Morgunblaðið - 21.11.1963, Síða 24
FERDAÞJÖNUSTfl OG
FARMIDASALfl
ÁN AUKAGJALDS
249. tbl. — Fimmtudagur 21. nóvember 1963
BRAUÐ
D.
Eldgosið við Vestmannaeyjai;
Drunur og dynkir,
útvarpstruílanir og ljósglampar
JGOSIÐ heldur áfram óbreytt I
og leggur gufustrókinn í aust-
ur, fyrir sunnan Geirfugla-
sker. Þetta eru fréttir frá í
gær frá varðskipinu Óðni, sem
enn heldur vörð um gosið. Um
borð eru sjómælingamenn frá
landhelgisgæzlunni, sem eru
að mæla dýpið kringum gos-
staðinn og gígbarmana eftir
því sem hægt er,. að því er
Pétur Sigurðsson tjáði blað-
inu.
Mynd þessi, sem Kristján
Magnússon tók í fyrradag,
sýnir að þetta er allra mynd-
arlegasta eyja og stækkar eitt-
hvað. Hann fór með bátnum
Haraldi úr Eyjum út að gos-
staðnum, ásamt fleira fólki,
þar á meðal hópi frá Jökla-
rannsóknafélaginu. Létu þeir
mjög af því hve mikilúðlegt
hefði verið að sjá svo nærri
og af sjó hvernig gjallsúlurn-
’ar þeyttust upp og rigndi nið-
ur á sama stað aftur. En ekk-
ert hljoð heyrðist þó þessar
hamfarir færu fram.
Vestmannaeyjum, 20. nóv.:
Ekkert lát er enn á gosinu úr
eldvarpinu í hafinu sunnan Geir
fuglaskers. Gufugosið virðist þó
mun minna, enda mun sjór að
mestu hættur að ganga í þann
gíginn, sem hann féll í um tíma,
og kemur eldurinn upp úr nýju
eynni eingöngu, en ekki upp úr
hafi, að því er virðist.
Mjög aflmikil gos koma ann
að veifið, en ekki er um sam-
fellt, linnulaust gos að ræða.
Geysimiklar drunur fylgja
mestu gosköstunum, t.d. kl. 15,20,
17,10 og 18.00. Kl. 18 heyrðust
feiknadrunur hingað, og truflan
ir urðu í útvarpstækjum. Rétt
á undan sáust glampar, sem voru
svo skærir, að birti andartak í
myrkum herbergjum. Hafa oft
sézt glampar nú um dimmumót-
in. Eingöngu jarðefni þeytast
•upp í loftið í þessum hviðum,
eða þá að mjög lítil gufa fylgir
þeim.
Mjög fínn vikursalli féll hér í
dag, svo að snjóföl grámaði.
Ruddalegar aðfarir við
slátrun á sporthestum
Kífsá við Akureyri, 20. nóv.:
Hér hleður niður snjó hvern
dag og hefur gert sl. röskan hálf
an mánuð. Lítið hefur þó rennt
í skafla, og má heita, að snjór
sé jafnfallinn. Þungfært er því
um alla fáfarna vegi, en þjóðveg
urinn er ruddur jafnóðum. Hag
laust er orðið fyrir sauðfé, en
hross berja enn niður. Þó eru
þau óeirin á beitinni og leita
heim að bæjum.
Sporthestar Akureyringa eigra
um snapandi hér á kotunum
kringum bæinn. Hér í haust
voru um 40 á túninu hjá mér,
og átti ég von á, að þau yrðu
sótt þá og þegar. Lét ég því
Tveir togaraskipstjórar
dæmdir í Færeyjum
kyrrt liggja. En einn sunnudag
um hádegið kom hvít drossía
akandi og staðnæmdist hjá hest
unum. Út stigu tveir menn vopn
aðir og skutu einn hestinn,
veggja vetra fola, á færi, skáru
hann og óku svo brott. Hross-
in, sem uppi stóðu, fældust og
ruku burt. Hef ég ekki þurft að
kvarta undan ágangi hrossa síð-
an. Hrossskrokkurinn var svo
hirtur seinna um daginn, en
ekki vissi ég, hverjir voru hér á
Tórshavn, 20. nóv.: —
Dómur féll í dag í máli brekzku
togaraskipstjóranna tveggja,
sem teknir voru að ólöglegum
veiðum innan fiskveiðilögsög-
unnar sunnan undir Suðurey fyr
ir nokkrum dögum. Skipstjóram
ir, James Duncan og John Snell
ing á togurunum Aberdeen Merc
hant og Glengain, voru dæmdir
Árshátíð í
Hafnarfirði
ÁRSHÁTÍÐ Sjálístæðisfélag-
anna í Hafnarfirði verður hald-
in nk. laugardag 23. nóv., í sam-
kamuhúsinu að Garðaholti og
Ihetfst kl. 9 e.h.
