Morgunblaðið - 09.10.1963, Side 12
12
MORCU N BLAÐID
Miðvikudagur 9. október 1964
Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 80.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 4.00 eintakió.
LYST YFIR STRIÐI!
Fréttir frá Sameinuðu Þjóðunum:
6000 hitaeiningar á dag
án æðakölkunar
¥?ftir alþingiskosningarnar í
sumar lýstu kommúnist-
ar því yfir að þeir myndu
hefja „stríð“ gegn áframhald-
andi framkvæmd viðreisnar-
stefnunnar. Kommúnistar og
stjórnarandstöðuflokkamir
höfðu orðið undir í kosning-
unum. Þeir sáu fram á að
Viðreisnarstjórnin myndi
sitja áfram í skjóli öruggs
meirihlutafylgis meðal þings
og þjóðar. Þá var það sem for-
maður hins svokallaða „Al-
þýðubandalags“ kommúnista
gaf eftirfarandi yfirlýsingu í
útvarp:
„Viðreisnarflokkamir hafa
nú tilkynnt þjóðinni að við-
reisninni verði áframhaldið.
Þeirri stefnu er Alþýðubanda
lagið og verkalýðssamtökin
andvíg í grundvallaratriðum.
Þeirri stefnu viljum við
hnekkja. Þess vegna boðar
Alþýðubandalagið nú stríð
en ekki frið, og það veit, að
viðreisninni verður hnekkt.“
Þessi stríðsyfirlýsing hins
óvitra og flasfengna komm-
únistaforingja vakti andúð
yfirgnæfandi meirihluta þjóð
arinnar. Jafnvel kommúnist-
arnir sjálfir skömmuðust sín
fyrir hana og töldu hana glap-
ræði. íslenzka þjóðin hafði
kveðið upp dóm sinn á kjör-
degi með lýðræðislegum
hætti. Hún hafði vottað Við-
reisnarstjórninni eindregið
traust. Hún hlaut nær 56%
atkvæða og öruggan þing-
meirihluta.
Það sem í raun og veru
fólst í yfirlýsingu kommún-
istaleiðtogans, sem jafnframt
er forseti Alþýðusambands
Islands var, að verkalýðssam
tökin skyldu notuð í ennþá
ríkari mæli en áður til þess
að heyja stríð gegn efnahags-
málastefnu löglega kjörinnar
ríkisstjórnar, er nýlega hafði
fengið ótvíræða traustsyfir-
lýsingu í almennum lýðræð-
islegum kosningum.
★
Stríðsyfirlýsing kommún-
istaforingjans er rifjuð upp
hér nú vegna þess að blað
kommúnista birtir í gær und-
ir stórum fyrirsögnum frétt
um ályktanir, sem þing Al-
þýðusambands Norðurlands
gerði nýlega um kaupgjalds-
mál. Af þeirri ályktun verð-
ur það augljóst að kommún-
istar eru þess alráðnir að
framfylgja stríðsyfirlýsingu
Hannibals Valdimarssonar á
hendur efnahagskerfi þjóðar-
innar. í þessari yfirlýsingu er
rætt um „að óhjákvæmilegt
sé að verkalýðshreyfingin
hefji án tafar aðgerðir og
beiti öllu valdi sínu“ til þess
að knýja fram vilja sinn.
Eftir þetta þarf ekki að
fara í neinar grafgötur um
það, hvað kommúnistar hyggj
ast fyrir. Þeir ætla að hefja
það „stríð“ sem forseti Al-
þýðusambandsins boðaði í út-
varpsávarpi sínu eftir að
kommúnistar höfðu beðið ó-
sigur í alþingiskosningunum
á sl. sumri. Nú á að beita
verkalýðshreyfingunni enn
einu sinni til pólitískra
hermdarverka í þágu komm-
únistaflokksins.
Hér er um svo alvarlegt
mál að ræða að fyllsta ástæða
er til þess að þjóðin átti sig á
því, hvað hér er að gerast.
Kommúnistar, sem lúta í öllu
boði og banni hins alþjóðlega
kommúnistaflokks hyggjast
beita verkalýðshreyfingunni
á íslandi til þess að brjóta
niður efnahagsmálastefnu á-
byrgrar ríkisstjórnar, sem
nýtur stuðnings mikils meiri-
hluta 'þjóðarinnar.
