Morgunblaðið - 23.08.1963, Síða 17
1 Föstudagur 23. ágúst 1963
MORGUNBLAÐIÐ
17
Haraldur BjÖrnsson
frá ísafirði-minning
F. 4/8 1926. — D. 31/7 1963.
MIG setti hljóðan, er ég frétti
andlát vinar míns Haraldar
Björnssonar frá ísafirði, Hadda,
eins og hann var ávallt kallaður
í vinahópi.
Hann var í ferðalagi ásamt
móður sinni er hann skyndilega
veiktist, af þeim sjúkdómi er
leiddi hann til bana á skömmum
tíma. Hann var sendur til sér-
fræðinga erlendis, en mannleg
hönd fékk ekki við ráðið. Hann
andaðist í Kaupmannahöfn 31/7
1963.
Haraldur var fæddur á ísa-
firði 4. ágúst 1926, yngstur fjög-
urra systkina, sonur Jónínu l>ór-
hallsdóttur og Björns H. Jóns-
sonar, skólastjóra, barnaskóla
Isafjarðar. Björn dó fyrir rúmu
ári síðan, og það má því segja
að stutt sé milli stórra högga hjá
frú Jónínu, þar sem hún má nú
sjá á bak yngsta barni sínu, hon-
um sem var henni svo mikill
styrkur.
Það munu vera um 30 ár síð-
an við Haddi kynntumst og er
mér ljúft að minnast þeirrar
vináttu, sem aldrei féll skuggi
á, enda Haddi slíkur gæðadreng
ur, grandvar og prúður að til
fyrirmyndar var. Það lýsir
kannske einna best hans innra
manni, hve börnum þótti vænt
um hann. Allstaðar þar sem
Haddi kom var fagnaðarfundur.
Ég minnist glampans, sem skein
í augum þeirra, er hann talaði
við þau og ég veit að bræðra-
börnin eiga eftir að minnast
frænda síns, enda var Hadda
ein mesta gleði að dvelja meðal
þeirra. ,
Haddi hafði snemma mikinn
áhuga á ljósmyndagerð og leit-
aði hann sér fróðleiks um hana
hér og erlendis og hafði próf
úr amerískum bréfaskóla.
Mest var það frístundavinna,
hann stundaði lengst af almenna
iðnverkavinnu. Síðustu árin
vann hann hjá Kassagerð
Keykjavíkur.
Ég votta móður hans og syst-
kinum dýpstu samúð og bið þess
að sá er öllu stjórnar, styrki
þau í þeirri miklu sorg.
Guðmundur L. Þ Guðmundsson
Kveðja frá frændsystkinum
Vor kæri frændi, sárt við sökn-
um nú
er svona fljótt að burtu kvaddur
varstú.
Því okkar til var umhyggja þín
trú
og ástúð nær sem faðir til vor
barstu,
hver návist þín oss gagn og gleði
skóp
sem gerði alla tilveruna bjarta —
og þó hvað mest sá yngsti í
okkar hóp
fann yl um sál frá þínu góða
hjarta.
Og nú við jarðar-lífs þíns loka-
þátt,
er leggur út á hina duldu móðu,
þú hjartans beztu þakkir okkar
átt.
Á æðri sviðum launist verkin
góðu
þar handan sál þín haslar nýjan
völl
um himnaföður ómælis slóðir.
Svo þá í hérvist ævi vor er öll
þar óskum sjá þig kæri föður-
bróðir.
J. H.
— Hljómplöfur
Framh. af bls. 15
með safamiklum tón. Hljóm-
sveitarstjórn Szell er stór-
kostleg. Vert er að vekja sér-
staka athygli á fyrsta óbóista
hljómsveitarinnar, sem leikur
af einstakri snilld. Hljóðritun
er frábær. Númer: LPM 18755
(M), SLPM 138755 (s).
Fyrir nokkrum vikum var
vikið að upptöku frá Colum-
bia á Konsert fyrir cello, fiðlu
og píanó í C-dúr op. 56 eftir
Beethoven. Verk þetta er eitt
þeirra, sem sjaldan gefst kost-
ur að heyra í hljómleikasal.
Konsertihn er samt þeim fá-
gætu kostum gæddur, að hann
er því fegurri sem oftar er á
hann hlýtt og er ekki hægt að
brýna nógsamlega fyrir tón-
listarunnendum að kynna sér
þetta heillandi verk. Það er
fáanlegt í upptöku frá
Deutsche Grammophon, þar
sem einleikarar eru: Fournier
á cello, Schneiderhan á fiðlu
og Geza Anda á píanó. Út-
varpshljómsveit Berlínar leik-
ur undir stjórn hms nýlátna
hljómsveitarstjóra Ferenc
Fricsay. Einleikshljóðfærin
þrjú koma hér mjög vel fram
og hljóma eðlilega. Hljóðritun
er að öllu leyti miklu betur af
hendi leyst en hin eldri upp-
taka frá Columbia. Þó er það
hægt út á að setja, að hlutföll
eru einleikurum heldur um of
í vil. Hljómur er (jpinn og lif-
andi og oft og tíðum er eins og
um hreina stofutónlist sé að
ræða (hlutföll milli einleikara
og hljómsveitar valda þar
miklu). Þó að valinn maður
sé í hverju sæti er það samt
hinn yndisfagri leikur Pierre
Fournier, sem hrífur hlustand
ann hvað mest hreint og beint
fyrir hans gegnsýrða „músik-
alitet“, fagra tón og göfugu
fraseringar. Þetta er án efa sú
upptaka á „Þrefalda konsert"
Beethovens, sem verður að
mæla með. Númer: LPEM
19236 (m), SLPEM 136236 (s).