Ræðu flytur Bjami Benedikts
son, forsætisráðh. í>á skemmtir
Ómar Ragnairsson, auk þess
verður dans.
Aðgöngumiðar í Sjálfstæðis-
húsinu í Hafnaírfirði á fimmtu-
dag og föstudag milli kL 5—7
e.h.
Bifreiðar verða frá Sjálfstæð-
ishúsinu kl. 8.30 e.h. að sam-
komuihúsinu, og að lokianni
■kwnjmtuninni til Hafnarfjarðar.
í 25 þús. færeyskra (=danskra)
króna sekt hvor ,og auk þess var
afli gerður upptækur ásamt veið
arfærum. í dómnum segir, að
siglingatæki þau, sem notuð eru
á toguranum Decca Navigator,
séu ekki örugg við Færeyjar.
Staðfest var, að mælingar varð
skipsins, sem tók togarana, væru
réttar.
Togarar hafa sjaldan verið
teknir við Faereyjar. Frá stríðs
lokum hafa þrír verið teknir og
dæmdir í Færeyjum, en skipstjór
arnir hafa allir áfrýjað til Kaup
mannahafnar og verið sýknaðir
þar. — Búizt er við, að þessi
tveir áfrýi einnig. — Arge.
Enginn árekstur
eftir hádegi í gær
ÞEGAR Mbl. hringdi til lög-
reglunnar í Reykjavík á tíunda
tímanum í gærkvöldi, hafði hún
þau óvæntu tíðindi að segjs, að
enginn árekstur eða umferðar-
slys af öðm tagi hefði orðið frá
því á hádegi. Þótti lögreglunni
þetta að vonum mikil tíðindi.
Maður brennist
á Akureyri
AKUREYRI, 20. nóv.
SVO illa vildi til laust fyrir kl.
18 í kvöld, að ungur rafvirkja-
nemi brenndist nokkuð í hndliti
og höndum, er hann var að
lifga eld í miðstöðvarkatli. —
Óhappið varð í raftækjaverzlun
Electro Co. við Ráðhússtorg, þar
sem lærlingurinn vinnur. Fleygði
hann vélatvisti, vættum í benzíni
inn í eldholið, til að lífga glóðina
með þeim afleiðingum, að spreng
ing varð í miðstöðvarkatlinum,
og eldtungurnar léku um piltinn.
Slökkviliðið kom isgar í stað,
kæfði eldinn, en pilturinn var
fluttur í sjúkra'><, þar sem gert
var að sárum hans. — Sv. P.
ferð, og hirði ekki um að vita
það, en heldur finnst mér þetta
óviðurkvæmilegt athæfi á helg-
um degi. Því geri ég þetta að
umræðuefni, að þetta er víst ekk
ert einsdæmi hér um slóðir.
Kona í Glerárþorpi sagði mér,
að í fyrrahaust hefðu verið rek
in hross, í rétt skammt frá hús-
inu, þar sem hún býr, og eitt fol
aldið dregið út úr réttinni og
skotið fyrir augunum á hinum
hrossunum, auk fyrir augum
barnanna, sem voru að leik
skammt frá. Trylltust hrossin,
en börnin hlupu grátandi heim
til sín. Fýndist mér, að menn
ættu að hafa meiri aðgát í nær-
veru sálar. — Víkingur.
Sáttafunidur
i gærkvöldi
SÁTTASEMJARI boðaði í gær-
kvöldi fund með fulltrúum
verkamanna- og verkakvenna-
félaga og fulltrúum þeirra at-
vinnurekenda, sem beina samn-
ingsazild hafa að þeim félögum.
Samstarfsnefnd byggingariðnað-
armanna, járnsmiða, skipasmiða,
bókagerðarmanna, verzlunar-
manna og iðnverkamenna hefur
verið kosin.
