Morgunblaðið - 11.11.1963, Síða 1
Aukablað 12 síður
50 árgangur
240. tbl. — Mánudagur 11. nóvember 1963
Prrntsmiðia Mo^gunhlaðsins
Öllum verkföllum uflýst
Tilgangi ríkisstjórnar-
innar náð án þess að
lögfesta þyrfti frumvarp-
Íð um launamál o.fl.
ÞAU ánægjulegu tíðindi
hafa gerzt, að verkalýðsfélög-
in hafa aflýst boðuðum vinnu
stöðvunum og lýst því yfir,
að ekki verði stofnað til
nýrra verkfalla, a.m.k. til 10.
desember n.k. yegna þessara
þróunar mála hefur ríkis-
stjórnin ákveðið að fresta
endanlegri afgreiðslu frum-
varps um launamál o.fi., enda
hefur stjórnin náð þeim til-
gangi sínum að stöðva kapp-
hlaupið um kauphækkanir,
án þess að þurfa að beita
löggjöf.
Frumvarp ríkisstjórnar-
innar gerði ráð fyrir stöðvun
kaupgjalds- og verðlagshækk
ana til áramóta. Yfirlýsing
verkalýðsfélaganna þýðir í
rauninni hið sama, því naum-
ast verður efnt til verkfalla
um jólaieytið. Frestun' verk-
fallanna verður notuð tii að
reyna að koma á heildarsamn
ingum og tryggja kjör hinna
Iægst launuðu í samræmi við
tilgang ríkisstjórnarinnar
með frumvarpi sínu.
Umræðum um frumvarp
um launamál o.fl. var lokið
í efri deild Alþingis s.I. laug-
ardag, en atkvæðagreiðslu
frestað, þannig að hægt er að
lögfesta frumvarpið hvenær
sem er, ef ekki yrði staðið
við fyrirheitin um að koma í
veg fyrir allar vinnudeilur.
Kl. 3,30 s.l. laugardag gaf Óí-
•fur Thors, forsætisráðherra,
eftirfarandi yfirlýsingu í efri
deild Alþingis:
„f gærkvöldi og í dag hafa far
tð fram viðræður milli ýmissa
forystumanna launþegasamtaka
og ríkisstjórnarinnar. Hafa þeir
tjáð ríkisstjórninni að þeir muni
beita sér fyrir því, að verkföll-
um þeim sem nú standa yfir og
þeim,. sem boðuð hafa verið,
verði frestað og að ekki verði
ítofnað til nýrra verkfalla a.m.
k. fram til 10. desember n.k.,
enda verði frumvarp um launa-
mál o.fl. ekki afgreitt meðan
•V0 stendur.
Þar sem það var megintilgang-
ur þessa frumvarps að fá ráð-
rúm til undirbúnings efnahags-
aðgerða og til viðræðna um kjara
mál, telur ríkisstjórnin að svo
vöxnu máli ekki rétt að ljúka
nú endanlega afgreiðslu frum-
varpsins og leggur til að at-
kvæðagreiðslu við þessa síðustu
umræðu málsins á Alþingi verði
frestað."
Að lokinni þessari yfirlýsingu
forsætisráðhérra kvaddi sér
hljóðs Bjön Jónsson, þingmaður
kommúnista, og sagði:
MÉg tel ekki efni til né heppi-
legt að frekari umræður fari nú
fram um þetta mál. Ástæður til
þess eru þær, að viðræður hafa
farið fram milli fulltrúa ríkis-
stjornarinnar annars vegar og
forystumanna úr verkalýðssam-
tökunum hins vegar ,og hafa
þær borið þann árangur:
1) Að miðstjórn Alþýðusam-
bands íslands og Landsnefnd
verkalýðsfélaganna hafa sam-
þykkt að mæla með því við þau
verkalýðsfélög, sem boðuð hafa
eða hafið vinnustöðvanir, að
þau fresti þeim til 10. desember
n. k.
2) Að afgreiðslu þessa frum-
varps verði frestað jafnlangan
tíma.
3) Að samningaviðræður um
kjaramálin verði teknar upp nú
þegar.
Þar sem það hefur alltaf verið
meginstefna verkalýðsihreyfing-
arinnar að samningaleiðin yrði
farin og svo er komið, eins og
ég áður sagði, telur þingflokk-
ur Alþýðubandalagsins farsæl-
ast, að frekari deilur um frum-
varpið hér á háttvirtu Alþingi
verði látnar niður faila, meðan
framangreindur gagnkvæmur
frestur varir.“
Loks mælti Ólafur Jóhannes-
son, þingmaður Framsóknar-'
flokksins, á þessa leið:
„Eins og fram hefur komið í
þessum umræðum hafa Fram-
sóknarmenn beitt sér éindregið
gegn frumvarpi um launamál
o. fl. Við höfum viljað fara samn
ingaleiðina og lagt áherzlu á að
sú leið yrði valin. Við Fram-
sóknarmenn viljum því lýsa á-
nægju okkar yfir þv, að nú virð-
ist horfa svo að samningaleiðin
verði farin. Með tilliti til þessa
getum við fallist á að þessari
umræðu sé lokið.“
Um þetta mál er rætt í rit-
stjórnargreinum blaösins í dag.
