Morgunblaðið - 16.01.1964, Síða 18
18
MORGUNBLADID
Fimmtudagur 16. jan. 1964
Oœfður vélstjóri fœrði
Víkiug stórsigur yfir KR
VÍKINGAR og KR-ingar maett-
ust í 1. deildar keppninni í band
knattleik í fyrrakvöld. Það var
búizt við jafnri og tvísýnni bar
áttu, því KR-ingar eru ætíð
harðir í horn að taka. En leikur
inn varð nokkuð auðveld sigur-
ganga fyrir Víking og í raun-
inni varð leikurinn aldrei tví-
sýnn. Lokatalan varð 37:26 fyrir
Víking.
hann styrkti lið Víkings ótrú-
lega og laðaði félaga sína til
betri leiks. Var þessi leikur sann
arlega sigur fyrir Jóhann. Hann
skoraði 7 mörk í fyrri hálfleik
og 5 í þeim seinni eða 12 alls.
-- XXX --
í síðari hálfleik héldu Víking-
ar uppteknum hætti. Þeir höfðu
frumkvæðið í leik og forskotið
jókst smám saman. Lokastaðan
var 37:26. Víkingur skipar eftir
leikinn 3. sætið á töflunni en KR
er alls ekki úr fallhættu og má
sannarlega lærdóm af þessum
leik draga því vörn liðsins var
stórlega ábótavant.
Barizt af hörku „maður gegn
manni44 að Hálogalandi
ÁRMANN OG ÍR leiddu saman
besta sína í handknattleiksmótinu
í fyrrakvöld og varð úr tvísýnni
og skemmtilegri barátta en í flest
•um leikjum mótsins. Eftir mikl-
ar Sviptingar bvað markstöðunni
viðvíkur vann ÍR leikinn með 1
marki, 19 mörkum gegn 18. Geti
einn maður unnið handknatt-
leikskappleik þá vann Gunnlaug
ur Hjálmarsson þennan leik fyr
ir ÍR. Hann skoraði 12 mörk af
19, sem liðið gerði og var drif-
fjöður þess í leik. Ármenningar
áttu góðan leik, börðust geysi-
lega frá upphafi til loka en urðu
eigi að síður að láta í minni pok
ann.
um reyndust hin snöggu skot
Lúðvíks hættuleg ÍR-markinu.
• Spenningurinn nær hámarki.
En ÍR-ingar voru heldur
ekki á því að gefa sinn hlut.
Bræðurnir Gunnlaugur og Gylfi
skora fyrir ÍR svo staðan er
15:14 fyrir Ármann. Þá fær ÍR
dæmd 3 víti með stuttu milli-
bili á Ármann enda fengu línu
menn ÍR ekki góðar móttökur
hjá vörn Ármanns og varð Hörð
ur landliðsmaður að sæta 2 mín.
brottrekstri. Gunnlaugur skoraði
úr öllum vítaköstunum og stað-
an var 17:15 fyrir ÍR og eftir það
missti ÍR ekki forystu. Spenn-
ingurinn var samt mikill því
ekki hafði ÍR nema eins marks
forystu er dæmt var aukakast á
ÍR og merki um fullan leiktíma
gefið um leið. Varnarveggur ÍR-
inga var þéttur er kastið var
framkvæmt og I að hafnaði í varn
arveggnum — sigurinn og dýr-
mæt stig voru ÍR-inga, þrátt
fyrir hina öflugu og góðu bar-
áttu Ármanns. Dugði ekki sú
leikaðferð sem Ármann síðast
greip til „maður-á-mann“ en það
jók á spenninginn.
Gunnlaugur átti sérstakan leik
í ÍR liðinu sem fyrr segir. Einn-
ig átti Árni markvörður góðan
leik og var auk þess heppinn.
Hjá Ármann báru Hörður,
Lúðvík og Árni af.
Víkingar náðu strax í upphafi
tökum á leiknum og innan ekki
langs tíma stóð 5:1 fyrir Víking.
Þetta breyttist þó fljótt til batn
aðar fyrir KR, og komust þeir í
5:4 en síðan ekki söguna meir.
Víkingar sóttu jafnt og þétt á og
í leikhléi stóð 20:14 fyrir Vík-
inga.
-- XXX ---
Mesta athygli í liði Víkinga
vakti hinn gamalkunni kappi
þeirra Jóhann Gíslason. Hann
hefur ekki sézt á leikvellinum
fyrr í vetur, enda vélstjóri á
Gullfossi og sjaldan í höfn. En
Gylfi Hjálmarsson, IR, er hér kominn í skotfæri
inn á síðustu stundu. Vítakast, mark.
— en er grip-
VeiBimenn æfa sig
oð kasta innanhúss
Þeir halda mót og sende menn
til heimsmeistarakeppni
NÝLEGA hefur klúbburinn
byrjað innanhússæfingar sínar
aftur að loknu jólafríi, og eru
'þær eins og áður í KR-búsinu á
sunnudögum kl. 12 tiil 1. Þetta
er 6. veturinn sem klúbburinn
heldur uppi slíkum æfingum og
kennslu innanbúss. Kenndar eru
Knatt-
spyrna
í kvöld
í KVÖL.D kl. 8,15 hefst innan
húsmót Fram í knattspyrnu
en 18 lið mæta til leiks. Keppn
in er útsláttarkeppni og það
lið sem tapar leik er úr keppni
Keppninni lýkur annað kvöld.
