Morgunblaðið - 24.01.1964, Blaðsíða 3
fs 'x«p*rimB£9Myvr»>
■ >ý'--:/yy
Föetndaifur 24. ían. 1964
MQRGUNmADID
og stendur grunnt, oft eins og
í einni samfelldri torfu.
Síldin hefur ekki verið sér-
f/* NA /S hnúiar
1jASVSOhwter
H Sn/ihma
* ÚSi
17 Shirír
E Þrumur
23.1 I9Í* kl. 11
JW^
UM hádegi í gær var há-
þrýstisvæði skammt suður af
Vestmannaeyjum, aldrei þessu
vant. Vindur var á SV-svæð-
inu og 3—4 st. hiti á Vest-
fjörðum en norðanlands og
austan var NV eða N-gola,
bjart veður og 1—4 st. frost.
Yfir norðanverðu Grænlandi
er lægðardrag, sem hreyfist
mjög hratt austur eftir og
getur valdið snöggum veðra
brigðum norðanlands, meðan
það fer framhjá.
Komnvínistar fjargviðrast
einnig yfir því, að óháður dóm-
stóll hefur ákveðið fiskverð
hið sama og á síðasta ári. Segja
þeir að fiskverðið hefði átt að
hækka stórlega. En hvað hefði
hækkun fiskverðsins þýtt? Það
skilur væntanlega hver maður,
að hærra fiskverð hefði leitt til
þess, að enn frekari ráðstafanir
hefði orðið að gera til að greiða
fyrir rekstri fiskvinnslustöðva.
Hærra fiskverð hefði með öðrum
orðum þýtt aukna skattlagningu
eða þá að beinlínis hefði verið
óhjákvæmilegt að grípa til
gengisfellingar, ef fiskiðnaður
hefði ekki átt að stöðvast. Það
er ósköp þægilegt að heimta
bætt kjör öllum til handa á<n
þess að benda á hvar taka eigi
hinar auknu tekjur, en íslenzkur
almenningur er ekki jafn heiirsk
ur og kommúnistar vilja vera
iáta. Fólkið skilur fullvel að ekki
er nægilegt að gera sifellt hærri
kröfur. Það verður líka að afU
f járins..
Fiskverðið
- .. — - ''fl—- 1PBI
Vestmannaeyjum, 23. jan.
FRÁ áramótum hafa síldveið-
arnar einvörðungu verið á
austursvæðinu, nánar tiltekið
í Skeiðarárdýpi og Meðal-
landsbugt. Mjög erfitt hefur
verið að stunda veiðarnar,
vegna ógæfta. Hefur þetta
veðurlag haft í för með sér
vaxandi hættu fyrir bátaflot-
ann, þar sem svo 10 klst. sigl-
.ing er til Vestmanaeyja, sem
er næsta höfn, en óveðrið ger-
ir ekki alltaf boð á undan sér.
Afli hefur verið með ein-
dæmum góður, þegar veður
hefur verið skaplegt. Þá hafa
veiðzt jafnmörg þúsund tunn-
ur og bátafjöldinn er. oftast
um 30 til 40 þús. tunnur á 30
Síldin hífð upp á bílinn, sem flytur hana til frystihússins.
%
stök að gæðum. Fitumagn er
frá 10 til 16%. Þó hefur hún
verið nokkuð misjöfn eftir
köstum, og þess vegna tekizt
að frysta talsvert, ýmist til út-
flutnings eða beitu innan-
lands. Hafa um 1000 tonn ver-
til 40 báta. Allverulegt magn svæði og hefur veiðin gengið ið fryst til útflutnings. Verð-
síldar virðist vera á þessu greiðlega. Sildin er ekki stygg ur sú síld seld til Þýzkalands
og Póllands, og eru 350 tonn
þegar farin úr landi.
Við frystinguna er unnið
svo til samfleytt, þegar gæði
síldarinnar eru næg. Síðast-
liðinn sólarhring voru fryst
um 200 tonn. Var þá unnið á
vöktum við frystingu í Fisk-
iðjunni, en það er algert ný-
mæli á þessum tíma árs.
Um 110 þús. tunnur af síld
hafa farið í bræðslu frá ára-
mótum. Um 1000 tonn af mjöli
hafa þegar verið unnin. 400
tonn fara á morgun um borð
í skip, sem flytur það til Finn-
lands.-Bræðslan hefur gengið
betur en í meðallagi, afkast-
að um 4000 tonnum á sólar-
hring. Er það full nýting. Við-
auki sá, sem-verið er að gera
við verksmiðjuna, mun taka
til starfa í næsta mánuði.
— Sigurgeir.
Húsmæð'ur í Vestmannaeyjum taka fram vinnufötin og yfir-
gefa eldhús sín, þegar farið er að frysta síld allan sólarhring-
inn. —
Vissu hvað þeir gerðu
Því verður ekki haldið fram,
að kommúnistaleiðtogarnir hafi
ekki gert sér grein fyrir því, að
15% kauphækkanir hlutu að
leiða til einhverra gagnráðstaf-
anna. Þeim. Var fullljóst að út-
vegurinn gat ekkj borið þessa
hækkun án þess að á einhvern
hátt yrði komið til liðs við hann.
Þeir ætluðu sér helzt að knýja
fram nýja gengisfellingu, en
ríkisstjórnin hefur lýst því yfir,
að hún muni ekki grína til
þeirra ráðstafanna. Hitt er
óhjákvæmilegt að afla fjár til
að greiða þær byrðar, sem létt
er af útflutningsframleiðslunni
vegna kauphækkananna. Þær
byrðar verður þjóðin í heild að
bera. Auðvitað hefði verið miklu
æskilegra að stilla kauphækk-
unum í hóf og sjá sérstaklega
til þess að láglaunafólk fengi
kaupbætur, en þeirri leið var
hafnað og þess vegna bera þeir,
sem henni höfnuðu, ábyrgð á
afleiðingunum.
Tækifæri verkamanna
í KOSNINGUM þeim, sem franv
undan eru í launþegasamtökun-
um, fá verkamenn og aðrir lág-
launamenn tækifæri til að launa
fyrir þá ráðabreytni hinnai
kommúnisku forystu í launþega
samtökunum að koma vísvitndi
í veg fyrir raunhæfar kjara-
bætur hinna láglaunuðu og
knýja það frair., að allir fengju
sömu krónuhækkun eftir desem-
berverkföllin og þar með enginn
í raun réttri bætt kjör.
Verkamönnum stóð þá til
boða raunhæfar kjarabætur,
sem hægt var að tryggja án þess
að grípa þyrfti til sérstakra
ráðstafanna I þeim tilgangi að
koma í veg fyrir samdrátt og at-
vinnuleysi. Eins og kunnugt er
buðu vinnuveitendur lá.glauna.
fólkj 10% hækkun á dagvinnu-
kaup. Sjálfsagt hefði verið hægt
að ná einhverju meiru fram en
þessu, til dæmás 12%, ef séð
hefði verið um að laun ann-
arra hækkuðu ekki jafnmikið.
Þá hefði verið um að ræða raun-
hæfa kjarabót fyrir láglauna-
fólk, en kommúnistar höfðu ekki
áhuga á því fremur en fyrri
daginn, heldur hinu, að skapa
erfiðleika og knýja fram ráð-
stafanir, sem þeir héldu að þeir
gætu hagnzt á pólitískt.
Unnið að löndun úr Kára. — Myndin var tekin áður en ákvæði
arlagi kom til framkvæmda.
um hleðslu síldarbáta að vetr-