Morgunblaðið - 21.11.1963, Side 2

Morgunblaðið - 21.11.1963, Side 2
2 MORGUNBLADIÐ Fimmtudagur 21. nóv. 1953 Bréf frá Fleetwood MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi bréf frá skipstjóranum á brezka togar- anum Lord Stanhope, sem strandaði á söndunum við Ing- ólfshöfða fyrir skömmu. Sam- hljóða bréf birtist í síðasta tölublaði Fvhing News. Herra ritstjóri! — Ég vildi gjarna, í hinum víðlesnu dálk- um blaðs yðar, fá tækifæri til að láta í ljós þakklæti mitt og manna minna, við skipstjóra og skipverja á togaranum Kingston Diamond frá Fleet- wood, togaranum Juniper frá Aberdeen og skipherra og skipshöfn á íslenzka varðskip- inu Óðni. Þessir menn hikuðu ekki við að hætta eigin skipum og lífi, kærðu sig kollóttan um storm og stórsjó, til þess að koma mér til hjálpar, er ég missti skip mitt, Lord Stanhope, ná- lægt Ingólfshöfða að morgni 7. nóvember. Ég þakka íslenzku björgun- arsveitinni, sem barðist mót sandstorminum, fann skipið og bjargaði mér og mönnum mín- um. Menn þessir stóðu upp I mitti í brimgarðinum til að hjálpa skipshöfn minni á land. Engin orð fá lýst þakklæti mínu við bóndann og fjöl- skyldu hans, sem eru meðlim- ir í björgunarsveitinni, buðu okkur velkomna á heimili sitt, gáfu okkur þurr föt og máltíð, er sæmt hefði konungum. Forseti Slysavarnafélagsins og konur í kvennadeild þess í Reykjavík gerðu allt, sem í þeirra valdi stóð, til þess að okkur skorti ekkért. f þessum félagsskap eru, eins og í Lifeboat Institution hjá okkur, aðeins sjálfboða- liðar, og eru allir skipreika sjómenn boðnir velkomnir, hvert sem þjóðerni þeirrá er. Ég þakka forstöðumánni og starfsfólki Sjómannaheimilis- ins í Reykjavík og hinu ágæta fólki frá Dvalarheimili aldr- G. Harrison, skipstjórL aðra sjómanna, sem skemmtu skipshöfn minni, meðan á dvöl inni í Reykjavík stóð. Einnig þakka ég Geir Zoega og syni hans, sem endalaust unnu að velferð okkar og sáu um heimferð okkar. Skipshöfn mín á líka þakkir skilið fyrir karlmennsku á hættustund. Ég er hreykinn af félagsskap þeirra. Að lokum skulum við þakka guði fyrir lífgjöfina og tilveru alls þessa góða fólks. Innilegar þakkir, herrar og frúr, megi starf ykkar alltaf takast giftu- samlega. — Nauðsynlegt Framhald af bls. 1. Á slóðum Samuels Johnsons Hádegisverð snæddu forseta- hjónin í Cheshire Cheese veit- ingahúsinu við Fleet Street í boði Peter Thomas, aðstoðarutanríkis- ráðherra. Hafði forsetinn sérstak- lega óskað eftir að heimsækja veitingahús þetta sökum þess að hann hefur mikið dálæti á höfuð- snillingnum, rithöfundinum og orðabókarhöfundinum dr. Samuel Fíngert öskufall í Vík VÍK, Mýrdal, 19. nóv. — f nótt og snemma í morgun snjóaði hér dá- lítið. Er leið á daginn tók að rigna. Menn urðu þess varir í morgun að gráleit askan hafi sezt í snjóinn og þegar hann bráðnaði kom dökk askan betur í ljós. Tæplega hefðu menn orðið þessa fíngerða öskufalls varir, ef snjólaust hefði verið. Um gosið við Vestmannaeyjar er annars þetta að segja. Undan- farna daga hefur gosmökkur sézt vel af Reynisfjalli og utan úr Mýrdal. Um 8 leytið í fyrrakvöld sáust bláir blossar utan úr Mýr- dal og voru þeir ofarlega í gos- mekkinum. Múlakvísl er eins lítil og bæj- arlækur og hefiu: svo verið und- anfarið. Rennur tært vatn undir