Morgunblaðið - 18.09.1963, Side 2

Morgunblaðið - 18.09.1963, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 18. sept. 1963 Leiguhílstjóri kærir lög- regluvarðstjóra Vegna meints höfuðhöggs - Varðstjór- inn segir jboð uppspuna oð hann hafi barið bilstjórann LEIGUBÍLSTJÓRI einn hefur kært til Sakadóms Reykjavíkur vegna höggs, sem hann telur sig hafa orðið fyrir af hendi Sigurð- ar Ágústssonar, varðstjóra í um- ferðarlögreglunni, sl. laugardags morgun á Hverfisgötu, er til deUu kom á milli þeirra vegna stöðu leigubílsins vinstra megin götunnar, en þar er ólöglegt að leggja bílum. Telur leigubílstjór- iinn að Sigurður hafi barið sig undir stýri. Sigurður Ágústsson *. heldur því hins vegar fram, í viðtali við Mbl., að maðurinn hafi þráfaldlega neitað að flytja bilinn eða víkja úr sæti þannig að Sigurður gæti sjálfur flutt hann. Segir Sigurður þá að hann hafi ýtt á öxl mannsins, en hend- in runnið af henni, og sektarbók, sem í henni var, hafi skollið á kinn mannsins. Kveður Sigurður það algjör ósannindi að hann hafi greitt bilstjóranum höfuð- högg. Framburður bílstjórans Samkvæmt því, sem fram mun hafa komið af framburði leigu- bílstjórans, Kjartans Pálssonar, var á laugardagsmorguninn pant aður bíll frá Steindóri að hár- greiðslustofu einni hér í bæ, og fór Kjartan þangað. Þar tók hann konu upp í bílinn og ók henni í hús á Laugavegi og sótti nokkur hárgreiðslutæki. Var síðan ekið aftur að hárgreiðslustofunni, og bar Kjartan tækin þangað inn. Segist Kjartan síðan hafa sezt upp í bíl sinn og beðið eftir kon- unni, sem sagt hefði að hún mundi koma að vörmu spori. Seg- ir Kjartan siðan að þar hafi bor- ið að Sigurð Ágústsson, og hafi hann skipað sér að fara tafar- laust burtu með bílinn. Kjartan kveðst þá hafa sagt honum að hann biði eftir farþega, sem væri í þann veg að koma, en ekkert bílastæði væri laust í nágrenn- inu. Síðan hafi Sigurður sezt upp í bílinn og sagzt sjálfur mundi færa hann ef Kjartan gerði það ekki. Drap þá Kjartan á bílnum, en segir að Sigurður hafi ræst hann aftur. Segir Kjart- an að Sigurður hafi síðan greitt sér þungt höfuðhögg, og kastað sér út, ekið bílnum burtu og læst honum. Fór Kjartan þá á slysa- varðstofuna og fékk vottorð um að bólga væri á kinn hans og gagnauga. Hefur hann kært mál- ið eins og fyrr greinir. IJmmæli Sigurðar Ágústssonar Mbl. átti í gær tal við Sigurð Ágústsson, og bað hann segja sína hlið á málinu. Sagðist hon- um svo frá: „Á laugardagsmorguninn var ég einn á ferð í lögreglubíl um ** Hverfisgötu. Við húsið nr. 37 á Hverfisgötu, á horni Klapparstígs sá ég hvar stóð mannlaus leigu- bíll á vinstri vegarbrún, að nokkru leyti upp á gangstétt, en þarna er að sjálfsögðu ólöglegt að leggja, og sjaldgæft að lög- reglan sjái bílum þannig lagt á þessum stað. Hinu megin götunnar stóð röð ökutækja við stöðumæla, og ut- an á þeirri röð var ólöglega lagt stórum vörubíl, skáhallt frá leigu bilnum, og lokuðu þessir tveir ' bilar götunni svo að mér tókst naumlega að koma lögreglubíln- um á milli þeirra. Ók ég síðan inn^ Hverfisgötu þar til ég fann stæði, og gekk til baka til þess að leysa þennan umferðarhnút. Er ég kom á staðinn, var leigu- bíllinn enn mannlaus, svo ég svipaðist um eftir bílstjóranum í nágrenninu, en sá engan, sem ég taldi líklegan. Tók ég þá að skrifa sektarmiða, og var að því er út snaraðist leigubílstjórinn og sezt inn í bílinn. Kallaði hann til mín á ferðinni hæðnisorð á þann veg, að mér mundi ekki takast að gera mér mat úr