Morgunblaðið - 11.11.1963, Blaðsíða 11
Mánudagur 11. nóv. 1963
MORGUNBLAÐIÐ
11
Erlent fréttayflrlit
DC-8 farþegaþotan, frá Trans-Canada Airlines, sem rann út af brautinni á flugvellinum við
London.
Framh. af bls. 3
Sovétríkjanna, telur sig nú
þjást af minnisleysi. Hann
reyndi fyrir skemmstu að
svipta sig lífi, er hann tók inn
mikið magn af svefnlyfjum.
Rannsókn stendur enn yfir
á því, með hverjum hætti
hann komst yfir lyfið. í>að
mun vald'a sænskum yfirvöld-
um gífurlegum vanda, ef
Wennerström getur ekki sjálf-
ur skýrt frá einstökum atrið-
um í starfsemi sinni.
Vín, 5. nóvember.
f dag fundust enn falsaðir
'■ pundsseðlar í' Toplitz-vatni í
Austurríki. Leitarmenn, sem
starfa á vegum austurrísku
ríkisstjórnarinnar, fundu þar
kassa, fullan af seðlum. Kass-
inn brotnaði* er hann var dreg
inn af botni, og liggur mikið
af seðlum nú á botni vatnsins.
Þá fundust leifar af tilrauna-
eldflaug, sem Þjóðverjar
gerðu í síðari heimsstyj-jöld-
•innL
Kennedy ánægður
Washington, 6. nóvember.
Kennedy, Bandaríkjaforseti,
lýsti því yfir í dag, miðviku-
dag, að hann væri mjög ánægð
ur með úrslit ríkisstjóra- og
borgarstjórakosninga þeirra,
sem fram fóru á nokkrum stöð
um í Bandaríkjunum í gær.
Segir forsetinn, að hann sé á-
nægðastur yfir því, að stefna
stjórnar hans í kynþáttamál-
um skuli ejcki hafa haft meiri
áhrif á kosningarnar í Suður-
ríkjunum, en raun bar vitni.
í röðum repúblikana gætir
einnig ánægju með úrslit,
þrátt fyrir ósfgur á nokkrum
stöðum, þar sem þeir höfðu
háð harða kosningabaráttu.
Bandaríkin mótmæla
London, Washington, 6. nóv.
Bandaríkin lögðu ‘ í dag
fram opinber . mótmæli við
stjórn Sovétríkjanna, vegna
atburðarins við Berlín, fyrr í
vikunni, er lest bifreiða með
bandaríska hermenn var stöðv
uð.
Er þvl haldið fram í orð-
sendingunni, að hér hafi verið
framið brot á samningum um
frjálsan aðflutning til borgar-
innar. Foy D. Kohler, ambassa
dor Bandaríkjanna í Moskvu,
hélt skyndilega frá London í
dag, en þar hefur hann verjð
í leyfi, og hélt til Moskvu.
Ásakar Bandaríkin
Moskvu, 6. nóvember.
Krúsjeff, forsætisráðherra,
ræddi í dag við 22 bandaríska
kaupsýslumenn, sem dveljast
í Sovétríkjunum um þessar
mundir. Hann vék að ýmsum
málefnum, m. a. deilunni við
Kína, hveitikaupum kommún-
istaríkjanna vestan hafs, og
síðast en ekki sízt að atburð-
unum við Berlín, fyrr í.vik-
unni. Taldi hann sovézku yfir-
völdin þar hafa verið í fuilum
rétti, og hefðu þau knúið
Bandaríkin til undangjafar.
— Þessari yfirlýsingu var síð-
ar mótmælt í Washington.
DC-8 rann út af braut
London, 7. nóvember.