brúna og jökulvatn sést þar ekki. Þegar jökulvatn er í Múlakvísl, kemur það úr Mýrdalsjökli. — FréttaritarL Johnson, sem var tíður gestur þarna á sinni tíð og gerði garð- inn frægan. Að hádegisverði loknum heim- sótti forsetinn snöggvast Middle Temple, einn af lögfræðiskólum Breta, sem er í City. Tók skóla- stjórinn á móti forsetahjónunum, og ræddi við þau um hríð. íslendingaboð Síðdegis höfðu sendiherrahjón- in íslenzku, Hendrik Sv. Björns- son og frú, boð inni í Dorchester- hótelinu til heiðurs forsetahjón- unum. Var það mikill fagnaður og fslendingar búsettir í Bret- landi eða við nám þar fjölmenntu. Meðal annarra gesta voru ræðis- mennirnir Sigursteinn Magnús- son og Þórarinn Olgeirsson, Þór- unn Jóhannsdóttir Ashkenazy, Þórólfur Beck, Björn Björnsson og frú, Jóhann Sigurðsson, Karl Strand læknir og frú, dr. Alan Boucher og frú o. fl. Kvöldinu vörðu forsetahjónin í leikhúsferð í boði Richards A. Butlers utanríkisráðherra. Sáu þau sýningu brezka þjóðleikhúss- ins á Hamlet eftir Shakespeare í Old Vic leikhúsinu. ★ Hvarvetna hafa allar móttökur verið sérstaklega alúðlegar, og á heimsókn þessi áreiðanlega eftir að hafa mikla þýðingu til efling- ar vinsamlegri sambúð og sam- skiptum fslendinga og Breta. Forsetahjónin hafa sérstaklega haft orð á því hversu ánægjulegt hafi verið að heimsækja Elisabetu Bretadrottningu og mann hennar Philip prins í gær sökum þess hve blátt áfram og aðlaðandi þau væru og skemmtileg heim að sækjæ Rússneskir sendiráðs- menn handteknir í Kongó Sakaðir um undirróður gegn stjórninni Leopoldville, Kongo, 20. (NTB) ÞRÍR rússneskir sendiráðs- starfsmenn hafa verið handtekn- ir í Leopoldville í dag og í gær. F.inn þeirra var látinn laus skömmu eftir handtökuna, en hinir tveir eru enn í haldi sak- aðir um tilraun til að grafa und- an ríkisstjóm landsins. Mennimir tveir, sem enn eru í haldi, eru Borsi Voronin sendi- ráðsfulltrúi og Jury Miakotn- ik blaðafulltrúi. Er talið að þeim sé haldið í búðum fallhlífarher- manna hjá borginni Binza. Áreið ar.legar fréttir herma að sendi- herra Sovétríkjanna í Leopold- ville hafi átt viðræður við Cyr- ille Adoula forsætisráðherra I morgun, og að þeir muni ræðast við að nýju í kvöld um málið. Engar staðfestar fregnir hafa borizt um handtökurnar, en hálf opinberar heimildir herma að Rússarnir tveir hafi átt í fór- um sínum mikilvæg skjöl Kongó stjórnar. Eiga þeir að hafa Veitt andstæðingum stjórnarinnar mik ilvægar upplýsingar til að auð- velda baráttu þeirra gegn stjórn- innL Hand tökumum hefur verið mót mælt í Moskvu, og sagir blaðifS Izvstia að hér sé um freklega ögrun að ræða. Blaðið segir að mönnunum hafi verið misjþyrmt á lögreglustöð í Leopoldville áð- ur en þeir voru flufctir í fang- elsi. Þá skýrir blaðið eiinnig frá því að fallhlífaihermenin hafi um- kringt rússneska sendiráðið á þriðjudag, en á meðan hafi verið lokað fyrir síma og rafmagm til sendiráðsins. Izvestia segir að blöð í Kongó, sérstaklega blaðið Le Progres, hafi verið mjög fjandsamleg sendiráðum nokkurra erlendra rikja að undanförnu, og nefnir þar sendiráð Sovétríkjannói, Tékkóslóvakíu og Egyptalands, Tekur blaðið fram að við öryggis þjónustuna í Kongó starfi um 30 bandarískir ráðgjafar. Sagt var í Leopoldville i kvöld að