Morgunblaðið - 30.11.1963, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.11.1963, Blaðsíða 1
24 siður og * esbök 50 árgangur 257. tbl. — Laugardagur 30. nóvember 1963 Prentsmiðja Morgunblaðsins I samræmi við niðurstöður fiskimála- ráðstefnunnar? London 29. nóv. AP-NTB. AREIÐANLEGAR heimildir innan brezku stjórnarinnar hermdu í dag, að Bretar hygð ust færa út landhelgi sína og fiskveiðilögsögu, en brezka stjórnin hefði enn ekki ákveð ið hvenær eða hve mikil út- færzlan yrði. Talið er að Bretar kunni að taka ákvörð- un um þetta með tilliti til umræðna og hugsanlegs samkomulags um útfærslu landhelginnar á fiskimála- ráðstefnu 16 þjóða, sem hefst í London n.k. þriðju- dag. Óeirðir í París 200 stúdentar handteknir París, 29. nóv. NTB-AP. TIL ÓEIRÐA kom í dag í París milli lögreglunnar og stúdenta, sem fóru hópgöngu til þess að mótn'.æla hve litlu fé stjórnin verði til stækkunar háskólanna í landinu. Lögreglan hafði bannað hóp- göngu stúdentanna og reyndi að stöðva þá. Hófu stúdentarnir grjótkast, en lögreglan notaði samanvafðar kápur sínar sem barefli. Síðan sprautaði lögregl- an vatni á stúdentana og tókst með þvi að dreifa þeim. Lögregilan handtók 200 stú- denta, en flutti fjölda þeirra heim til sín í lögregluibifreiðuim. Um 10 þúsund stúdentar tóku þátt í mótmælaaðgerðunum. Báru þeir spjöld með elagorðum t.d. „Byggið fyrkflestrasaii í stað faiibyssna.“ Lögregiulþjónarnir, sem unnu að dreifingu mannfjöldans, voru um 2000, en einnig hélt lögregl- an strangan vörð við kennslu- málaráðuneytið, en þangað var för stúdentanna heitið. Bonnsoka skothæfni Oswnlds Ef fulltrúar ráðstefnunnar verða þvi t.d. fylgjandi að Bret- ar færi fiskveiðilögsögu sína í níu míiur, er hugsanlegt að brezka etjórnin taki tillilit til þess Náist hinsvegar ékki samkomu- lag á ráðstefnunni er talið, að stjómin muni óikveða upp á eigin spýtur hve útfærsla land- helginnar verði mikil. Mun hún ef til villl fara að tillögum, sem Bandaríkin og Kanada lögðu fram á Genfarráðstefnunni 1960, en í þeim er gert róð fyrir sex rnílna landlhelgi og tólf mílna fiskveiðilögsögu. í gær skýrði Lundúnarblaðið Times frá því, að Bretar myndu taka endanlega ákvörðun um út- færslu landhelginnar áður en fiskimálaráðstefnan hæfist og gera grein fyrir ákvörðuninni á ráðstefnunni. Talsmaður utan- ríkisráðuneytisins bar þessa fregn til baka í dag og sagði, að hún væri ekki á rökum reist Talsmaðurinn benti 'hinsvegar á að svigrúm brezkra sjómanna við veiðar hefði minnkað á und- anförnum árum vegna útfærsilu fiskveiðilögsögu Dana, Norð- manna og íslendinga og einnig Framh. á bls. 2. EINS og skýrt hefur vcrið frá i frettum mmntust íbuar Vestur Berlínar Kennedys forseía daginn sem útför hans fór fram, með því að gefa torginu við ráðhús borgarinnar nafn hins láltna leið- toga. Er mynd þessi tekin þegar verið var að afhjúpa nafnskiltið á torginu. Voru um 250 þús. Berlínarbúar viðstaddir athöfnina. Færa Bretar út landhelgi sína Árangurslausar viðræöur Sovét- ríkjanna og USA um hveitikaup p Dallas 29. nóv. (NTB-AP). í DAG var skýrt frá því í Was- hington, að Lyndon B. Johnson, forseti Bandaríkjanna, hefði á- kveðið að setja á fót nefnd, sem ynni úr rannsóknum ríkislögregl unnar, F.B.I. og bandarísku leyniþjónustunnar, C.I.A. á morði Kennedys Bandaríkja- forseta. í dag skýrði talsmaður F.B.f. frá því að lögreglan ynni nú að rannsókn á því, hvort Oswald hefði æft skotfimi sina með riffl inum, sem talið er að notaður hafi verið til þess að skjóta for- 6etann. Sérfræðingar segja, að hafi Oswald getað skotið þrem- ur skotum úr byssunni á nokkr- um mínútum, hljóti hann að hafa verið framúrskarandi skytta í góðri þjálfun. Á árbökkum, engjum og í skógum í grennd við Dallas hafa starfsmenn F.B.