Báðar þessar upptökur með
Fournier hafa fengið verðlaun
in „Grand Prix du Disque“.
Á síðastliðnu ári voru gefn-
ar út á vegum ameríska Col-
umbia fjöldinn allur af hljóm-
plötum í tilefni þess að Igor
Stravinsky varð áttræður. í
flestum tilf ellum st j órnar
hann verkunum sjálfur. Þess-
ar plötur urðu skömmu síðar
fáanlegar á enskum markaði á
CBS merki. Hér verður aðeins
ein þeirra gerð að umtalsefni,
þótt hún kæmi fyrst út á ár-
inu 1961, en það er upptakan
á „Le Sacre du Úrintemps".
Stravinsky stjórnar hér Col-
umbia sinfóníuhljómsveitinni.
Á þessari plötu er enn frem-
ur nokkur inngangsorð töluð
af höfundi. Segir hann þar á
sinni bjöguðu ensku nokkuð
frá tildragandanum að tón-
smíðinni, frumflutningi o. s.
frv. Er það eitt út af fyrir sig
til þess að gefa plötunni auk-
ið gildi. „Le Sacre“ er óþarft
að kynna, en eins og kunnugt
Frampartur Þorsk afjarðarþorsksins.
Fyrsti þorskurinn veið-
ist í Þorskafirði
MORGUNBLAÐINU barst á
þriðjudag sérstæð sending frá
J. M. Eggertssyni, skógræktar
manni. Það var þorskur einn
undarlegur, og sögðu sumir,
að hann hlyti að vera stein-
bítur í aðra ætt, en aðrir, að
hann væri af keiluættum.
Þorskinum fylgdi svohljóð-
andi bréf:
„Skógræktarstöðinni
í Þorskafjarðarþingi,
20. ágúst 1963.
Morgunblaðið Reykjavík.
í gærkvöldi, þegar byrjað
var að skyggja, fór ég að
vitja um netgarm, er éig hafði
lagt fyrir silung í uppþorn-
aða kvísl af Músará, sem
rennur niður í botn Þorska-
fjarðar við hinn forna þing-
stað. Lagði ég netið á þurru
landi uppi undir grasi, með
því stórstreymt var til að
vitja þess aftur þegar félli
út, sem ég og gerði. Er það
siður hér að veiða silung
þannig ef veiðivon er ein-
hver, sem helzt er í stór-
strauma. Nú í sumar hefur
verið ördeyða — engin veiði.
Þegar ég vitjaði um netið var
fallið undan því alveg. Var
það þar í einni þvælu og í
því tveir smásilungar dauðir
og rétt hjá netinu allstór
þorskur dauður, sem auðsjá-
anlega hafði verið ánetjaður,
en losnað í fjörbrotunum
þegar var að falla undan net-
inu. (Netið var mjög smárið-
|ð og hafði hann ánetjast
á tönnunum og þvælt netinu
þannig um sig eins og iðu-
lega kemur fyrir þegar stærri
fiskar veiðast í smáriðin net).
Þessi þorskur virðist nýgeng-
inn úr hafdjúpinu, því ný-
dauður var hann drifhvítur,
feitur og fallegur — nema
hausinn, sem er stórlega van-
skapaður.
Ég leyfi mér að senda Morg
unblaðinu fiskinn til sann-
indamerkis og athugunar nú
í dag með Vestfjarðarútunni,
og bið blaðið góðfúslega að
framvísa honum til fiskifræð
inga til frekari rannsókna.
Enda þótt fjörðurinn heiti
Þorskafjörður, hefur aldrei
svo nokkur lifandi maður viti,
orðið vart við þorsk í þessum
firði — ekki svo mikið sem
varaseiði. Er þetta því furðu
legra þar sem sjávarfalla gæt
ir svo stórlega í firðinum og
þurrar leirur fulla 5 km út
um fjöru frá því sem fisk-
urinn veiddist.
Ég var farinn að hugga mig
við að vísa Páls Ólafssonar
skálds gæti átt við „Þorska-
fjörðinn" og þá landkrabba,
mig s«m aðra, er þar þrauka:
„Það er ekki þorsk að fá
í þessum firði,
þurru landi eru þeir á
og einskis virði“.
