Morgunblaðið - 23.08.1963, Blaðsíða 1
24 síður
Dr. Ward lét eftir sig
tæpar 2 millj. kr.
Mynd þessi var tekin í norska stórþinginu fyrsta dag umræðnanna um vantraust á stjórn
Gerbardsens. Til hægri er John Lyng, forsætisráðherraefni borgaraflokkanna, til vinstri Einar
Gerhardsen, forsætisráðherra. _
Hægri stjdrn veröur
felld a fyrsta degi
segja þingmenn sósílistíska þjóðflokksins,
sem ráða úrslitum um fall stjórnar Gerhardsens
^ í GÆR VAR haldið áfram umræðum um vantrausts-
tillögu stjórnarandstöðunnar í Noregi og Kings-Bay-nám
urnar á Svalbarða, Þegar þingfundur hófst voru fjörutíu
menn á mælendaskrá og þykir ljóst, að umræðum verði
ekki lokið fyrr en seint í dag eða í kvöld. Þá fer fram
atkvæðagreiðsla um vantrauststillöguna.
Finn Gustavsen, þingmaður sósíalistiska þjóðarflokks
ins, lýsti því yfir í ræðu á þinginu í gærmorgun, að hann
muni bera fram vantrauststillögu á væntanlega stjórn borg-
araflokkanna þegar á fyrsta starfsdegi hennar. Vill hann,
að núverandi ríkisstjórn segi af sér en aðrir menn innan
verkamannaflokksins standi fyrir nýrri stjórnarmyndun.
Fréttaritari Mbl. í Osló, Skúli Skúlason, sagði í sím-
tali við blaðið í gærkvöldi, að umræður þessar í Stórþing-
inu hafi verið hinar fábreyttustu, sem lengi hafi verið
útvarpað þaðan. Telur hann ólíklegt, að Gerhardsen leggi
fram lausnarbeiðni sína fyrr en á laugardag og segir að
ný ríkisstjórn verði vart mynduð fyrr en í byrjun næstu
viku.
Hér fer á eftir frásögn fréttaritarans af umræðunum:
Osló, 22. ágúst 1963.
Vantraustsumræðurnar, sem
I staöið hafa yfir í þrjá daga eru
með þeim fábreyttustu, sem
lengi hefur verið útvarpað frá
norska Stórþinginu.
Framh. á bls. 23.
Lóndon, 22. ágúst NTB-
Reuter.
• Upplýst var í London í
dag, að dr. Stephen Ward
hafi látið eftir sig eignir, er
nema nálægt 2 milljónum ísl.
kr. Hins vegar verður ekki
eftir af þessum verðmætum
meira en rúmlega 500.000 kr.,
þegar frá hafa verið dregnir
skattar, opinbei gjöld og
skuldir hins látna.
Dr. Ward hafði ekki gert
erfðaskrá og fellur umráða-
réttur yfir eignum hans í
hendur bróður hans, Ray-
mond Ward.
Þá hefur umboðsmanni dr.
Wards, Pelham Pound verið
bannað að birta eða nota á
nokkurn hátt 25000 orða
skýrslú, er Dr. Stephen Ward ,
hafði gert varðandi réttar-
höldin í máli hans. Jafnframt
var umboðsmanninum bann-
að selja eða nota teikningar
og málverk dr. Wards.
Lögfræðingur bróðurins,
Joseph Jackson sagði við
blaðamenn í dag, að Ray-
mond Ward hyiggðist gera
það, sem hann gæti, til að
koma í veg fyrir, að eignir
læknisins yrðu notaðar til að
koma- af stað æsimálum. —
Engu að síður telja frétta-
menn að fjöldi manna sé ugg
andi um birtingu skýrslu dr.
Wards.
Skrilslofu ,Nýja-Kína‘
í Prag lokað
Prag, 22. ágúst —
NTB — Reuter.
if SKRIFSTOFU kín-
versku fréttastofunnar
Nýja-Kína í Prag var
lokað í dag, samkvæmt
skipun tékkneskra yfir-
Bolivia
bandal.
segir sig úr
Ameríkuríkja
Washington, 22. ágúst.
