Morgunblaðið - 01.10.1963, Blaðsíða 22
29.
MORGUNQLAÐIÐ
T>riðjudagur 1. olct' 1963
KR vann ÍBK eftir 85 mín. harða baráttu
Keflvíkingar
Ijón gegn ísl.
ISLANDSMEISTURUM TCR og
bikarmeisturum frá síðasta ári
tókst 28 mín. fyrir leikslok að
jafna leikinn við ákafa og æsta
Keflvíkinga og 6 mín. fyrir
leikslok tókst íslandsmeisturun-
um að tryggja sigurinn. Allan
tímann var barizt ákafar og af
meiri æsingu en þekkzt hefur
utt langt skeið í forareðju Mal-
arvallarins eins og hún getur
verst orðið svo að leikfært sé. En
það fór ekki á milli mála að það
liðið sem leikið hafði betri
knattspyrnu fór með sigur af
hólmi. En það fór ekki framhjá
neinum að Keflvíkingar ætluðu
sér að vinna, eða selja sig dýrt,
og það gerðu þeir svo sannar-
lega með krafti og á stundum
meiri ákefð en góðu hófi
gegndi. Barátta liðsins í heild
var dæmi um það hvernig lið
getur magnast að kyngikrafti
þegar sigurs er von.
Það var ósvikin bikarstemn-
ing meðal leikmanna og áhorf-
enda í byrjun og hélzt raunar
allt til loka því leikurinn var
þrunginn spenningi. Sú stemn-
ing var þó skemmd er á leið af
einum manni í stúkunni
KR byrjaði af fullum krafti
og eftir 3 mín. lá knötturinn í
neti ÍBK. Það var eftir að auka-
spyrna var tekin á vallarmiðju,
gefið var út á hægri kant til
Gunnars Fel., sem sendi fyrir,
tveim varnarmönnum ÍBK mis-
tókst og Ellert stóð einn Og ó-
valdaður með knöttinn og af-
greiddi örugglega í netið.
3 mín. siðar skorar Ellert aft-
ur, en markið er dæmt rang-
börðust, sem
meisturunum
stöðumark sem ekki skal dregið
í efa, því stúkugestir gátu engan
veginn fylgzt með því.
Á fyrsta kaflanum virtust KR-
ingar hafa tögl og hagldir í leikn
um þó Keflvíkingar berðust af
miklu og skemmtilegu fjöri.
Svona komu tvær aukaspyrn-
ur sem nýttust 100% fyrir Kefla-
vík.
íslandsmeistararnir stóðu ráð-
þrota gegn. Á 13. mín lagði h.
innherji IBK knöttinn að marki
KR úr 25 m. aukaspyrnu. Jón
Jóhannsson varð Heimi mark-
verði fyrri til og fékk ýtt í net-
ið af örstuttu færi.
★ Tvær örlagaríkar auka-
spyrnur.
Þremur mínútum síðar er aft-
ur aukaspyrna á KR af vítateigs
línu um 3 m frá endamörkum
(spyrna sem kannski hefði átt að
dæmast víti) Sig. Albertsson
framkvæmir spyrnuna, varnar-
veggur er í marki KR en boltinn
flýgur yfir alla og Heimir mark-
vörður hreyfir ekki hendi við
sendingunni og í markið flaug
boltinn ósnertur. Keflavík hafði
forystu 2—1.
Þetta breytti leiknum úr knatt
spyrnuleik í æsingaleik þar sem
ekki var hugsað um neitt nema
aukna forystu annars vegar,
hvað sem það kostaði, og hins
vegar í hefnd — að jafna og
vinna. Bæði lið urðu sek um
óhóflega grófan leik og gengu
þó Keflvíkingar þar langtum
framar, enda var meirihluti auka
spyrna dæmdur á þá og átti þó
dómarinn ekki sjö dagana sæla.
Ellert skorar hér sigurmarkið
hans og ferð knattarins.
Vaxandi spenningur.
í síðari hálfleik var spenning-
urinn vaxandi. Mínúturnar liðu
og Keflavík hafði forystu. Aldrei
fór þó liðið allt í vörn heldur
lék allan tímann sömu leikað-
ferð, að vera fljótir á knöttinn,
eyðileggja spil KR og láta ein-
AKURNESINGAR gersigruðu
Valsmenn í undanúrslitum Bik-
arkeppninnar og „flugu“ inn í
úrslitaleikinn, létt, leikandi og
mjög verðskuldað. Næstum í
hvaða leikstöðu sem var báru
Akurnesingar af Valsmönnum.
Þó var leikurinn aldrei nema í
staklinga sína um að reyna að
skora, án sameiginlegs átaks.
Á 11. mín. sendi KR boltann í
net IBK en það var dæmt ógilt
vegna hendi.
Á 17. mín jöfnðu KR-ingar
löglega. Aukaspyrna var tekin á
vitateig IBK, spilað í teig þeirra,
nokkrum upphlaupum sem
Skagamenn áttu, hraður. Þetta
var „gönguknattspyrna“ en allt
sem sýnt var af góðri knatt-
spyrnu sýndu Akurnesingar og
6 sinnum renndu þeir knettinum
í net Vals móti 1 svarmarki
undir lokin. Ef úrslitin hefðu
átt að vera önnur þá væri það
fleiri mörk Akranesmegin á
reikningnum.
