Morgunblaðið - 04.01.1964, Síða 10
10
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 4. jan. 1964
Alþjóðlega skákmótið í Reykjavík
SVO sem mönnum mun kunn
ugt af fréttum, þá er ákveðið
að halda alþjóðlegt sikákmót
hór í Reykjavík, og mun það
hefjast um miðjan þennan
mániuð. Hefur 5 erlendum
meisturum verið boðið til
þessa móts, þar af einum kven
manni, og ekki af lalkara tag-
inu, þar sem er heimameistari
kvenna. Allt hitt eru þekktir
meistarar og stórmeistarar,
þeirra á meðal Midhail Tal,
fyrrverandi heimsaneistari.
Það eru SkákS'amiband ís-
lands og Taflfélag Reykja-
víkur, sem gangast fyrir móti
þesu í félagi einkum í þeim
tilgangi að skara upp í skák-
lífi okkar og gefa meisturum
okkar tækifæri til að hljóta
staðgóða æfingu og jafnvel
vinna virðingartitda. Er- nú
komið á fjórða ár síðan hér
hefur verið haldið allþjóðlegt
skákmót, en þá var haldið hér
minningarmót um Eggert
Gilfer, og einnig tefldi Robert
Fisoher hér í smámóti um það
lesrti. En mótið, sem nú stend-
ur fyrir dyrum er eitt það
mesta, sem haldið hefur verið
hérlendis.
Mönnum til fróðleiks þá
verður vikið hér örfáum orð-
um að hverjum keppanda,
sem búizt er við að tefli á
þesu móti, og verða þá hinir
erlendu þátttakendur kynntir
fyrst lítillega:
Michail Tal, fyrrverandi
heimsmeistari, er 26 ára að
aldri, fæddur og búsettur í
Lettlandi. Hann vakti fyrst
heimsathygli árið 1957, er
hann varð efstur á skákmeist-
áramóti Sovétríkjanna, að-
eins tvítugur. Komu þau úr-
slit mjög á óvart, því þar vcw~u
margir garpar samankomnir,
en ekki þótti síður athyglis-
vert, hyernig hann aflaði sér
vinninga sinna. Skákir hans
leiftruðu flestar af því hug-
myndaflugi og sóknaroirku,
sem eru höfuðeinkenni hans
sem skákmanns. Sama ár kom
Tal hingað til lands, tefldi hér
á Heimsmeistaramóti stúdenta
1957. Mun mörgum hérlend-
um manni hann minnisstæður
síðan, enda er eitthvað sér-
kennilegt, listrænt við fas
hans allt, ekki síður en tafl-
mennsku.
1958 varð Tal aftur s(kák-
meistari Sovétríkjanna, en
sjaldgæft 'er, að sami maður
vinni þann titil tvö ár í röð.
Þótti nú sýnt, hvert hinn ungi
maður sefndi.
Á kandidatamótimi 1959
varð Tal síðan efstur, og 1960
vann hann heimsmekstaratit-
ilinn af Botvinnik. Héldu þá
margir, að hann mundi sitja
lengi að þeirri tign, slíkt veldi
sem var á honum. En Bo-
tvinnik endurheimti titilinn í
einvígi árið eftir, og vakti það
undrun margra, að „Eyjólfur
skyldi hressast“ svo fljótt.
Sumir telja að Tal haifi van-
metið gamla manninn í síðara
einvíginu.
Á kandidatamótinu í Cur-
acaO, 1962, misheppnaðist Tal
að vinna sér áskorunarrétt á
ný, enda veiktist hann meðan
á mótinu stóð, og varð að
hætta keppni. Hann náði sér
þó af þeim krankleika, og
hefur unnið margan góðan
sigur síðan.