í gærkvöldi rann stór DC-8
þota, frá Trans-Canada Air-
lines, út af flugbraut á London
flugvelli. 89 farþegar voru í
vélinni, en enginn mun hafa
slasazt alvarlega. í dag,
fimmtudag, var allt enn á
huldu með orsakirnar. Vélin
var á leið frá London, er flug-
maðurinn hætti allt í einu við
flugtak, skammt frá brautar-
enda.
Byltingarinnar minnzt
í dag var haldið hátíðlegt af
mæli sovézku byltingarinnar.
Að vanda var efnt til mikilla
hátíðahalda á Rauða torginu.
Malinovski, hermálaráðherra,
hélt ræðu af grafhýsi Lenins.
Var ræða hans ekki tiltakan-
lega hörð í garð Vesturveld-
anna.
Malinovski hefur haldið
ræðu við þetta tækifæri, allt
frá árinu 1957, og hefUr hún
oft þótt tákna afstöðu ráða-
manna Sovétríkjanna til
frjálsra landa — eins og hún
hefur verið á hverjum tíma.
Fréttamenn í Moskvu segja,
að svo virðist, að ráðamenn
Kína og Sovétríkjanna hafi
ekki viljað minna á deilu sína,
á þessu afmæli byltingarinn-
ar. Telja ýmsir stjórnmála-
fréttaritarar, að heídur hafi
dregið úr illindum milli ríkj-
anna, a. m. k. um stundarsak-
ir. —
Ný viðhorf til hveitisölu
Ottawa, 7. nóvember.
Verzlunarmálaráðherra Kan
ada, Mitchell Sharp, lýsti því
yfir í dag, að sala Kanada á
hveiti til kommúnistaríkjanna
kynni að tákna varanlega
breytingu á hveitimarkaðn-
um. Taldi hann sennilegt, að
Alþýðulýðveldið Kína myndi
um langt skeið flytja inn mik-
ið magn af hveiti, árlega.
Námamönnum hjargað
í Lengede
Lengede, 7. nóvember.
í dag tókst að bjarga náma-
mönnunum 11, sem verið hafa
innilokaðir í kolanámunni við
Lengede í hálfan mánuð. Voru
margir þeirra þjakaðir mjög,
er þeir komu upp til jarðar. —
Það þykir undrun sæta, hve
vel tókst til um björgunina,
en hætta var mikil á grjót-
hruni. — Mennirnir 11 fund-
ust á lífi fyrir tilviljun, en
björgun var þá hætt. Það var
hópur sérfræðinga, sem starf-
ið annáðist. Björgunarstarfið
var ein helzta heimsfréttin
þann tíma, er það stóð yfir.
Flugslys í Finnlandi
Helsingfors, 8. nóvember.
Farþegaflugvél frá, finnska
flugfélaginu Aeros féll í dag
til jarðar, er hún \?ar á leið til
Helsingfors. 21 farþegi, auk
áhafnarmeðlima, létu lífið.
Tveir farþegar og ein flug-
þerna voru flutt mikið slösuð
í sjúkrahús. Þau munu hafa
látizt síðar. — Talið er, að
flugmaðurinn hafi setið að
drykkju kvöldið áður.
Kloinar byltingarráðið?
Saigon, 8. nóvember.
Uppi eru um það raddir í
Saigon, að einn af hershöfð-
ingjunum, sem riðnir voru við
byltinguna 1. nóvember, muni
verða látinn ganga úr bylting-
arráðinu. — Er hér um að
ræða einn voldugasta hers-
höfðingja landsins, Tom That
Dinh, en hann ræður yfir það
miklu liði, að hann hefði að
öllum líkindum getað gert
byltingu á eigin spýtur. Hlut-
deild hans er talin hafa ráðið
úrslitum, en samstarfsmenn
hans munu ekki telja hann
einlægan í afstöðu sinni.
Vingast þeir á ný?
Moskvu, 9. nóvember.