Fyrsti stundarfjórðungurinn
var jafn en þá átti Ingvar skot
í stöng Valsmarksins. Það var
eins og fyrirboði. Á 20. mín lék
Þórður Þórðar upp kantinn, gaf
inn á til Skúla sem sendi vel
fyrir mark og Irigvar var vel
á verði og skallaði í netið.
Þremur mín. síðar lék Ingvar
upp kantinn, gaf inn á til Skúla
sem að vísu var rangstæður, en
með því fylgdist línuvörður
ekki og Skúli renndi knettinum
framhjá Björgvin markverði.
Þessum tveimur mörkum svör
uðu Valsmenn með heldur lin-
Gunnar Fel sendi til Ellerts og
Ellert skoraði örugglega með
föstu skoti.
Síðan komu æsandi augnablik
við bæði mörkin. Bjarni Fel.
bjargaði á síðustu stundu er h.
útherji var kominn einn ínn-
Framh. á bls. 23
um upphlaupum og áttu nokkur
háskot og skalla að marki Akra
ness sem Helgi tók stundum
létt, stundum naumlega en allt
af öryggi.
Á 39. mín skoraði Þórður
Þórðarson þriðja markið úr
skáfæri og kom varnarmaður
Vals síðast við knöttinn en fékk
ekki bjargað.
Fjórða markinu var bætt við
fyrir hlé. Skúli Hákonar einlék
upp allan kantinn hægra megin
og sendi vel fyrir. Þórður var
þar fyrir og afgreiddi knöttinn
með laglegri sneiðing með höfði
í markið.
Reyndar var með 4—0 í fyrri
hálfleik gert út um leikinn, en
Skagamenn áttu af og til þessar
snörpu sóknartilraunir sem
sköpuðust ekki sízt með hreyf-
anleik Þórðar miðherja ýmist
út til vinstri eða hægri. Rauf
það vörn Valsmanna algjörlega.
Skagamenn bættu tveim mörk-
um við á svipaðan hátt með
kantspili og hreyfanleik. Þórður
einlék upp kantinn á 19. mín-
og skaut einu af sínum snöggu
og óvæntu skotum sem sjást
ekki í ísl. knattspyrnu í dag
Framh. á bls. 2.
Akurnesingar tóku spretti
og unnu Val 6:1
Nýliðarnir í 1. deild: Eysteinn Guðmundsson, fyrirliði, Ómar Magnússon, Ólafur Brynjólfsson, Jón Björgvinsson, Eyjólfur Magnússon, Guttormur Ólafsson,
Helgi Árnason, Axel Axelsson, Haukur Þorvaldsson, Jens Karlsson, Þorvariur Björnsson, Simoniy Gabor, þjálfari liðsins.
Þróttur í 1. deild
ÚRSLITALEIKURINN i II. deild
milli Þróttar og Breiðabliks for
fram á grasvellinum í Ytri-Njarð
vik á laugardag og endaði með
stórsigri Þróttar. Það má helzt
likja þessum leik við leik katt-
arins og músarinnar. Yfirburðir
Þróttar voru slíkir að það verð-
ur að teljast átakanlegt að svo
•jaín leikur skuli ráða úrslitum
um hver hreppir sæti í fyrstu
deild árið 1964.
Við manni blasir sú óhugnan-
lega staðreynd að breiddina
vantar algjörlega í íslenzka
knattspyrnu. En við hverju er að
búast þegar litið er á aðstæð-
urnar sem þessir piltar verða að
búa við. Hvorugt þessara félaga
á eigin æfingavöll og úrslitaleik
urinn í deildinni verður að flytja
úr höfuðborginn og suður a
Reykjanes.
En snúum okkur að leiknum
sjálfum. Þróttur hóf sókn þegar
á fyrstu mínútu og á 3. mín.
átti Haukur stangarskot af 25
metra færi. Fjórum mín. síðar
einlék Axel upp að endamörk-
um og gaf fyrir til Hauks, sem
var vel staðsettur og afgreiddi
knöttinn í netið.
Á 9. mín. tók Þróttur auka-
spyrnu af hægri kanti. 30 metra
skot sem markvörður Breiða-
bliks hálfvarði, en, missti knött-
inn fyrir fætur Hauks, sem skor
aði auðveldlega. Og þannig
komu mörkin á færibandi, en
voru þó of fá miðað við ótelj-
andi tækifæri, sem Þróttur mis-
notaði. Stangarskotin voru alls
5 í leiknum, en tvö markanna
komu úr vítaspyrnu er dæmdar
voru vegna hendi.
Haukur skoraði 3 mörk, Axel
2, Ómar 2 og Þorvarður og Jena
sitt markið hvor.
Breiðablik komst tvisvar I
leiknum í sæmileg marktæki-
færi, en mistókst í bæði skiptin.
Leikmenn Þróttar áttu flestir
góðan dag, enda auðvelt að kom-
ast í „stuð“ gegn jafn veikum
andstæðingi. í liði Breiðablikj
sýndi Reynir að hann væri lið-
gengur í hvaða I. deildar lið sem
er. — BÞ.