ríkisstjórnin ræddi nú hvort slíta bæri stjórnmálasambandi vi3 Sovétríkin. Skíðasnjdr á Hellisheiði MIKIÐ og gott skíðafæri er nA við Skíðaskálann í Hveradölum, Hefur margt fólk komið þangað með skiði sín, síðan snjórinn féU aðfaranótt miðvikudags. Um helgina verður skíðalyftan í gangi og brekkan upplýst. — írak.... Framhald af bls. L frá ríkisstjórn Baathista í Sýr- landi til að reyna að jafna deil- urnar. Forseti þéirrar nefndar var Amin Hafez hershöfðingi, sem er jafnframt forsætisráð- herra Sýrlands. Ekki tókust samn ingar, og er Hafez nú kominn aftur til Damaskus. Fyrst eftir byltingu hersins var sett á algjört útgöngubann í Bag- dad, en nú gildir bannið aðeina yfir nóttina. Einn erlendu frétta- mannanna í borginni símaði I dag að allt væri þar með kyrrum kjörum. Hann fór í gönguferð um miðborgina og segir að verzl- anir hafi verið opnar, og fólk safnazt saman í kaffihúsum eina og venjulega. Þá hefur verið til- kynnt að bankar verði opnaðir að nýju á morgun. Hindrar einingu Ekki hafa orðið mlklar skemmd ir af bardögum í höfuðborginni, þótt sjá megi för eftir byssukúlur á húsi varnarmálaráðuneytisins og aðalstöðvum þjóðvarnarliðs- ins. Skriðdrekar eru enn á verði við útvarpsstöðina og við fleiri opinberar byggingar. Talið er að herstjórnin gefl bráðlega út tilkynningu um skip- un nýrrar ríkisstjórnar í landinu. Telja stjórnmálafréttaritarar að byltingin hafi orðið alvarlegt á- fall fyrir Baathistahreyfinguna í heild, og eigi eftir að hindra fyr- irhugaða einingu fraks og Sýr- lands. Seint i kvöld var tilkynnt I Bagdad-útvarpinu að Taher Ye- hia hershöfðingi, fyrrverandi for seti herráðsins, hafi verið skip- aður forsætisráðherra nýrrar rík isstjónar, en el Bakr fyrrverandi forsætisráðherra skipaður að- stoðar forsætisráðherra. Dr. Sigurður biður um frásagnir og myndir DR. SIGURÐUR Þórarinsison hef- ur beðið blaðið að birta eftir- farandi: Enn einu sinni hafa fjölmarg- ir íslendingar orðið sjónarvottar að stórfenglegum náttúruham- föruim. Sem betur fer er gosið við Vestmannaieyjar enn sem komið er einikum til augnayndis. Þannig var og uim siðasta öskju- gas 1961. Er ástæða til að minna á að því fer víðs fjarri, að svo hafi verið um öll eldgos á fs- landi. Oftlega hefur þessi þjóð goldið mikil afhroð vegna elds- umbrota og eflaust á hún einnig eftir að verða fyrir sikakkaföll- um í eldgosum. Saga islonzfcra eldfjalla er snar þáttur baráttu- sögu íslands þjóðar í þúsund ár og hefur sú saga aldrei verið skráð svo nákvæmlega sem skyldi. Því miður er skráðum heimildum urn mörg gosanna mjög ábótavant, stórgos hafa orð- ið hér eftir að land byggðist, sem hvérgi eru skráð og allt fram á þessa öld 'naifa örðið hér eldsumbrot sem ekki er hægt að segja frá hvaða ári eru. Ég hefi vikið að Þvl 1 sam- bandi við síðasta öskjugos, að upplifun þess auðveldaði túlkun á sumum frásögnum af eldsum- brotum. Þetta á við í ennþá rík- ara mæli um það gos, sem menn nú hafa fyrir augum. Frásaginir af neðansjávargosum kringum ísland eru margar mjög óljósair og oft erfitt úr að skera hvort rauniverulega heflur verið um gos að ræða. Þess vegna eru greinargóðar lýsingar á því hvað ber fyrir augu þeirra er fyrst litu gosið við Eyjar, mjög þýð- ingarmiklar heimildir ekki að- eins um