Morgunblaðið - 11.11.1963, Page 1

Morgunblaðið - 11.11.1963, Page 1
 Aukablað 12 síður 50 árgangur 240. tbl. — Mánudagur 11. nóvember 1963 Prrntsmiðia Mo^gunhlaðsins Öllum verkföllum uflýst Tilgangi ríkisstjórnar- innar náð án þess að lögfesta þyrfti frumvarp- Íð um launamál o.fl. ÞAU ánægjulegu tíðindi hafa gerzt, að verkalýðsfélög- in hafa aflýst boðuðum vinnu stöðvunum og lýst því yfir, að ekki verði stofnað til nýrra verkfalla, a.m.k. til 10. desember n.k. yegna þessara þróunar mála hefur ríkis- stjórnin ákveðið að fresta endanlegri afgreiðslu frum- varps um launamál o.fi., enda hefur stjórnin náð þeim til- gangi sínum að stöðva kapp- hlaupið um kauphækkanir, án þess að þurfa að beita löggjöf. Frumvarp ríkisstjórnar- innar gerði ráð fyrir stöðvun kaupgjalds- og verðlagshækk ana til áramóta. Yfirlýsing verkalýðsfélaganna þýðir í rauninni hið sama, því naum- ast verður efnt til verkfalla um jólaieytið. Frestun' verk- fallanna verður notuð tii að reyna að koma á heildarsamn ingum og tryggja kjör hinna Iægst launuðu í samræmi við tilgang ríkisstjórnarinnar með frumvarpi sínu. Umræðum um frumvarp um launamál o.fl. var lokið í efri deild Alþingis s.I. laug- ardag, en atkvæðagreiðslu frestað, þannig að hægt er að lögfesta frumvarpið hvenær sem er, ef ekki yrði staðið við fyrirheitin um að koma í veg fyrir allar vinnudeilur. Kl. 3,30 s.l. laugardag gaf Óí- •fur Thors, forsætisráðherra, eftirfarandi yfirlýsingu í efri deild Alþingis: „f gærkvöldi og í dag hafa far tð fram viðræður milli ýmissa forystumanna launþegasamtaka og ríkisstjórnarinnar. Hafa þeir tjáð ríkisstjórninni að þeir muni beita sér fyrir því, að verkföll- um þeim sem nú standa yfir og þeim,. sem boðuð hafa verið, verði frestað og að ekki verði ítofnað til nýrra verkfalla a.m. k. fram til 10. desember n.k., enda verði frumvarp um launa- mál o.fl. ekki afgreitt meðan •V0 stendur. Þar sem það var megintilgang- ur þessa frumvarps að fá ráð- rúm til undirbúnings efnahags- aðgerða og til viðræðna um kjara mál, telur ríkisstjórnin að svo vöxnu máli ekki rétt að ljúka nú endanlega afgreiðslu frum- varpsins og leggur til að at- kvæðagreiðslu við þessa síðustu umræðu málsins á Alþingi verði frestað." Að lokinni þessari yfirlýsingu forsætisráðhérra kvaddi sér hljóðs Bjön Jónsson, þingmaður kommúnista, og sagði: MÉg tel ekki efni til né heppi- legt að frekari umræður fari nú fram um þetta mál. Ástæður til þess eru þær, að viðræður hafa farið fram milli fulltrúa ríkis- stjornarinnar annars vegar og forystumanna úr verkalýðssam- tökunum hins vegar ,og hafa þær borið þann árangur: 1) Að miðstjórn Alþýðusam- bands íslands og Landsnefnd verkalýðsfélaganna hafa sam- þykkt að mæla með því við þau verkalýðsfélög, sem boðuð hafa eða hafið vinnustöðvanir, að þau fresti þeim til 10. desember n. k. 2) Að afgreiðslu þessa frum- varps verði frestað jafnlangan tíma. 3) Að samningaviðræður um kjaramálin verði teknar upp nú þegar. Þar sem það hefur alltaf verið meginstefna verkalýðsihreyfing- arinnar að samningaleiðin yrði farin og svo er komið, eins og ég áður sagði, telur þingflokk- ur Alþýðubandalagsins farsæl- ast, að frekari deilur um frum- varpið hér á háttvirtu Alþingi verði látnar niður faila, meðan framangreindur gagnkvæmur frestur varir.“ Loks mælti Ólafur Jóhannes- son, þingmaður Framsóknar-' flokksins, á þessa leið: „Eins og fram hefur komið í þessum umræðum hafa Fram- sóknarmenn beitt sér éindregið gegn frumvarpi um launamál o. fl. Við höfum viljað fara samn ingaleiðina og lagt áherzlu á að sú leið yrði valin. Við Fram- sóknarmenn viljum því lýsa á- nægju okkar yfir þv, að nú virð- ist horfa svo að samningaleiðin verði farin. Með tilliti til þessa getum við fallist á að þessari umræðu sé lokið.