það, hvað vald
ið hefði töf þeirra hjónanna í
Moskvu, sagði Þórunn:
— Krúsjeff
Framhald af bls. 1.
í Genf hefur tillaga um bann
við ofangreindum tilraunum
margsinnis komið fram af
háifu Vesturveldanna, en
Sovétstjórnin hefur jafnan
vísað henni á bug á þeirri for-
sendu, að Vesturveldin ætli
að nota hana sem skálkaskjól
til þess að geta í laumi full-
komnað kjarnorkuvopn sín
með tiiraunum neðanjarðar.
Fréttamaður AP segir, að með
þessu tilboði Krúsjeffs hafi engu
að síður skapazt dálitið nýtt við-
horf í umræðunum um bann við
kjarnorkuvopn. Þó sé þess að
gæta, að Vesturveldin hafa til
þessa ekki fallizt á að ræða til-
lögu Sovétstjórnarinnar um
griðasamning á fundum afvopn-
unarráðstefnunnar í Genf.
Þýzkaland færi fram úr Vestur-
Þýzkalandi í efnahagslegu tilliti.
Hann lýsti gleði sinni yfir vel-
gengni A-Þjóðverja, sem mætti
þakka því, að fólkið hefði sjálft
tekið viðreisnina í sínar hendur.
Krúsjeff viðurkenndi, að miklar
framfarir hefðu orðið í Vestur-
Þýzkalandi, en sagði það ein-
ungis því að þakka, að nokkrir
vestur-þýzkir auðjöfrar hefðu
getað varðveitt auðæfi sín óskert,
jafnvel eftir hrun nasismans.
„Menn túlka þessa velmegun V-
Þjóðverja, sem dæmi um sigur
kapítalismans yfir sósíalisma —
en ekkert er fráleitara. Hið raun-
verulega efnahagsimdur hefur
orðið í A-Þýzkalandi. Það byggir
á sósíalísku samfélagi og aðeins
sósíalisminn getur gert krafta-
verk, svo er fyrir að þakka á-
ætlunarbúskapnum og grund-
vallarkenningum sósaílismans á
sviði efnahagsmála".
Krúsjeff kvaðst hafa áhuga á
því að efla traust og samvinnu
þýzku ríkjanna, en lagði á það
áherzlu, að núverandi landamær-
um Þýzkalands yrði ekki breytt,
þýzku ríkin yrðu ekki sameinuð
nema undir sósíalískri stjórn. —
Berlínarmúrinn, sagði Krúsjeff,
að væru hin eðlilegu landamæri
Austur-Þýzkalands, hann væri
tilkominn í þjónustu friðar og
skapaði eðlilegt ástand milli
borgarhlutanna. Þá gagnrýndi
Krúsjeff mjög ferðalag Kenne-
dys um V-Þýzkaland og sagði, að
ræður þær, er hann hefði haldið
í Bonn, Berlín og Frankfurt,
hefðu verið gerólíkar þeirri, er
hann hélt í Ameríku-háskólan-
um í Washington 10. júní sl. —
Þýzkalandsræðurnar hefðu borið
á sér blæ John Foster Dulles, fyrr
um utanríkisráðherra.
— Við vorum svo önnum
kafin. Síðustu hljómleikarnir
voru 19. júní Og þeir voru að
leika inn á hljómplötur á
hverjum degi, allt til klukkan
tvö á nóttunni. Og svo náðum
við ekki fyrr en þetta að
ljúka því, sem við þurftum
fyrir brottförina.
— Hvernig tóku sovézku
yfirvöldin í fyrri ákvörðun
mannsins þíns um að setjast
að í Englandi.
— Svona, — ekki illa
og ekki vel. Auðvitað vildu
allir helzt, að hann væri
áfram í Rússlandi, sem er vel
skiljanlegt. En yfirleitt voru
allir afskaplega olskulegir við
okkur. Hljómleikarnir tókust
mjög vel Og viðtökurnar
voru afskaplega góðar.
— ★ —
Einkaskeytið til Mbl. frá AP
var svohljóðandi:
London 2. júlí.
S 0 v é z k i píanóleikarinn,
Vladimir Azkenasy, og kona
hans Þórunn Jóhannsdóttir
komu til London í dag. Á flug
vellinum b i ð u f jölmargir
fréttamenn komu þeirra, en
þau hjónin neituðu að segja
neitt uha það, hvers vegna þau
hefðu skipt um skoðun og tek-
ið ákvörðun um að búa áfram
í Moskvu.
Píanóleikarinn sagði „Ég hef
sagt, að ég ætli að búa í
Moskvu og við það ætla ég að
standa“.
Fréttamenn spurðu hann,
hvort kona hans hefði sam-
þykkt að búa áfram í íbúð
þeirra í Moskvu og svaraði
hann „Auðvitað, íbúðin er
nógu stór“.
Azkenazy sagði fréttamönn-
um, að þau hefðu saknað son-
ar síns mjög, en að öðru leyti
vildi hann ekki um sín per-
sónulegu mál tala, enda þótt
fréttamenn gengu allmjög á
hann um að gefa nánari upp-
lýsingar.
Þórunn kona hans sagði:
Við viljum ekki svara fleiri
spurningum um þetta mál
núna. Við höfum ekki enn
tekið endanlegar ákvarðanir
um framtíðaráætlanir okkar
en eftir einn eða tvo daga
munum við skýra frá þeim.
