Morgunblaðið - 29.01.1964, Side 2
2
MORGUNBLADIÐ
Mið^ikudagur 29. jan. 1963
Lauk lögfræðiprófi með
hæstu einkunn í gær
f GÆR luku þrír lögfraeðinem
ar embættisprófi frá Háskóla
íslands, þeir Jónatan I»ór-
mundsson, Kristinn Einarsson
og Stefán Hirst. Einn þeirra,
Jónatan, hlaut hæstu einkunn,
sem gefin hefur verið við emb
ættispróf í lögfræði síðan nú-
gildandi reglugerð um laga-
nám tók gildi, samtals 240 stig,
eða 5% úr stigi hærra en próf
Þórs Vllhjálmssonar, borgar-
dómara, sem fram að þessu
hefur verið stigahæstur. —
Þess má geta að Ármann
Snævarr háskólarektor hlaut
á lagaprbfi 245 átig í jafn-
mörgum prófgreinum og nú
eru. Tók hann embættispróf
1944 í gildistöku annarrar
reglugerðar.
Blaðamaður Morgunblaðsins
átti stutt samtal við Jónatan
nokkrum mínútum eftir að
hann gekk frá prófborði.
Klukkan var þá tæplega 5.
Jónatan sagði að þetta hefði
verið strangur dagur. Fyrsta
prófið hefði byrjað kl. 9 um
morguninn, og síðan hefði
hvert rekið annað. Prófin
væru öll munnleg þennan dag,
og biði hann nú eftir úrslitum
fimmta og síðasta prófsins.
Skriflegu prófin fóru fram 11.
og 13. janúar.
Jónatan Þórmundsson.
Jónatan er fæddur í Litla-
Botni í Hvalfirði, sónur Odd-
nýjar Kristjánsdóttur og Þór-
mundar Erlingssonar, en alinn
upp í Reykjavík. Hann lauk
stúdentsprófi frá máladeild
Menntaskóla Reykjavíkur 1957
með hæstu einkunn, 9.66. —
Hann innritaðist þegar í lög-_
fræðideildina, en hefur ekki
stundað námið samfleytt, var
vetrarlangt á Ítalíu og nam
þar ítölsku og ítalskar bók-
menntir, kenndi ensku og
latínu við MR í þrjá vetur, og
fór aftur í skemmri námsferð
til Ítalíu. Jónatan kvaðst hafa
afar gaman af tungumálum og
væru þau hans tómstundagam
an.
Eftir nokkra stund kom í
Ijós að einkunn Jónatans við
síðasta prófið var 15 (hæst gef
ið 16), eða sú sama og í hinum
prófunum fjórum. Hafði hann
því fengið 45 stig yfir daginn,
og sögðu félagar hans að það
væri einsdæmi* en Jónatan
sagði, að erfitt væri um sam-
anburð, þar sem reglum um
einkunnargjöf hefði marg-
sinnis verið breytt í sögu laga-
deildarinnar.
Jónatan Þórmundsson sagði
að lokum, að hann hyggðist á
framhaldsnám í refsirélti og
tryggingarétti, en ekki væri
fullráðið hvenær hann hæfi
nám að nýju. Hefði hann í
huga að nema fyrst í Banda-
ríkjunum en síðar í Noregi eða
einhverju hinna Norðurland-
anna.
Bíllinn eftir áreksturinn.
bíður eigandans
— Ftakkör
Framhald af 1. síðu.
anríkisráðuneytið gat út eftir að
stjórn landsins hafði borizt yfir-
lýsing Pekingstjórnarinnar segir,
að við samninga um stjórnmála-
samband við Pekingstjórnina haft
Frakkar ekki tekið á sig neinar
skuldbindingar og Pekingstjórnin
hafi enga skilmála sett. IJrakkar
séu ákveðnir að halda áfram að
viðurkenma stjórn Ohiang Kai-
Cheks á Formósu og hafa stjórn-
málasamband við haria.
Formósustjórn hefur mótmælt
harðlega viðurkenningu Frakka á
Pekingstjórninni og íhugað að
slíta stjórnmálasambandi við
Frakka. Én á þingfundi í dag
lagði stjórnin fram tillögu þess
efnis að ekki yrði gripið til þess-
ara aðgerða gegn Frökkum og var
hún samþykkt.