í dag, laugardag, birtir
Moskvublaðið „Pravda“ úr-
drátt úr skrifum kínverska
„Alþýðublaðinu“, þar sem far
ið er mjög lofsamlegum orð-
um um sovézku byltinguna. —
Undanfarnar vikur hefur held
ur dregið úr árásum leiðtoga
Sovétríkjanna og Kína, á
hverja aðra.
Kveikt í Melabragganum
Vörubirgbir skemmast i Eyjum, bátur á Ólafsfirði
AÐFARANÓTT þriðjudagsins sl.
var um nótt kveikt i Melabragg- j
anum í Reykjavík. Var eldurinn
fljótlega slökktur, en fjöldi
manns býr í bragganum. Lög-
regla handtók mann, sem hefur
játað íkveikjuna.
Mikið tjón varð af völdum
elds I Vestmannaeyjum, er
kviknaði í húsinu á Kirkjuvegi
19, en þar eyðilagðist stór vöru-
lager. Og fólkið slapp út á nær-
klæðunum. Einnig skemmdist
báturinn Leifur á Ólafsvík mikið
er eldur kom upp í honum.
Kveikti i Melabragganum
Aðfaranótt þriðjudagsins 5.
nóv. var kveikt í Melabraggan-
um við Hjarðarhaga. Handtók
lögreglan um morguninn drukk-
inn mann, sem játaði að hafa
kveikt þar í. Var eldinum haldið
í skefjum með 6 handslökkvi-
tækjum, sem þarna eru, þar til
slökkviliðið kom og réði niður-
lögum eldsins á skammri stvmdu.
Maðurinn, sem er íbúi í bragg-
anum, kvaðst hafa sótt bréf út í
öskutunnu, hellt í það smurnings
©líu, kveikt í og stungið bréfinu
bak við lausa trétexplötu í gang-
inum. Hann fór síðan að sofa, en
fór síðan að hugsa um að hann
gæti með þessu tiltæki skaðað
íbúa braggans og fór fram og sá
reykinn. Hrópaði hann þá upp
yfir sig og vakti íbúana, sem
kölluðu á slökkviliðið og héldu
eldinum í skefjum með hand-
slökkvitækjum, þar til það kom.
Urðu skemmdir ekki miklar. En
verr hefði getað farið, þar sem
bragginn er eldfimur og margir
íbúar í svefni.
Fólkiff slapp út á nærklæffuunum
Aðfaranótt laugardagsins 2.
nóvember kom upp eldur í hús-
inu við Kirkjuvej 19 í Vest-
mannaeyjum og varð þar mikið
tjón, einkum í verzluninni Örin,
þar sem var mikill vörulager.
Um 2 leytið um nóttina vakn-
aði fullorðin kona á miðhæðinni
og varð vör við mikinn reyk. Þar
á hæðinni bjuggu hjón og gömul
kona og í rishæðinni hjón með
4 börn. Vakti hún fólkið, og
komst það út á nærklæðunum.
Eldurinn mun hafa kviknað í
lítilli kompu innan af verzlun:
inni á neðstu hæð, þar sem
geymdur er lager, en þar er raf-
magnstafla fyrir hitun. Er talið
að eldurinn hafi kviknað út frá
henni.
Slökkviliðið réði niðurlögum
eldsins. Var þá mikið orðið
skemmt uppi á hæðunum af eldi
og reyk og mikið af vörunum
brunnið, en lagerinn mun hafa
verið vel trýggður.
Ólafsfjarffarbátur skemmist
af eldi
Ólafsfirði, 7. okt. — Á 8. tím-
anum í gærmorgun urðu menn,
sem voru að hefja vinnu við höfn
ina, varir við reyk í mótorbátn-
um Leifi. Þegar þeir fóru að at-
huga það, var mikill eldur í bátn-
um. Reynt var að stemma stigu
fyrir útbreiðslu eldsins með því
að birgja ventla og op.
