Morgunblaðið - 04.01.1964, Side 16

Morgunblaðið - 04.01.1964, Side 16
16 MORGUNMAOIÐ LaUgárdagur 4. jan. 1964 Afgreiðsluborð úr eik til sölu á hagstæðu verði. H. ÓBafsson & Bernhöft símar 1-97-90. Stúlka 'óskast til afgreiðslu í sælgætis og blaðasölu þriðja hvert kvöld. Verzlunin STRAUMNES Nesvegi 33 — Sími 19832. Starfsstúlkur óskast Starfsstúlkur vantar nú þegar í eldhús Klepps- spítalans. — Upplýsingar hjá matráðskonunni í síma 38164. Reykjavík, 2. janúar 1964. Skrifstofa ríkisspítalanna. T æknif ræðingar Nokkrar stöður byggingatæknifræðinga, rafmagns- tæknifræðinga og véltæknifræðinga eru lausar til umsóknar. Laun og önnur kjör samkvæmt hinu almenna launa kerfi opinberra starfsmanna. Frekari upplýsingar um störf og kjör eru veittar hjá rafmagnsveitum ríkisins, Laugavegi 116, Reykjavík. Sími 17400. Umsóknarfrestur er til 10. janúar. — Upplýsingar um menntun og fyrri störf fylgi umsókninni. RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS. Bátur til sölu 180 tonna eikarskip með nýrri 540 ha. vél. Bátur og vél í 1. fl. standi og allur útbúnaður. Báturinn er nú á síldveiðum við Suð-vesturland. Allar nánari uppl. veitir: FASTEIGNASALA Kristjáns Eiríkssonar Sölumaður: Ólafur Asgeirsson Laugavegi 27 sími 14226 og utan skrifstófutíma 41087. Auglýsing um sérstakt innflutningsgjald af benzíni og hjólbörðum og slöngum á bifreiðar. Samkvæmt 85. gr. laga nr. 71/1963 skal frá og með 1. jan. 1964 greiða sérstakt innflutningsgjald af benzíni, og skal gjaldið nema kr. 2.77 af hverj- um lítra, Af benzínbirgðum, sem til eru i landinu nefndan dag, skal greiða samanlagt jafnhátt gjald, hvort heldur benzínið er í vörzlu eiganda eða ekki. í>ó skulu gjaldfrjálsir 300 lítrar hjá hverjum eiganda. Samkvæmt 86. gr. nefndra laga skal frá og með 1. jan. 1964 einnig greiða sérstakt innflutningsgjald af hjólbörðum og gúmmíslöngum á bifreiðar, og skal gjaldið nema kr. 9.00 af hverju kg. Af birgðum af hjólbörðum og gúmmíslöngum af bifreiðum, sem til eru í landinu sama dag, skal greiða samanlagt jafnhátt gjald. Fyrir því er hér með skorað á alla þá, sem eiga birgðir af nefndum vörum hinn 1. jan. 1964, að til- kynna lögreglustjórum, í Reykjavík tollstjóra, um birgðir sinar nefndan dag, og skal tilkynningin hafa borizt fyrir 10. jan. n.k. Fjármálaráðuneytið, 31. des. ’63. — Land og synir Framh. af bls. 17 allir góðir menn.“ „Það fór heldur ekki mikið fyrir honum látnum," svarar Einar. I En nú er hann ráðinn í að flytja suður. Hann ákveður að selja skepnurnar og jörðina. Kaupfélagsstjórinn hvetur hann til að vera kyrran, það verði ekki gengið að skuld föðurins. En ekki einu sinni þetta gefur raunveruleikanum neitt glit í augum Einars. Hann segir: „Ég hef engu að tapa þótt ég fari.“ „Það er annar hand.leggur,“ segir kaupfélagsstjórinn. Einar svarar: „Einmitt. Mér hefur stundum fundizt að vantaði annan hand- legginn á kaupfélögin, þann, sem gerði sveitirnar stórar." Svona bert og napurt er á vett- vangi þess útsýnis, sem er nú Ein ari vafalaus raunveruleiki. Hann selur allt nema snilldar- fákinn Hvíting. Sá hestur er máski í hans augum hið eina óumdeilanlega jákvæða í öllum hinum neikvæða nöturleik átt- haganna. Og hann skal ekki verða misnotaður af neinum. ] Einar skýtur hann og jarðar á J háum útsýnismel, þar sem gömlu árin höfðu verið í bernsku hans kvödd með brennum.. S-vo er það stúikan. Einar hefur ef til vill verið á verði gagnvart henni, | máski óttast undir niðri, að hún mundi reynast honum fjötur um j fót. En í sorg sinni og einmanna leik eftir föðurmissinn er öðru I máli að gegna. Þá hefur hann ' þörf fyrir hana og er ekki leng- j ur hræddur við, að hún kunni að ríða baggamuninn um að hann fari hvergi. Og þegar hún segir: „Spilltu mér,“ þá lætur hann að óskum hennar og hvöt- um sínum. Lýsingin á ástum þeirra og orðaskiptum er að sínu leyti jafnsnjöll og á við- horfi feðganna hvor til annars, og hún er bað eina í þessari bók, sem lét mig minnast Heming- ways. Einar veit, að þau orð Biblíunnar eru sígild um kon- una eins og manninn, að hún skuli yfirgefa föður og móður og búa með eiginmanni sínum. Hann leggur að henni uan þetta, og hún lofar að hitta hann í kaupstaðnum utan við gistihús- ið að morgni brottfarardagsins. Foreldrar hennar? „Þau vita að ég get ekki misst þig, elskan," segir hún. Hann: „Þú getur borið þeim kveðju mína og sagt þeim, að ég geti ekki misst þig heldur, af því þú sért jarðargróðinn." Hún: „Þau mundu ekki skilja það elskan.