— Sovétríkin
Framhald af 1. síðu.
lögu Sovétríkjanna væri gert
táð fyrir að ríkin legðu niður
allac herstöðvar sínar erlend-
is samtímis, en hann kvað
stjórn sina geta íallizt á, að
herstöðvarnar yrðu lagðar
niður smám saman. Sovéhrík-
in myndu t. d. byrja með að
kailla heim herlið sitt írá
Austur-Þýzkalandi gegn því
að Vesturveldin kölluðu her-
menn sína flrá Vestur-Þýzka-
landi. Einnig ræddi Zarapkin
nauðsyn þess að semja um
kjarnorkuvopnalaus svæði og
þá fynst og fremsit í Mið-
Evrópu.
Fulltrúi Breta á afvopnun-
arráðstefnunni Peter Thomas,
aðstoðarutanríkisráðhenra, —
tók til máls að ræðu Zarap-
kins lokinni. Kvaðst hann
telja það góða byrjun á al-
gjörri afvopnun að eyðileggja
sprengjuflugvélar og lýsiti
áhuga sínum á tillögum Sovét
ríkjanna.
Sjómanns saknað
AUGLÝST hefur verið eftir sjó-
manni, Jóhannesi Einarssyni,
sem ekki hefur spurzt til síðan
12. janúar. Jóhannes var af-
skráður af Andvara frá Vest-
mannaeyjum fyrir jól, en ekki
verið á ákveðnu skipi síðan. Er
talið að hann hafi sézt í Reykja-
vík 12. janúar.
Jóhannes er 33 ára gamall,
frekar lágur vexti og þrekinn og
mun hafa verið klæddur brúnni
hettuúlpu og ljósum vinnubux-
um, þegar hann sást síðast.
Kjördæmisráð
Reykjanes kjör-
dæmis
AÐALFUNDUR Kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes
kjördæmi verður haldinn þriðju
daginn 18. febrúar að Hlégarði
í Mosfellssveit og hefst 'kl. 20,30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundar
störf.
Fulltrúaráð og flokksfélög
þurfa að senda ársskýrslur til for
manns Kjördæmisráðs sem fyrst.
— Stjórnin.
f MARZMÁNUÐI sl. ók lögreglu
bifreið á bifreið Einars Ásmunds
sonar í Sindra, af gerðinni Merc-
edes Benz SL, þar sem henni var
lagt framan við húsið á Hverf-
isgötu 42, og stórskemmdist bíll
inn eins og frá var skýrt á þeim
tíma. Tryggingafélag tók bílinn
og hefur látið gera við hann og
skilaði honum nú í jknúar. Ein-
ar telur að fullnaðarviðgerð hafi
ekki farið fram, bíllinn sé ekki
jafn góður og að auki hafi við-
gerðin dregizt svo lerigi, að hann
tekur ekki við henni, telur hana
ekki lengur í sinni eign. Hann
hefur keypt annan bíl.
# Tryggingafélagið lét þá aka
bílnum á sama stað og hún var
tekin og lagði henni framan við
húsið á Hverfisgöbu 42. Þar hef-
ur hún svo staðið í 2 viikur. En
þarna fyrir framan er stöðumæi-
ir, og þar sem enginn greiðir
stöðugjald fyrir þílinn, ■ sektar
lögreglan. Og þar eð enginn tel
ur sig eiganda bílsins eru sektar
miðarnir ekki hirtir og safnast
undir þurrkurnar bunki sektar
miða ,sem smá fjúka eða rigna
brott. Þess má að lokum geta
að eina krónu skal greiða fyrir
15 mínútur frá kl. 9—6 á morgn-
ana og þar er bíllinn búinn að
standa í nær hálfan mánuð.
Wade vann
Friðrik
T 1U N D A umferð Skákitvófc*
Reykjavíkur var tefld í gær-
kvöldi. Leikar fóru svo aS W.tde
vann Friðrik, Tal vann Frey-
stein off Guðmundur vann Nonu,
en jafntefli varð hjá Johannes-
sen og Gligoric, Inga og Magnúsi.
Biðskák varð hjá Trausta og
Arinbirni og Ingvari og Jóni.
Skák Trausta og Arinbjörns er
trúlega jafntefli, en Jón á nianni
meira en Ingvar og líklega unna
skák.
