Morgunblaðið - 07.12.1963, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 07.12.1963, Qupperneq 24
SBI fERBAÞJÖNUSTA OB M FARMIDASALA «« AN AIIKACJAIDS loimd^leiðir Leikur að mannslíf- um okkur framandi — segir Pétur Sigurðsson forstjóri Landhelgisgæzlunnar ÝMSIR hafa verið að. velta því fyrir sér, hvers vegna Landhelgisgæzlan hafi ekki sett menn í land á nýju eyj- una til að tryggja, að ís- lendingar yrðu fyrstir til þess enda hafi hún til þess allan nauðsynlegan útbúnað. Morg- unblaðið sneri sér í gær til Péturs Sigurðssonar, forstjóra Landhelgisgæzlunnar, og hafði hann eftirfarandi að segja um þetta mál: „I»að kom aldrei til mála af okkar hálfu að setja menn á land á þessa eyju á meðan við töldum slíkt lífshættulegt og enga raunverulega þýð- ingu hafa. Þeir, sem starfa hjá Land- helgisgæzlunni, þurfa svo oft að leggja sig fram við bjarg- anir og önnur lífshættuleg störf, að slíkur leikur að mannslífum er okkur fram- andi.“. Fyrstu kandidatarnir frá vígslu séra Bjarna A NÆSTUNNI verða tveir guð- fræðikandidatar vígðir ti'l prests- embættis í Reykjavík, innan þjóð kjrkjunnar. Eru þeir hinir fyrstu kantidatar í rú>ma hálfa öld, sem vígðir verða til þjóðkirkjusafn- aða í höfuðborginni. Þ-að hefur eklki gerzt frá því árið 1910, þeg- ar Bjarni Jónsson, cand. theol., var vigður til dómkirkjusafnað- arins. Kandidatarnir eru Felix Ólafs- son í Grensásprestakalli og Frank M. Haildórssom í NesprestakaJli. Þjóðki rk j uprestar í Reykjavík eru nú 15 talsins, en eftir að séra Bjarni hafði tekið við embætti árið 1910 voru þeir aðeins tveir. Guðfræðikandidatar hafa á fyrrgreindu tímabili verið vígðir til safnaða í Rvík utan þjóð- kirkjunnar. Má þar nefna séra Áma Sigurðsson og séra Emil Björnsson. Frakkarnir brjóta saman bátinn sinn í Vestmann aeyjum, eftir að hafa siglt honum út í nýju eyj- una. Þeir eru: Philip Laffon, Pierre Mazaud og Gerard Gery, w «««. ciu. i iiiup uaiivu, a iciic iuamuu uciaiu viciy• 1 Frönsku ofurhugarnir sluppu naumlega undan gosi Sjór fellur ekki lengu r mn um skarðið í eyjuna VARÐSKIPIÐ Albert,sem hefur verið við gosstöðvarnar, hefur tilkynnt, að eyjan sé nú um 890 metra á lengd og um 120 metra á hæð, þar sem hún er hæst. Þá segja varðskípsmenn, að skarðið í eyjuna hafi fyllzt upp og falli því ekki lengur sjór þar inn. Leiðangurinn kostaði ca. 875 þús. kr. FRAKKARNIR þrír, sem fyrstir urðu til að stíga á land á nýju eyjunni við ís- land, eins og sagt er frá á forsíðu, eru engir viðvan- ingar í hættulegum ferð- um. Enda ætluðu þeir að stíga þar á land í gær, hvort sem þar væri fullt gos eða ekki, en þá hefðu þeir ekki dvalizt þar stundinni leng- ur, segja þeir. Þeir voru sér staklega vel útbúnir í slíka ferð, enda kostar ferðin 875 þús. kr. Gerard Gery er það sem þeir hjá stórblaðinu París Match kalla „sjokkfréttarit- ari“, en þeir annast skyndi- ferðir upa víða veröld til að ná í efni og er þá engin hætta svo mikil að hún sé ekki tek- in til að ná myndum, sem önn ur blöð hafa ekiki. Han var með fyrsta flokknum, sem steig á land á nýju goseyjunni við Azoreyjar fyrir nokkrum árum. — Gosið og eyjan þar voru nákvæmlega eins, eyjan af svipaðri stærð og hún stendur enn, segir hann. Hann tók með sér í leiðang- urinn tvo fræga fjallamenn, þá Philip Laffon og Pierre Mazaud, sem er dómari í Par- ís. Sá síðarnefndi var í leiðangrinum með ítalska fjallamanninum Bonatty, sem fórst ásamt tveimur öðrum við að klifa Alpatind árið 1961. Mazaud var einn af þremur sem bjargað var, eft- ir að þeir höfðu legið á sillu í hengiflugi marga daga. Þá fylgdist allur heimurinn með frækilegri björgun á þessum þremur mönnum og feikilegri