Morgunblaðið - 03.07.1963, Síða 24
J'w^A,íwwíw-yv /raw^w/ ;»’f 'f>¥ w "• v/-vy-y"^ww/)"c-^w^-'w.^r' v^ytw■/"■ww'ww/mw'vw• ;vy»-»
I gærkvöldi var verið að
máia Dómkirkjuturninn og
hreinsa skífurnar á turn-
klukkunni. Myndin sýnir,
hvernig að verkinu er unn-
^ ið. — (Ljósm. Mbl. Sv. Þ ).
Síldin
FRÁ >VÍ kl. 7 á mánudags-
morgun til jafnlengdar í gær-
morgun fengu tæplega 40 skip
■Uep 30 þús. mál og tunnur. Mest
veiddist 30—40 mílur urxdan landi
á Reyðarfjarðardjúpi, nokkuð
undan Bjarnarey, og talsvert út
af Sléttu. í gær veiddist engin
síld. f>á komu 14 skip með 5 þús.
mál og tunnur til Raufarhafnar,
fjögur til Siglufjarðar með 1200
en hitt fór á Austfjarðahafnir.
í gær hafði verið saltað í 5.293
tunnur á Raufarhöfn, og verk-
smiðjan hafði tekið á móti 72
J>ús. málum.
Varnarliösþyrla
finnur týndan mann
Vestur-Islend-
ingarnir fara
utan á föstudag
xTESTUR-íslenzki ferðamanna-
lópurinn er nú á förum. Brottför
lópsins verður á föstudag og hef-
ír fararstjórinn beðið blaðið að
aiðja Vestur-lslendingana að
næta kl. 9.30 árdegis á föstudag
zið afgreiðslu Loftleiða í Lækj-
irgötu 2. Vilji einhverjir fara á
úgin vegum suður á Keflavíkur-
Mugvöll þarf að mæta þar við
afgreiðslu Loftleiða 1 flugvallar-
aótelinu eigi síðar en kl. 11 f.h.
UM kl. 16 á mánudag hvarf frá
Vífilsstöðum maður um þrítugt.
Var hann klæddur náttfötum, í
sloppi og inniskóm. Á þriðjudags
morgun voru skátar í Hafnarf'irði
beðnir að leita að manninum, en
hann hefur áður horfið frá Vífils-
stöðum og verið leitað. Skátarnir
leituðu um fjalllendið allt suður
í Krýsuvík, en maður þessi er
kunnur að því að fara óravegu
frá Vífilsstöðum, þegar hann
hverfur þaðan.
Um miðjan dag í gær var brugð
ið á það ráð að biðja varnarliðið
á Keflavíkurfiugvelli um aðstoð.
Brá það skjótt við, eins' og jafn-
an, og sendi þyrlu tafarlaust til
Vífilsstaða. Lenti hún þar á tún-
inu og tók fyrirliðasskátanna með
sér í leitina. Fannst hann eftir
um stundarfjórðung, þar sem
hann var við Helgafell. Ekki virt-
ist hann neitt þjakaður, varla
einu sinni sárfættur, þrátt fyrir
fótabúnaðinn.
Söltun hafin á
Seyðisfirði
Seyðisfirði, 2. júlí.
Farið er nú að salta hér. á Seyð
isfirði. í dag var saltað lítilshátt-
ar hjá Sunnuveri og Haföldu
— Sveinn.
Þórunn og Vladimir
Azkenasy í London
Skyra frá framtíðarákvörðunum sínum
á fimmtudag
• 1 gær komu Þórunn Jó-
hannsdóttir og maður henn-
ar, sovézki píanóleikarinn,
Vladimir Azkenasy, til Lond-
on, fluigleiðis frá Moskvu. t
• Á flugvellinum vóru fyrir
fjölmargir blaðamenn, er
spurðu þau sem ákafast um
framtíðarfyrirætlanir þeirra.