Eftir rúman hálftíma hafði
slökkviliðinu tekizt að ráða nið-
urlögum eldsins. En þrátt fyrir
það virðist báturinn allmikið
skemmdur, öll siglingartæki og
mælar ónýtt og innréttingar í
lúkar allmikið brunnið. Hafa
eigendur orðið fyrir miklu tjóni.
Álitið er að eldurinn hafi
kviknað út frá rafmagnstöflu. —
Báturinn var mannlaus.
Leifur er 27 lestir að stærð,
byggður fyrir 3 árum á Akur-
eyri. — Jakob.
Bruni í Kópavogi
Á laugardagsmorgun kviknaði
í út frá olíukyndingu á Álfhóls-
braut 60 í Kópavogi. Þetta er
gamall sumarbústaður og ketill-
inn í eldhúsinu. Var enginn í hús-
inu, maðurinn gengið eitthvað
■ frá. Slökkviliðið var kvatt á vett-
vang og réði niðurlögum eldsins,
en mikill reykur var í húsinu
þegar það kom. Sviðnaði eitt-
hvað kringum ketilinn og tals-
verðar skemmdir urðu í íbúðinni
af reyk.
— Yfir 600 marms
Framh. af bls. 1
á, að hún hafi orðið út frá neista
frá rafleiðslu. Annars er á það
bent, að öryggisbúnaður þess-
arar námu var talinn hinn full-
komnasti og áreiðanlegasti sem
þekkist. Náman er ein hinna
elztu of stærstu sinnar tegund-
ar í Japan og vinnuskilyrði sögð
með bezta móti.
Að björgun námamannanna,
sem innilokaðir eru, starfa 3.500
manns, en björgunarstarfið er
miklum erfiðleikum háð, sökum
eiturgassins í námugöngunum.
Auk þeirra er slösuðust niðri
í námunni meiddust tugir manna
er unnu á jörðu uppi. Rúður
brotnuðu í húsum í 300 metra
fjarlægð og skemmdir urðu á
mannvirkjum í næsta nágrenni
námunnar.
Járnbrautarslysiff
Járnbrautarslysið í bænum
Tsurum, um 20 km suðvestur
frá Tókíó varð með þeim hætti
að vöruflutningalest fór út af
sporinu, með þeim afleiðingum,
að farþegalest, sem kom rétt á
eftir, ók beint á hana og önnur
farþegalest skall á braki hinna
tveggja örskömmu síðar. Þegar
hafa fundizt 164 lík — en búizt
er við að fleiri hafi farizt.
Forstjóri ríkisjárnbrautanna í
Japan, Reisuke Ishida, hefur til-
kynnt, að hahn muni leggja
lausnarbeiðni sína fyrir Ikeda,
forsætisráðherra, svo sem venja
er í Japan þegar meiri háttar
járnbrautarslys ber að höndum
Leggur forstjórinn það í vald
forsætisráðherrans hvort hann
heldur starfi sínu áfram eða
ekki. Stjórn járnbrautanna hef-
ur tilkynnt, að fjöskylda sérhvers
þeirra, er í slysinu fóryst, muni
fá greiddar 100.000 yena skaða-
bætur (sem svarar nál. 12.500
ísl. kr.).
— Skrilslæti
Framh. af bls. 12
Sat hann í sæti sínu í Efri deild
á meðan umræður fóru fram í
Neðri deiid, og las þingskjöl.
Kom þá steinninn á mikilli ferð
inn um gluggann, skall í gólfið
ca. meter frá Páli, og valt út að
dyrum ca. fimm metra frá. Gler-
brot úr rúðunni dreifðust yfir
handleggi þingmannsins.
Ófagurt var um að litast við
þinghúsið eftir ólætin. Eggja-
skurn kartöflur og drasl lágu á
gangstéttinni' og voru eggjaslett-
urnar upp um alla veggi húss-
ins. Smiðir unnu að því að setja
nýjar rúður i húsið daginn eft-
ir, og hreinsa það af ósómanum.