hreysti; þeirra sjálfra. Var Gery í björgunarleiðangrin- um og skrifaði um hann og birti myndir í París Match. Þeir félagar vóru að koma úr leiðangrinum út í eyjuna og skola allan farangurinn, sem var svartur af öskuryki, þegar fréttamenn Mbl. komu til Eyja til að ná tali af þeim. Sjálfir voru þeir krimóttir í framan og rennandi blautir í fæturna. Gery sagði að ljós- myndatækin sín væru ónýt, þau hefðu rennblotnað í sjó, þegar þeir félagar forðuðu sér undan gosinu, sem dundi á þeim. — Það er mikið tap? — Ja, á eitthvað á 5. hundr- að þús. kr. En það er ekki mitt tap, heldur blaðsins. Ákveðið að stíga á land, gos eða ekki gos. Gery segir okikur frá því að eftir að París Match sendi ijósmyndara og birti stórkost- legar myndir af gosinu fyrir hálfum mánuði, var ákveðið að fara og stíga á land. Þar sem Gary hafði reynzlu í að komast á land í eldfjallaeyju var hann valinn. — Við viss- um ekkert um aðstæður, segir hann, og enginn okikar hefur neinar reynslu á sjó, nema hvað ég hefi verið svolítið með neðansjávarrannsakar- anum Cousteau í Suðurhöf- um. Enda reyndist mesta vandamálið að taka land og komast út aftur nógu fljótt. Gery valdi því með sér tvo menn, sem eru vanir harðrétti og hættum, eins og hann orð- Framhald á bls. 23 Almannabætur í Reykjavík um 44 milljónir í desember 15^0 hækkun frd 1. júlí - bótagreiðslur nú um 907® hærri en mdnaðargreiðslur eru ALÞINGI hefur samþykkt 15% hækkun á almannatrygg- ingum og gildir hækkunin frá 1. júlí 1963. Bótagreiðslur hækka á öllu landinu um 27.8 milljónir króna fyrir tímabil- ið frá 1. júlí til áramóta. Hjá Tryggingarstofnun ríkisins falla til greiðslu í desember um 44 milljónir króna, að hækkuninni viðbættri. Eftir helgina verður byrjað að borga út bæturnar í Reykjavík og verður ellilífeyrir borgaður út nk. mánudag, örorkubætur nk. fimmtudag og barnalífeyrir nk. föstudag. Síðar verður auglýst, hvenær fjölskyldubætur verða borgaðar út, en ætlunin er að flýta því um nokkra daga. Nú í desember fá bótaþegar greidda hækkunina frá 1. júlí og lætur nærri að það, sem útborgað verður nú, sé um 90% hærra en mánaðargreiðslurnar annars eru. Sem dæmi má nefna, að hjón fá nú í ellilífeyri greiddar 5.201 krónu, en mánaðargreiðslan er annars 2.735 krónur, einstakling- ur 2.938 krónur en annars 1515 krónur og barnalífeyrisgreiðsla verður 1.350 krónur en er ann- ars 710 krónur á mánuði. Fjölskyldubætur hækka ekki að þessu sinni. í stað þess hefur ríkisstjórnin á prjónunum hækk- un á fjölskyldufrádr=etti til skatts og útsvars. Austur-þýzkir verðir skjóta vestur-þýzkan verkamann Liibeck, 6. des. — NTB AUSTUR-ÞÝZKIR landamæra- verðir skutu í dag til bana verka- mann frá Hamborg, Werner- Hans Pierck. Gerðist það á mörk- um Austur- og Vestur-Þýzka- lands, nálægt. Lubeck. Það var austur-þýzka fréttastofan ADN, sem skýrði frá þessu í dag. Vestur-þýzkur tollvörður hef- ur skýrt frá því, að Pierck hafi ætlað austur yfir landamærin. — Eftir stutta vegabréfaskoðun hafi landamæraverðirnir gefið hon- um leyfi til að fara yfir og tveir austur-þýzkir hermenn fylgt hon- um yfir svæði þar sem jarð- sprengjum hefur verið komið fyrir. Skömmu síðar hafi tveir landamæraverðir komið akandi I bifreið og skotið á Pierck úr vél- byssum, þó að hann hafi ekki gert tilraun til flótta. Hvatarfundur á mánudag HVÖT, Öjálístæðiskvennafé- lagið, heldur jólafund á mánu- dagskvöld í Sjálfstæðishúsinu kl. 8.30. Guðrún Aradóttir og Anna Guðmundsdóttir lesa upp og Þuríður Pálsdóttir syngur ein- söng við undirleik Jónmnar Við ar. Allar sjálfstæðiskonur vel- komnar meðan hxisrúm leyfir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.