FRAMSÖKN ELTIR
KOMMÚNISTA
ún látum vera þótt deild
^ hins alþjóðlega komm-
únistaflokks hér á landi boði
stríð á hendur efnahagskerfi
þjóðarinnar. íslendingar hafa
alltaf vitað að kommúnistar
eiga það mark háleitast að
grafa undan hinu íslenzka
þjóðfélagi og stuðla að hruni
og upplausn. Hitt er miklu
alvarlegra ef fjölmennur lýð-
ræðisflokkur eins og Fram-
sóknarflokkurinn slæst í för-
ina með landráðalýðnum og
hikar ekki við að taka þátt í
herför hans gegn efnahags-
legu sjálfstæði og öryggi ís-
lenzku þjóðarinnar. Allt
bendir til þess að Framsókn-
armenn muni nú eins og jafn-
an áður síðan þeir lentu í
stjórnarandstöðu elta komm-
únista og fylgja þeim til
hvaða óhæfuverka, sem þeir
hefjast handa um gegn efna-
hagsmálastefnu núverandi
ríkisstjórnar. Framsóknar-
menn hafa undanfarin miss-
eri staðið fyrir stöðugum á-
róðri til þess að örva kapp-
hlaupið milli kaupgjalds og
verðlags og hrinda af stað
nýrri dýrtíðarskriðu. Þeir
hafa hvatt bændur til þess að
gera sem mestar kröfur um
hækkun afurðaverðsins. Síð-
an hafa þeir kennt ríkisstjórn
inni þá auknu dýrtíð sem leitt
hefur af hvoru tveggja, hækk
MAÐUR sem að heita má ein-
göngu nærist á úlfaldamjólk (5-
10 lítrar á daglega) og fær rúm-
lega 6000 hitaeiningar (2880 hita
einingar er talið eðlilegt magn á
dag) ætti að þjást af þeim sjúk-
dómum, sem settir eru í samb-
and við slíka ofneyzlu hitaein-
inga, og þá fyrst og fremst hjarta
sjúkdómum. Sú er samt ekki
raunin um hirðingjana á sléttum
Sómalíu, segir í tímariti Alþjóða
heilbrigðismálastofnunarinnar,
„WHO CHRONICLE“. Rann-
sóknir hafa þvert á móti leitt í
ljós, að hjarta- og æðasjúkdómar
eru afar sjaldgjæfir.
Þessir hirðingjar á hinum
hrjóstrugu sléttum í Sómalíu fást
fyrst og fremst við úlfaldarækt
Þeir eru há-vaxnir og magrir og
einstaklega þolgóðir. Talið er að
þetta eigi rætur sínar að rekja til
þess, að þeir eru sambland af sem
ítískum (arabískum) og blökku-
manna- (bantu) kynstofnum.
Fæða þeirra er fyrst og fremst
úlfaldamjólk, sem þeir drekka
þegar þeir eru hungraðir eða
svangir, og hafa enga ákveðna
matmálstíma. Úlfaldamjólk er ná
lega helmingi feitari en kúa-
mjólk-
Sé reiknað með 5 litrum af
mjólk (margir drekka allt upp
í 10 lítra) auk þeirra 200-250 gr.
af sykri sem þeir nota út í teið
sitt, þá er dagleg hitaeininga-
neyzla hjá þeim 6200.
Samkvæmt athugunum, sem
gerðar hafa verið í háþróuðum
löndum, ætti slíkt mataræði að
hafa skaðlegar afleiðingar, ma.
leiða af sér æðasjúkdóma. Lækn-
ar við sjúkrahúsið í Mógadisciu,
höfuðborg Sómalíu, skýra hins
vegar frá því að slíkir sjúkdómar
séu mjög sjaldgæfir.
Hópur vísindamanna, sem sent
hafa frá sér skýrslu á vegum
Aliþjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar, hefur ransakað 203 hirð-
ingja á aldrinum 11-70 ára.Þessir
vísindamenn komust ma. að raun
um , að hjartaæðar virtust ekki
hafa nein sjúkdómseinkenni.
Vísindamennirnir reikna með því
að á mörgum öldum hafi átt sér
stað aðlögun þessa fólks að hin-
um mjög svo sérstæðu lífsskilyrð
um. Þeir benda á að svipuð skil-
yrði séu meðal eskimóa, sem einn
ig eti mikið af fitu.
