Morgunblaðið - 06.02.1964, Side 11

Morgunblaðið - 06.02.1964, Side 11
Fimmtudagur 6. feter. 1964 MORGU*i*l4ÐID 11 Útvarpsráð minnist Fritz Weisshappels Á FUNDI í Útvarparáði s.l. þriðjudag, miruitist formaður ráðsins, Benedikt Gröndal, Fritz Weisshappels, Benedikt fórust þannig orð: „Við andlát Fritz Weiss- happeis missti Ríkisútvarpið einn égætasta starfsmann sinn. Hafði hann unnið fyrir stofnunina imeir en aldarfjórðung og nýlega tekið við nýju ábyrgðarstarfi, er hann lézt á bezta aldri i sl. viku. Fritz Weisshappel fæddist í Vínarborg 18. júlí 1908 og ólst upp á heimili, þar sean tónlistar- gyðjan sat jafnan í öndvegi. Stundaði hann tónlistarnám að loknu stúdentsprófi, en lagði land undir fót aðeins 19 ára gam all og hélt í norðurátt. Kom hann til íslands til að leika á gistihúsi um skeið, en fékk ást é landi og þjóð og dvaldist leng- ur en ætlað var í upphafi. Weisshappel festi ekki aðeins rætur í hrjóstugum jarðvegi ís- lenzks tónlistarlífs, heldur gerð- ist ríkisborgari stofnaði farsælt heimili og eignaðist stóran hóp tryggra vina. Það er í frásögur fært, er hann ferðast til ann- arra landa með íslenzkum söng- mönnum, að þá sótti heimþrá fyrr á hann en félaga hans. Ríkisútvarpið hefur átt megin- þátt í því að færa íslendingum þá dýrmætu gjöf, sem góð tón- list er hverjum manni, er henn- ar fær notið. Hlutur Fritz Weiss happels í því starfi hefur verið mikill og verður seint fullþakk- aður. Hann sótti ekki í sviðs- Ijósið, en vann starf sitt af ein- atakri tryggð alúð og prúð- mennsku. Hann átti í ríkum mæli þá þekkingu, snilld og smekkvísi, sem verða að fylgja allri góðri list. Kom þetta jafnt fram í konsertsal með einsöngv- urum og kórum sem í hinum mikla hljómleikasal útvarpsins, þar sem öll þjóðin er viðstödd. Síðasta starf hans, framkvæmda- stjórn Sinfóníuhljómsveitar ís- lands, var að mörgu leyti þýð" ingarmest, og átti hann drjúgan þátt í sigrum hljómsveitarinnar síðustu ár. Útvarpsráð þakkar Fritz Weiss happel störf hans tryggð og vin- áttu og vottar fjölskyldu hans dýpstu samúð.“ Hundbók bænda 1964 bomin út ÚT er komin Handbók bænda 1964 hjá Búnaðarfélagi ísiands. Bókin hefst á almanaki, sem hef- ur að geyma stuttar leiðbeining- ar varðandi bústörfin. Almanak- ið er jafnframt handhægt að nota sem dagbók. Greinar eru eftir 30 höfunda í bókinni. Þær snerta nær öll svið búskapar. M. a. eru greinar um holdakjúkl- ina, illgresiseyðingu, meðferð túngrasa, tilraunastarfsemina, vélar og verkfæri, fóður og fóðr- un, mjaltabása, skógrækt, verð- lagsmálin og mjög ýtarieg grein um helztu sjúkdóma í kúm. Enn fremur er sérstakur þáttur ætl- aður garðyrkjubændum, ritaður af Óla Val Hannssyni. Þátturinn Húsfreyjan og heimilið hefur Vigdís Jónsdóttir, skólastjóri séð um, en í honum er m. a. birt grein um svefnherbergið eftir frú Kristínu Guðmundsdóttur hýbýlafræðing. Handbókin er 320 bls., bundin í þægilega plast- kápu. Ritstjóri er Agnar Guðna- son. USA viðurkennir stjórn Dahomey Washington, 1. febr. NTB # Bandarikjastjórn heifur til- kynnt, að hún hafi ákveðif að viðurkenna nýju stjórnina í Afríkuríkinu Dahomey. — Stjórnmálasambandi landanm var slitið í okióber s.L, ei Hubert Magas forseti var hral inn frá völdum. Bjarna frá Vogi reist minnismerki STJÓRN Bandalags islenzkra listamanna boðaði blaðamenn á fund sinn í gær til þess að segja frá ákvörðun sáðasta aðalfundar Bandalagsins að reisa Bjarna Jónssyni frá Vogi minnismerki. Formaður Bandaiagsins Jón Þórarinsson, tónskáld, sagði að þessi ákvörðun hefði verið gerð til að heiðrá minningu Bjarna Jónssonar frá Vogi, sem reynzt hefði ísienzkum listamönnum mikill haukur í horni, og hefði hann aldrei farið í manngreinar- álit og látið ailar greinar lista til sín taka. Sagði hann marga listamenn, sem nú væru miðaldra, vera þakkláta Bjarna og teidu haim velgerðarmann sinn. Bjarni frá Vogi var fæddur 13. október 1863, og væri mein- ingin að samkeppninni um minn- isvarða hans, sem nú yrði aug- lýst, lyki á þeim degi í haust, en þá væru 101 ár írá fæðingu hans liðin. Jón sagði, að dómnefnd til und irbúnings þessu verki væri þegar skipuð. Formaður hennar væri Björn Th. Björnsson listfræðing- ur, en aðrir í nefndinni væru sonur Bjarna frá Vogi, Jón Bjarnason hrl. og Þorvaldur Skúlason listmáiari. Björn Th. Björnsson upplýsti, að keppnin væri alveg óbundin, hvað við kæmi gerð minnismerk- isins, að öðru leyti en því, að minnismeitkinu væri ætlað að vera úti og standa í Reykjavík. Hann sagði að það myndi valda væntanlegusm keppendum erfiðleikum, að staðarval væri ekki ákveðið, svo að nefndin yrði að velja því stað síðar eftir eðli verksins. Björn sagði, að ekki væri frek ar verið að óska eftir Likneski af Bjarna, fremur en t.d. einhverju táknrænu minnismerki um starf hans, en varðandi staðarval, hefði nefndinni dottið í hug, að minnismerkið yrði á einhvem háitt tengt framtiðar Aliþingis- húsi þjóðarinnar. Upplýst var á fundinum, að engin stytta væri til af Bjarna, utan lágmynd greipt í stein i Vogi vestur í Dalasýslu. Auglýsing um samkeppniná mun birtast í dagfolöðunum ein- •hvern næstu daga. Melbourne, 1. febr. NTB. • Sjö börn biðu bana í gær, er eldur kom upp í barna- heimili í Metbourne. Tuttugu öðrum biönum var naumlega bjargað. IJTSALA - IJTSALA Stórkostleg verðlækkun á KAIÍIM/WWl (Í ilí\1 og FRÖKKUM Aðeins fáa daga — Komið tímanlega " IMotið einstakt tækifæri - AIMDERSEN & LAUTH hf. Laugavegi 39 — Vesturgötu 17

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.