Morgunblaðið - 01.11.1963, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.11.1963, Blaðsíða 22
22 MORCUNBLAÐIÐ 1 Föstudagur 1. nóv. 1963 Styrmir Gunnarsson formaöur Heimdallar Á VEL sóttum aðalfundí Heim- dallar, félags ungra Sjálfstæðis- manna, í gærkvöldi var Styrmir Gunnarsson stud. jur. einróma kjörinn formaður félagsins. Hann ávarpaði fundarmenn í lok fund- arins og þakkaði það traust, sem honum og meðstjórnendum hans var sýnt, jafnframt sem hann talaði hvatningarorð til fundar- manna. Þá þakkaði hann Bjarna Beinteinssyni fyrir góð og mikil störf í þágu félagsins. Bjarni Beinteinsson, fráfarandi formaður Heimdallar, setti fund- inn og skipaði Birgi ísleif Gunn- arsson fundarstjóra, en fundar- ritari var Steinn Lárusson. Síðan flutti Bjarni Beinteinsson skýrslu yfir starfsemi félagsins sl. ár, sem var í senn fjölþætt og kraft- mikið. Þá gerði Páll Stefánsson, — Aldarminning Framh. af bls. 21 játning sem ævi. Er nú ekki margt varðveitt af því, sem þessi velskrifandi maður hefur með penna skráð, enda prédikaði hann jafnt á „stjöttunum" sem í stóln- um og skrifaði ekki siður í hjörtu manna en á pappír. En mannshjartað er hið hverful- asta af öllu, sem unnt er að skrifa á, en þó lifa þvílík rit- verk eins og fræið, sem verður að jurt, og aðrar jurtir vaxa af henni langt út í "hina ókunnu framtíð, þó að enginn kunni að rekja þá ættartölu. Einar ÓL Sveinsson. Styrmir Gunnarsson, hinn nýkjörni form. Heimdallar. gjaldkeri fráfarandi stjórnar grein fyrir reikningum félagsins og voru þeir samþykktir. Að því loknu var gengið til stjórnarkjörs og skipa eftirtald- ir menn nú stjóm Heimdallar auk Styrmis Gunnarssonar. Ás- geir Thoroddsen, Eggert Hauks- son, Halldór Runólfsson, Jón Magnússon, Már Gunnarsson, Ragnar Kjartansson, Sigurður Hafstein, Steinar Berg Bjömsson, Sverrir H. Gunnlaugsson, Valur Valsson og Vilborg Bjamadóttir, í>á voru 55 menn kjörnir í full- trúaráð og loks tveir endurskoð- endur, Kristján Ragnarseon og Páll Stefánsson. Hjartanlegar þakkir til allra þeirra er sendu mér gjafir og vinarkveðjur eða minntust mín á annan hátt á sextugs afmæli mínu. Friðrik Þórðarson, Borgarnesi. Eiginkona mín og móðir okkar JÓHANNA SIGURBJÖBG SIGURÐARDÓTTIR andaðist 31. október í St. Jósefsspítala. Guðlaugur II. Gunnlaugsson, Steinþóra Guðlaugsdóttir, Gunnlaugur Guðlaugsson. Útför móður og tengdamóður okkar ÁSU J. NORÐFJÖRÐ verður gerð frá Fossvogskirkju hinn 4. nóv. kl. 10,30 f.h. Blóm vinsamiegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minn- ast hinnar látnu er bent á líknarstofnanir. Athöfninni verður útvarpað. Hilmar Norðfjörð, Stella Norðfjörð, Agnar Norðfjörð, Ingibjörg Norðfjörð, Anna Norðfjörð, Óskar Guðnason, Axel Norðfjörð, Gunnur Norðfjörð, Wilhelm Norðfjörð, Guðrún Norðfjörð. Innilegar þakkir færum við öllum, sem sýndu okkur samúð vegna fráfalls föður okkar KRISTJÁNS JÓHANNESSONAR, Ytri-Hjarðardal, Önundarfirði. Guðmundur Kristjánsson, Jóhannes Kristjónsson Hjartans þökk fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför LÚÐVÍKS GRÍMSSONAR Glerárgötu 10, Akureyri einnig innilegar þakkir til ykkar sem minntust hans með blómum og minningargjöfum. Guð blessi ykkur öll. Júlíana Tómasdóttir, Trausti Sveinsson. Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og jarðarför ÞÓRDÍSAR JÓNSDÓTTUR frá Patreksfirði. Börn, tengdabörn og barnabörn. Síldarútvegsmenn Verkstæði okkar hefur lengi gúmmísoðið á kraftblokkar- hjól ineð mjög góðum árangri Áherzla lögð á vandaða vinnu og fljóta afgreiðslu. Gúmmívinnustofan hf. Skipholti 35 Rvík Sími 18955 Alltaf fjölgor Vol kswagen VúítóéC- Jj. $ ; *í jjfo v ^1; it í4- • ?! VOLKSWAGEN - sendibíllinn er skynsamlega byggður Fyrst skulum við athuga byggingarlag hans, — en það er kassalagað. Hvaða byggingarlag er hentugra fyrir sendibíl, en einmitt það? Eru ekki kassar einmitt gerðir til pökkunar og flutnings á ýmsum varn- ingi? Það er Volkswagen Sendibíll-inn Iíka. Annað mikilsvert atriði við þetta bygging- arlag, — er þyngdar-dreifingin. Ökumað- ur frammí. — Hleðslurými á milli fram og aftur öxla, vélin afturí. Auðvitað hefði ver ið hægt að setja vélina frammí, — en þá hefði vagninn orðið of þungur að framan, og óþægilegur í akstri, þegar hann er óhlað- inn eða lítið hlaðinn. Ennfremur hefði þá ekki verið pláss frammí nema fyrir tvo í staðinn fyrir þrjá. Þá hefði einnig verið nauðsynlegt að hafa langt drifskaft frá vél og út í afturöxla, — og það er alltaf ó- skemmtilegt að þurfa að greiða fyrir orku- tap, að viðbættri dauðri vigt. Með vélina frammí minnkar spyrnan á afturhjólun- um, sérstaklega þegar ekið er í hæðóttu landslagi, blautum og ójöfnum vegi, snjó, aur, eða sandi. Heildverzlunin HEKLA hf. Laugavegi 170 — 172 — Sím 11275 Nokkrir aðrir kostir Volkswagen Sendi- bílsins eru: 1. ökumannsklefi full klæddur. 2. Læstur ræstir. 3. StiIIanlegt sæti öku- manns. 4. Bakstilling á sæti ökumanns. 5. Inniljós í ökumannsklefa. 6. Opnanleg væng-rúffa. 7. Opnanleg rennirúða. 8. Loftræstingarkerfi í klefa ökumanns. 9. Sólskyggni beggja megin. 10. Varadekks-geymsla. 11. Vængjahurðir á farang- ursrými. 12. Lúgudyr með stórum glugga að aftan. 13. Plast húnar á hurðum að innan. 14. Loftventlar. 15. Ljós í farangursrými. 16. Sjálfstæð fjöðrun á öllum hjólum. 17. Benzíntankur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.