í gær var dregið um hvaða
lið lenda saman í byrjun og
urðu úrslit dráttarins þessi:
Víkingur B — Fram A
KR A — Valur B
Þróttur A — KR B
Fram B — Þór
Víkingur A — Þróttur B
Valur A — Breiðablik A
Breiðablik B — Týr
Keflavík A — Hafnarfj. B
Hafnarfj. A — Keflavík B
iMMHMmnHiimMi
og æfðar allar tegundir af köst-
um til sportveiða og kastkeppni.
Aðalkennari er eins og áður
form. klúbbsins, Albert Erlings-
son, en hann er eini íslending-
urinn sem tekið hefur kennslu-
próf í þessari íþrótt, í Englandi
1946, og ávalt síðan kennt hér,
Ennfremur tekið þátt í 6 alþjóða
mótum í köstum. Auk hans
kenna þeir, Sverrir Elíasson og
Bjarni Karlsson, sem báðir hafa
tekið þátt í Alþjóðamótum, og
eru þekktir kastarar bæði utan-
lands og innan. Klúbburinn er
eini félagsskapurinn hér í þess-
ari iþrótt og á aðild að Alþjóða-
kastsambandinu, International
Casting Federation (ICF), sem
iheldur árleg heimsmót í köst-
um..
Á árinu sem leið hélt klúbb-
urinn 2 kastmót eins og venju-
lega, annað að vorinu, hitt seinna
á árinu, og sendi 2 menn á Heims
meistaxamótið í Núrnberg, sem
haldið var í september, með
þáttöiku nokkug á annað hundr-
að manns, frá 12 löndum auk
Bandarikj anna.
Dregið lijá bikar-
sigurvegurum
DREGIÐ hefur verið um hvaða
lönd leika saman í 8 liða úrslit-
um í keppninni um Evrópubikar
inn í knattspyrnu milli bikarsig
urvegara.
Armann náði 5-0 gegn IR
en ÍR vann leikinn 19-18
• Góð byrjun Ármanns.
Byrjunin var góð hjá Ár-
menningum og það ieit sannar-
lega ekki vel út fyrir ÍR. Ármann
skorar 3 fyrstu mörkin, Árni (2)
og Lúðvík. Þá fær ÍR vítakast
en Þorsteinn markvörður Á ver.
Ármenningar bæta svo tveim
mörkum við og staðan er 5:0.
• Mark eftir 15 mínútur.
Það er stundarfjórðungur lið
innaf leik er Gunnlaugur skorar
1 mark og bætir öðru við ör-
stuttu síðar. Og þá fyrst er eins
og ÍR-liðið vakni af dvala. Á
næstu 10 mín. jafna ÍR-ingar
léikinn svo 5 mín. fyrir hlé er
staðan 7:7. — Fyrir hlé bæta svo
bæði lið marki við. Jafntefli er
í hléi 8:8.
Ármenningar vissu til hvers
þeir voru komnir inn á völlinn.
Þeir hafa enn ekki stig hlotið
og bráðum hálfnaðir með leiki
sína í mótinu. Þeir eygðu mögu-
leika á sigri og börðust sem ljón.
Þeir héldu enn frumkvæðinu
í mörkum og komust fyrir miðj
an hálfleik í marks forskot. Eink
Á síðustu mínútu hins spennandi Ieiks Ármanns og IR. Ármann Ieikur „maður á mann“ aðferðina,
eins og vel má sjá lengst t. v. Dómarinn er tilbúinn með flautuna 'lengst t.h.) Gunnlaugur er með
knöttinn og athugar möguleikana spenntur á svip. Myndir: Sv. Þorm.
Manch. U. — Lisboa 26. febr.
og 4. eða 18. marz.
Hamburg — Olympique Lyon
19. febr. og 4. marz.
MTK Budapest — Fehnerbace
Istanbul 27. febr. og 6. marz.
Celtic — Slovan Bratislava
26. febr. og 4. marz.
Leiðrétting
DANÍEL Benjamínsson dómari 1
handknattleik hefur beðið blað-
ið að birta þá skýringu á úr-
slitum leiks Breiðabliks og Þrótt
ar í Mbl. í fyrradag, að hann
hafi ekki farið eftir markatöflu
barna, er hann taldi úrslit leiks
ins vera 14 mörk gegn 7, heldur
eftir fjórum fullorðnum mönn-
um m.a. þjálfurum beggja liða.
Viðstaddir blaðamenn sáu þó
aldrei skoruð nema 12 mörk gegn
7.
KAIRO, 15. jan.: — Arabiska
sambandslýðveldið sigraði
Uganda í knattspymukapp-
leik með 3:1 í dag. Leikurinn
var liður í undankeppni Olym
píuleikanna í Tokíó.