Gamla rafstöðin á Akur*
eyri gefin iðnskólanum
AKUREYRI, 20. nóv. — Á
fundi í gær samþykkti bæjar-
stjórn Akureyrar tillögu, sem
Knútur Otterstedt, rafveitustjóri
hafði borið upp í rafveitustjórn
og náð samþykki þar, þess efn-
is, að bærinn gefi Iðnskóla Ak-
ureyrar og væntanlegum tækni-
skóla á Akureyri hina gömlu raf-
stöð við Glerá, fyrstu rafstöð
Akureyringa. Er hér um ein-
stæða gjöf að ræða, sem mun
verða tæknimenntastofnunum
hér í bæ hin mesta lyftistöng.
Verður stöðin notuð til verk-
legrar kennslu rafvirkja, raf-
vélavirkja og raffræðinga og til
þjálfunar verðandi vélgæzlu-
manna í rafstöðvum. Þar að auki
er með þessu tryggt, að hin aldna
rafmagnsstöð verður vel varð-
veitt, en hún hefur, eins og gef-
ur að skilja, mikið minjagildi.
Glerárstöðin var tekin í notk-
un árið 1922 og getur framleitt
um 300 kílówött. Hún hefur
ekki verið notuð, svo neinu nemi
s.l. tíu ár.
Stöðin verður afhent hinum
nýju eigendum næsta sumar,
þegar nauðsynlegar lagfæringar
hafa farið fram. — Sv. P.
Hingað hafa komið margir
náttúruskoðendur og ljósmyndar
ar, innlendir og erlendir, vegna
eldgossins. Kjartan Ó. Bjarna-
son var hér í dag og gær með
kvikmynd sína, „Eyjar við ís-
land“. Nú getur hann bætt við
15. eynni við Vestmannaeyjar.
— Sigurgeir. |,'
Tveir dreng-
ir í lífs-
hættu
AKUREYRI, 20. nóv.
TVEIR drengir, 3ja og 5 ára,
voru mjög hætt komnir í morg-
un, er þeir voru að leika sér á
sleðum og höfðu nær orðið und-
ir dráttarvél.
Óhappið vildi til á mótum
Hrafnagilsstrætis og Byggðaveg-
ar. Drengirnir renndu sér i\' ur
Hrafnagilsstræti, er dráttarvél
var ekið aftur á bak inn í götuna
til þess að snúa við. Snarstanz-
aði ökumaður, er hann heyrðl
hljóðin í drengjunum. Lá þá
yngri drengurinn fast við aftur-
hjólið, og munaði ekki hárs-
breidd, að það færi yfir hann.
Sá eldri hafði fleygt sér af sleða
sínum, er hann sá, hvað verða
vildi, n sleðinn rann áfram,
lenti undir dráttarvélinni og
brotnaði mélinu smærra. Má
stórmildi heita, að hér varð ekki
alvarlegt slys, enda skall hurð
nærri hælum. — Sv. P.
Stormur
var á miðum
Akranesi, 20. nóv.: —
Austanstorm gerði á miðunum I
nótt og snerist í suðaustan, er
leið á nóttina. Allir bátar komu
heim, nema Höfrungur II., sem
lagðist undir Jökli. Allir síldar-
bátar voru farnir á veiðar kL
13—14 í dag.
Ms. Langjökull lestar frosna
síld hér í dag. Ms. Tungufoss
kom kl. 18 í kvöld með sements-
poka í tugþúsundatali og fleiri
vörur til sementsverksmiðjunn
ar. Að lokinni affermingu lestar
hann 200 tonn af sementi og flyt
ur á Norðurlandshafnir. — Oddur
Svertingjar
hingað?
SÚ hugmynd hefur komið
fram á Jamaica í Vestur
Indíum, að svertingjar,
sem búa þar við mikil land
þrengsli, flytjist í stórum
stíl til Norðurlanda, og er
!ísland einkum nefnt í því^
sambandi. Kostir íslands í
augum svertingjanna eru
þeir, að landið sé að mestu
óbyggt, ráði yfir miklum,
ónýttum orkulindum, og
íbúarnir séu ekki haldnir
kynþáttafordómum. Virð-
ist afstaða Norðurlanda á
alþjóðavettvangi til kyn-
þáttavandamálsins eiga
þátt í því, að þessi hug-
mynd er fram komin. —
Sjá Velvakanda í dag.
1