Þetta fóik verður ekki fyrir
þeim óteljandi sálrænu trufl-
unum sem hafa áhrif á líkams-
starfsemina og eru svo algengar
meðal fólks í borgum eða þétt-
býli. Þessi staðreynd varpar ljósi
á . sambandið milli sálrænna
áhrifa og hjartasjúkdóma, segir
í tímaritinu
un kaupgjaldsins og afurða-
verðsins. Aldrei hefur nokk-
ur stjórnmálaflokkur komið
fram af eins taumlausu á-
byrgðarleysi og Framsóknar-
flokkurinn undanfarin miss-
eri.
En á sama hátt og stjórnar,-
andstaðan fann kulda almenn
ingsálitsins gagnvart stríðs-
yfirlýsingu Hannibals Valde-
marssonar eftir alþingiskosn-
ingarnar mun tætingsliðið,
sem nú berst fyrir verðbólgu
og upplausn, verða þess vart
HJÁLP SÞ. OG SÉRSTOFN-
ANA ÞEIRRA VIÐ ÞRÓUNAR
LÖNDIN
Sameinuðu þjóðirnar og sér-
stofnanir þeirra hafa á þessu
áxi lagt fram 350 miiljónir doll-
ara til hjálpar aðildarríkjum sín
um í viðleitni þeirra við að bæta
efnahagslegt og félagslegt ástand
sitt, segir.í uppgjöri sem lokið
var við á dögunum. Nær 85 af
hundraði starfsliðsins í hinum
ýmsu stofnunum SÞ. fjalla ein-
göngu um þessi mál, og hlut-
fallsleg skipting fjármagnsins er
svipuð.
Rúmlega 150 lönd og svæði
sóttu í fyrra um hjálp frá ein-
hverri stofnun Sameinuðu þjóð-
anna, ýmist um aðstoð sérfræð-
inga, námsstyrki, lán eða tæki
og verkfæri. í flestum þessara
landa er efnahagsástandið þannig
að meðalárslaun eru kringum
4000 ísl. krónur
Þær 350 milljónir dollara, sem
að ofan getur eru bæði skyldu-
framlög og frjáls framlög. Tæpur
helmingur upphæðarinnar er á
fjárlögum hinna ýmsu sérstofn-
ana og efnahags- og félagsmála-
deildar Smeinuðu þjóðnna sjálf-
ra. Allt hitt er frjáls framlög ým-
issa stofnana, svo sem Barna-
hjálpar SÞ. Framkvæmdasjóð-
sins, Tæknihjálparinnar og ann-
arra stofnana.
í upphæðinni eru ekki falin
lán og fjárfestingar fiá Alþjóða
bankanum og stofnun hans né
heldur hjálp sem hjálpþegar
greiða sjálfir. Nefna má að á
síðasta starfsári lánaði Alþjóða-
bankinn 448 milljónir dollara.
Úr áðurnefndu uppgjöri SÞ.
má ma. fá eftirfarandi upplýs-
ingar:
Starfsemi Sameinuðu- þjóð-
anna sjálfrar: Efnahags- og
félagsmáladeild SÞ. safnar og
dreifir upplýsingum og . eflir og
leiðbeinir hina alþjóðlegu við-
leitni á eftirfarandi sviðum:
efling og þróun iðnaðar, náttúru-
auðlindir og samgöngutæki, hag
skýrslur og opinber rekstur, vel-
ferðarstarfsemi, húsnæðisvanda-
mál og önnur félagsleg verkefni
Skrifstofa fyrir tæknihjálp ann-
ast þá hjálp, sem aðildarríkjun-
um er látið í té á þessum sviðum
og einnig þegar um er að ræða
mannréttindi og baráttu við eitur
lyf. Fjárhagsáætlunin er 32 mill-
jónir dollara
ILO. Alþjóðavinnumálastofnun-
in aðstoðar ríkin við lausn vanda
mála á vinnumarkaðinum, m.a.
í sambandi við iðnmenntun,
tryggingar og skipulagningu
vinnuafls. Fjárhagsáætlun: 14
milljónir dollara.
