Morgunblaðið - 23.11.1963, Side 1

Morgunblaðið - 23.11.1963, Side 1
24 siðu? 50 árgangur 251. tbl. — Laugardagur 23. nóvember 1963 Prentsmiðja Morjrmblaðsins Óþekktur maður (sennilega Öryggisvörður) stekkur upp á bifreið Kennedys, forseta, augnabli'.d eftir, að hann hefur orðið fyrir skoti árásarmannsins. Jaqueline Kennedy greip um höfuff manns síns. Hún beygir sig yfir hann, er myndin var tekin — Símamynd frá AP Skotinn úr launsátri í Dallas Johnson 36. forseti Bandaríkjanna - hefur svarið embættiseið SÁ HÖRMULEGI atburður gerðist í Bandaríkjunum í gær, að John F. Kenne- dy, forseti Bandaríkjanna var skotinn til bana í borginni Dallas í Texasríki. Fyrstu áreiðanlegu fréttirnar, sem Morgunblaðinu bárust um morðið komu frá AP-fréttastofunni um sexleytið síðdegis í gær eftir íslenzkum tíma. í frétta- skeytinu stendur: „Kennedy forseti og Connally frá Texas voru skotnir úr launsátri á föstudag. Ekki er vitað hvort þeir hlutu af bana“. Nokkru síðar skýrði fréttastofan frá því að forseti Bandaríkjanna væri látinn. Orðrétt stóð í fréttaskeytinu: „Kennedy hlaut augsýnilega skot í höf- uðið. Hann féll fram á andlitið í aftursæti bifreiðar sinnar, blóð var á höfði hans. Frú Kennedy hrópaði „Ó, nei“, og reyndi að lyfta höfði hans“. Bandaríska útvarpsstöðin Voice of America skýrði þegar í stað frá hinum sorglega atburði, en af þeim upplýsingum, sem hún gat aflað sér, kom greini- lega fram hversu erfitt var um vik fyrsta hálftímann að fá góðar upplýs- ingar um það sem gerzt hafði. Fréttastofan skýrði frá því, að Kennedy lifði, þó hann væri mjög mikið særður. Um hálf sjö leytið eftir íslenzkum tíma skýrði Voice of Amerca frá því, að forseti Bandaríkjanna væri látinn. Síðan voru þessi orð endurtekin, en nokkru síðar sagði þulurinn, að óstaðfestar fregnir hermdu, að hann væri enn á lífi. Nokkru síðar kom svo fyrsta áreiðan- lega fregnin í útvarpinu um lát forsetans: hann hafði látizt af skotsári á höfði rétt um sexleytið eftir íslenzkum tíma, eða um 35 mínútum eftir að morð inginn hafði skotið á hann úr launsátri sínu. f fréttastofufregnum í nótt er frá því skýrt, að augljóst sé að morðið a Kenndy hafi verið mjög vel skiplagt. — Nokkrir menn hafa verið handteknir og mun grunur leika á því að einn þeirra, Lee Harvey Oswald, hafi átt þátt í morðinu. Hann er Banda- ríkjamaður, giftur rússneskri konu. Hefur hann skýrt frá því, að hann hafi fyrir f jórum árum beðið um rússneskan ríkishorgararétt. Ekki hefur Oswald viljað viðurkenna, að hann hafi átt neinn þátt í ó- dæðinu. Annars staðar í blað- inu í dag er nánar sagt frá manni þessum. Vitni segjast hafa heyrt þrjú skot. Tvö þeirra munu hafa hitt forsetann, annað í höfuðið, hitt í hálsinn. Þriðja skotið særði John B. Conn- ally, ríkisstjóra í Texas, hættu lega, en hann sat í bíl forset- ans. Áhorfendur urðu þrumu lostnir, þegar þeir sáu hvað gerzt hafði. Sumir leituðu skjóls í örvílnan, enda óttuð- ust þeir meiri skothríð. Jack Bell, fréttamaður AP, lýsir því þegar hann sá forsetann í bílnum fyrir utan inngang spítalans, þar sem hann lézt nokkru síðar. Segir fréttamað urinn, að hann hafi legið hreyfingarlaus í aftursæti bif reiðarinnar, en ekki hefði sézt blóð á fötum hans. Aftur Framh. á bls. 3 | Sjá fleiri myndir á ! síðu 3, og baksíðu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.