— (NTB-Reuter) —
BOLIVIA hefur sagt sig úr
Bandalagi Ameríkuríkjanna
— OAS — og látið af allri
samvinnu innan ramma þess,
að því er framkvæmdastjóri
OAS skýrði frá í dag.
Hefur stjórn Bolivíu kallað
heim alla fulltrúa sína hjá hin-
um ýmsu stofnunum samtakanna.
T>ar með er tala aðildarríkja
bandalagsins komin niður í 19
og hafa þau aldrei færri verið
frá því það var stofnað árið 1948.
Þess er skemmzt að minnast,
að fulltrúar Bolivíu gengu af
fundi OAS-ráðsins í júní sl. eftir
að hafa staðhæft, að bandalagið
hefði brugðizt hlutverki sínu
varðandi lausn deilu Bolivíu og
Chile um vatnsréttindi í fljótinu
Lauca.
valda.
Tékneska fréttastofan Cet-
eka skýrði - frá þessu
og sagði ástæðuna þá, að
„Nýja-Kína“ noti starfkrafta
sína í Prag til þess að sjóða
saraan andtékkneskan áróð-
ur, sem dreift sé um Kína.
Fréttamanni „Nýja-Kína“ í
Prag og tveim öðrum starfs
mönnum skrifstofunnar þar,
sem verið hafa í orlofi er-
lendis, hefur verið tilkynnt,
að þeirra sé ekki óskað til
Tékkóslóvakíu aftur.
Fundur í
■ «
Oryggisrdðinu
í dug
New York og Tel Aviv,
22. ágúst AP.
TILKYNNT var í aðalstöðv
um Sameinuðu þjóðanna í
dag, að Öryggisráðið muni
koma saman til fundar kL
Framh. á bls. 23. -
Finn Gustavsen flytur ræðu
sína og lýsir stuðningi við
vantrauststillöguna.
Verður byggð olíuhreins-
unarstöð á Islandi?
■
ATHUGANIR fara nú
fram á því, hvort aðstæður
séu fyrir hendi til að
hyggja hér á landi olíu*
hreinsunarstöð. Markaður
fyrir olíu mun hér vera
orðinn það mikill að líklegt
er, að olíuhreinsunarstöð
væri arðvænlegt fyrirtæki,
enda munu nú vera olíu-
hreinsunarstöðvar í öllum
V.-Evrópulöndum nema
Luxemburg.
Blaðið ræddi í gær við dr.
Jóhannes Nordal, formann
stóriðjunefndar, og sagði hann
að athuganir hefðu að undan-
förnu farið fram á því á veg-
um nokkurra einstaklinga og
fulltrúa olíufélaganna hér á
landi, hvort aðstæður væru nú
fyrir hendi til að byggja hér
olíuhreinsunarstöð. Athuganir
þessar eru enn á byrjunarstigi,
en í sambandi við þær hafa
undanfarna tvo daga dvalizt
hér á landi erlendir sérfræð-
ingar til skrafs og ráðagerða
um málið. Stóriðjunefnd hef-
ur nú fengið málið til með-
ferðar, en talið er að athugun
á því taki alllangan tíma.
Eins og áður liefur verið
vikið að hér í blaðinu, hefur
oliunotkun vaxið svo hér á
landi, að nú mun vera að
skapast grundvöllur til að
byggja hér olíuhreinsunarstöð
af svipaðri stærð og víða eru
starfræktar erlendis. Hefur
verið talin ástæða tii að rann-
saka, hve. arðvænlegt slíkt fyr
irtæki mundi vera, svo að
hægt væri að meta hvert þjóð-
hagslegt gildi það hefði, að
íslendingar hreinsuðu sjálfir
að verulegu leyti þá olíu, sem
þeir nota.
Olíuhreinsunarstöð af þeirri
stærð, sem hér kynni að verða
reist, mundi væntanlega kosta
300—500 milljónir króna, eftir
því, hvernig framleiðslu yrði
hagað.
1