FAO. Matvæla- og landbúnað
að íslenzkur almenningur fyr
irlítur atferli þess. íslending-
ar vilja ekki að ný dýrtíðar-
alda flæði um allar gáttir
þjóðfélags þeirra. Þeir vilja
heldur ekki að þjóðin glati
lánstrausti sínu út á við og að
höft og innflutningshömlur
móti á ný svip viðskiptalífs-
ins. Þessvegna munu allir á-
byrgir íslendingar skipa sér í
órofafylkingu til baráttu fyr-
ir efnahagslegu jafnvægi og
áframhaldandi framförum og
uppbyggingu í þjóðfélaginu.
arstofnun SÞ. fjallar um land-
búnað, fiskveiðar, skógrækt, nær
ingarvandamál o. s. frv., ekki
sízt í sambandi við hina víðtæku
herferð sína „Frelsi.undan sulti“.
Fjárhagsáætlun: 31 milljón doll-
arar.
UNESCO. Menningar- og vís
indastofnun SÞ. hefur mörg meg
inverkefni, og eru meðal þeirra
það verkefni að bæta lífskjöria
á hinu þurra svæði frá Nörður-
Afríku til Suður-Asíu og hitt að
kOma öllum börnum Mið- og
Suður-Ameríku í skóla, áður en
áratugur er liðinn. Fjánhagsáætl
un: 41 milljón dollara.
ICAO. Alþjóðaflugmálastofn-
unin vinnur að eflingu öryggis
í flugmálum, sams konar flugum
ferðarreglum og beitingu nýj-
ustu tækni. Fjárhagsáætlun: 5
milljónir dollara.
WHO. Alþjóðaheilbrigðismála
stofnunin veitir ríkjum aðstoð í
viðleitninni við að koma á eða
bæta eigið heilbrigðiseftirlit og
í baráttunni við hverskonar sjúk
dóma, ekki sízt farsóttir. Fjár-
hagsáætlun: 33 milljónir doll-
ara.
ITU. Alþjóðafjarskiptasam-
bandið vinnur að eflingu og út
breiðslu útvarps, síma og ann-
arra fjarskiptatækja. Fjárhags-
áætlun: 3 milljónir dollara.
WMO. Alþjóðaveðurfræðí-
stofnunin vinnur að því að koma
á samfelldu neti veðurathugun
arstöðva um heim allan. Fjár-
hagsáætlun: 0,9 milljón dollara.
IAEA. Alþjóðakjarnorkumála-
stofnunin fjallar um hagnýtingu
kjarnorkunnar í þágu friðarins.
Fjárhagsáætlun: 9 milljónir doll
ara’.
UPU. Alþjóðapóstmálasam-
bandið vinnur að eflingu alþjóða
samstarfs á sviði póstmála. Fjár-
hagsáætlun: 1 milljón dollarar.
IMCO. Alþjóðasiglingamála-
stofnunin stuðlar að samvinnu
ríkja á milli og gagnkvæmum
skiptúm á upplýsingum, sem
varða siglingar. Fjárhagsáætlun:
0,9 milljón dollarar.
Samvinnustofnanir eða sjóðir.
Hin samvirka tækniaðstoð
(EPTA), Framkvæmdastjóður-
inn, Alþjóðamatvælasjóðurinn,
og Barnahjálpin (UNICEF) reka
ekki sjálfstæða starfsemi. Þetta
eru samvinnustofnanir eða sjóð
ir, sem leggja fram fé og starfa
krafta, en verkefnin eru leyst
af Sameinuðu þjóðunum eða sér
stofnunum þeirra. Fjárhagsáætl
anir. EPTA 50 milljón dollarar,
Framkvæmdasjóðurinn 72 millj.
Matvælasjóðurinn 30 millj. og
Barnahjálpin 33 milljónir doll-
ara.
Stríðsyfirlýsingar kommún-
ista eiga engan hljómgrunn
hjá þorra íslendinga.
Framsóknarflokkurinn má
líka vara sig á því að halda
áfram að elta hinn Moskvu-
stýrða kommúnistaflokk. —
Ennþá er margt lýðræðissinn
að fólk innan hans, sem ekki
vill láta nota stjórnmálasam-
tök sín til þess að höggva ný
skörð í íslenzka krónu og
leiða sama öngþveitið yfir ís-
lenzku þjóðina og Vinstri
stjórnin gerði á sínum tíma.