Ég hugsa mér, að þorskur-
inn hafi hugsað sér — ef okk-
ur leyfist á annað borð að
hugsa nokkuð — þá hugsa ég
mér að þorskurinn hafi hugs-
að sér, að sporðrenna þessum
silungssílum er fylgdu hon-
um í dauðann — líkt og ég
sjálfur og aðrir sælkerar láta
sér sæma ef þeir eiga kost
á lostsætum pönnukökum og
farizt síðan allir á einu bretti
mér til ununar og ágætis, því
þetta er sú -eina veiði, sem
mér hefur hlotnazt í langan
tíma, enda þótt ég hafi tvö
net önnur í takinu miklu
betri. — Svona förum við
sjálfir mannskepnurnar á end
anum inn í annan heim.
Með beztu kveðju til Morg-
unblaðsins og lesenda þess.
J. M. Eggertsson,
skógræktarmaður".
Morgunblaðið sendi þorsk-
ókindina til Fiskideildar At-
vinnudeildar. Eftir að hafa
skoðað skepnuna, sagði Jón
Jónsson fiskifræðingur, að
hér væri um vanskapaðan
þorsk að ræða; misvöxtur í
höfuðbeinum. Ekki kvað Jón
slíka vanskapnaði vera neitt
tiltakanlega sjaldgæfa.
er olli það algeru uppþoti
meðal áheyrenda, þegar það
var frumflutt árið 1913, svo
furðulegt sem það má virðast
nú í dag, þar sem þetta er ein-
hver verðugasti ballet sem
samin hefur verið. Stravinsky
telur verkið samt til sinfón-
iskra verka fremur en ballett-
tónlistar. Flutningur Stravin-
sky á þessu verki sínu er svo
verulega frábrugðinn því,
sem maður er vanur frá hendi
virtuosa-hljómsveitarstjóra að
það mun mörgum opinberun
að heyra þéssa upptöku. Rytm
iskt kontrol hans er miklu
fastara en venujlegt er og hin
ýmsu smáatriði í hljómsveit-
arútsetningu koma svo ótrú-
lega betur í gegn en áður hef-
ur heyrzt. Girnist einhver
þetta verk í sitt plötusafn, er
þetta upptakan, sem hann á
að velja. Hljóðritun er ekki
eins góð og við þekkjum hana
bezta frá Decca og Deutsche
Grammophon sem trúlega
standa öðrum framar í upp-
tökutækni, en hún verður
engu að síður að úrskurðast
mjög nálægt fyrsta flokki.
Númer eru: BRG 72055 (m),
SBRG 72054 (s).
— Kornið
Framh. ai bls. 13
aukinn er 6—7 hestar fyrir á-
burðinn eftir hverja kú, ef hann
er breiddur á tún ■— meiri ef
hann er settur 1 flög. Og í öðru
lagi er það gefinn hlutur, að í
búfjáráburðinur* hljóta að vera
ýms snefilefni, sem grösunum
eru nauðsynleg en ekki eru í
venjulegum verzlunaráburði.
Það er því Höfuðnauðsyn fyrir
bændur, að búa þannig í haginn,
að búfjáráburðurinn komi jörð-
inni að Jullum notum.
Næsta dag vaknar Klemenz
snemma, en sól þessa heiða júlí
dags er samt kominn hátt á loft
yfir Eyjafjallajökli þegar við er
pm komnir niður á akrana til að
líta á vöxt kornsins. Þar eru 80
tilraunareitir í einni dagsláttu,
en á annað hundrað reitir eru
úti á Geitasandi. Vexti og þroska
er mislangt komið í reitunum.
Klemenz segir mér á því öll
deili en fæst af því verður rakið
í þessari grein, nema þær'iáorðu
skýringar, sem fylgja þessum
myndum.
Það er undarleg tilfinning,
sem grípur mann, þegar maður
stendur inni í miðjum kornakrin
um og sér bylgjur kornstanga
móðunnar hníga og rísa allt í
kringum sig. Lengst á veg er
Flöja-byggið og Dönnes-byggið
komið, enda hefur Dönnes um
40 ára reynslu hér á Sámsstöð-
um. Það er full-skriðið og það
þroskast á næstu 6—8 vikum.
Viðkvæmasti tíminn fyrir korn
ið er því kringum mánaðamótin
ágúst—sept. Þá er mest áríðándi
að tíðin sé góð — veður kyrrt
og hagstætt.
Eldur í íbúð
UM kl. 7 á miðvikudagsmorgun
heyrði fólk við Bugðulæk neyð-
aróp í manni. f ljós kom, að mað-
ur kallaði á hjálp út um glugga
á annarri hæð í húsi einu, en
reyk lagði út. Maðurinn korast út
um dyr af eigin rammleik, en er
slökkviliðið kom á staðinn, var
eldur í legubekk í herbergi
mannsins. Annar legubekkur
var brunninn til ösku. Slökkvi-
liðinu tókst fljótlega að slökkva,
en nokkrar skemmdir urðu á
herberginu. — Talið er, að
kviknað hafi í ut frá vindlingi.