þetta gos heldur og til skýringar heimilda um gömul gos. Því heiti ég á þá, sem urðu fyrstir eða meðal þeirra fyrstu til að veita yfirstandandi gosi at- hygli, af sjó, úr Eyjum eða af meginlandinu, að senda mér frá- saignir af því hvemig þetta kom þeim fyrir sjónir og tímasetja atihiuganir sínar eftir því sem auðið er. Einnig bið ég alla þá, sem myndir taka af þessu gosi, úr lofti, af láði eða af legi, að skrá hjá sér myndatökustað og sfcuind og dag, og gera það strax að myndatöku lokiruni eða við) heimkomu úr myndatökuferð. Framköllun mynda getur dregizit, einkum ef um litmyndir er að' ræða, og þvl ekki ráðlegt að treysta á minnið um skráningu þangað tíl myndimar koma úr framköllun, en rétt að skiriifa þá á þær, þær upplýsingar er máli skipta, svo sem tímasetningu og stað. Tímasettar myndir eru hin- ar ágætustu heimildir um þetta eldgos. Mjög æskilegt væri einn- ig að veðuratihugunarmenn á veðurstöðvum þar sem vel sést til eldstöðvanna svo sem Stór- höfða, Eyrarbakka og víðar skrá hjá sér daglega stutt yfirlit um gang gossins og breytingamar , frá degi til dags, eins og þetta : .kemiur þeim fyrir sjónir. Ég hefi um margra ára skeið á vegum jarðfræðideildar Nátt- * úrugripasafnsins unnið að söfn- un og könnun gagna varðandi : eldfjallasögu íslands og þvi að | Ifsögðu einnig reynt að safna öllum gögnum vairðandi þau gos, sem í gangi hafa verið. Margir brugðust vel við í samibamdi við Heklugosið og öskjugosið og treysti ég því, að svo verði einn- ig um þetta gos. Allar upplýs- ingar eru iþakksamlega þegnar, svo Og myndir eða upplýsingar um hverjir hafa myndir, sem þéir telja afchyglisverðar. Utaná- skrift mín er SigurðUr Þórarins- son jarðfræðingur, Náttúrugripa- safnið, Reykjavík. Cefur 50 þús. til stúlknaheimilis KVENFÉLAGIÐ „Hvítabandið" hélt nýlega fund og var hann haldinn í minningu um 100 ára afmæli fyrsta formanns félags- ins, frk. ólafíu Jóhannisdóttur. Var á fuindinum minnzt hennar mikla og margvíslega menning- arstarfs og lesið __upp úr ritum hennar. Ákvað félagið að gefa kr. 50 þús. til þeirrar væntanlegu stiarf- semi, sem vonandi verður bráð- lega hafin, þ.e. að stofna heimili fyrir stúlkur, er leiðst hafa út í óreglu og ekki eru færar um að sjá um sig sjálfar. En það vair, sem kunnugt er, eitt af aðal- áhugamálum frk. Ólafíu Jó- hannsdóttur. Mun félagið framvegis reyna eftir getu að styðja slíka starf- semi, þegar hún kemst á lagg- Ástríður F^ertsdóttir látin Astríður Eggertsdóttir frá Fremri-Langey I Breiðafirði, ekkja Jóns E. Bergsveinssonar erindreka SVFÍ létzt í Landa- kotsspítala s.l. laugardag. Ást- ríður var 78 ára að aldrL HafnorQörður STEFNIR, félag ungra Sjálf stæðismanna í Hafnarfirði, held ur bingó í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 8,30. — Margir góðir vinningar. Keflavík Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Keflavíkur verður haldinn í dag kl. 9 síðdegis í Sjálfstæðishús- inu. Félagar eru beðnir um að f jöl- menna og mæta stundvíslega. Kópavogur Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Kópavogs verður lialdinn í Sjálf- stæðishúsi Kópavogs fimmtudag- inn 28. nóv. kl. 20.30. Fundarefni: 1. Venjuleg að- alfundarstörf, 2. Önnur máL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.