Fyrst af öllu viljum við tala
við foreldra mína. Og hún
bætti við og andvarpaði: Um
þetta mál hefur komið fram
alls kyns vitleysa en nú vil
ég helzt fá að hugsa um þetta
í friði.
Fælir minkur silung
frá Höfðavatni?
Krúsjeff hélt ræðu sína í
Werner Seelenbinder-Hallen í A-
Berlín og voru áheyrendur um
6000 talsins. Hann sagði meðal
annars, að Sovétstjórnin stæði
nú andspænis kröfum Vestur-
veldanna um ákveðið eftirlit með
kjarnorkutilraunum neðanjarð-
ar, en þær kröfur gætu Rússar
ekki fallizt á. Með því móti yrði
Vesturveldunum gefnar frjálsar
hendur til njósna í Sovétríkjun-
um og Rússar myndu aldrei opna
dyr sínar fyrir NATO.
Á hinn bóginn, sagði hann
Sovétstjórnina sannfærða um að
bann við kjarnorkutilraunum, þó
ekki væri algert, yrði öllu mann-
kyni til blessunar og því hefði
hún ákveðið að leggja þessar til-
lögur sínar fram á fyrirhuguðum
fundi þríveldanna í Moskvu.
★ Hið raunverulega
efnahags-„undur“
Krúsjeff sagði í ræðunni, að
sá dagur myndi koma, er Austur-
Bæ, Höfðaströnd, 2. júlí.
Lítil sem engin silungsveiði
hefir verið það sem af er sumri í
Höfðavatni, en talsverð silungs-
umferð hefir verið í sjónum fram
an við vatnið. Bændur halda, að
silungurinn haldi sig úti á dýpinu
vegna þess að minkur er mikill
kringum vatnið, og veiddust 17
nú einn daginn fyrir skemmstu.
Opið er til sjávar svo að silung-
urinn ætti að geta gengið inn í
vatnið.
Um þorskafla er það að segja,
að hann er sama sem enginn hjá
Hofsósbátum, enda sumir hættir.
Svolítið verður vart við hafsíld í
net. Aðallega stunda sjómenn hér
á Hofsósi og Sauðárkróki kola-
og rauðsprettuveiðar.
Víðast hvar er sláttur byrjað-
ur, og er nýting heyja ágæt.
— Björn.
Óttozf oð 30
hofi fnrizt
í flugslysi
ÍWellington, Nýja-Sjálandi,
2. júlí — AP —
Ó T T A Z T er, að þrjátíu
manns hafi farizt er flug-
vél af gerðinni DC3 fórst í
fjalllendi á Nýja-Sjálandi.
— Vélin var á leiðinni frá
Auckland til Tauranga.
Svartbakurinn
Ferðir Farfugla í júií
UM NÆSTU helgi efna Far-
fuglar til gönguferðar á Heklu.
Verður ekið austur að Næfur-
holti á laugardag og tjaldað þar.
Um kvöldið verður gengið nið-
ur í Hraunteig. Á Sunnudag
verður svo gengið á Heklu.
13.-14. júlí er gönguferð á
Geitlandsjökul. Verður gengið
yfir jökulinn og um Þórisdal í
tjalds.tað.
Þá sömu helgi verður farin
helgarferð í Þórsmörk. Hefst
þangað einnig 9 daga sumarleyf-
isferð um helgina. Verður dval-
ið í tjöldum í Sleppugili og farn-
ar þaðan gönguferðir um Mörk-
ina.
20.-21. júlí: Helgarferð í Þórs-
mörk og vikudvalargestir sóttir.
Þá helgi hefst einnig 9 daga
sumarleyfisferð í Arnarfell hið
mikla og nágrenni. Ferðinni
verður í aðalatriðum hagað á
svipaðan hátt og fyrri ferðum
á þessar slóðir. Er ráðgert að
tjalda að kvöldi annars dags á
bökkum Þjórsár gegnt Arnar-
felli. Þaðan verða svo gerðir út
leiðangrar á Arnarfell, í Arnar-
fellsmúla, Nauthaga og gæsaver-
in. Einnig verður ferðast um
austan Þjórsár eftir því sem,
tími vinnst til, t.d. í Eyvindar-
kofaver, á Hágöngur og að
Hrauneyjarfossi. Kostnaður er
áætlaður kr. 2.500 pr. mann og
er þá fæði innifalið. Farfuglar
leggja einnig til tjöld ef ósk-
að er.
28. júlí: Hefst síðasta ferð
mánaðarins, er það gönguferð á
Ok. Ferðin tekur einn dag.
Skrifstofa Farfugla að Lindar-
götu 50 er opin miðvikudags-,
fimmtudags- og föstudagskvöld
kl. 8.30-10. Farseðlar eru einn-
ig seldir í verzluninni Húsið,
Klapparstíg 27.
horfinn af
tjörninni
SVARTBAKURINN virðist bú
um sinn alveg horfinn af Reykja
víkurtjörn, eftir hríðina, sem
gerð var að honum um daginn.
Eitt hræ var skilið eftir í hólm-
anum, og sýnist það hafa nægt,
til þess að fæla bræður hans frá
tjörninni í bráð.
HF. BERGUR
Vegna sumarleyfa verður verksmiðja vor lokuð
frá 15. júlí til 5. ágúst.
Lokað vegna sumarleyfa
frá og með 15. júlí til 6. ágúst.
Sölunefnd Varnarliðseigna