eþssu, því að hann hafi verið að af- greiða bílinn þarna. Kallaði bíl- stjórinn mig m.a. helvítis fífl, sem alltaf væri á eftir ökumöxm- um, og léti þá aldrei í friði. Ég gekk þá til og settist í framsætið við hlið ökumanns, og bað hann um að aka af stað og leggja bíln- um þar sem rýmra væri, því að ætti eftir að ljúka við að skrifa sektarmiðann, og fá fyllri upplýs- ingar um hvernig á því stæði að billinn hefði verið þarna mann- laus. Bílstjórinn neitaði að aka af stað. Ég ítrekaði þá fyrirskip- un mína, en hann neitaði eigi að síður. Sagði ég honum þá að hann yrði að fara úr bílnum og ég mundi færa hann sjálfur, en þessu neitaði hann einnig. Ætlaði bílstjórinn síðan að taka lykilinn úr bílnum, en ég varð fyrri til og náði honum. Þar sem maðurinn sýndi ekkert fararsnið á sér úr bílnum, reyndi ég að ýta honum til hliðar og ítrekaði enn skipunina um að hann yrði að fara frá. Höndin skrapp af öxlinni Ég var með bíllykilinn í ann- ari hendi en sektarbókina í hinni. — Ég ýtti ennþá ákveðið á öxl mannsins, en hann var í þunnri peysu. Rann hendin til á peys- unni þannig að sektarbókin skall á kinn mannsins. Ég neita því algjörlega og ákveðið að ég hafi barið manninn. Þrátt fyrir þetta hreyfði bíl- stjórinn sig ekki úr bílnum, og fór ég þá út til þess að kalla.á vegfacanda til þess að yrði vitni að því að maðurinn neitaði að hlýða, en í því vindur bílstjórinn sér út og hrópar til vegfarand- ans: — Sástu þegar hann sló mig! Þegar bílstjórinn snaraðist út sá ég mér leik á borði, settist inn í bílinn, og ók honum á brott á bílastæði. Síðan kom ég til baka og fór að huga að vörubílnum, sem enn stóð þarna ólöglega. Settist ég upp í hann og tók að skrifa sektarmiða. Kom þá leigu- bílstjórinn aftur að, og jós yfir mig formælingum og heitingum, og eru að því tvö vitni. Litlu síð- ar bar að ökumann vörubílsins og ók ég é brott með honum. Bílinn afhenti ég síðan eig- anda, Bifreiðastöð Steindórs," sagði Sigurður Ágústsson að lok- UM TVÖ-LEYTIÐ í fyrrinótt fékk Reykjavíkurtogarinn Hallveig Fróffadóttir tundur- dufl í vörpuna, þar sem skip- iff var aff veiffum út af Staf- Tundurdufl í vörpuna nesl. Vissu skipsmenn ekki fyrr til en dufliff skall á þil- fariff. Skipiff, sem hafffi ver- iff tæpan hálfan mánuff á veiff um, hélt þegar til Reykjavík- ur og kom hingaff á ytri höfn ina í morgun. Þar kom eftir- litsmaffur landhelgisgæzlunn- ar, Gunnar Gíslason, um borð og tók við tundurduflinu til að gera þaff óvirkt. Var þaff þýzkt, orffiff slitið sem skilj- anlegt er, en samt var skotið enn heilt. Halldór Ingi Hallgrímsson, . sem var skipstjóri á Hall- veigu Fróffadóttur í þessari ferð, tjáffi blaðinu í gær aff mikil hætta stafaði af þess- um tuflum og ekki um ann- aff gera en aff halda strax til hafnar, þegar þau kæmu meff í vörpunni. Myndin sýnir Gunnar Gisla son hjá tundurduflinu. er hann gerffi óvirkt i gær. (Ljósm. Sv. Þ.) Hægt aö verzla í hverju hverfi til kl. 10 á kvöldin nema á hátíöum Tillögur um breytingar opnunartíma tyrir borgarstjórn á fimmtudag TILLÖGUR þeirra Páls Líndals I breyttan lokunartíma sölubúða og Sigurðar Magnússonar um' í Reykjavík koma fyrir bæjar- Hugðist skjóta veiðibjöllur með rifflinum Æskulýðsfylkingarmaður hrækti á bifreið Johnsons f GÆRMORGUN ynrheyrffi rann sóknarlögreglan mann þann, sem um hádegisbiliff á mánudag var handtekinn á Lækjartorgi með sjálfvirkan (automatiskan) riffil í poka um þaff leyti aff Lyndon B. Johnson, varaforseti, dvaldist i Stjórnarráffinu. Beindist