“ Um þetta mál er rætt í rit- stjórnargreinum blaösins í dag. Lord Staniiope á strandstaðnum. Myndin var tekin úr flugvel á fimmtudag. — Ljósm. G. Zoega. Brezkur togari strandaöi við Ingólfshöfða Ahöfninni bjargað — Radarinn bilaður, týndi af fylgdarskipinu LAUST fyrir kl. hálf þrjú að- Reyndi Lord Stanhope að hafa faranótt sl. fimmtudags strand- aði brezki togarinn Lord Stan- hope H 199 frá Fleetwood á söndunum 5 km vestan við Ing- ólfshöfða. Slæmt veður var er strandið varð, stormur og él, oig var radar skipsins bilaður. Yfir 600 manns fórust í Japan — í stórslysunum tveim Tókíó, 10. nóv. AP-NTB. Nú er nokkurn veginn víst, að á sjöunda hundrað manna beið bana í slysunum miklu í Japan á laugardag. Hundruð manna hafa særzt og enn er allmargra saknað. í slysinu í Mikawa-nám- unni á Kyushu-eyju fórust a.m.k. 452 menn og fundist hafa 164 lík þeirra, er fórust í járnbrautarslysinu í bæn- um Tsurum. Talsmaður stjórnar kolanám- unnar hefur upplýst að þá, er sprengingin varð í námunni, hafi 171 námuverkamaður látizt samstundis, af þeim 1400, sem þar voru við vinnu. 379 sluppu ómeiddir með öllu og tókst að komast upp á yfirborð jarðar af sjálfsdáðum. Þegar síðast var vitað voru 420—30 menn lokaðir niðri í námunni og lítil von til að bjargað yrði nema helmingi þeirra. ic Öryggisútbúnaður með með bezta móti Talið er, að sprengingin hafi orðið um það bil 300 metra und- ir yfirborði jarðar. Eiturgasið,- sem myndaðist við hana, smaug fljótlega um mestöll námagong- in og varð fjölda manna að bana. Ekki er enn vitað, hvað sprengingunni olli -en gizkað er Framh. á bls. 11 samfylgd við annan togara, Kingston Diamond, en missti af honum í veðrinu. Björgunarsveit úr öræfum kom á vettvang um morguninn, og tókst að bjarga allri áhöfn togarans, 18 mönn- um. Ekki er talið að borgi sig að bjarga togaranum, en ýmis verð- mæti hafa þó verið fjarlægð úr honum. Bændum í Öræfum hafa fengið leyfi til þess að hirða úr honum fiskinn, um 25 tonn. Það var brezki tögarinn Kin.g- ston Diamond, sem gerði aðvart urrT strandið til Vestmannaeyja- radíós. Gerði Slysavarnafélagið þegar ráðstafanir, og fór björg- unarsveitin úr Öræfum á vett- vang. Kom hún á strandstaðinn um kl. 8 um morguminn, og hófst þegar handa um björgun- ina. Var línu skotið út í togar- ann, og áhöfnin síðan dregin í land á tveimur gúmmíbátum skipsins. Tókst björguniin giftu- samlega,- Varðskip kom einnig á vett- vang og beið átekta í því skyni að athuga möguleika á því að ná Lord Stanhope á flot. Togarinn er gamalt skip, smíðað 1935. Hef ur hann verið gerður út frá Hull, en fluttist til Fleetwood í vor. Geir Zoega, umboðsmaður brezkra togaraeigenda, gerði þeg ar ráðstafanir til að sækja áhöfn- ina, og laust eftir hádegi á fimmtudag fór Douglasflugvél frá Flugfélagi íslands austur að Fagurhólsmýri og flutti shlp- brotsmenn til Reykjavíkur. Fréttamaður Mbl. tók á móti skipbrotsmönnum á flugvellin- um. Skipstjórinn heitir George Harrison, 49 ára frá Fleetwood. Var hann hinn hressasti í bragði er hann steig út, úr flugvélinni og heilsaði fréttamanni Mbl. svo- hljóðandi: „Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég kem hér. Ég hefi tvisvar verið tekinn í land- helgi, 1958 og 1960. En í guð- anna bænum segðu ekki lögregl- un-ni frá því“. Þess má geta hér strax, að Harri-son var skipstjóri á síðasta brezka togaranum, sem teki.nn var áður en 12 mílna landhelgin gekk í gildi og þorska stríðið fræga hófst. Var hann tek inn aðeins tveimur dögum áður Framh. á bls. 6 Aðalfundur Varðar Aðalfundur Landsmálafé- lagsins Varðar verður hald- inn í kvöld kl. 20.30 í Sjálf- stæðishúsinu. ’r ' iiiiiiiffmi i 8 Auk venju- MEbS2sÍ%&- legra aðal- fundarstarfa » mun Pétur Sig urðsson alþ.m. flytja ræðu: „Viðhorfin í launamálun- um Félagar eru hvattir til að fjölmenna og sýna skírl.eini við innganginn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.