Ég hef hér aðeins stiklað
á - stærsta sigurvinningum
hans. Það er sannarlega. mik-
ill fengur að fá hinn unga
stórmeistara hingað. Hann er
ekki síður viðfeldinn maður
í viðmóti og alþýðlegur en
mikill listamaður. Við þurfum
að visu ekki að ganga að því
gruflandi, að meisturum okk-
ar verða vinningar torsóttir
í greipar hans. Hann beifur
aldrei tapað kappskák fyrir
Islendingi, það mesta, sem
Friðrik Ólafsson hefur getað
harkað útúr honum hafa ver-
ið örfá jaifntefli en oftast hef
ur hann tapað. Við því er
ekkert að segja, enda hæpið,
að sterkari skákmaður hafi
nokkru sinni stigið á íslenzka
grund.
Scetozar Gligoric er fer-
tugur að aldri, Júgóslavi að
þjóðerni og búsettur þar.
Hann vakti fyrst verulega at-
hygli 1947, en þá vann hann
sterkt mót í Varsjá m. a. fyrir
ofan Rússana Smysloff og
Boleslavsky. Síðan hefur
hann verið í fremstu röðum
stórmeistara heiims, teflt á
kandídatamótum, alþjóðlegum
mótum, ólympíumótum svo
og á heiimavelli, en Júgóslavar
eru, sem kunnugt er ein
fremsta skákþjóð í heirni. Ár-
angrar Gligorics hafa að vísu
verið nokkuð misjafnir, enda
stíll hans kröfulharður og
óbilgjarn, en þegar honum
tekst bezt, er enginn skák-
maður í heimi óhultur fyrir
honum. Meðal þekktra fórnar-
lamba hans má nefna Petr-
hefur hann teflt mikið og tek-
ið miklum framförum. Seinni
árin hefur hann lengst af ver-
ið búsettur í Bretlandi, og
tekið þátt í fjölda skákmóta
þar með nokkuð góðum ár-
angri of og tíðurn. Wade er
vel að sér í skákbyrjunum,
hugmyndaríkur og taktiskur
Michail Tal
og þar með rétt til að skora
á heimsmeiistara kvenna, sem
var þá rússneska konan By-
kova. Síðla árs 1962 tefldu
þær svo einvígi um heims-
meistaratitilinn Bykova og
Nona. Kenndi þar skjótt afls-
rnunar, því Nona sigraði létti-
lega, hlaut 9 vinninga gegn 2.
Er það víst mesti vinninga-
munur, sem getur í heims-
meistaraeinvígi. Síðan hefur
Nona verið heiimsmeistari, og
er fremiur ólíklegt að hún
verði sigruð á næstu árum.
Nína er sóknlharður meist-
ari, vel lærð í skákfræðum og
yfirleitt harðskeytt í öllum
þáttum skáktafls. ísenzkir
skákmeisarar hafa góð efni á
að halda andlitinu, þótt þeir
kunni * að tapa fyrir þessum
heljarkvenmanni, þótt þeim
af kymferðiisástæðum kunni að
falla miður að láta heims-
meistara þennan knésetja sig.
Friðrik ætti að halda velli
gegn henni og eins togi, en
hinir reynsluminni meistarar
okikar mega sjálfsagt vara sig,
svo ekki sé meira sagt.
Robert G. Wade
osjan, núverandi heimsmeist-
ara, Tal, Fischer, Smyslofif
o. fl. o. fl. Á ýmsu hefur oltið
með Friðrik og honum, og er
ekki ólíklega til getið, að þeir
séu ámóta sterkir.
Norðmaðurinn Svein Jo-
hannessen er íslenzkum skák-
mönnum vel kunnur síðan
hann kom hingað árið 1960
og tefldi á minningarmóti um
Eggert Gilfer. Náði hann þar
4. sæti á 12 manna móti. Voru
þeir Ingi, Friðrik og Arin-
björn fyrir ofan hann. Jo-
hannessen er 25 ára að aldri,
en hefur þó þegar marga
hildi háða. Hann varð fyrstur
Norðmanna til að vinna titil-
inn „Skákmeistari Norður-
landa“, og var það árið 1961.