athygli lögreglunnar aff manninum er hann gekk að bíl varaforsetans og hrækti á hann. Maffur þessi er meðlimur hinnar svonefndu „Æskulýðshreyfingar" kommún- ista og frá Akranesi. Maðurinn er 26 ára gamall, og fékk hann byssuna hjá lög- regluhni á Akranesi 5. septem- ber sl. undir því yfirskini að hann ætlaði að nota hana til þess að skjóta veiðibjöllur. Hef- ur byssan verið i vörziu Akranes lögreglunnar í nokkur ár, og sagði piltur þessi við yfirheyrslu að strákar hefðu stolið henni, en lögreglan tekið byssuna af þeim. Mun hún ættuð úr flaki banda- rískrar herflugvélar, sem rakst á Akrafjall fyrir allmörgum árum, með þeim afleiðingum að allir sem í henni voru fórust. Tilefni þess að pilturinn fékk byssuna lánaða var eins og fyrr greint er að hann hygðist skjóta með henni veiðibjöllur, en hann hefur unnið ásamt öðrum manni á vegum bæjarstjórans á Akra- nesi við að útrýma veiðibjölium, refum og minkum. Pilturinn fékk eitt skot með byssunni, en hún er af hlaup- vidd 3Ö. Með hliðsjón af þessu skoti keypti hann sSotfæri i Goða borg í Reykjavík fyrir 1050 krón ur og fór með skotin að Hvols- læk í Hálsasveit, þar sem hann hefur unnið að undanförnu. Eru skotin þar ennþá, og ekkert skot var í fórum mannsins er hann var handtekinn á Lækjartorgi. Pilturinn bar við yfirheyrzlu í gær að Akraneslögreglan hefði tjáð sér að byssan færi ekki al- veg rétt með, og hefði hann einnig talið sig sjá að sigti henn- ar væri skakkt. Hafi hann því farið með byssuna til Reykjavík- ur á mánudag til þess að tala við afgréiðslumann í Goðaborg um viðgerð. Ekki kvaðst hann hafa komið með byssuna á Lækj- artorg í sambandi við komu vara forsetans, en lét þess hinsvegar getið við yfirheyrsluna að hann væri „mjög mótfallinn dvöl bandaríska varnarliðsins hér á landi“ og ekki getað stillt sig um að hrækja á bandaríska fán- ann á bíl Johnsons varaforseta til þess að láta andúð sína í ljósi! Kvaðst hann einning hafa haft í hyggju að skipa sér síðar um daginn í hóp þann, sem stóð und- ir mótmælaveifum við Hótel Sögu. Ekki varð þó af því af eðlilegum ástæðum, því piltur var sottur í gæzlu. stjórnarfund næstk. fimmtudag og verða til annarrar umræðu og væntanlega afgreiddar. Hafa þeir lagt fram breytingartillögur á upphaflegu tillögunum með til liti til umsagna bæjarfulltrúa og eru enn aff vinna úr tillögum sem fram hafa komið. Var um þetta bæjarráðsfundur í gær. Þá hefur veriff afhentur bunki af undirskriftum, sem safnaff hefur veriff af þeim sem reka kvöldsöl- ur, þar sem mótmælt er „þjón- ustuskeringu viff almenning“. Þar sem nú er orðið erfitt að átta sig á hvað í rauninni er um að ræða í þeim tillögum, sem Iagðar verða fyrir bæjarstjórn, áttu þeir Páll og Sigurður tal við fréttamenn í gær, og skýrðu málið að nokkru. Af þeim skýr- ingum sem hér fara á eftir sést að lagt er til að hægt sé í hverju hverfi að komast í búðir, sem verði opnar á víxl, til kl. 10 á hverju kvöldi nema á stórhátíð- um og þá fá nær allan varning. Og telja þeir að með því sé hag neytenda betur borigð, en þó þeir geti fengið sumar vörur um lúgu til kl. 11.30. Aftur á móti verði allri sölu hætt þá nema í biðskýlum strætisvagna, sem vegna þjónustu sinnar verðl opin til kl. 1.30. Fer hér á eftir greinargerð þeirra: ÖUum verzlunum leyfff opnun til kl. 10 „í ýmsum blaðagreinum und- anfarna daga, þar sem gagnrýnd ar eru tillögur þær um afgreiðsiu tíma verzlana í Reykjavík o. fL, Framh. á bls. 15.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.