Morgunblaðið - 07.12.1963, Page 24
SBI fERBAÞJÖNUSTA OB
M FARMIDASALA
«« AN AIIKACJAIDS
loimd^leiðir
Leikur að mannslíf-
um okkur framandi
— segir Pétur Sigurðsson forstjóri
Landhelgisgæzlunnar
ÝMSIR hafa verið að. velta
því fyrir sér, hvers vegna
Landhelgisgæzlan hafi ekki
sett menn í land á nýju eyj-
una til að tryggja, að ís-
lendingar yrðu fyrstir til þess
enda hafi hún til þess allan
nauðsynlegan útbúnað. Morg-
unblaðið sneri sér í gær til
Péturs Sigurðssonar, forstjóra
Landhelgisgæzlunnar, og
hafði hann eftirfarandi að
segja um þetta mál:
„I»að kom aldrei til mála af
okkar hálfu að setja menn á
land á þessa eyju á meðan við
töldum slíkt lífshættulegt
og enga raunverulega þýð-
ingu hafa.
Þeir, sem starfa hjá Land-
helgisgæzlunni, þurfa svo oft
að leggja sig fram við bjarg-
anir og önnur lífshættuleg
störf, að slíkur leikur að
mannslífum er okkur fram-
andi.“.
Fyrstu kandidatarnir
frá vígslu séra Bjarna
A NÆSTUNNI verða tveir guð-
fræðikandidatar vígðir ti'l prests-
embættis í Reykjavík, innan þjóð
kjrkjunnar. Eru þeir hinir fyrstu
kantidatar í rú>ma hálfa öld, sem
vígðir verða til þjóðkirkjusafn-
aða í höfuðborginni. Þ-að hefur
eklki gerzt frá því árið 1910, þeg-
ar Bjarni Jónsson, cand. theol.,
var vigður til dómkirkjusafnað-
arins.
Kandidatarnir eru Felix Ólafs-
son í Grensásprestakalli og Frank
M. Haildórssom í NesprestakaJli.
Þjóðki rk j uprestar í Reykjavík
eru nú 15 talsins, en eftir að séra
Bjarni hafði tekið við embætti
árið 1910 voru þeir aðeins tveir.
Guðfræðikandidatar hafa á
fyrrgreindu tímabili verið vígðir
til safnaða í Rvík utan þjóð-
kirkjunnar. Má þar nefna séra
Áma Sigurðsson og séra Emil
Björnsson.
Frakkarnir brjóta saman bátinn sinn í Vestmann aeyjum, eftir að hafa siglt honum út í nýju eyj-
una. Þeir eru: Philip Laffon, Pierre Mazaud og Gerard Gery,
w «««. ciu. i iiiup uaiivu, a iciic iuamuu uciaiu viciy•
1 Frönsku ofurhugarnir sluppu
naumlega undan gosi
Sjór fellur ekki
lengu
r mn um
skarðið í eyjuna
VARÐSKIPIÐ Albert,sem hefur
verið við gosstöðvarnar, hefur
tilkynnt, að eyjan sé nú um 890
metra á lengd og um 120 metra
á hæð, þar sem hún er hæst.
Þá segja varðskípsmenn, að
skarðið í eyjuna hafi fyllzt upp
og falli því ekki lengur sjór þar
inn.
Leiðangurinn kostaði ca. 875 þús. kr.
FRAKKARNIR þrír, sem
fyrstir urðu til að stíga á
land á nýju eyjunni við ís-
land, eins og sagt er frá á
forsíðu, eru engir viðvan-
ingar í hættulegum ferð-
um. Enda ætluðu þeir að
stíga þar á land í gær, hvort
sem þar væri fullt gos eða
ekki, en þá hefðu þeir ekki
dvalizt þar stundinni leng-
ur, segja þeir. Þeir voru sér
staklega vel útbúnir í slíka
ferð, enda kostar ferðin 875
þús. kr.
Gerard Gery er það sem
þeir hjá stórblaðinu París
Match kalla „sjokkfréttarit-
ari“, en þeir annast skyndi-
ferðir upa víða veröld til að
ná í efni og er þá engin hætta
svo mikil að hún sé ekki tek-
in til að ná myndum, sem önn
ur blöð hafa ekiki. Han var
með fyrsta flokknum, sem
steig á land á nýju goseyjunni
við Azoreyjar fyrir nokkrum
árum. — Gosið og eyjan þar
voru nákvæmlega eins, eyjan
af svipaðri stærð og hún
stendur enn, segir hann.
Hann tók með sér í leiðang-
urinn tvo fræga fjallamenn,
þá Philip Laffon og Pierre
Mazaud, sem er dómari í Par-
ís. Sá síðarnefndi var í
leiðangrinum með ítalska
fjallamanninum Bonatty, sem
fórst ásamt tveimur öðrum
við að klifa Alpatind árið
1961. Mazaud var einn af
þremur sem bjargað var, eft-
ir að þeir höfðu legið á sillu
í hengiflugi marga daga. Þá
fylgdist allur heimurinn með
frækilegri björgun á þessum
þremur mönnum og feikilegri
hreysti; þeirra sjálfra. Var
Gery í björgunarleiðangrin-
um og skrifaði um hann og
birti myndir í París Match.