í einkaskeyti til Mbl. frá AP
og í fréttaskeyti. frá NTB í
gær sagði, að Azkenasy hefði
staðfest, að þau ætluðu að búa
áfram í Moskvu, en hinsvegar
hefði hann engar frekari upp-
lýsingar viljað gefa um þeirra
hagi.
• Mbl. ræddi við Þórunni í
síma í gær og var þá á henni
að heyra, að þau væru í raun
og veru alls ekki búin að taka
endanlega ákvörðun. Hún
kvaðst þó ekkert vilja segja
um málið fyrr en á fimmtu-
dag, fyrst þyrfti hún að ræða
við foreldra sína, húgsa málið
í ró og næði og atb uga allar
aðstæður. Hún bjóst við að
þau hjónin kæmu til íslands
á fimmtudag.
Þórunn kvaðst hafa verið
að ræða við hóp af blaðamönn
um, rétt áður en Morgunblað-
ið náði sambandi við hana, en
sagði að þau vildu engar upp-
lýsingar gefa að svo stöddu,
ekki fyrr en á fimmtudag.
— Það hefur verið svo
mikil vitleysa í kringum allt
þetta, að ég vil bara fá að
hugsa málið í ró og næði —
og við bæði. Svo að ég hef
ekkert að segja rétt á meðan,
sagði hún.
— Telurðu líklegra að þið
setjizt að í Moskvu fremur en
í Englandi, spurði blaðamaður
Mbl.
— Ég veit það bara ekki,
Framhald á bls. 23
Brezki togarinn
enn á Seyðisfirði
Tryggingaríé ógreitt veiðarfæramat lækkað
Seyðisfirði, 2. júlí.
Brezki togarinn Dorade, sem
tekinn var við ólöglegar veiðar í
Lónsvík á miðvikudag í sl. viku,
liggur hér enn, því að trygging-
arféð hefur enn ekki verið innt
af hendi.
Dómur var kveðinn upp yfir
skipstjóranum á fimmtudag. Var
hann dæmdur til að greiða 260
þús. kr. sekt. Afli, sem metinn
var á 32 þús. kr., og veiðarfæri,
metin á 180 þús. kr., var hvort
tveggja gert upptækt.
Með ólögleg
veiðarfæri?
Aðfaranótt þriðjudags kom
varðskipið Óðinn að togbátnum
Kap, VE 272, undan Ingólfshöfða.
Þar sem talið var, að ólöglegur
veiðarfærabúnaður væri um
borð, var Kap látinn fylgjast með
v.s. Óðni til Vestmannaeyja. Voru
skipin væntanleg þangað í gær-
kvöldi. V.b. Kap sem er 52 brúttó
tonna eikarbátur, var á humar-
veiðum.
.Skipstjórinn áfrýjaði til Hæsta
réttar, en auk þess krafðist hann
yfirmats á veiðarfærunum. Hef-
ur það mat nú farið fram, og
lækkaði matsverðið úr 180 þús,
kr. í 110 þús. kr. Stafar það af
því, að trollið er óvenju lítið, 78
feta höfuðlína, og vírar eru gaml-
ir, ryðgaðir og grannir, gildleik-
inn 2% þumlungar.
Eins og fyrr greinir, hefur út-
gerðin ekki enn sett neina trygg-
ingu fyrir greiðslu sektarinnar,
svo að togarinn liggur enn hér í
höfninni. — Sveinn.
Þórsmerkurferð
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN f
Kópavogi efna til skemmtiferðajr
í Þórsmörk nm næstu helgi, 6.—
7. júií. Þátttaka tilkynnist í síma
19708 í kvöld kl. 20—21.
Meira fjölmenni var í ferð Varðar um sl. helgi en nokkru sinni fyrr. Vigfús Sigurgeirsson tók þessa mynd af bílalestinni i fögru
umnveríi Borgaríjarðar. Sjá bls. 3.