Átti hann þar í harðri keppni
við Inga R.
Ekki er nieinn sérstakur
„sjení“ blær yfir skákum
Johannessens og er ekki með
þeirri urnsögn varpað rýrð á
taflmennsku hans. Hún ein-
kennist fremur af heilbrigðri
skynsemi, rökvisi og hug-
kvæmri framtakssemi en yfir-
skilvitlegum léttleika kyn-
borins töframanns úr listairík-
inu. Hann mun vera í hægri
en stöðugri framför, og meist-
arar okkar skyldu fara sér
hægt í að vanmeta hann.
Nýsjálendingurinn Robcrt
Wade, sem einnig miun tefla
hér á hinu alþjóðlega móti,
hefur, eins og Johannessen og
Tal teflt hér einu sinni áður,
en það var snemma árs 1947.
Kom hann þá hingað ásamt
Kanadamanninum, Yanowsky,
stóð sig ekki sérlega vel þá,
enda ungur að árum og lítt
reyndur á þeim tíma. Síðan
Svein Johannessea
Svetozar Gligoric
skákmaður, en dálítið mis-
jafn, öryggið ekki sterkasta
hlið hans. En skákmenn okk-
ar þurfa að átta sig á því, að
hann er allur annar maður og
skæðari en þegar hann kom
hingað fyrir nærfellt 17 árum.
Wade er 42 ára að aldri.
Heimsmeistari k v e n n a ,
Nona Gaprindashvili, er að-
eins 22 ára að aldri. Hún er
frá Grúsíu Og lagði þegar í
bernsku stund á skák, með
góðum árangri sem ráða má
af því, að hún varð skák-
meistari Grúsíu í kvenna-
flokki aðeins 15 ára gömul.
Síðan hefur skákferill hennar
verið samfelld sigurganga.
Árið 1961 vann hún kandídata
mót kvenna með yfirburðum
Nona Gaprindashvili
íslenzku þátttakendumir
Sem kunnugt er munu ís-
lenzkir skákmeistarar tefla á
móti þessu, og eru það þeir
Friðrik Ólafsson, Ingi R. Jó-
hannsson, Guðmundur Pálma-
son, Arinbjörn Guðmundsson,
Igvar Ásmudsson, Freysteinn
Þorbergsson, Jón Kristinsson,
Trausti Björnsson og Magnús
Sólmundarson. Eru þetta flest
þrautreyndir meiistarar og
þekktir og skal hér að lokum
vilkið fáum orðum að hverj-
um keppanda um sig:
Friðrik Ólafsson þarf ekki
að kynna, hvorki persónu, af-
rek né stíl. Hann verður 29
ára í þesum mánuði og hefur
aldrei verið sterkari en nú.
Hann er líka að komast á
þann aldur, er skáikmenn ail-
mennt ná mestum styrkleika.
Það væri þó allmikil kröfu-
harka að gera ráð fyrir því,
að Friðrik yni mót þetta því
við ramman reip er að draga,
þar sem Tal og Gligoric eru
a. m. k. Ef til vill getur mað-
ur þó gert sér voniir um, að
Friðrik hreppi annað sætið.
Ingi R. Jóhannsson er nú 27
ára að aldri, og eru afrek hans
einnig kunnari en svo, að þau
þurfi að rekja hér. Hann hef-
ur um allangt skeið verið við-
urkenndur annar sterkasti
skákmaður okkar, og er svo
enn. Ingi hefur ekki notið
nándar nærri slíkrar þjálfun-
ar sem Friðrilk, og er því
skákstyrkleiki hans á margan
hátt - athyglisverðari. - Ingi
mun hafa fullam hug á 3.—4.
sæti á þessu móti og óeðlilegt
ef hann lendir miklu neðar.