Þeir félagar vóru að koma
úr leiðangrinum út í eyjuna
og skola allan farangurinn,
sem var svartur af öskuryki,
þegar fréttamenn Mbl. komu
til Eyja til að ná tali af þeim.
Sjálfir voru þeir krimóttir í
framan og rennandi blautir í
fæturna. Gery sagði að ljós-
myndatækin sín væru ónýt,
þau hefðu rennblotnað í sjó,
þegar þeir félagar forðuðu sér
undan gosinu, sem dundi á
þeim.
— Það er mikið tap?
— Ja, á eitthvað á 5. hundr-
að þús. kr. En það er ekki
mitt tap, heldur blaðsins.
Ákveðið að stíga á land,
gos eða ekki gos.
Gery segir okikur frá því að
eftir að París Match sendi
ijósmyndara og birti stórkost-
legar myndir af gosinu fyrir
hálfum mánuði, var ákveðið
að fara og stíga á land. Þar
sem Gary hafði reynzlu í að
komast á land í eldfjallaeyju
var hann valinn. — Við viss-
um ekkert um aðstæður, segir
hann, og enginn okikar hefur
neinar reynslu á sjó, nema
hvað ég hefi verið svolítið
með neðansjávarrannsakar-
anum Cousteau í Suðurhöf-
um. Enda reyndist mesta
vandamálið að taka land og
komast út aftur nógu fljótt.
Gery valdi því með sér tvo
menn, sem eru vanir harðrétti
og hættum, eins og hann orð-
Framhald á bls. 23
Almannabætur í Reykjavík
um 44 milljónir í desember
15^0 hækkun frd 1. júlí - bótagreiðslur nú
um 907® hærri en mdnaðargreiðslur eru
ALÞINGI hefur samþykkt
15% hækkun á almannatrygg-
ingum og gildir hækkunin frá
1. júlí 1963. Bótagreiðslur
hækka á öllu landinu um 27.8
milljónir króna fyrir tímabil-
ið frá 1. júlí til áramóta. Hjá
Tryggingarstofnun ríkisins
falla til greiðslu í desember
um 44 milljónir króna, að
hækkuninni viðbættri.
Eftir helgina verður byrjað að
borga út bæturnar í Reykjavík og
verður ellilífeyrir borgaður út
nk. mánudag, örorkubætur nk.
fimmtudag og barnalífeyrir nk.
föstudag. Síðar verður auglýst,
hvenær fjölskyldubætur verða
borgaðar út, en ætlunin er að
flýta því um nokkra daga.
Nú í desember fá bótaþegar
greidda hækkunina frá 1. júlí og
lætur nærri að það, sem útborgað
verður nú, sé um 90% hærra en
mánaðargreiðslurnar annars eru.
Sem dæmi má nefna, að hjón
fá nú í ellilífeyri greiddar 5.201
krónu, en mánaðargreiðslan er
annars 2.735 krónur, einstakling-
ur 2.938 krónur en annars 1515
krónur og barnalífeyrisgreiðsla
verður 1.350 krónur en er ann-
ars 710 krónur á mánuði.
Fjölskyldubætur hækka ekki
að þessu sinni. í stað þess hefur
ríkisstjórnin á prjónunum hækk-
un á fjölskyldufrádr=etti til
skatts og útsvars.
Austur-þýzkir verðir
skjóta vestur-þýzkan
verkamann
Liibeck, 6. des. — NTB
AUSTUR-ÞÝZKIR landamæra-
verðir skutu í dag til bana verka-
mann frá Hamborg, Werner-
Hans Pierck. Gerðist það á mörk-
um Austur- og Vestur-Þýzka-
lands, nálægt. Lubeck. Það var
austur-þýzka fréttastofan ADN,
sem skýrði frá þessu í dag.
Vestur-þýzkur tollvörður hef-
ur skýrt frá því, að Pierck hafi
ætlað austur yfir landamærin. —
Eftir stutta vegabréfaskoðun hafi
landamæraverðirnir gefið hon-
um leyfi til að fara yfir og tveir
austur-þýzkir hermenn fylgt hon-
um yfir svæði þar sem jarð-
sprengjum hefur verið komið
fyrir. Skömmu síðar hafi tveir
landamæraverðir komið akandi I
bifreið og skotið á Pierck úr vél-
byssum, þó að hann hafi ekki
gert tilraun til flótta.
Hvatarfundur á
mánudag
HVÖT, Öjálístæðiskvennafé-
lagið, heldur jólafund á mánu-
dagskvöld í Sjálfstæðishúsinu kl.
8.30. Guðrún Aradóttir og Anna
Guðmundsdóttir lesa upp og
Þuríður Pálsdóttir syngur ein-
söng við undirleik Jónmnar Við
ar. Allar sjálfstæðiskonur vel-
komnar meðan hxisrúm leyfir.