“ Hann: „Og segðu þeim að þess vegna verðir þú að fylgja mér.“ Hún: „Ég skal segja þeim það.“ Hann: „Segðu þeim einnig að þú sért engin og túnið og ey- lendið og þegar ég horfi á þig hafi ég það allt fyrir augunum, og fegurð þess og fjöllin þegar þau eru blá og þú sért þetta að auglýsing í stærsta og útbre .sta blaóiuu borgar sig oezt. Blorgunljlötíib JON E. AGUSTSSON malarameislan Otrateigi Allskonar malaravinna Simi 36346 hérað og þú munir fylgja mér og vera hjá mér þegar ég dey.“ Daginn eftir er uppboðið, og Einar fer um kvöldið til kaup- staðarins með hundinn hans föður síns.. Um morguninn gefur hann gistihúsráðskonunni hund- inn. Það er kamin drífa, og hann bíður og horfir út í mugguna. Það fennir á allt sem var, á bæ- inn og hlaðið heima, á nýorpið leiði föður hans, á melinn þar sem Hvitingur er grafinn. Loks kemur rútan, sem flytur hann suður. Gegnum drífuna eygir hann dökka ána sem „bugðast út hvíta breiðu eylendisins undir hólnum og veginum, sem hún hafði ekki gengið og ekki hafði verið sporaður þennan morgun. Þrátt fyrir það var hún stúlkan hans og engin nema hún, án sárs auka og óþols yfir að hafa beðið og hún héldi áfram að vera stúlkan ftans þótt aldrei kæmi slóð í þennan snjó.“ 6. Eins og ég hef áður drepið á, er þetta ekki sagan, sem menn munu hafa vænt frá Indriða, en samrt sem áður saga, sem hann varð að skrifa — og einhver hlaut að skrifa. Hann hefur lagt i hana nokkur ár ævi sinnar, lagt við hana alúð sína, borið ótta fyrir henni, svo sem æra hans gagnvart sjálfum sér og skapar- anura væri í veði. Og víst er um það, að svo mundi hafa til tek- izt um gerg hennar, að mörgum manninum muni hún geta veitt fordómalausan skilning á þjóð- félagslegum og persónulegum lífsrökum ærið marga, sem horf- ið hafa af nesjum og úr víkum og dölum, þar sem forfeður og foreldrar þraukuðu og varð- veittu neista manndóms og menn ingar, — og setzt að við mal- borna götu þéttbýlisins, veitt skilning á, að þetta fólk hafi átt úr allvöndu að ráða og að varla verði við því búizt, að þag viti vissan veg og stíg til farsællar framtíðar sér og sínum, framtíð ar traustrar og fasttimbraðrar menningar, sem orðið geti kom- andi kynslóðum vegvísir og veg arnesti. Svo læt ég hjá líða að tína til það, sem mér kynni að þykja að einbverju leyti vangert, misgert eða ofgert hjá höfundi þessarar sögu, en þegar ég hugsa til þess, að Indriði hefur skrifað bókina í hjáverkum og í skyndifríum frá öllu því argi, sem fylgir blaða- mennsku nútímanns, dettur mér í hug, hvort ekki muni nú mál til komið að láta verða af því, sem áður hefur verið stungið upp á, að þegar fram koma ótví- rætt efnilegt skáld, verði þeixn veitt um tveggja, þriggja ára skeið Mfvænleg laun, sem gefi þeim þess kost að sýna, h-vað í þeim býr — og fóru til að ryðja sér braut. Stundum væri því miður ekki slíkum skáldum til ag dreifa — og væru þá launin ekki veitt, en annars nytu þeirra eitt eða tvö skáld í einu. Guðm. Gíslason Hagalín. Vi¥m í dag Fólk af konungakyni íslendingar eru allir komnir af konungum, og vita það manna bezt sjálfir. Eftir mörg hörmung- arár hefur konungablóðið aftur það andrúmsloft, sem því hæfir og við á ný tekið upp konunglega lifnaðarhætti, en þá er vandr á höndum: ÞAÐ VANTAR HIRÐ- FÓLK OG ÞRÆLA. Nótt í vaxmyndasafninu Ef taugarnar eru slappar, þá er betra að láta þessa eiga sig. Mað- ur nokkur ákveður að dvelja um nætursakir í glæpadeild vax- myndasafn.vins og skrifa um reynslu sína. Hann fékk að reyna, að ímyndun getur stundum ordið að veruleika. Séra Snorri og kvía- hellan á Húsafelli Annálar geta um nokkra kenni- menn, sem afrenndir voru að afli, en enginn þeirra mun þó hafa staðizt snúning séra Snorra á Húsafelli. Hann hafði lika ýmis- legt fleira í fari sínu, var t.d. þekktur fyrir galdra og fjölkynngi. Grein um þennan merka kenni- mann, helluna á Húsaflli og mynd ir af bóndanum þar, þegar hann tók hana upp. Setið yfir sálarstríði Það er margt, sem kemur upp f hugann, þegar setið er yfir fólki i prófi. S.H. Jagði það á sig að sitja yfir inntöknprófum í Sam- vinnuskólann í haust, og skrifar hér hugleiðingar um þann atburð. VIKAHI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.