Guðmundur Pálmason er nú
35 ára að aldri em á þeiim
aldri þótti vænlegast að verða
heimsmeistari í garnla daga.
Capablanoa, Aljechin og Euwe
voru t. d. állir nálægt þeim
aldri, er þeir urðu heims-
meistarar. Hinsvegar hefur
Guðmiundur víst aldrei sett
stefnuna á þann .itil, þótt
hann hefði þegar á unga aldri
firábæra skákhæfileika og sé
traustur skákmaður, þrátt
fyrir litla æfingu. Er erfitt að
vinna Guðmund, því hann
teflir sjaldan á tæpum vöðum
og er manna skyggnastur á
hættur straumkastsins.
Arinbjörn Guðmundsson er
31 árs að aldri, og mijög ör-
úggur skákmaður líkt og Guð-
mundur. Hann hefur framur
lítið teflt opinberlega um
skeið, en þó yfirleitt á sterk-
Um mótuim, þá hann hefur
brugðið út af reglunni. Hann
er mjög vel að sér í skák-
byrjunum ög skákfræðum al-
mennt. Arinbjörn er sérstak-
lega fimur í varnartafli, en
beitir tíðum „aggressivri“
vörn minnugur spafcmælisins:
að „sóknin er bezta vörnin”.
Ingvar Ásmundsson er 29
ára að aldri og er einn aí
hörðustu meisturum okkar í
bóikstaflegri merkingu því
miskunnarlaus harka og sig-
urvilji eru höfuðeinkenni hans
sem stoákmanns. Stundum ætl
ar hann sér ekki af og reisir
sér hurðarás um öxl en al-
gengara er þó hitt að gæfa
fylgi djörfung hjá honum.
Freysteinn Þorbergsson er
32 ára búsettur á Siglufirði.
Hann er vel lærður skákmað-
ur og víðförull stundaði meðal
annars nám í Rússlandi um
skeið. Freysteinn er kaldur
rökhygjumaðr í sfcák hefur
glöggt auga fyrir stöðubygg-
ingu en getur einnig náð
valdi á lipurri taktik, ef hann
vill það við hafa. Enginn mað
ur beitir sér af rneiri alúð en
hann á skákmóti, því kæru-
leysi er honum framandi hug-
tak í þeirri listgrein. Má
vænta sér hins bezta afi
Freysteini, ef hann er í sæmi-
legri æfingu.
Jón Kristinsson er 21 árs
að aldri og einn af efnileg-
ustu yngstu sfcákmönnum
okkar. Hann beitir hægfara
stil, sem sumum finnst minna
á Guðmund S. Guðmndissom
skákmeistara. Stíll Jóns er þó
fjölbreytilegri en Guðmundar,
Og hann mun betur að sér í
byrjunum, þótt hæpið sé, að
Jón hafi enn náð styrkleika
þessa forgengils síns.
Magnús Sólmundarson er 24
ára að aldri. Hann hefur
glöggt auga fyrir sfcák hefur
teflt mikið hraðskákir og er
skæður í þeim. í hægari sfciák-
um er hann nokkuð misjafn,
en þó í hópi þeirra yngri
meistara okkar, sem beztar
vonir gefa.
Trausti Björnsson er yngst-
ur þátttakenda á móti þesisu,
aðeins 20 ára að aldri. Eru
ekki nema um 4 ár síðan hann
hóf að tefla opiniberlega.
Trausti varð- sigurvegari á
Haustmóti Taflfélags Reykja-
vikur í haust, og vakti þá
mikla athygli með glæsilegri
og öruggri tafknennsiku. Þótti
hann því sjálflkjörinn í mót
þetta, þótt ungur sé að árum.
Eru þá fram taldir allir
væntanlegir þátttakendur á
hinu alþjóðlega sfcákmóti.
S. K.
orð lim væntanlega þátttakendur
----—-------- rl- r- ......—. — - jfataMiéhsv,taatattfiKi WMMi