Éllefta umferð verður tefld i
kvöld. Þá eigast við Tai og Nona,
Friðrik og Guðmundur, Wade og
Ingvar, Jón og Johannessen,
Giigorie og Ingi, Magnús og
Trausti og Arinbjörn og Frey-
steinn.
Ólafur Pálsson, framkvæmda-
stjóri frá Vatnsfirði áttræður í dag
SUÐVESTLÆG átt var um
allt land í gær. Vestan til
rigndá talsvert, en á Aust-
fjörðum var bjart og gott
veður, sums staðar var vægt
frost fram yfir hádegi.
Loftvog féLl stöðugt sunnan
til á Austur-Grænlandi, og
Islandi, því lægðin yfir Græn
landshafinu dýpkaði að sama
skapi og hreyfðist hægt til
aust-norðausturs. í dag mun
hún verða fyrir norðan eða
norðaustan land og valda hér
vestlægri átt með éljum og
kaldara véðrL
ÓLAFUR Pálsson framkvæmda-
stjóri frá Vatnsfirði við ísafjarð-
ardjúp á í dag áttræðisaflmæli.
Þessi heiðursmaður ber aldur
sihn vel og gengur glaður og
hress að starfi sínu, gleðst með
vinum sínum og nýtur ávaxta
lamgrar starfsævL
Óiafur Pálsson er soniur hinna
merku hjóna, frú Arndísar Pét-
ursdóttur Eggerz og séra Páls
Ólafssonar prófasts í Vatnsfirði
og á Prestsbakka. Bjuggu þau
hjón rausnarbúi og áttu fjölda
marvnvænlegra og vel gefinna
barna, sem urðu dugmikið og
gott fólk.
ólafur aflaði sér góðrar mennt
unar í æsku. Hóf hann ungur
verzlunarstörf við Djúp og á
ísafirði. Hann var einnig fram-
kvæmdastjóri Djúpbátsins í
mörg ár.
Fyrir um 20 árum fluttist hann
hingað til Reykjavíkur og tók að
leggja stund á endurskoðunar-
störf. Hefur hann ánnast . þau
sáðan og öðlast við þau traust
og vinsældir.
Ólarfur Pálsson er ágætlega
greindur maður eins og hanin á
kyn til. Framikoma hans mótast
jafnain af hógværð og góðvild.
Það er alitaf bjart yfir Ólafi
Pálssyni. Hann er drengur góð-
ur, traustur vinur vina sinna,
greiðviikinn og ljúfur í viðmóti.
Þessir eiginLeikar hans hafa alls
staðar skapað honum vinsældir.
Ólaiflur PáLsson er tvíikvæntur.
Fyrri kona hans var Ásfchildur
Sigurðardóttir, kaupmainns á
ísafirði Guðmundssonar. Áttu
þau sjö börn, sem öll eru á lífi.
Eru þau PáLl efnafræðingur, Ói-
afur gjaldikeri á ísafirðL Sigurð-
ur skrifstofumaður í Kopavogi,
Ttheodór járnsuniður á TáLkna-
firðL Arni fiskiimatsmaður 1
Keflavík, Guðbjörg husfrú i
Reykjavílk og Arndís húsfrú i
Reykjavík. Frú Ásfchiidur iézt á
bezta aldri. Var þá sár harrnur
kveðinn að eiginmanni og stór-
um barnahóp.
Síðari kona Ólafls Pálssonar er
Helga Björnsdóttir. Hafa þau áj.t
tvö börn og er annað þeirra á lífL
Ásthildur hárgreiðslumær I
Reykjavík.
Frú Helgia Björnsdóttir er hiia
ágætasta kona. Héifur hún reynzt
manni sínum hin mesta stoð í
ýmsum erfiðleikuim. Hekrújli
þeirra er hlýtt og myndarlegt,
bvort sem það stendur vestur á
Isafirði eða við Hagamel I
Reykjavík.
— Ég óska' mínum gamla vinL
Ólafi Pálssyni, innilega til ham-
ingju með áttræðisaflmælið.
Vonandi á hann eftir að njóta
margra hamingjuríkra efri ára
æeð fjölmennum hópi aflcom-
enda, frænda og vina
Heinnan úr Djúpi berast hon-
um hiýjai' kveðjur með þökkiuim
fyrir þá gömlu góðu daga, þegar
sól skein yfir Vatnsfjarðarstað
og hafrænam gáraði vikur oig
fjörðu.
S.Bj.