Lord Staniiope á strandstaðnum. Myndin var tekin úr flugvel á fimmtudag. — Ljósm. G. Zoega.
Brezkur togari strandaöi
við Ingólfshöfða
Ahöfninni bjargað — Radarinn
bilaður, týndi af fylgdarskipinu
LAUST fyrir kl. hálf þrjú að- Reyndi Lord Stanhope að hafa
faranótt sl. fimmtudags strand-
aði brezki togarinn Lord Stan-
hope H 199 frá Fleetwood á
söndunum 5 km vestan við Ing-
ólfshöfða. Slæmt veður var er
strandið varð, stormur og él, oig
var radar skipsins bilaður.
Yfir 600 manns
fórust í Japan
— í stórslysunum tveim
Tókíó, 10. nóv. AP-NTB.
Nú er nokkurn veginn
víst, að á sjöunda hundrað
manna beið bana í slysunum
miklu í Japan á laugardag.
Hundruð manna hafa særzt
og enn er allmargra saknað.
í slysinu í Mikawa-nám-
unni á Kyushu-eyju fórust
a.m.k. 452 menn og fundist
hafa 164 lík þeirra, er fórust
í járnbrautarslysinu í bæn-
um Tsurum.
Talsmaður stjórnar kolanám-
unnar hefur upplýst að þá, er
sprengingin varð í námunni,
hafi 171 námuverkamaður látizt
samstundis, af þeim 1400, sem
þar voru við vinnu. 379 sluppu
ómeiddir með öllu og tókst að
komast upp á yfirborð jarðar af
sjálfsdáðum. Þegar síðast var
vitað voru 420—30 menn lokaðir
niðri í námunni og lítil von til
að bjargað yrði nema helmingi
þeirra.
ic Öryggisútbúnaður með
með bezta móti
Talið er, að sprengingin hafi
orðið um það bil 300 metra und-
ir yfirborði jarðar. Eiturgasið,-
sem myndaðist við hana, smaug
fljótlega um mestöll námagong-
in og varð fjölda manna að
bana. Ekki er enn vitað, hvað
sprengingunni olli -en gizkað er
Framh. á bls. 11
samfylgd við annan togara,
Kingston Diamond, en missti af
honum í veðrinu. Björgunarsveit
úr öræfum kom á vettvang um
morguninn, og tókst að bjarga
allri áhöfn togarans, 18 mönn-
um. Ekki er talið að borgi sig að
bjarga togaranum, en ýmis verð-
mæti hafa þó verið fjarlægð úr
honum. Bændum í Öræfum hafa
fengið leyfi til þess að hirða úr
honum fiskinn, um 25 tonn.
Það var brezki tögarinn Kin.g-
ston Diamond, sem gerði aðvart
urrT strandið til Vestmannaeyja-
radíós. Gerði Slysavarnafélagið
þegar ráðstafanir, og fór björg-
unarsveitin úr Öræfum á vett-
vang. Kom hún á strandstaðinn
um kl. 8 um morguminn, og
hófst þegar handa um björgun-
ina. Var línu skotið út í togar-
ann, og áhöfnin síðan dregin í
land á tveimur gúmmíbátum
skipsins. Tókst björguniin giftu-
samlega,-
Varðskip kom einnig á vett-
vang og beið átekta í því skyni
að athuga möguleika á því að ná
Lord Stanhope á flot. Togarinn
er gamalt skip, smíðað 1935. Hef
ur hann verið gerður út frá
Hull, en fluttist til Fleetwood í
vor.
Geir Zoega, umboðsmaður
brezkra togaraeigenda, gerði þeg
ar ráðstafanir til að sækja áhöfn-
ina, og laust eftir hádegi á
fimmtudag fór Douglasflugvél frá
Flugfélagi íslands austur að
Fagurhólsmýri og flutti shlp-
brotsmenn til Reykjavíkur.
Fréttamaður Mbl. tók á móti
skipbrotsmönnum á flugvellin-
um. Skipstjórinn heitir George
Harrison, 49 ára frá Fleetwood.
Var hann hinn hressasti í bragði
er hann steig út, úr flugvélinni og
heilsaði fréttamanni Mbl. svo-
hljóðandi: „Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem ég kem hér. Ég
hefi tvisvar verið tekinn í land-
helgi, 1958 og 1960. En í guð-
anna bænum segðu ekki lögregl-
un-ni frá því“. Þess má geta hér
strax, að Harri-son var skipstjóri
á síðasta brezka togaranum,
sem teki.nn var áður en 12 mílna
landhelgin gekk í gildi og þorska
stríðið fræga hófst. Var hann tek
inn aðeins tveimur dögum áður
Framh. á bls. 6
Aðalfundur
Varðar
Aðalfundur Landsmálafé-
lagsins Varðar verður hald-
inn í kvöld kl. 20.30 í Sjálf-
stæðishúsinu.
’r ' iiiiiiiffmi i 8 Auk venju-
MEbS2sÍ%&- legra aðal-
fundarstarfa
» mun Pétur Sig
urðsson alþ.m.
flytja ræðu:
„Viðhorfin í
launamálun-
um
Félagar eru hvattir til að
fjölmenna og sýna skírl.eini
við innganginn.