Í. fundið sund- urskotnar dósir og skotskífur og vinna nú að rannsókn á því, hvort Oswald hafi notað eitt- hvað af þessum hlutum við skot æfingar. Nefndin, sem Johnson forseti hyggst setja á fót, verður skip- uð fulltrúum úr báðum deildum Bandaríkjaþings og er rannsókn morðs Kcnnedys lýkur mun hún gefa skýrslu um atburðinn. Washington 29. nóv. NTB. STARFSIVIAÐUR sovézka sendi- ráðsins í Washington skýrði frá því í dag, að tvær sendinefndir frá Sovétríkjunum hefðu haldið heimleiðis frá Bandaríkjunum eftir að hafa rætt um hveiti- kaup við bandaríska fulltrúa. Starfsmaðurinn sagði að sam- komulag hefði ekki náðst. Sem kunnugt er hafa Banda- ríkin og Sovétríkin samið um grundvallaratriði sölu á banda- rísku korni til Sovétríkjanna fyrir hundruð milljóna dollara. Sovézk nefnd undir forsæti Borisovs, aðstoðarutanríkisverzl- Silberbauer segir frá handtöku Önnu Frank Amsterdam 29. nóv. NTB. LÖGREGLUMAÐURINN Karl Silberbauer, sem jatað hefur þátttöku í handtöku Önnu Frank og fjölskyldu hennar, skýrði í dag frá at- burðinum í hollenzka bl iðinu „Haag Post“. Hann segir m. a., að' Frankfjölskyldan hefði ekki verið handtekin, hefði hún ekki farið í felur. Einnig segist hann undrandi á því, að Anna Frank hafi rilað í dagbók sína, að Gyðingar væru teknir af lifi í gasklef- um, því að þegar hún var handtekin hafi enginn vitað um það. Rannsókn íer nú fram á starfsemi Silberbauers á stríðs árunum. Er það innanríkis- ráðuneyti Austurríkis, sem að rannsókninni stendur, en Sil- berbauer starfaði sem lög- regluþjónn í Vín. í viðtalinu við „Haag Post“ segir Silbebauer, að Gestapo hafi flutt hann frá Vín til Amsterdam 1943, árið áður en Frankfjölskyldan var handtekin. Það hefði verið á fögrum sunnudegi í ágúst árið eftir, sem hringt var til hans og honúm skýrt frá þvi, að Gyðingar hefðu fahð sig í húsi einu í Prinsengracht. — Eftir að þessar uppivsmgar bárust, sagðist Silberbauer hafa gert höfuðstöðvum Gestapo í Hollandi aðvart og átta hollenzkir Gestapomenn hefðu verið sendir á sLaðinn ásamt honum. Silberbauer segir, að allt hafi komizt í uppnám í litla kvistherberg- inu, þegar þeir fundu fjöl- skylduna. Menn hefðu hlaup- ið fram og aftur og reynt að pakka eigum sínum niður i Framh. á bls. 2. unarmálaráðherra Sovétríkj- anna, hélt frá Washington i gær eftir sex vikna órangurslausar viðræður. Ekki hefur verið skýrt frá því að viðræður hefði verið teknar upp á ný. Haft var eftir áreiðaniegum heimildum í Washington, að við- ræðurnar um hveitikaupin hafi strandað á kröfu Bandaríkja- manna um að bandarísk skip flytji helming hveitisins til Sovétrikjanna. Bandarískir skipa eigendur krefjast hærra flutn- ingsgjalds, en skipaeigendur í öðrum löndum. Heimildirnar herma ennfrem- ur, að samkomulag ríki um greiðslu á korninu, því að Rúss- ar séu fúsir að greiða það út í hönd, ef nauðsyn krefji. Kirkjuþing- inu frestað Vatikaninu, 29. nóv, (NTB-AP) í DAG skýrði Pericle Felici erkibiskup, frá því, að Kirkju þinginu í Róm yrði frestað þar til næsta haust. Myndi það koma saman í þriðja sinn rr.'lli 14. sept. og 20. nóv. 1964. Síðasti fundur þingsins a'ð þessu sinni verður haldinn n.k. mið'vikudag. Síðustu dag- ana verður kosið í nefndir, sem starfa eiga þar til þingið kemur saman á ný. Verjandi Rubys vill frestun réttarhalda Dallas 29. nóv. (NTB). TOM Howard, lögfræðingur, verjandi Jacks Ruby, hefur skýrt frá því að hann muni reyna að fá réttarhöldunum yfir skjólstæð ingi sínum frestað, en ákveðið hefur verið að réttarhöldin hefj- ist 9. des. n.k. Howard skýrði frá því í dag, að hann myndi láta geðlækni rannsaka Rufoy og byggja síðan vörn sína á því að Ruby hefði ekki verið heill á sönsum, er hann skaut Lee H. Oswald. Howard hefur neitað því að hann þekkti fjölskylduna, sem Oswald leigði hjá i Dallas, en því hefur verið haldið fram. Einnig hefur því verið haldið að Ruby og Oswald hafi verið kunn ugir. Howard lögfræðingur er mjög þekktur verjandi og honum hef- ur tekizt að fá sýknaða marga skjólstæðinga sína, sem ákærðir hafa verið fyrir morð. Hann skýrði frá því í dag, að fjár- hagur Jacks Ruby væri nú mjög bágborinn vegna þess hve lítil aðsókn hefði verið að nætur- klúbbum í Dallas frá því að Kennedy var myrtur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.